Morgunblaðið - 14.06.1978, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 14.06.1978, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1978 17 Þjóðviljinn: Forseta borgarstjórnar sýnd „frekleg móðgun,, með þvl að bjóða honum ekki að veiða fyrsta laxinn Fyrirmæli meirihlutaflokka brotin Þjóðviljinn skýrir frá því í gær, að forseta borgar- stjórnar Reykjavíkur, Sig- urjóni Péturssyni, hafi ver- ið sýnd „frekleg móðgun". Móðgunin er í því fólgin, að Stangveiðifélag Reykjavík- ur bauð forseta borgar- stjórnar ekki að renna fyrir fyrsta laxinum í Elliðaán- um. Forseti borgarstjórnar lítur þennan atburð svo alvarlegum augum að hann sneri sér sérstaklega til eins dagblaðanna í gær til þess að taka fram, að honum hefði ekki verið boðið til þess að renna fyrir fyrsta laxinum. „Ástæðan fyrir því, að enginn var þar frá nýja meirihlutanum er einfaldlega sú, að engum fulltrúa hans var boðið,“ segir Sigurjón Pétursson í því blaði. Þjóðviljinn ræðir ítarlega í gær um þá „freklegu móðgun, sem for- seta borgarstjórnar hafi verið sýnd: Meirihluta- flokkarnir hafa komið sér saman um, að forseti borg- arstjórnar skuli koma fram fyrir hönd borgarinnar útávið. Embættismönnum borgarinnar, líka skrif- stofustjóra og borgarrit- ara, hefur verið tilkynnt um þessa ákvörðun ... Stangveiðifélag Reykjavík- ur ræður því að sjálfsögðu Sigurjóni Péturssyni, forseta borgarstjórnar, hefur verið sýnd frekleg móðgun að sögn Þjóðviljans. Honum var ekki boðið að veiða fyrsta laxinn í Elliðaánum. Myndin er tekin er forseti borgarstjórnar hafði lokið við að flytja ræðu á sigurhátíð G-listans. Forseti borgarstjórnar er að klappa fyrir sjálfum sér að ræðu lokinni en sá siður er vel þekktur í ríkjum. sem búa við sósfalíska stjórnarhætti. sjálft hverjum það býður að opna veiði í Elliðaánum 10. júní. Stjórn þess sá ekki ástæðu til þess að bjóða Sigurjóni Péturssyni, for- seta borgarstjórnar, eða nokkrum öðrum fulltrúa meirihlutaflokkanna að koma fram fyrir hönd borgarinnar við þetta hefð- bundna tækifæri að þessu sinni. Þess í stað lét stjórn- in boðið ganga til embætt- ismannanna áðurnefndu, sem létu ekki á sér standa að koma fram fyrir hönd borgarinnar við hátíðlegt tækifæri, enda þótt þeim ætti að hafa verið ljóst, að með því voru þeir að brjóta fyrirmæli meiri- hlutaflokkanna þó að í litlu væri... Ekki er að efa, að embættismenn borgarinnar eru færari um að opna ár heldur en kjörnir fulltrúar. En hitt skulu menn vita, að Sigur- jón Pétursson stóð sig vel í Keflavíkurgöngunni á laug- ardaginn og hefur sjálfsagt talið tíma sínum betur varið þar heldur en í laxaleik við Elliðaár. Ef menn vilja á hinn bóginn leggja eitthvað upp úr formlegheitum mætti segja, að hér væri um freklega móðgun að ræða bæði af hálfu embættis- mannanna þriggja og stjórnar Stangveiðifélags Reykjavíkur í garð meiri- hlutaflokkanna þriggja." Sauðárkrókur: Sjálfstæðis- flokkur, Alþýðu- flokkur og Samtökin stjóma Á fundi bæjarstjórnar Sauðár- króks í gærkvöldi var staðfest samkomulag Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks og Samtaka um meirihlutastjórn í bæjarstjórn. Hafa sjálfstæðismenn 3 fulltrúa, en Alþýðuflokkurinn og Samtökin einn hvor. Síðasta kjörtímabil höfðu framsóknarmenn og alþýðu- flokksmenn meirihlutasamstarf í bæjarstjórn. Á bæjarstjórnarfundinum í gærkvöldi var Þorbjörn Árnason, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, kjörinn forseti bæjarstjórnar en varaforseti var kjörinn Jón Karls- son frá Alþýðuflokknum. Nýi meirihlutinn hefur ráðið nýjan bæjarstjóra, Þorstein Þor- steinsson rekstrarhagfræðing, en bæjarstjóri síðasta kjörtímabils var Þórir Hilmarsson. Viobygging við Fiórðungs- sjúkrahúsið Ljósmyndin af líkani af Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri ásamt fyrirhuguðum ný- byggingum birtist í Sveitar- sjórnarti'ðindum nýlega. Lengst til vinstri er núverandi sjúkra- húsbygging, fjær á miðri mynd eru fyrirhugaðar legudeildarálm- á Akureyri ur, en nær í lægri álmum