Morgunblaðið - 30.08.1978, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3Ó. ÁGUST 1978
LIFLEGUR LANDSLIÐS-
HÓPUR VAUNN Á MÓTI
BANDARÍKJAMÖNNUM
ÍSLAND loikur landsleik í knattspyrnu við Bandarikin á Laugardalsvellinum næstkomandi sunnudag. Landsliðsnefndin. það er dr. Youri
Ilytchev landsliðsþjálfari og Arni í>. borgrímsson, hefur valið hóp 16 leikmanna í þessa viðureign'og leika allir leikmennirnir með islenzkum
liðum. Fimm leikmenn hópsins hafa ekki áður leikið með a landsliði. en ef litið er á hópinn má sjá að flestir leikmennirnir eru tiltölulega
ungir og yfirleitt eru þeir mjög útsjónarsamir. Ekki verður annað sagt en það sé mjög spennandi hópur. sem valinn hefur verið, en í honum
eru eftirtaldiri
MARKVERÐIRi
borsteinn Bjarnason, IBK
Diðrik Ólafsson, Víkingi
AÐRIR LEIKMENN.
Árni Sveinsson, ÍA
Dýri Guðmundsson, Val
Róbert Agnarsson, Víkingi
Gísli Torfason. ÍBK
Janus Guðlaugsson, FH
Sigurður Björgvinsson, ÍBK
EKKERT TIL SPARAÐ
SVO VEGUR KNATT-
SPYRNUNNAR MEGI
VERÐA SEM MESTUR
BANDARÍSKA landsliðið. sem leikur hér á sunnudaginn, kemur til
landsins árla á laugardagsmorgun og er leikur þess hér fyrsti leikur
Bandarikjanna í þriggja vikna Evrópuferð. Liðið leikur síðan í Sviss
6. september, en síðan verður leikið á móti sterkum félagsliðum í
Frakklandi, býzkalandi, Belgíu, Skotlandi og á Ítalíu. Knattspyrnan
vcrður stöðugt vinsælli í Bandarikjunum og hafa tugir erlendra
knattspyrnumanna verið fluttir inn til Bandaríkjanna á síðustu árum.
Margar skærustu stjörnurnar í heimsknattspyrnunni hafa skrifað
undir samninga við bandarísk félög og þar hafa engir smáaurar verið
í boði.
Allt hefur verið gert til að laða
áhorfendur að knattspyrnuleikjum
og fjölgar þeim stöðugt. Knatt-
spyrnunni hefur fleygt fram
vestra og nú er knattspyrnan orðin
vinsæl skólaíþrótt þar í landi. Þess
verður örugglega ekki langt að
bíða að Bandaríkin verði stórveldi
í íþróttinni. í þjálfunarmálum er
heldur ekkert til sparað og t.d. á
síðasta vetri eyddi þjálfari banda-
ríska landsliðsins um 2 mánuðum
í Evrópu. Þar fylgdist hann með
knattspyrnu hjá beztu félögunum
og hefur sagt að Bandaríkin ætli
að byggja sín félög upp á evrópska
vísu.
Lítið er vitað um frammistöðu
handaríska landsliðsins að undan-
förnu, en liðið hefur leikið nokkra
leiki við önnur Ameríkulið á árinu.
Hins vegar vita menn töluvert um
frammistöðu Bandaríkjanna í
knattspyrnu hér á árum áður og í
pistli, sem Helgi Daníelsson tók
saman fyrir KSÍ segir meðal
annars:
„Fram að þessu hafa Banda-
ríkjamenn ekki vakið mikla at-
hygli á alþjóðavettvangi fyrir
afrek í knattspyrnu, þrátt fyrir að
ein 93 ár séu liðin síðan þeir léku
sinn fyrsta landsleik í knatt-
spyrnu. Þó má sjá í landsleikja-
sögu þeirra athyglisverð úrslit,
eins og þau þegar þeir sigruðu
Englendinga 1:0 í heimsmeistara-
keppninni í Brasilíu 1950. Úrslitin
vöktu heimsathygli á sínum tíma.“
Síðar í pistli sínum víkur Helgi
að fýrsta og hingað til eina
landsleik íslands og Bandaríkj-
anna i knattspyrnu. Hann fór
fram árið 1955 og Helgi var þá
einmitt markvörður íslenzka
landsliðsins. Gefum Helga orðið á
. n.V-
ÚTFARARSTJÓRARNIR
VORU EKKI
Á NÁSTRÁI!
