Morgunblaðið - 30.08.1978, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 30.08.1978, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1978 25 fclk í fréttum + Hún heitir Ruth Clausen þessi danska kona, 39 ára gömul, fráskilin og barnlaus. — Segist vera ákveðin í því að gifta sig aldrei aftur, hafi nánast óbeit á karldýrunum, segir hún. — Þessi kona hét þó allt öðru nafni fyrstu 35 ár æfi sinnar. — Þá var nafn hennar Preben Henry Rasmussen. — Hún er nefnilega kynskiftingur einn af um 100 í Danmörku, sem með læknisaðgerð hafa skipt um kyn þar í landi. Var það gert á Ríkisspítalanum árið 1974. Hún gifti sig tveimur árum síðar, en skildi við manninn. Orsökin hafði ekkert með kynskiptinguna að gera, heldur drykkjuskap eiginmannsins. Ruth lagði áherzlu á að hún hafi aldrei séð eftir því, að hafa gerzt kona. Stúlka í LeMans- kappakstri + Le Mans-kappaksturinn er ein frægasta kapp- aksturskeppnin sem háð er árlega í Evrópu. Nú gerðist það að í fyrsta skipti tók brezk stúlka þátt í þessari keppni, sem krefst mikillar hæfni þátttakenda og líkamlegs þreks, því ekið er í 24 klst. samfleytt. Brezka stúlkan heitir Julietta Slaughter. + Bandaríski myndhöggvarinn Peter Toth, hefur nýlega lokið viö að gara petta rosastóra Indíinaminnismerki. Þetta er reyndar ekki hiö fyrsta. Hann er búinn að gera 28 slík, en ætlar að gera eitt slíkt minnismerki um Indíánana í hverju einasta fylki Bandaríkjanna — 50 að tölu. Þetta minnismerki hefur hann gert úr stórviði frá lowa-fylki. Neytendasamtökin fagna frumkvæði verðlagsstjóra Á FUNDI í stjórn Neytendasam- takanna, sem haldinn var fyrir skömmu. var fjallað um þann samanburð á innkaupsverði nokkurra vörutegunda, sem verð- lagsstjóri hefur nú beitt sér fyrir. Stjórnin fagnaði því frumkvæði, sem verðlagsstjóri hefur átt í þessu máli, og í fréttatilkynningu frá Neytendasamtökunum segir, að lýst sé fullum stuðningi við störf hans. Niðurstaða könnunar- innar staðfesti þann grun, sem lengi hefur verið uppi, um að íslendingar geri mun óhagstæð- ari innkaup en aðrar Norður- landaþjóðir. Þá telur stjórn Neytendasam- takanna nauðsynlegt, að við frek- ari verðsamanburð verði heimilað að birta verðsamanburð einstakra vöruflokka, þar sem slíkur saman- hurður mundi segja mun meira, og hvetur verðlagsstjóra að vinna að því. Þá segir í fréttatilkynningu Neytendasamtakanna, að þær nið- urstöður sem birtar hafi verið, séu uggvænlegar og er þeim tilmælum beint til stjórnvalda að þau láti rannsaka hverjar séu ástæðurnar fyrir því, að Islendingar búi við 21—27% hærra innkaupsverð þeirra vöruflokka, sem umrædd könnun náði til, en aðrar Norður- landaþjóðir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.