Morgunblaðið - 30.08.1978, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 30.08.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1978 23 Jóhann Guðmunds- son — Minningarorð F. 24. september 1900. D. 19. ágúst 1978. Jóhann Guðmundsson var fædd- ur í Dalbæ í Hrunamannahreppi, sonur hjónanna Guðfinnu Kol- beinsdóttur og Guðmundar Guðmundssonar, sem þar bjuggu rausnarbúi. Þar ólst hann upp ásamt 7 systkinum í glaðværð og vinnusemi. Snemma tók Jóhann þátt í starfi Ungmennafélags Hrunamanna og á þess tíma mælikvarða var hann góður íþróttamaður og vann til verð- launa á héraðsmótum, m.a. Skarp- héðinsskjöldinn fyrir glímu, enda með karlmannlegustu mönnum og ljúfmannlegur í aliri framkomu. Ég efast ekki um að Jóhann hefði getað orðið góður bóndi, en af heilsufarsástæðum gat hann það ekki. Því kynnti hann sér nýjustu vélvæðingu þess tíma, bifreiðina, og gerðist einn af fyrstu langferðabílstjórum, á leið- inni milli Reykjavíkur og Hreppa. I þá daga annaðist bílstjórinn allskonar erindi fyrir bændur og búalið og segir sig sjálft að það hefur verið mikils virði að hafa jafn traustan og lipran mann eins og^ Jóhann, til að ganga ýmissa erinda fyrir sig. Þann 16. okt. 1926 kvæntist Jóhann Steindóru Camillu Guðmundsdóttur frá Sólheimum í Hrunamannahreppi, mikilli myndarkonu og hófu þau búskap í Reykjavík og bjuggu þar alltaf síðan. Þau eignuðust fjögur börn, en misstu yngsta barnið, Jóhann Birgi, tveggja mánaða gamlan. Hin eru Kristrún, gift Halldóri V. Sigurðssyni ríkisendurskoðanda, Gyða gift Kristjáni Magnússyni húsasmíðameistara og Guðmund- ur Hörður verzlunarmaður. Einnig ólu þau Steindóra og Jóhann upp systurdóttur Jóhanns, Önnu Sig- urðardóttur, og naut hún um- hyggju og ástríkis sem væri hún þeirra dóttir. Anna er gift Erlingi Kristjánssyni rafeindavirkja. Jóhann missti konu sína árið 1968 og var hún honum mikill harm- dauði. Eftir það bjó hann hjá Gyðu dóttur sinni og Kristjáni tengda- syni sínum. Árið 1930 hóf Jóhann störf í Gamla Bíói. sem umsjónarmaður Fædd 16. janúar 1929. Dáin í maí 1978. Ég minnist Elínar með litlu ljóði, með hjartans þökk fyrir 30 ára dásamlega vináttu. ÉK minnist þín Ltf minnist þin er moraunNÓIin bjarta af mari akfn. Sem mornunljÓK f mfnu breyaka hjarta rete minninK þfn. minnist þfn er svffur ljós að sævi ok aumar dvfn. ( aorKarmóðu minnar kbldu ævi fóll minninK þfn. og dyravörður. Flestir Reykvíking- ar sem komnir eru af unglingsár- um, kannast við „Jóhann í Gamla Bíó“. I mínum augum var hann þar sem ímynd stöðugleikans í tilver- unni, alltaf á sínum stað. Ekki skipti máli þótt eigendaskipti yrðu á fyrirtækinu, alltaf var hús- bóndahollustan og samvizkusemin sú sama. Ekki var hægt að hugsa sér að hann hefði unnið fyrirtæk- inu betur, þó hann hefði átt það sjálfur, enda held ég að traustið hafi verið gagnkvæmt. Það er orðið fátítt að unnið sé á sama stað í 43 ár, en það gerði Jóhann þangað til að hann varð að láta af störfum fyrir aldurs og sjúkdóms sakir. Þegar ég nú kveð tengdaföður minn hinztu kveðju, er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast honum og njóta umhyggju og ástúðar hans, fyrir mér og mínum. Svo tel ég, að ég megi þakka honum fyrir hönd allrar fjölskyldunnar. Trúmennska og samvizkusemi voru hans einkunnarorð í lífinu þannig menn hljóta að eiga góða heimkomu á æðri vegum. Blessuð sé minning hans. H.V.S. Ék minnÍHt þfn, ok KÍróst ef blesmjð blfða þér brosir sæl. Ék minnist þfn, ef sorKarspor þér svfða ok siran Kræt. Ék minnist þfn um daK sem dimmar nætur, ok draumastef úr minni sorK um sjúkar hjartarætur éK sit ok vef. (Eftir Matthías Jochumsson) Innilegar samúðarkveðjur til barna hennar og annarra vanda- manna. Vinkona. í dag verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík Jóhann Guðmundsson fyrrum umsjónar- maður í Gamla Bíói, en hann andaðist á Borgarspítalanum þann ' 19. ágúst. Jóhann var fæddur þ. 24. sep- tember 1900 að Dalbæ í Hruna- mannahreppi og voru foreldrar hans Guðfinna Kolbeinsdóttir og Guðmundur Guðmundsson bóndi að Dalbæ. Þau eignuðust átta börn og eru fjögur þeirra nú