Morgunblaðið - 30.08.1978, Page 1
32 SÍÐUR
187. tbl. 65. árg. MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Huakominn
til írans
Teheran — 29. ágúst. — AP.
IIua og Reza Phlavi klingja glösum í veizlu í Teheran i gærkvöldi. (AP-símamynd).
Danmörk:
Nýja stjórnin
með meirihhita
REZA Pahlavi Iranskeisari tók á
móti Hua Kuo Feng þjóðarleið-
toga í Kína með kostum og
kynjum er hann kom til Teheran
í dag, en íran er síðasta landið
sem Hua heimsœkir í ferðinni,
sem Sovétstjórnin lítur bersýni-
lega á sem beina ögrun. Fundir
þeirra Hua og keisarans á flug-
vellinum voru fagnaðarríkir, en í
kvöld var haldin veizla mikil í
keisarahöllinni, til heiðurs Hua
og föruneyti hans. í skálaræðum
skiptust þjóðhöfðingjarnir á árn-
aðaróskum og vegsömuðu frið og
frelsi. Minnzt var á nauðsyn þess
að sjá við ásælni ríkja, sem
hneigðust til heimsvaldastcfnu,
en Sovétríkin voru ekki nefnd á
nafn þótt greinilega væri að þeim
sneitt.
I ræðu sinni áréttaði Hua þá
stefnu Kínverja að standa gegn
„árásargjörnum og heimsvalda-
Da Costa
tekinn við
stjórnar-
taumunum
Lissabonn — 29. ágúst — AP
ER ALFREDO Nobre da Costa
tók við forsætisráðherraembætti í
Portúgal í dag lýsti hann því yfir
að stjórn hans mundi sitja „um
hríð, en þó bæri ekki að líta á
hana sem bráðabirgðastjórn“.
Hann kvaðst ætla að gefa stjórn-
málaflokkum landsins góðan
tíma til að átta sig á þeim
raunverulegu vandamálum sem
við væri að etja í landinu, um leið
og hann sagðist ætlast til þess af
landsmönnum öllum að þeir
legðu sig fram um að ráða fram
úr þeim.
-segir S'omoza
Manfgua — 29. ágúst — Reuter
ANASTASIO Somaza forseti
Nicaragua lýsti því yfir í dag að
um það bil 35 þjóðarvarðliðar
hefðu verið handteknir eftir
misheppnaða byltingartilraun í
gær.
Somoza sagði á fréttamanna-
fundi að það hefði vakað fyrir
byltingarmönnunum að steypa
sér af stóli og binda þar með enda
á stjórnmálaerjurnar, sem ríkj-
andi hafa verið í landinu að
undanförnu. Somoza sagði að
byltingarsinnum yrði ekki kápan
úr því klæðinu, því að hann
ætlaði sér að sitja sem fastast þar
sinnuðum stórveldum". íranskeis-
ári lýsti vilja sínum til að eiga
friðsamleg samskipti og samvinnu
við öll ríki heims, þannig að
viðhalda megi friði og stuðla að
þróun, stöðugleika og almennri
velferð.
Nýr Guill-
aume í upp-
siglingu?
Bonn 29. ágúst, Reuter.
RÚMENSKUR stjórnar-
erindreki, sem hvarf í
Vestur-Þýzkalandi fyrir
skömmu hefur ákveðið að
flýja land. Hann hefur við
yfirheyrslur látið banda-
rísku leyniþjónustunni
CIA í té óhrekjanlegar
upplýsingar um að hátt-
settur embættismaður,
nátengdur einum af
leiðtogum vestur-þýzka
jafnaðarmannaflokksins,
sé njósnari í þágu ótil-
greinds kommúnistaríkis,
að því er blaðið Bild skýrir
frá í dag. Að sögn blaðsins
er njósnarinn ekki síður
mikilvægur en Giinther
Guillaume var.
Vestur-þýzka innanríkisráðu-
neytið hefur hvorki viljað stað-
festa þessa fregn né vísa henni á
bug. Guillaume var á sinni tíð einn
nánasti aðstoðarmaður Willy
Brandts kanslara, en njósna-
hneykslið varð óbeint til þess að
kanslarinn varð að segja af sér
árið 1975.
til efnt yrði til kosninga í landinu
árið 1981.
Allsherjarverkfall er nú í
Nicaragua. Ahrif þess í höfuðborg-
inni eru lítil enn sem komið er, en
annars staðar í landinu er þátt-
taka veruleg, að því er áreiðanlegir
heimildarmenn segja. Mikill órói
er í landinu og í gær og í dag hefur
víða komið til átaka milli and-
stæðinga stjórnarinnar og þjóðar-
varðliða. Sums staðar, til dæmis í
Jinotep.e, skammt frá Managua,
hefur alvarlega skorizt í odda. Þar
var kveikt í strætisvögnum og
vegatálmunum komið fyrir. I
götubardaga í bænum Leon létu
tveir lífið að því er starfsmenn
Rauða krossins hafa upplýst.