Leikurinn var nefndur af sum-
um leikur hinna glötuðu tækifæra,
því þrátt fyrir ótalmörg „dauða-
færi" í fyrri hálfleik tókst íslend-
ingum aðeins að skora eitt mark,
en Þórður Þórðarson var þar að
verki á 35. mín., eftir að hann
komst inní sendingu milli mark-
varðar og bakvarðar og sendi hann
knöttinn á mannlaust markið. En
Adam var ekki lengi í Paradís, því
6. mín. síðar jöfnuðu Bandaríkja-
menn með skoti af löngu færi.
Staðan jöfn í hálfleik: 1—1.
Síðari hálfleikur var likur hin-
um fyrr hvað það snerti, að ótal
mörg tækifæri íslendinga runnu
út i sandinn, — skot yfir — skot
framhjá og annað eftir því. En á
55. mín. náðu íslendingar foryst-
unni á ný með glæsimarki Gunn-
ars Guðmannssonar. Ríkarður gaf
góða sendingu til Gunnars sem
skaut af 30—40 metra færi og
hafnaði knötturinn efst í mark-
horninu og óverjandi fyrir mark-
vörðinn. Glæsilegt mark og eitt
þeirra marka, sem maður gleymir
aldrei.
Ekki liðu nema 17. mín. þar til
Bandaríkjamenn höfðu aftur jafn-
að metin, en Gunnar Guðmanns-
son sá um að sigurinn félli íslandi,
í skaut, því að hann skoraði gott
mark á 85. mín. eftir sendingu frá
Ríkarði.
í þessari ferð léku Bandaríkja-
menn tvo aukaleiki, eins og títt var
á þessum árum. Akranes sigraði
gestina með 3—2 og Reykjavíkur-
úrvalið vann 1—0.
Fyrirhugað var að endurgjalda
þessa heimsóka Bandaríkjamann-
anna með landsleik árið eftir, en
af því varð þó ekki. Landslið
íslands fór að vísu í skemmtilega
keppnisferð til Bandaríkjanna
haustið 1956, en af landsleik varð
ekki. Leiknir voru þrír leikir í
þeirri ferð og var sá fyrsti við
félagslið í Philadelphia, en þeim
leik lauk með jafntefli 3—3. Næst
var leikið við Boltemor All Star og
lauk þeim leik með sigri Islands
4—0. Síðasti leikurinn fór fram í
New York gegn iiði frá Israel,
Maccabi. Leiknum lauk með sigri
ísraelsmanna, sem skoruðu 2 mörk
án þess að Islendingar gætu
svarað fyrir sig. í þessum leik var
keppt um bikar, sem sjálfsagt var
um 1. metri á hæð og hinn
skrautlegasti gripur og var hann
gefinn af útfararstjórum í New
York. Þeir virtust ekki vera á
vnástrái“ því einnig gáfu þeir
Israelsmönnum rútubifreið eina
mikla og glæsilega. ' —áij.
Atli Eðvaldsson, Val
Ilörður Ililmarssqn, Val
Karl Þórðarson, ÍA
Pétur Pétursson, IA
Guðmundur Þorbjörnsson, Val
Ingi Björn Albertsson, Val
Ólafur Júlíusson, ÍBK
Ólafur Danivalsson, FH
Fjórir leikmannanna hafa ekki
leikið með a-landsliði, og Þor-
steinn markvörður, varnar-
mennirnir Dýri og Róbert og
tengiliðurinn Sigurður Björgvins-
son. Ljóst er að einhverjir þessara
kappa fá eldskírn sína með lands-
liði gagn Bandaríkjunum á sunnu-
dag. Nokkur ár eru síðan Ólafur
Júlíusson lék með landsliðinu.
Meðalaldur leikmanna liðsins er
um 23 ár og elztu leikmennirnir
eru Ólafur Júlíusson og Ingi Björn
Albertsson. Flesta landsleiki hefur
Gísli Torfason að baki, 26 talsins,
Árni Sveinsson og Ólafur Júlíus-
son hafa 15 sinnum klæðzt lands-
liðspeysunni, Hörður Hilmarsson,
11 sinnum og Ingi Björn 10
sinnum. Að meðaltali er 6 xk
landsleikur að baki hverjum spil-
ara í landsliðshópnum.
