Morgunblaðið - 30.08.1978, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.08.1978, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1978 Ljósm. Mbl.: Kristinn. Friðrik Ólafsson og Auður Júlíusdóttir ásamt dætrum sínum á heimili þeirra í gærkvöldi, en þau Friðrik og Auður héldu í morgun til Hollands. 12 stórmeistarar 1 Interpolismótinu — sem verður af 14. styrkleikagráðu FRIÐRIK Ólafsson stórmeistari er nú á förum til Hollands, þar sem hann verður sérstakur gestur mótsstjórnar Interpolisskákmóts- ins í Tilburg, en í mótinu keppa 12 stórmeistarar og er það af 14. styrkleikagráðu, meðaltal kepp- enda 2592 skákstig. Friðrik er ekki meðal keppenda á mótinu, en flytur m.a. ávarp við setningu mótsins. Keppendur eru: Spassky, Hort, Larsen, Portish, Timman, Miles, Browne, Lubojevic, Hiibner, Ribli, Sosonko og Dzindzindashvili. Fyrsta umferð mótsins verður tefld á föstudaginn. V erðbó tavísitalan hækkar um 8,10% Fyrirframgreiðslu-launþegar fá greitt samkvæmt bráðabirgðalögum Georg Olafsson verðlagsstjóri: „Mótmæli því að verð- lagsyfirvöld hafi vitað um hækkun innkaupsverðs,, „ÉG MÓTMÆLI því, að verðlags- yfirvöldum hafi verið kunnugt um. að innkaupsverð vissra vöru- tegunda hafi verið hækkað er- lendis vegna álagningarreglna hér innanlands," sagði Georg Ólafsson verðlagsstjóri þegar Morgunblaðið spurði hann álits á þeirri fullyrðingu Árna Árnason- ar hjá Verzlunarráði íslands, að bæði verðlagsstjóra og formanni verðlagsnefndar hafi verið kunn- ugt um þetta mál. „Fljótlega eftir að ég hóf störf á verðlagsskrifstofunni, gerði ég mér grein fyrir því, að kanna þyrfti hvort íslenzkir innflytjend- ur gerðu hagk'væm innkaup á vörum erlendis og í framhaldi af því var verðkönnun gerð í Eng- landi haustið 1976 og hún leiddi í ljós, að íslenzkir innflytjendur keyptu inn á hærra verði en starfsbræður þeirra í Englandi. Það var gerð opinber grein fyrir þeirri könnun og þá voru viðbrögð innflytjenda önnur en nú, þar sem þeir hreinlega mótmæltu því að verð vara væri hækkað erlendis til að mæta lægri álagningu hér heima, heldur væru einungis tekin eðlileg umboðslaun fyrir einkaum- boð eins og aðrar þjóðir gera, en mismunurinn lægi fyrst og fremst í dýrari pakkningum, minna keyptu magni og öðru þess háttar. Þessi könnun var það einföld, að verðlagsyfirvöld töldu rétt að kanna málið frekar, þar sem túlkun innflytjenda á mismunin- um virtist ekki skýra málið," sagði Georg. „Þess vegna æsktum við þess að þessi samnorræna könnun væri gerð. Hún staðfestir Lundúna- könnunina og eftir að hún hefur verið birt, þá staðfestir Verzlunar- ráðið það sem margir höfðu haldið, að vöruverð væri hækkað erlendis að ráði innflytjenda. Þessi skýring kom hvorki fram hjá Verzlunarráðinu né stórkaup- mönnum 1976. Og ég mótmæli því, að verðlagsyfirvöld hafi haft vissu fyrir því, að svona væri í pottinn búið, eins og Árni Árnason gefur í skyn. Það segir sig hins vegar sjálft, að þessar kannanir voru gerðar vegna gruns um að íslenzk- ir