Morgunblaðið - 30.08.1978, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1978 15
Sem músa-
rindiU smár...
Bréfasafn páfa metsölubók
Vatíkaninu — 29. ágúst. — AP.
„SUMIR biskupar líkjast erninum, sem svífur
tignarlega í hæðum. Aðrir eru eins og næturgalar,
sem syngja unaðsfagra söngva, drottni til dýrðar.
Enn aðrir eru sem músarindillinn smái á neðstu
grein á meiði kirkjunnar. Hann tístir, og væntir þess
eins að leggja til lítið hugboð í hinar miklu
kenningar. Eg er í síðast talda hópnum.“
Þessa auðmjúku setningu er
að finna í bók, sem á svipstundu
hefur orðið metsölubók á Ítalíu,
og höfundurinn er enginn annar
en Jóhannes Páll páfi I.
Bókin kom út fyrir nokkrum
árum og er í rauninni bréfasafn,
sem fyrst birtist í kaþólska
mánaðarritinu „Boðberi heilags
Antóníusar", en það er gefið út
í Padúa. Bréfin eru rituð ýmsum
sögufrægum persónum raun-
verulegum og skálduðum, svo
sem Marlowe, Dickens, Chester-
ton, Goethe, Mark Twain, Jesú
Kristi og ýmsum kirkjunnar
mönnum, en það eru ekki aðeins
andans jöfrar, sem hafa fengið
tilskrif frá hinum nýkjörna
páfa, heldur einnig smælingjar
eins og Gosi litli, brúðudrengur-
inn ástsæli.
Víða eru gamansamir kaflar í
bréfunum, sem voru afar vinsæl
er þau birtust fyrst á prenti.
Luciani þáverandi kardínáli í
Feneyjum segir meðal annars í
bréfi til Mark Twain: „Bók, sem
bundin er í skinn, er til margra
hluta nytsamleg, til dæmis er
ljómandi að brýna á henni
rakhníf. Þykkar bækur, svo sem
orðabækur, eru mjög handhæg-
ar til að grýta í ketti. Landa-
kortabækur má nota til að
byrgja brotná glugga". Hann
kveðst sammála Twain um það
að mannskepnan sé yfirleitt
flóknara fyrirbæri en hún virð-
ist við fyrstu sýn, og að í
hverjum einstaklingi búi raunar
þrír menn: í fyrsta lagi sá, sem
viðkomandi sjálfur sér, í öðru
lagi, sem aðrir sjá, og loks sá,
sem hann er í raun og veru.
„Okkur þykir óstjórnlega vænt
um okkur sjálf og tökum okkur
sjálf fram yfir alla aðra“, segir
Jóhannes Páll I. Hann segir að
vegna þéssarar væntumþykju
höfum við tilhneigingu til þess
að gera óhóflega mikið úr
mannkostum þeim, er við kunn-
um að hafa. Hann vitnar í þekkt
ljóð eftir Trilussa um snigil, sem
situr á steini og horfir á
brimlöðrið, og leikur sér að
tilhugsuninni um það að hann
muni vissulega skilja eftir sig
spor í sögunni. „Kæri Twain,"
skrifar hann „við erum nefni-
lega ekki annað en froðusletta".
Þá rifjar hann upp gamla
sögu um asna, sem sveipaði sig
ljónsskinni og fór síðan á kreik
með þeim afleiðingum að allt
kvikt lagði á flótta. Þegar
stormsveipur svipti skinninu af
og asninn kom í ljós réðust
menn og dýr á hann, og ályktun
páfans nýkjörna er tilvitnun í
Bernhard Shaw: „En hvað sann-
leikurinn er broslegur", og hann
bætir því við að ekki sé hægt
annað en hlæja að tilhugsuninni
um það hvað lítið sé undir
titlum og frægð.
Kína—Víetnam:
Vaxandi
spenna
á landa-
mærunum
Peking, 29. ágúst, Reuter.
Fréttastofan Nýja Kína
sakaði Víetnama í dag um
að hafa komið upp sérstök-
um bannsvæðum við landa-
mæri landanna í þeim til-
gangi að flæma þaðan fólk
af kínversku þjóðerni. Sagði
fréttastofan að öll híbýli á
svæðunum hefðu verið rifin
og eyðilögð. Fréttastofan
sagði að andrúmsloftið við
landamærin væri rafmagn-
að og færi spennan vaxandi.
ERLENT
/'V w
e.