eru skurð- og röntgen- og göngudeild- ir. Áætlað er að 1990, þegar viðbyggingu lýkur, verði 190 rúm fyrir rannsóknarsjúklinga og sjúklinga með bráða líkamssjúk- dóma. Nú eru 97 rúm fyrir þessa sjúklinga. Úrskurðaður í gæzluvarðhald SÍBROTAMAÐURINN, sem skýrt var frá í blaðinu í gær að tekinn hefði verið við innbrot nokkrum dögum eftir að ! - um var sleppt úr fangelsi hefur verið úrskurðaður í gæzluvarð- hald til 2. ágúst eða í allt að 51 dag. Maður þessi hefur hvað eftir annað verið tekinn fyrir innbrot. Hefur hann aðallega brotizt inn í íbúðir og sumar- bústaði. Miyako Kashima Þórðarson á heimili sínu í Reýkjavík. Japönsk stúlka útskrif- ast úr guðfræðideild JAPÖNSK stúlka. Miyako Kashima Þórðarson. lauk prófi frá guðfræðideild Iláskóla ís- lands nú í vor. Lokaprófið fór fram 31. maí í Háskólakapellunni en þar flutti Miyako predikun. Námið segir hún að hafi gengið prýðilega. Ilún sendi eftir bókum á japönsku til að styðjast við. í prófunum tóku félagar hennar eftir þessari stúlku sem fletti upp í japanskri Biblíu með miklum hraða. Þó talar Mi.vako góða fslenzku. Hún kom hér fyrst fyrir níu árum til að læra málið og lesa íslenzkar bókmenntir. Áhugi Miyako á íslandi vaknaði þegar hún var smá stelpa og sá kynningarmynd um landið í sjón- varpinu. Japönsk kona hafði gert þá mynd. Þegar Miyako eltist skrifaði hún Háskólanum bréf og spurðist fyrir um hann. Að ári liðnu kom hún hingað og bjó hjá þáverandi háskólarektor Magnúsi Má Lárussyni fyrsta árið. Miyako kemur frá heimili þar sem Shintu- og Buddhatrú ríkja. Hún fékk áhuga á kristinni trú fljótlega eftir komuna hingað og innritaðist í guðfræðideildina eftir þriggja ára nám í íslenzku. Hún vill sem allra minnst segja um framtíðina, en er ákveðin í að fara til Japan núna í haust. Þetta verður þriðja heimsókn hennar þangað á níu árum. Nú stundar Miyako tíma í framsögn hjá Karli Guðmunds- syni, og spilar á píanó og japanska hörpu, koto, í frístundum. Hún segir að nóg sé að gera svona rétt eftir prófin. Miyako er gift Sigfúsi Gauta Þórðarsyni og eiga þau eina fjögurra ára dóttur Hlín Lilju Sakura Sigfúsdóttur. Reykjavik verdur ekki stjórnað frá Neskaupstaö - segir Kristján Benediktsson a_i.._ n„kkonna I O0-Reykj*v0i. — ®g hygg, rátt fyrir aUt, aft borgar- [jórnarraetrihlutanum f Reykja- Ik verfti ekki stjórnaft frá Nes- aupstaft og Lúftvik Jósepsson 1Un ekki stjórna ákvörftunum Mnum. sagfti Kristján Bene- íktsson borgarfulltrúi, er Tlm- n bar undir hann þá fullyrftingu Lúftvfka Jóaepssonar aft nýi borg- arstjórharmeirihlutinn heffti ákveftift aft greifta fullar vfsitftlu- bctur á laun þeirra sem starfa á vegum Reykjavikurborgar, en Lúftvlk skýrfti frá þessu á fram- boftsfundi á Austurlandi. Hins vegar sagfti Kristján, aft mál þetta hafl verift rctt af full trúum vinstri flokkanna I borgar- stjórn Er brátt aft v«U niftur- stftftu I málinu og mun ákvörftun verfta tekin á borgarráftsfundi I dag. Meirihlutinn hefur nú gengift frá málefnasamningi og verftur hann kynntur á borgarstjórnar- fundi á fimmtudag. Reykjavík ekki stjórnad frá N eskaupstað — segir borgarfulltrúi Framsóknarflokksins KRISTJÁN Benediktsson, borgarfulltrúi Fram- sóknarflokksins, sem aöild á að hinum nýja meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur segir í viðtali við Tímann í gær, að Reykjavík verði ekki stjórnað frá Neskaup- stað. Tilefni þessara orða eru blaðafréttir þess efnis, að Lúðvík Jósepsson, for- maður Alþýðubandalags- ins, hafi sagt á framboðs- undum á Austfjörðum, að vinstri meirihlutinn í borg- arstjórn hefði ákveðið að greiða fullar vísitölubætur á laun. Morgunblaðinu er kunn- ugt um, að meðan á samn- ingaviðræðum stóð um meirihlutamyndun í Reykjavík gætti óþolin- mæði hjá framsóknar- mönnum vegna þess, að alþýðubandalagsmenn urðu að bíða fyrirmæla frá Lúð- vík Jósepssyni á Neskaup- stað. Má því gera ráð fyrir að ummæli Kristjáns Bene- diktssonar höfði einnig til þess.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.