Það er athyglisvert hversu
margir leikmannanna hafa leikið
með unglingalandsliðum og er
greinilegt að hið mikla unglinga-
starf KSI undanfarin ár er þegar
farið að bera ríkulegan ávöxt. Jón
markvörður á 8 unglingalands-
leiki, Árni 7, Róbert 6, Gísli 6,
Janus 15 (fleiri en nokkur annar),
Sigurður 9, Karl 1, Pétur 4, Ingi 4,
Ólafur Danivalsson 3.
Nokkrar breytingar hafa verið
gerðar á landsliðshópnum frá því
sem var gegn Dönum á Laugar-
dalsvellinum í sumar. Veiga-
mestar eru þær að nú kemur
enginn „útlendingur" í lands-
leikinn, en þá léku Jóhannes
Eðvaldsson, Jón Pétursson, Árni
Stefánsson og Teitur Þórðarson
mikilvæg hlutverk í liðinu. Þessir
leikmenn komust ekki til leiksins
nú og þá ekki heldur Ásgeir
Sigurvinsson. Þá eru þeir Arnór
Guðjohnsen og Jón Gunnlaugsson
ekki heldur í landsliðshópnum, en
þeir voru báðir varamenn í Dana-
leiknum. Jón Þorbjörnsson ÍA, var
valinn í hópinn, en gaf ekki kost
á sér.
Á miðvikudaginn í næstu viku
verður síðan landsleikur á Laugar-
dalsvellinum gegn Pólverjum og er
það fyrsti leikur Islands í Evrópu-
• Nú eru það Bandaríkjamenn
irnir, hvernig skyldi það fara
Guðmundur Þorbjörnsson.
keppninni. Þá er mögulegt að þeir
Jóhannes, Jón og Árni geti leikið.
Ásgeir Sigurvinsson getur senni-
lega aðeins leikið með gegn
Hollendingum í haust og Teitur
aðeins með á móti A-Þjóðverjum.
Jóhannes, Jón og Árni geta
væntanlega allir leikið þessa leiki.
Dómari í leiknum á sunnudag-
inn verður Norðmaðurinn Rolf
Haugen og línuverðir með honum
Eysteinn Guðmundsson og Róbert
Jónsson. Forsala aðgöngumiða
hefst við Útvegsbankann klukkan
10 á föstudagsmorgun, en verður
síðan á Laugardalsvelli frá 9—12
á laugardag og frá 10—14 á
leikdaginn. — áij.
------------------------------!
FÁIR knattspyrnumenn hafa verið eins umtalað-
ir í Svíþjóð í ár og Teitur Þórðarson. Strax í vor
var talað um hann sem íslenzka eldf jallið er spúði
mörkum, en ckki eldi eða eimyrju. Enn er talað
um Teit og enn skorar hann mörk. Þau eru nú
orðin 8 talsins í Allsvenskan og síðast á
sunnudaginn gerði hann síðara mark Öster gegn
Gautaborg, en jafntcfli varð í leiknum. 2i2. Teitur
er nú í þriðja sæti í keppninni um markakóngs-
titilinn í Svíþjóð, sá sem hefur skorað flest mörk
er með 11.
í grein Dagens Nyheter um leik Öster og
Gautaborgar er Teitur valinn bezti maðurinn á
vellinum (matchens lirare) og segir það sína sögu
um frammistöðu Teits í ár. Meðfylgjandi mynd
er birt af Teiti og sýnir þennan „ískalda
íslending“ leika á markvörð andstæðinganna og
skora skemmtilegt mark.
Þcir eru fleiri íslendingarnir í Svíþjóð, sem
gera það gott í ár. Eiríkur Þorsteinsson leikur
með Grimsás og félag hans hcfur forystu í sínum
riðli í 3. deildinni. Liðið hefur hlotið 23 stig í 17
leikjum og cr það einu stigi meira en næsta lið.
í 2. dcildinni leika þeir Jón Pétursson og Árni
Stefánsson með Jönköping og hefur liðið staðið
sig vel að undanförnu eftir slæma byrjun. Það
hefur nú hlotið 20 stig, en aðeins tvö lið hafa
hlotið flciri stig, IFK Malmö 23 og Halmia 20.
Þorsteinn Ólafsson, fyrrum markvörður ÍBK
og landsliðsins, leikur með Perstorp og hefur
hann f sumar verið sterkasti maður liðsins.
Félagið leikur í sama riðli og Grimsás og er með
18 stig. í blaðaumsögnum um leiki liðsins kemur
greiniíega fram að án Þorsteins væri staða liðsins
lítt glæsileg.
- áij