Morgunblaðið - 09.06.1978, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 9, JÚNÍ 1978
Verkefni fyrir at-
vinnulausa skólaungl-
inga voru undirbúin
— segir Birgir Isleifur Gunnarssoi,
„ÞAÐ var stefna fyrrverandi
meirihluta í borgarstjórn að
leysa atvinnuvanda skólafólksins
strax upp úr mánaðamótunum
með því að hafa þá tilhúin
verkefni, jafnvel utan áætlunar,
ef með þyrfti. Ég fór þess því á
leit við borgarverkfræðing 10.
maí sl. að hann undirbyggi slík
verkefni og mér sýnist vera þörf
fyrir þau, þannig að vonandi
heldur núverandi meirihluti við
þessa stefnu,“ sagði Birgir ísleif-
ur Gunnarsson borgarfulltrúi í
samtali við Mbl. í gær.
Birgir sagði að hér væri aðallega
um jð ræða ýmis ræktunarverk-
efm víðs vegar um borgina. Birgir
sagði að nú væru á atvinnuleysis-
skrá 135 unglingar 16 ára og eldri;
86 stúlkur og 49 piltar, en í fyrra
var talan 175. A atvinnuleysisskrá
Bifhjólaslys
í GÆRMORGUN varð árekstur
milli bifhjóls og bifreiðar á
Hverfisgötu við Frakkastíg. Bif-
hjólinu var ekið austur Hverfis-
götu en bifreiðin kom upp Frakka-
stíginn á móti einstefnu. Var
henni ekið rakleitt inn á Hverfis-
götuna í veg fyrir bifhjólið og varð
árekstur ekki umflúinn. Ökumað-
ur bifhjólsins mun hafa meiðzt á
fæti við áreksturinn. Skemmdir
urðu á bæði bíl og bifhjóli.
eru 219 unglingar sem eru 15 ára
en verða 16 á þessu ári, en fjöldi
slíkra á atvinnuleysisskrá í fyrra
var 102.
Birgir sagði að nú væri búið að
ráða 608 unglinga í störf hjá
borginni á móti 578 í fyrra.
Starfsfólk
BÚH greiðir
atkvæði í dag
— fékk stuðning frá
„fyrrverandi
verkfallsmönnum”
á Selfossi
STARFSFÓLK Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar mun á fundi, sem
hefst klukkan 16 í dag, greiða
atkvæði um sáttatillögu þá sem
samþykkt var á fundi bæjarstjórn-
ar Hafnarfjarðar í fyrrakvöld.
Starfsfólk BÚH barst í gær
stuðningsskeyti og 350 þúsund
krónur í peningum frá „fyrrver-
andi verkfallsmönnum í verk-
smiðjum KA á Selfossi“. Það eru
30 járniðnaðarmenn hjá Kaupfé-
lagi Árnesinga er lögðu niður
vinnu í apríl ‘75 vegna uppsagnar
starfsmanns og lá vinna niðri í
tæpar 3 vikur að uppsögnin var
dregin til baka.
„EF samstarfsflokkarnir telja
fært að Keykjavíkurborg greiði
óskertar vísitölubætur á laun
mun ekki standa á okkur Fram-
sóknarmönnum. Ég læt ekki
samstarfið stranda á þessu at-
riði.“ sagði Kristján Bencdikts-
son borgarfulltrúi Framsóknar-
flokksins í samtali við Mbl.
Mbl. hitti Kristján Benediktsson
og Björgvin Guðmundsson borgar-
fulltrúa Alþýðuflokksins að máli á
miðvikudag að loknum þriðja
fundi viðræðunefnda meirihluta-
flokkanna í borgarstjórn um
málefnasamning.