Frá Erik Larsen
fréttaritara Morgunblaðsins
í Kaupmannahöfn.
EFTIR þriggja tíma þing-
flokksfund jafnaðarmanna
í gær kom í ljós að meiri-
hlutastuðningur er á þingi
við málefnasamning ríkis-
stjórnar jafnaðarmanna og
Vinstri flokksins. Sam-
komulag hefur náðst um
skipan í ráðherraembætti í
hinni nýju stjórn, og eins
og við var búizt verður
Henning Christophersen,
leiðtogi Vinstri flokksins
Anker Jörgensen forsætisráð-
herra og Henning Christophersen
utanríkisráðherra Vinstri flokks-
ins, sem nú gengur til samstarfs
við Jafnaðarmannaflokkinn
þannig að loks hafa Danir fengið
meirihlutastjórn.
utanríkisráðherra. Anker
Jörgensen verður eins og
áður hefur komið fram
forsætisráðherra, en í mál-
efnasamningi stjórnarinn-
ar eru meðal annars á-
kvæði um að fresta á-
kvörðunum um smíði brú-
arinnar yfir Stórabelti og
það hvort Danir eigi að
nýta kjarnorku. Verðstöðv-
un verður við lýði næstu 12
mánuði og kaupgjald mun
ekki hækka á því tímabili,
en auk þess hefur náðst
samkomulag um sex millj-
arða króna sparnað á fjár-
lögum næsta árs.
Annað í málefnasamningnum,
sem athygli vekur, er að breyting-
ar eru ekki fyrirhugaðar í skatta-
og húsnæðismálum á næstunni, en
hins vegar er ætlunin að bæta
vaxtakjör vegna bygginga í þágu
almennings og fjárframlög til
endurbóta á lélegu húsnæði verða
aukin.
Andstaða innan
verkalýðs-
hreyfingarinnar
Lundúnum — 29. ágúst — AP
SÍÐDEGIS í gær tók gengi
Bandaríkjadals skyndilega
að lækka eftir að nýjar tölur
voru birtar um greiðslujöfn-
uð Bandaríkjanna við út-
lönd. Gagnstætt því sem
búizt hafði verið við kom í
ljós að í júlímánuði nam
greiðsluhallinn 2.9 milljörð-
um dala.
stóð hafði danska alþýðusam-
bandið hótað jafnaðarmönnum því
að slíta tengsl sín við flokkinn. Um
tíma leit út fyrir að einn helzti
talsmaður verkalýðshreyfingar-
innar í fráfarandi stjórn jafnaðar-
manna, Erling Jensen dómsmála-
ráðherra, tæki ekki sæti í sam-
steypustjórninni, en að því er
virðist hefur honum snúizt hugur,
því að hann tekur sæti varnar-
málaráðherra í nýju stjórninni..
Fráfarandi varnarmálaráð-
herra, Poul Sogaard, lætur af
ráðherraembætti. Að öðru leyti er
stjórnin þannig skipuð: Anders
Andersen (V) efnahags- og skatta-
málaráðherra, Knud Heinesen (J)
fjármálaráðherra, Poul Dalsager
(J) sjávarútvegsráðherra, Niels
Anker Kofoed (V) landbúnaðar-
ráðherra, Knud Enggaard (V)
viðskiptaráðherra, Nathalie Lind
(V) dómsmálaráðherra, Ivar Han-
sen (V) samgönguráðherra, Jorgen
Peder Hansen (J) kirkju- og
Grænlandsmálaráðherra, Egon
Jensen (J) félagsmálaráðherra,
Jens Kampmann (J) umhverfis-
málaráðherra, Ritt Bjerregaard
(J) fræðslumálaráðherra, Niels
Matthiasen (J) menntamálaráð-
herra, Jakob Sorensen (V) innan-
ríkisráðherra, og ráðherrar án
sérstakra ráðuneyta verða Lise
Gstergaard (J) og Per Hækkerup
(J).
Afleiðingar þessa falls dalsins
urðu þær að vestur-þýzkt mark,
sterlingspund, svissneskur franki
og ítölsk líra hækkuðu á gjaldeyr-
ismarkaði.
Gjaldeyrisviðskiptum í
Japan var lokið áður en fregnin
um viðskiptahallann barst, en
búizt er við að jenið hækki enn við
þessi tíðindi er viðskipti hefjast í
fyrramálið.
35 teknir ef tir
misheppnaða
byltingartflraun
Meðan á samningaviðræðum
Dalurinn enn á undanhaldi