innflytjendur gerðu óhagkvæm innkaup miðað við það sem gerist annarsstaðar," sagði Georg Ölafs- son að lokum. KAUPLAGSNEFND hefur gefið út tilkynningu um verðbætur til launþega frá 1. september að telja og kemur þar fram að verðbótavísitala hefur hækkað um 8,10% frá þeirri vísitölu er tók gildi 1. júní sl. í tilkynningu Kauplagsnefndar er enn gengið út frá lögunum um ráðstafanir í efnahagsmálum frá því fyrr á þessu ári, þar sem segir að verðbætur á laun skuli hverju sinni hækka sem svarar helmingi þeirrar hækkunar verðbótavísitölu og verðbótaauka, sem Kauplags- nefnd reiknar samkvæmt ákvæð- um um kjarasamninga að hafi átt sér stað á næstliðnu 3ja mánaða tímabili. Þessi hækkun er nú 8,10% eins og áður greinir og skal samkvæmt því verða 4,05% verð- bótahækkun launa frá og með 1. september. Auk þessarar launa- hækkunar eru í kjarasamningum ákvæði um áfangahækkanir launa frá 1. september nk. — 4000 krónur hjá ASÍ og 3% hjá BSRB. Þeir aðilar sem fá greitt kaup sitt fyrirfram, svo sem allflestir opinberir starfsmenn munu því fá kaup sitt greitt um næstu mánaða- mót samkvæmt efnahagsmála- frumvarpi fráfarandi ríkisstjórn- ar, þ.e. 4.05% verðbætur enda þótt niðurstaða yfirstandandi stjórnar- myndunarviðræðna verði á þann veg að samningarnir verði látnir vera í fullu gildi eða því sem næst. Launaútreikningar voru keyrðir í skýrsluvélum í fyrrinótt, þar eð þá voru síðustu forvöð til sliks fyrir mánaðamótin, en gert mun ráð fyrir að verði einhver breyting á forsendum launaútreikninga til hækkunar launa, muni launþegar fá slíkt bætt við næstu eðlilegu útborgun launa, eftir því sem Mbl. kemst næst. Erlendur kastaði 61,53m Erlendur Valdimarsson ÍR náði sinum bezta árangri í kringlukasti á árinu þegar hann kastaði 61,53 metra á Reykjavíkurmeistaramót- inu í frjálsíþróttum á Laugardals- velli í gærkvöldi. Á mótinu hljóp Valbjörn 110 m grindahlaup á 14,9 sekúndum. Mok loðnuveiði við Jan Mayen: Norsk skip fengu 13 þús. lestir í gær og fyrradag 17 skip með 6850 lestir LOÐNUVEIÐI norður af Vest- fjörðum hefur ekki verið neitt tiltakanlega góð síðustu daga en frá því kl. 17 í fyrradag fram til kl. 16 í gær tilkynntu 17 skip afla, samtals 6850 íestir, og eru þau þessit Gull- berg VE 600 lestir, Skarðsvík SH 610, Jón Finnsson GK 550, Gunnar Jónsson VE 300, Ilrafn Sveinbjarnarson GK 200. Sæbjörg VE 170, Óskar Halldórsson RE 400, Seley SU 150, Dagfari ÞH 100, Bergur 2. VE 150, Freyja RE 390, Hrafn GK 650, Náttfari ÞII 530, Arnarnes HF 500, Fífill GK 600. Hilmir SU 530 og Guðmundur RE 400 lestir. MJÖG GÓÐ loðnuveiði hefur verið hjá norskum skipum á svæðinu vestur af Jan Mayen siðustu daga og í gær og í fyrradag var tilkynnt um samtals 13 þús. tonna veiði á þessu svæði, en samkvæmt því sem Mbl. er kunnugt um fóru aðcins 10—12 norsk skip til loðnuveiða á þessu svæði. Hins vegar hefur ekkert fslenzkt skip farið til loðnuveiða við Jan Mayen enn. en engu að síður cr þeim það heimilt, þar sem enn hefur ekki verið gengið frá fiskveiðiréttindum