Morgunblaðið - 09.06.1978, Page 5

Morgunblaðið - 09.06.1978, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1978 5 Sigmar og „Kvöldvaktin” „Þetta er þáttur, sem hefur það markmið að hlustendur þurfa ekki að hugsa um hann. Það eru engar kröfur gerðar til hlustenda og það er heldur ekkert að marka það sem tekið er fyrir í þættinum, nema að mjög takmörkuðu leyti," sagði Sigmar B. Hauksson, er hann var inntur eftir efni „Kvöld- vaktarinnar", sem er í útvarpi klukkan 22.50 í kvöld. Sigmar sagði að í þættin- um yrði spjallað við Kjart- an Ragnarsson, leikrtia- skáld, um sænska tónlist- armanninn og grínistann Povel Ramel, en hann var nýlega staddur hérlendis og skemmti í Norræna húsinu. Verða flutt nokkur lög eftir Ramel. Þá er rætt við jurtaætur og þær spurðar hvort þeim líði betur eftir að þær byrjuðu eingöngu að neyta jurtafæðu og þá jafnframt í hverju munurinn sé fólg- inn. Lögbrot Reykvíkinga eru tekin fyrir og rætt við William T. Möller fulltrúa um tíðni lögbrota í Reykja- vík. HQl ( HEVRR! Doktor Sigmund Fróða- son kemur fram í þættinum og talar um kynlíf íslend- inga og þá er athugað hvers konar dagur Kólúmba- messa er, en hún er í dag. Þá verður ef til vill leikið eitthvað af innsendu efni frá hlustendum, en skorað var á hlustendur í síðasta þætti að senda inn efni. Skal það vera á kassettu og eigi lengra en fimm mínút- ur. Efnið má vera allt milli himins og jarðar, svo sem skrýtlur, ljóð, leikrit eða tónlist, en bara ekki lengra en fimm mínútur. Inn á milli atriða verður síðan leikin tónlist af plöt- um. Klukkan 20.35 í kvöld sýna kennarar og nemendur Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar ýmsa dansa í þættinum „Nú byrjar ballið“. „Andvaka“ nefnist þáttur um nýjan skáldskap og útgáfuhætti, sem hefur göngu sína í útvarpi í kvöld klukkan 21.20. Umsjónarmaður er ólafur Jónsson. ■ Bandidó-flauelisbuxur ■ Bullitt-canvas buxur ■ Kjólar ■ Pils ■ Stutterma skyrtur, herra og dömu ■ Smekkbuxur ■ Stuttjakkar dömu og herra ■ Leöurstuttjakkar ■ Tweed bindi ■ Bolir ■ Stakir jakkar og föt úr rifluöu flaueli ■ Vesti ■ Blússur o.m.fl. o.m.fl. iA. TÍZKUVERZUJN UNGA FÓLKSINS WKARNABÆR Laugaveg 20 Laugaveg 66 Austurstræti 22 Glæsibæ Simi 28155

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.