Sögðu þeir að í viðræðunum
væri stefnt að því að ganga frá
málefnasamningnum fyrir næsta
borgarstjórnarfund og Björgvin
Guðmundsson sagði að ætlunin
Framhald á bls. 18
„Það er sannkölluð þjóðlagastemmning hérna“, sagði blaðamaður Mbl. á tónleikum írska flokksins
Dubliners í Laugardalshöll í gærkvöldi. Sagði hann tónleikagesti álfka marga og þá sem sóttu tónleika
Petcrsons og Pedersens í Laugardalshöllinni cn hvorir tveggja þessir tónleikar eru á vegum
Listahátíðar. Ljósm. Mbl.i RAX
Tillagan 1973 miðast við
lengri tíma en flokksþing
marka stefnuna hverju sinni
— segir Benedikt Gröndal formaður Alþýðuflokksins
Læt ekki sam-
starf ið stranda
á vísitölubótum
— segir Kristján Benediktsson borg-
arfuUtrúi Framsóknarflokksins
„ÞESSI tillaga okkar með hug-
mynd um að Island geti verið stöð
í afvopnunarkerfi Sameinuðu
þjóðanna miðast við lengri tíma.
Þetta er fjarlægur draumur. Á
hinn bóginn tökum við okkar
ákvarðanir fyrir stutt tímabil í
einu á flokksþingum á tveggja
ára frcsti og það var eftir
ákvörðun siðasta flokksþings og
mati mínu í dag. sem ég svaraði
spurningum Morgunblaðsins um
afstöðu Alþýðuflokksins til dval-
ar varnarliðsins og aðildar okkar
að Atlantshafsbandalaginu".
sagði Benedikt Gröndal formaður
Alþýðuflokksins er Mbl. spurði
hann í gær um tillögu Alþýðu-
flokksins 1973 og lcitaði álits
hans á þeim ummælum Geirs
Hallgrimssonar að á Alþýðu-
flokkinn sé ekki að treysta í
varnarmálum þrátt fyrir yfirlýs-
ingar forystumanna hans nú, en
forsætisráðherra vísaði í því
samhandi m.a. til tillögu Alþýðu-
flokksins 1973 um athugun á því
að gera ísland að óvopnaðri
eftirlitsstöð á vcgum Sameinuðu
þjóðanna.
„Við lögðum dálitla vinnu í það“,
sagði Benedikt Gröndal, „að reyna
að hugsa varnarmálin langt fram
í tímann af því að við höldum nú
enn við það eins og allir flokkar að
Samkomulagið frá 1974:
V arnarliðsmönnum
hefur fækkað um 420
— síðustu fjölskyldumar flytja inn á vöUinn í haust
„Varnarliðsmönnum hefur
verið fækkað um 420 eins og
samkomulagið frá scptember
1974 gerði ráð íyrir og flutn-
ingi á varnarliðsmönnum inn á
völlinn er þannig komið, að
si'ðustu íbúðirnar verða tilhún-
ar í haust og þá verða allir
varnarliðsmenn, sem hjugg
utan vallar. búsettir innan
vallarins." sagði Páll Ásgeir
Tryggvason, formaður varnar-
máladcildar. er Mbl. spurði
hann í gær um framkvæmdir á
samkomulagi því sem gert var
haustið 1974 um breytingar á
framkvæmd varnarsamnings-
ins við Bandarikin.
Samkvæmt samkomulaginu
skyldi fækkað í varnarliðinu um
420 manns og hefur það verið
gert þannig að varnarliðsmenn
eru nú um 2.900 talsins. I
sanikomulaginu var gert ráð
fyrir að í staðinn kæmu hæfir
íslendingar eftir því sem þörf
krefði. Pálj Ásgeir sagði að ekki
hefði vjerið'reiknað með að bæta
þyrfti jafnmörgum við og færu
en engu að síður hefðu „nokkur
hundruð" Islendingar verið
ráðnir til starfa hjá varnarlið-
inu síðan samkomulagið var
gert og starfa nú um 1000
Islendingar hjá varnarliðinu en
alls vinna um 2.100 Islendingar
á Keflavíkurflugvelli; hjá varn-
arliðinu, verktökum og oiíufé-
lagi.
Samkvæmt samkomulaginu
skyldu allir varnarliðsmenn búa
innan vállar. Þegar samkomu-
lagið var gert bjuggu 270
fjölskýldur varnarliÁsmanna
utan vallar og flytja þæír síðustu
inn fyrir í haust. 1 1
Þriðji meginþáttur s^mkomu-
lagsins var aðskilnáður al-
mennrar flugstarfsemi fig starf-
semi varnarliðsins. Meginfor-
senda þess var bygging nýrrar
flugstöðvar sem Islendingar
ætluðu að reisa en Bandaríkja-
menn skyldu kosta ýmsar fram-
kvæmdir í sambandi við flug-
turn, flugbrautir og hitaveitu.
