Morgunblaðið - 09.06.1978, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1978
31
Regnkápur med/og án hettu.
Sex Islandsmet
FYRSTA fimmtudagsmót UMSB,
Ungmennasambands Borgarfjarö-
ar, fór fram í Borgarnesi 1. júní.
Veður var leiöinlegt til keppni,
kalt og hvasst. Keppendur voru
um 50 talsins, flestir af yngri
kynslóðinni úr Borgarnesi.
Árangur var góöur ef miöað er
við aðstæður en hæst ber 6
íslandsmet sem sett voru í yngri
aldursflokkunum. Voru þau öll sett
í sömu greininni 300 m hlaupi.
Fyrsta metið setti Einar Kári
Kristófersson í strákaflokki 12 ára
og yngri, en hann er aðeins 10 ára.
Ekki átti hann bað met lengi, því
félagi hans Valdimar Guðmunds-
son bætti það í næsta riðli.
Ingveldur H. Ingibergsdóttir bætti
metið í stelpnaflokki um 2,5 sek og
Hafsteinn Þórisson setti met í
piltaflokki.
Árangur Svöfu Grön-
feldt er athyglisveröastur
í hnefaleikum?
í KVÖLD mun annar af tveimur heimsmeisturum í hnefaleikum, Ken Norton,
verja titil sinn. Svo sem kunnugt er, eru heimsmeistararnir nú tveir og pykir
pó flestum nóg að hafa einn. En hnefaleikasamböndin eru tvö og bau greinir
á um marga hluti og Það Dykir hvað ólíklegast að Þau komi sór saman um
einn heimsmeistara. Norton mun reyna að klekkja á Larry nokkrum Holmes
í Las Vegas, en 15. september mun hinn heimsmeistarinn, Leon Spinks, verja
titil sinn í New Orleans gegn manninum sem hann tók titilinrr af í febrúar
síðastliðnum, Mohammed Ali.
• Ungar fimleikastúlkur á æfingu hjá norsku hjónunum.
Norskir fimleika-
þjálfarar nýfarnir
UNDANFARNA viku hafa verið
stödd hér á iandi norsku hjónin
Svcn Eric og Anne Lise Lilia. Þau
hafa um margra ára skeið verið
landsliðsþjálfarar Noregs í fim-
ieikum og hér eru þau á vegum
félaganna Gerplu, Armanns og
Bjarkar. Auk þjálfarastarfa er
Anne Lise alþjóðlegur fimleika-
dómari og auk þess fyrrverandi
ballettdansari og f heimalandi
sínu er þeim hjónum falin þjálfun
efniiegasta íþróttafólksins.
Mbl. leit inn á eina af síðustu
æfingum hjá þeim hjónum og þar
tjáði okkur Margrét Bjarnadóttir,
Gerplu, að hjónin væru mjög
hrifin af yngsta stúlknaflokknum,
þær eldri væru einnig efnilegar, en
grunnþjálfun þeirra væri ábóta-
vant og það væri einmitt það sem
norsku hjónin ætluðu að reyna að
kippa í liðinn með veru sinni hér,
en Margrét sagði það mesta furðu
hve mikið norsku þjálfararnir
gætu skilið eftir sig á jafn stuttum
tíma. Þá sagði Margrét, að félögin
þrjú hefðu fullan hug á að reyna
að fá þau Sven og Anne Lise aftur
hingað til lands fyrr en seinna og
væri það síður en svo fjarlægur
draumur.
fyrir
16 ára og yngri
Á LAUGARDAG fer fram á golfvelli
Keilis á Hvaleyri Dunlop keppnin í
golfi fyrir drengi 16 ára og yngri.
Leiknar veröa 36 holur og hefst
keppni kl. 9 á laugardag. Dunlop-
umboðið gefur glæsileg verðlaun til
keppninnar, og einnig verða mörg
aukaverðlaun.
H ver verður
heimsmeistari
En hvenær munu heimsmeistar-
arnir mætast og gera út um þaö hver
sé hinn raunverulegi meistari? Það
fer sannarlega eftir ýmsu, t.d. hver
vinnur á föstudaginn, Norton eöa
Holmes, og hvort Ali takist aö sigra
Spinks í september? Úr þessu öllu
gæti orðið hin mesta flækja. Besta
lausnin er auövitaö, aö Spinks og
Norton vinni báöir leiki sína og bítist
síðan um bitann. En að sjálfsögöu
eru miklar líkur á því aö svo fari alls
ekki. Ali er nú oröinn 36 ára gamall
og er ekki sama fiörildiö og í gamla
daga, en hann vill óimur veröa fyrstur
manna til þess aö endurheimta
titilinn þrisvar. En þó aö hann vinni
Leon Spinks í september, eins og
margir viröast álíta, telst hann ekki
meistari nema hann leiki gegn
sigurvegaranum úr leik Nortons og
Holmes og það gæti reynst kappan-
um ofraun. Tapi Ali hins vegar fyrir
Spinks, sem er stour en svo ólíklegt,
þegar aö er gáö, aö 24 ára gartiall
hnefaleikari á borö við Spinks getur
aðeins átt eftir aö veröa betri og
betri, en sama er ekki hægt aö segja
um mann sem orðinn er 36 ára
gamall, þá liggur lítiö annaö fyrir Ali,
en aö leggja hanskann á hilluna. Þaö
tæki marga sárt, ef Ali lyki ferii sínum
á þann hátt, en hann getur hins vegar
engum nertia sjálfum sér um kennt.
Regnjakkar ótrúlega gott verd
Kápur kr. 7.900.- ★ Jakkar kr. 4.900,-
.ÚÍS^ TfZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
WKARNABÆR
Laugaveg 20. Laugaveg 66 Austurstræti 22 Glæsibæ Simi 28155