Morgunblaðið - 09.06.1978, Síða 29

Morgunblaðið - 09.06.1978, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1978 29 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—11 FRÁ MÁNUDEGI • Engar umræður? Um nokkurra ára skeiö hafa kommarnir reynt með öllum ráð- um að þvo af sér alla Moskvu- stimpla, en gengið heldur erfið- lega. Liðin er sú tíð, þegar kommar eins og Gunnar Benediktsson skrifuðu heilar bækur um Jósef Stalín (Bóndinn í Kreml), en G.B. taldi þar, að Friðrik Hallgrímsson dómprófastur ætti að segja ferm- ingarbörnum sínum frá ævi Stalíns sem lýsandi dæmi þess, hvernig menn skyldu haga sér í lífi og starfi (?) Þótt annað eins og þetta sjáist ekki koma frá kommum eftir uppljóstranir Krústjoffs, — enda glæpir Stalíns öllum heimi kunnir — þá eru tengsl þeirra við Sovétríkin og aðrar Austantjalds- þjóðir enn mjög greinileg, og skulu hér nefnd tvö dæmi. Þau lúta að uppeldi ungkomma. Guðmundur Þ. Jónsson borgarfulltrúi segir í viðtali í Þjóðviljanum 20. maí sl., að sér hafi gefizt kostur á að stunda tveggja ára nám í „verka- lýðsmálaskóla" í Sovétríkjunum. Þessir hringdu . . . • Sveitadvöl barna Afi nokkur hringdi og nefndi það hversu erfitt væri oft fyrir borgarbúa að gefa börnum sínum tækifæri til að koma börnum sínum til dvalar í sveit: — Það er öllum kunntigt hversu erfitt það getur verið fyrir börnin að komast aðeins út fyrir malbikið til dvalar í sveit og því langar mig til að vekja athygli á einu atriði sem ég man eftir að dóttursonur minn gerði fyrir nokkrum árum. Hann átti kost á dvöl í sveit í 3 daga ókeypis, en þetta var skipu- lagt af Æskulýðsráöi Reykjavíkur. Varla þarf að lýsa hrinfingu drengsins er hann kom aftur eftir þessa stuttu dvöl, en hann var næstum því jafn lengi að ná sér niður á jörðina aftur. Vildi ég gjarnan benda á þessa starfsemi Æskulýðsráðs ef fólk vildi athuga þetta og hvort boðið verður upp á svipaða dvöl nú í sumar. SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á alþjóðlega skákmótinu í Amsterdam í Hollandi í fyrra kom þessi staða upp í skák stórmeistar- anna Torre, Filippseyjum, sem hafði hvítt og átti leik, og Reshevskys, Bandaríkjunum. 35. Hxg7+! - Kxg7 36. Dh6+ - Kg8 37. Hhl Svartur gafst upp, því að hann er óverjandi mát. Röð efstu manna á mótinu varð þessi: 1. Miles (Englandi) 10‘/2 v. af 15 mögulegum. 2. Hulak (Júgóslavíu) 9'/2 v. 3.-4. Liberzon (ísrael) og Kavalek (Bandaríkjunum) 9 v. 5. Torre (Filippseyjum) 8>/2 v. Og Guðmundur segir síðan orð- rétt: „Það var ákaflega gagnlegur og þroskandi tími.“ — Nú er Guðmundur ekki gamall maður, svo að það er ekki langt síðan hann var þar við „nám“. Hitt dæmið lýtur að öðrum borgarfulltrúa kommanna, Þór Vigfússyni, sem árum saman stundaði nám í Austur-Þýzka- landi. Um stjórnarfar í því landi sendu námsmenn héðan heim skýrslur til Einars Olgeirssonar, og segir um þá skýrslugjöf í formála, „að við teljum það skyldu okkar gagnvart flokknum að hafa eftir mætti vakandi auga með þróun mála hér, sérstaklega með tilliti til þess, að sú reynsla, sem við þannig söfnum, megi koma að góðu gagni, bæði í baráttunni nú, svo og síðar meir, þegar hafizt verður handa um uppbyggingu sósíalisma á Islandi". — Já. Glöggt er hvað þeir vilja. Aðalhöfundur skýrslnanna eru þeir Hjörleifur Guttormsson, Tryggvi Sigurbjarnarson, Ey- steinn Þorvaldsson og Þór Vigfús- son. Margt gagnrýna þeir í áður- nefndum skýrslum, en hið komm- únistíska hugarfar leynir sér þó ekki, sbr. þessa klausu á bls. 47 í Rauðu bókinni, leyniskýrslu SÍA: „Okkar álit í stuttu máli: Við álítum, að rétt sé og sjálfsagt sð leyfa ekki umræður né gefa fólki kost á að velja um neitt nema á grundvelli sósíalismans, og þá sízt Þjóðverjum." (?) Það er tiltölulega meinlítið þótt Þór Vigfússon hafi uppi orðræður um æskilegan geitabúskap og búfjárhald af ýmsu öðru tagi hér í borginni, en Reykvíkingar ættu hins vegar að festa sér vel í minni ummæli hans og annarra komma um lýðræðislega stjórnarhætti, því að það stjórnarfar er eitur í beinum kommúnista. — Hins vegar benda nokkrar líkur til, að kommar ætli sér að hafa nokkurt hóf á orðbragði sínu á næstunni, sbr. fyrirsögn á grein eftir frétta- stjóra Þjóðviljans í síðustu viku: Varúð skal höfð. Þar átti hann við að betra væri að segja ekki hug sinn allan, — nú í bili. Sigurjón Jónsson.“ HÖGNI HREKKVÍSI Þeir hlýða allir „hverfisstjóranum“! Leyft verö: Hagkaupsverði Svið 859." 685.- pr. kg. StSpukjöt 3.297.- 2•475 * — 3 kg• Saltkjöt 1.3o4.- l.lo3.- pr. kg. Svartfugl 29o.- stk. Kálfalifur 450.- pr. kg. Lax 2.o2o.- pr. kg. Tilboðssaltkjb't 9oo,- pr. kg. OpiÓ til kl.10 í kvöld HAGKAUP SKEIFUNN115 RR BYGGINGAVÖRUR HEl Suðurlandsbraut 4. Simi 33331. (H. Ben. húsið) ARCITECTURAL SOLIGNUM er besta fáanlega fúavarnamálningin á markaðnum í dag. FNI SEM HLEYPIR RAKA í GEGNUM SIG OG VJER VIÐINN FUA. FJOLBREYTT LITAVAL. ■rrbyggingavörur he| Suðurlandsbrau t 4. Sími 33331. (H. Ben. húsið) SIG6A V/öGA £ ‘ÍíLVE^AW

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.