Páll Ásgeir Tryggvason sagði að
nokkrar viðræður hefðu átt sér
stað um þennan þátt samkomu-
lagsins og nú hefur náðst
frekara samkomulag við Banda-
ríkjamenn um samvinnu um
byggingu flugstöðvarinnar.
Árásarmálið
í Hrafnistu:
Piltarnir
í gæzluvarð-
hald og geð
rannsókn
PILTARNIR tveir, sem játað
hafa árásina á næturvörðinn í
Hrafnistu í fyrri viku, voru í
gær úrskurðaðir í allt að 58
daga gæzluvarðhald og gert að
sæta geðrannsókn á tímabilinu.
Gæzluvarðhaldsúrskurðurinn
var kveðinn upp í sakadómi
Reykjavíkur.
Enda þótt piltarnir séu að-
eins 16 ára gamlir hafa þeir
langan brotaferil að baki.
Hefur annar þeirra viðurkennt
16 innbrot og eru 15 þeirra
afgreidd en hinn hefur viður-
kennt 10 innbrot og eru 9 þeirra
afgreidd hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins.
I sambandi við rannsókn
árásarmálsins voru upplýst 7
innbrot, sem allmörg ungmenni
í tengslum við piltana tvo áttu
aðild að.
varnarliðið eigi ekki að dvelja hér
að eilífu.
í sambandi við það fluttum við
þessa tillögu um að íslendingar
létu sjálfir rannsaka vissar grund-
vallarforsendur og það er í anda
þess sem ég held að flestir, sem
eru sammála okkur í varnarmál-
um, telji; að íslendingar reyni
sjálfir að gera sér betri grein fyrir
forsendum þessara mála. Það má
sjá á framhaldinu; við setjum
fram hugmyndina um það að
ísland geti verið stöð í áfvopnun-
arkerfi Sameinuðu . þjóðanna.
Þetta er fjarlægur draumur og
hvort tveggja eru þetta tillögur
sem geta miðast við lengri fram-
tíð.
í tilefni af þessum ummælum
Geirs Hallgrímssonar um að
Alþýðuflokknum sé ekki að treysta
í öryggis- og varnarmálum vil ég
minna á að Alþýðuflokkurinn fór
með þessi mál í samstarfsstjórn
Framhald á bls. 18
1202 búnir
að kjósa í
Miðbæjar-
bamaskóla
TÓLF hundruð og tveir kjósend-
ur höfðu neytt atkvæðisréttar
síns í utankjörstaðakosningunni
sem íram íer í Miðbæjarbarna-
skólanum þegar Mbl. leitaði þar
frétta um klukkan 22 í gær-
kvöldi.
Synjað um lögbann
— ,,ekki síðasta orðið í þessu
máli” segir logmaður V-listans
ÞORSTEINN Thorarcnsen borg-
arfógeti kvað í' gær upp úrskurð
í lögbannsmáli umboðsmanna
lista óháðra kjóscnda í Reykja-
neskjördæmi gegn ÍJtvarpsráði.
Úrskurður fógeta er á þann veg
að umbeðin lögbannsgerð fer
ekki fram.
I forsendum fyrir þeirri niður-
stöðu segir m.a.: „í lögbannsmáli
þessu verður ekki lagður á það
neinn dómur hvort rétt var að
synja aðstandendum V-listans úm
þá þátttöku í fyrirhugaðri kosn-
ingadagskrá sjónvarps sem þeir
halda fram að þeir eigi heimtingu
á. En þó segja mætti að þeir séu
að einhverju vanhaldnir af ákvörð-
unum Útvarpsráðs í þessu efni
leiðir engan veginn af því að þeir
eigi rétt til að þátttaka af hendi
annarra framboðslista skuli falla
niður.
Mbl. hafði samband við Sigurð
Helgason hæstaréttarlögmann
Framhald á bls. 18