kringum Jan Mayen . Og fyrir nokkrum dögum lét Knut Vartdal fiski- málastjóri Noregs hafa það eftir sér í norskum blöðum, að brýna nauðsyn bæri til að ræða við íslendinga um þessi mál. Þá fregnaði Morgunblaðið í gær að færeysk loðnuskip væru farin af stað á miðin við Jan Mayen. Jakob Jakobsson fiskifræðingur og aðstoðarforstjóri Hafrann- sóknastofnunarinnar sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær að einhverjir ísl. útgerðarmenn og skipstjórar hefðu haft hug á að athuga með veiði á Jan Mayen- svæðinu, en þar til nú fyrir skömmu hefðu menn haldið að Islendingar mættu ekki stunda veiðar innan miðlínumarka Jan Mayen. Þær fréttir bárust í gær frá Noregi, að norsk skip hefðu tilkynnt um 6 þús. lesta afla af svæði 15—30 mílur vestur af Jan Mayen í fyrradag og í gærmorgun hefði verið tilkynnt um 7 þús. lesta afla. Þess má geta, að á síldar- árunum varð oft vart við mjög mikið loðnumagn á þessu svæði. Jakob Jakobsson sagði þegar hann ræddi við Mbl., að mikil loðnuveiði á þessu svæði gæti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir íslendinga, þar sem nær öruggt væri, að það væri íslenzki loðnustofninn sem þarna héldi sig, og ekki mætti sækja of mikið í þennan stofn. Næst hæsta verðið VÉLBÁTURINN Reynir frá Sandgerði fékk næst hæsta meðal- verð sem fengizt hefur fyrir fisk í Englandi á þessu ári, þegar báturinn seldi í Fleetwood í gær eða kr. 317 á kíló og er þá miðað við að hvert pund sé skráð á 500 kr. á íslandi. Reynir seldi tæpar 36 lestir fyrir um 12 millj. kr. Þá seldi Jón Helgason ÁR 47 lestir í Fleetwood fyrir 8.5 millj. kr. og var meðalverð á kíló kr. 190. Bylgja VE seldi um 50 tonn í Hull fyrir 12.5 millj. kr. og var meðal- verð á kílói kr. 250. Jón Reynir Magnússon: „Verulegt tap er af loðnuverksmiðjunum” „VIÐ höfum ekki farið út í það að reikna tapið af rckstrinum ná- kvæmlega en af þeim tölum. sem við höfum í höndunum, er vel sjáanlegt að það er ~verulegt,“ sagði Jón Reynir Magnússon formaður Félags ísl. fiskmjöls- framleiðenda þegar Morgunblað- ið ræddi við hann í gær. Félag ísl. fiskmjölsframleiðenda hélt fund í fyrradag og þar kom fram í umræðum að loðnuverksmiðjurn- ar hefðu verið reknar með miklu tapi undanfarið. Á þessum fundi var samþykkt að fela stjórn félagsins að fara á fund væntan- legs sjávarútvegsráðherra og útskýra og ræða þann vanda sem verksmiðjurnar eiga nú við að etja. „Það sem hefur komið hvað verst við verksmiðjurnar, er hvað nýtingin hefur verið iéleg í sumar, og þá sérstaklega ef miðað er við hráefnisverð. Auk þess sem nýting hefur verið léleg, þá hafa afköst verksmiðjanna verið léleg," sagði Jón Reynir þegar Mbl. ræddi við hann. Þá sagði Jón Reynir Magnússon, að auk fyrrgreindra atriða væru afurðir verksmiðjanna ekki nægi- lega góðar í sumar, mjölið væri feitara en góðu hófi gegndi, auk þess sem það væri ekki nægilega próteinríkt. Ennfremur bættist við, að lýsið væri oft og tíðum mjög súrt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.