Morgunblaðið - 09.06.1978, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 09.06.1978, Blaðsíða 7
7 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1978 Frumskylda sjálfstæöra þjóöa — reynsla síöari heims- styrjaldar Það er frumskylda sjálfstæðra Þjóða að tryggja varnaröryggi sitt í viðsjálum heimi. A fyrri hluta Þessarar aldar Þóttí Það næg trygging í Þessu efni að lýsa yfir ævarandi hlutleysi í ágreiningi og átökum Þjóða í milli. Heimsstyrjöldin síðari sýndi fram á algjört hald- leysi slíkra yfirlýsinga. Fjölmörg lönd, Þ. á m. Þrjú Norðurlönd, voru hernumin Þrátt fyrir slík- ar yfirlýsingar: Danmörk og Noregur af Þjóðverj- um og ísland af Bretum. Það er í Ijósi Þessarar reynslu og augljósra staðreynda líðandi stundar sem Þessi Þrjú Norðurlönd gerðust aðil- ar að varnarbandalagi vestrænna Þjóða, Atlantshafsbandalaginu. Sameiginlegur varnar- máttur lýöræðisÞjóðanna hefur tryggt frið í okkar heimshluta í meira en Þrjá áratugi. Hann veitir Þjóðunum varnaröryggi, ekki sízt Þeim minnstu sem sízt eru færar um að tryggja öryggi sitt sjálfar. Atlantshafsbandalagið er samtök jafnrétthárra Þjóða — Þrátt fyrir mis- munandi stærð og styrk. Hver aðildarÞjóð getur sagt sig úr bandalaginu — ef hún metur aöstæður slíkar að úrsögn sé rétt- lætanleg. Aðild að Atlantshafs- bandalagínu á vaxandi fylgi að fagna í aðildar- ríkjum. Jafnvel kommún- istaflokkar Ítalíu, Frakk- lands og Spánar telja aðild viðkomandi ríkja að bandalaginu réttlætan- lega, a.m.k. í orði. Þeir segja úrsögn úr banda- laginu raska valdajafn- vægi í álfunni og veikja firðarlíkur. Þeir kommún- istaflokkar einir, sem háðastir eru Sovétríkjun- um, rísa öndverðir gegn slíkri varnaraðild. Al- Þýðubandalagíð á Íslandi kýs samfylgd með Þeim síðarnefndu Þótt afstaða Þess hafi verið tvíbent í Þessu efni — eins og raunar í öllum höfuðÞátt- um íslenzkra Þjóðmála. „Eina raun- hæfa leiðin til öryggis" Landvarnarnefnd, sem skipuð var í Noregi 1974, hefur skilað ítarlegu áliti um horfur í öryggismál- um Noregs fram til ársins 1980-90. Oddvar Nordli var formaður nefndarinn- ar unz hann varð forsæt- isráðherra en pá tók Ronald Bye við af honum. Meirihluti nefndarinnar, eöa 11 af 13, töldu engar líkur á aö eðlisbreyting Oddvar Nordli, forsætis- ráðherra Noregs. verði á hagsmunasvæöi Noregs á Þessu tímabíli. Áframhaldandi aðild að Atlantshafsbandalaginu sé Því forsenda öryggis landsins — sem og end- urnýjun á herbúnaði Norðmanna sjálfra. Nefndin segir algert varnarleysi Noregs auka spennu og stefna öryggi landsins í hættu. Þýðing landsins fyrir aðra minnki ekki við varnarleysi og sé hugmyndin Því algerlega óraunhæf. Norðmenn geti heldur ekki einir haldið uppi nægjanlegum landvörnum til að tryggja frið og jafnvægi umhverf- is landið, eins og verið hafi. Slíkt tækist aðeins með varnarsamstarfi sem sé eina raunhæfa leiðin til öryggis. Nefndin segir aðild að bandalaginu ekki takmark í sjálfu sér heldur leið til að auka á öryggi landsins sem sé nauösynlegt unz raunhæf afvopnun verði staðreynd eða slökun á spennu milli stórveldanna kemst á Það stig að smáríki geti lifað í friði og öryggi án bandalaga. Þessar nær samhljóða niðurstöður landvarnarnefndar Norð- manna eru lærdómsríkar íslendingum hvern veg sem á mál er litið, en ekki sízt með tilliti til hnatt- stöðu lands okkar. Sjálfstæðis- flokkurinn einn fastur fyrir Lýðræðisflokkarnir á íslandi hafa allir lýst yfir stuðningi við aöild lands- ins að Atlantshafsbanda- laginu. Sjálfstæðisflokk- urinn einn hefur Þó ský- lausa afstöðu í Þessu efni. Aðeins aðild Sjálf- stæðisflokksins aö ríkis- stjórn, hvern veg sem hún yrði annars mynduð, tryggir óbreytta stefnu í öryggismálum Þjóðarinn- ar. Ný vinstri stjórn myndi stefna öryggismál- um Þjóðarinnar í tvísýnu. Þeir, sem ekki vilja eiga neitt á hættu í Þessu efni, verða Því að slá skjald- borg um Sjálfstæðis- flokkinn í komandi kosningum hvað sem líö- ur afstöðu til annarra mála. AlÞýðubandalagið sat að vísu í tveimur ríkis- stjórnum án úrsagnar úr Nató og gælir á stundum við svokallaðan Evrópu- kommúnisma. Það er í samræmi við tvískinnung Þess í öllum öörum mál- um. Enginn vafi er Þó á Því að lagt yrði höfuð- kapp á að gera landið varnarlaust — ef eitt slíkt tækifæri (vinstri stjórn) gæfist enn vegna and- varaleysis fólks í kom- andi kosningum. Það er brýn nauðsyn á pví að stuðningsfólk vestræns varnarsamstarfs um gjörvallt land taki hönd- um saman um stuðning við Sjálfstæöisflokkinn í komandi alÞingiskosn- ingum. LEVI’S SNIÐ Nýja kvensnidid LEVI’S EÐA EKKERT Varist eftirlíkingar Laugavegi 37 Laugavegi 89 Hafnarstrœti 17 Glœsibœ 13303 13008 œvis Skíöanámskeiö í Langjökli Unglinganámskeiðiö í Langjökli sem hefst þann 15. júní kostar aöeins kr. 28.000- Leiöbeinandi er Tómas Jónsson Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar hf. Nýjar vörur Danskar terylene — karlmannsbuxur, þvegnar galíabuxur, sportskyrtur, peysur, peysuskyrtur og peysur meö rennilás og vösum. Fallegar vörur, hagstætt verö. Fyrirliggjandi flauelsföt (blússa og buxur) kr. 6.975,- flauelisblússur kr. 3.750.- gallabuxur kr. 2.975 - Andrés Skólavöröustíg 22. Yokohama vörubfla- hjólbarðar á mjög hagstæöu verði. Véladeild HJÓLBARÐAR Sambandsins i^e^'Jlsasoo ve our sloDoar COLUX A6alstrætí4 Sími 150 05

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.