látin. Jóhann kvæntist Steindóru Guð- mundsdóttur frá Sólheimum í Hrunamannahreppi, en hún and- aðist árið 1968. Börn þeirra eru: Kristrún gift Halldóri V. Sigurðssyni ríkisend- urskoðenda. Gyða gift Kristjáni Magnússyni húsasmíðameistara. Guðmundur verzlm. í Reykjavík, og drengur er þau misstu 2ja mánaða gamlan. Énnfremur fóstr- uðu þau Önnu Sigurðardóttur, en hún er systurdóttir Jóhanns og er gift Erlingi Kristjánssyni raf- eindatækni. Þegar við núverandi eigendur Gamla Bíós keyptum það árið 1940, var Jóhann umsjónarmaður hússins og starfaði hann við það áfram til ársins 1974, er hann varð að láta af störfum sökum heilsu- brests. Það muna sjálfsagt margir bæði eldri og yngri Reykvíkingar eftir Jóhanni, sem dyraverði í Gamla Bíói. Hann var myndarlegur mað- ur á velli, vel á sig kominn og ávallt snyrtilega til fara og kurteis við bíógesti. Jóhann var sérstakt lipurmenni í allri umgengni, skyldurækinn, stundvís og húsbóndahollur svo af bar. Hann sá um alla ræstingu á bíóhúsinu og rækti hann það starf sitt svo vel að vart varð á betra kosið, enda kom aldrei til athuga- semda af hálfu opinberra eftirlits- mana. Jóhann unni eiginkonu sinni Steindóru mjög og eftir andlát hennar virtist honum svo brugðið að hann leit vart glaðan dag. Að leiðarlokum færum við Jó- hanni hugheilar þakkir fyrir störf hans við fyrirtækið og flytjum aðstandendum hans innilegar samúðarkveðjur. Ilafliði Halldórsson Ililmar Garðars. Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- lormi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili. + Útför systur okkar, ÖNNU SIGURBJARGAR ARADÓTTUR Hamrahlíð 9 fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 31. ágúst kl. 13.30. Petra Aradóttir Ragnheiður Aradóttir, Guðrún Aradóttir. + Útför elskulegrar systur okkar. SIGRÍÐAR GUDRÚNAR JÓNSDÓTTUR, Akurgerði 17, sem lést 22. ágúst, fer fram fimmtudaginn 31. ágúst kl. 13.30 frá Fossvogskirkju. Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna. Guðrún Jónadóttir, Hulda Eilbergaa. Elín Guðmundsdóttir Gibbons — Minning + Hjartkær eiginmaöur minn, CÆSAR MAR, Sogavegi 136, lést í Borgarspítalanum mánudaginn 28. ágúst. Jóhanna Mar. + Maöurinn minn, GÍSLI SIGUROSSON andaöist í Landspítalanurti 24. ágúst. Útförin tilkynnt síöar. Katrín Kolbeinsdóttir. + Útför móöur okkar og tengdamóöur. KRISTRÚNAR JÓSEFSDÓTTUR, Bollagötu 3, veröur gerö frá Fossvogskirkju föstudaginn 1. september kl. 10.30. Þeir sem vildu minnast hennar eru vinsamlegast beönir aö láta Hallgrímskirkju njóta þess. Una Jóhannesdóttir, Björn Jóhannesson, Margrét Jóhannesdóttir, Ólafur Bjarnason, Hólmfríöur Jóhannesdóttir, Jón Jósep Jóhannesson, Gísli Ólafsson, Sigurður Jóhannesson, Þórhalla Gunnarsdóttir, Einar Jóhannesson, Marianne Jóhannesson. + Þökkum innilega samúö og vinarhug viö andlát og útför, BJÖRNS BJÖRGVINSSONAR, löggilts endurskoðanda. Erla Jónadóttir, Kristín Erla Björnsdóttir, Kristín Jóhannesdóttir, Guðlaug Björg Björnsdóttir, Helgi Árnason, Árni Björn Björnsson, Unnur Dóra Kristjánsdóttir, Anna Kristrún Björnsdóttir, Ólafur Jóelsson. + Þökkum auösýnda samúö og vináttu vegna andláts og jaröarfarar eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, ELÍNAR INGU H. JÓHANNESSON, Hrafnhólum 6. Steingrímur Jóhannesson, Anný Steingrímsdóttír, Stígur Steingrímsson, Þyrí Baldursdóttir, Jóhannes Steingrímsson, Unnur Grétarsdóttir og barnabörn. + Þökkum innilega öllum þeim, er sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför, rtANNVEIGAR JÓNSDÓTTUR, Ásabraut 9, Keflavík. Sérstakar þakkir til lækna, hjúkrunar- og starfsfólks Keflavikurspítala. Jón Jóhannesson, Anna Jónsdóttir, Skarphéðinn Njálsson og barnabörn. + Alúöar þakkir öllum þeim mörgu sem auösýndu okkur samúð og vinsemd við andlát og jarðarför móöur okkar og tengdamóöur. GUÐBJARGAR ERLENDSDÓTTUR fré Ekru, StöðvaHirði. Björg Einarsdóttir, Lúðvik Gestsson, ÞorÞjörg Einarsdóttir, Björn Stefánsson, Arma Einarsdóttir, Baldur Helgason, Benedikt Einarsson, Margrét Stefánsdóttir, Björn Einarsson, Gunnvör Braga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.