B.C
Akureyri 9 skýjaó
Amsterdam 17 rigning 33 heiðskírt
Apena
Barcelona 27 léttskýjað
Berlín 15 rigning
Brýssel vantar
Chicago 28 skýjaö
Frankfurt 19 skýjað 19 heiðskírt
Genf ‘
Helsinki 16 skýjað
Jerúsalem 27 heiðskírt
Jóhannesarb. 21 heiöskírt
Kaupmannah. 17 rigning
Lissabon 25 heiðskírt
London 20 sólskin
Los Angeles 31 heiðskírt
Madríd 33 heiðskírt
Malaga vantar
Mallorca vantar
Miami 27 heiöskírt
Moskva 19 skýjað
New York 26 skýjað
Osló 17 heiðskírt
París 19 sólskin
Rio De
Janeiro 27 sólskin
Rómaborg 24 heiöskírt
Stokkhólmur 16 heiðskírt
Tel Aviv 29 skýjað
Tókýó vantar
Vancouver 22 heiöskírt
Vínarborg vantar
Ú tgef andi tímarits
myrtur í Argentínu
Buenos Aires. — 29. ágúst. AP.
ÚTGEFANDI timarits nokkurs í
Argentínu, Horacio Agulla, var
skotinn tii bana síðastliðið mánu-
dagskvöld', er hann sté út úr
bifreið sinni á leið í samkvæmi.
Agulla lczt fljótlega af skotsár
um, en tilræðismennirnir, sem
voru tveir, komust undan í
leigubíl. Ekki er vitað hverjir
stóðu að morðinu.
Agulla starfaði áður sem lög-
fræðingur og stjórnmálamaður, en
var ráðinn útgefandi íhaldssams
tímarits, Confrimado, í janúar
síðastliðnum. Hann hélt uppi
vægri gagnrýni á efnahagsstjórn
landsins, en studdi annars hægri
sinnaða herforingjastjórn.
Á síðastliðnum fjórum árum
hafa 36 blaðamenn verið drepnir í
Argentínu og um 30 hafa horfið
með einum eða öðrum hætti og um
afdrif fæstra þeirra er vitað. Talið
er líklegt að öryggissveitir herfor-
ingjastjórnarinnar hafi tekið
flesta blaðamennina úr „umferð“
og haldi þeim í fangelsi. Sem
kunnugt er er ströng ritskoðun í
Argentínu. I síðustu viku fengu
bandarískir blaðamenn sem voru á
ferð þar þó að heimsækja einn
fyrrum útgefanda í Argentínu,
sem stjórnin heldur í stofufang-
elsi.
Þannig var ástandið á flugvellinum í Palma á Mallorca í gær þegar hundruð Norðurálfubúa biðu þess
að komast til síns heima, en flugumferð var mörgum klukkustundum á eftir áætlun vegna aðgerða
franskra flugumferðarstjóra, sem um þessar mundir slóra til að leggja áherzlu á kröfur sínar.
Flugumferðarstjórar krefjast þess að á mesta annatímanum verði starfsmönnum fjölgað. Ekki eru horfur
á að vandræðum þessum linni á næstunni, að minnsta kosti ekki fyrr en 4. september. (AP-símamynd)
Líbanon:
Spennan eykst ört
Beirút, 29. ágúst. Reuter—AP.
TIL vopnaðra átaka kom
milli hægrisinna og sýr-
lenzkra friðargæzlusveita í
Beirút í dag og ennfremur
skiptust palestínskir
skæruliðar og líbanskir
hægrisinnar á skotum 1
suðurhluta landsins.
Fer spenna nú ört vax-
andi í landinu og hafa
ýmsir forystumenn á sviði
efnahags- og stjórnmála
látið í ljós áhyggjur með
þróun mála.
Þetta gerðist
1977 — „Sonur Sáms“, David
Berkowitz, er úrskurðaður van-
heill á geðsmunum af geðlækn-
um og ekki fær um að mæta
fyrir dómstóli.
1975 — Vikulöngum fundi
sendinefnda 82 óháðra ríkja í
Perú lýkur nieð áskorun til
öyggisráðs S.Þ. um að þrýsta á
-Israel um að ganga að sam-
komulagsgrundvelli S.Þ. til
lausnar á deilunni fyrir botni
Miðjarðarhafs.
1971 — Stjórnarandstæðingar í
S-Víetnam auka fylgi sitt mjög
í kosningum til nýrrar neðri
málstofu þingsins, en stjórnin
heidur naumum meirihluta.
1970 — Tunku Abduk Rahman
segir af sér forsetaembætti í
Malaysíu.
1955 — Utanríkisráðherrar
Bretlands, Grikkiands og Tyrk-
lands hittast í London til að
ræða málefni Kýpur og land-
anna fyrir botni Miðjarðarhafs.
1911 — Rússneskar hersveitir
koma til Búkarest.
1932— Hermann Göring kosinn
forseti þýzka ríkisþingsins. 30. f.
Kr. Kleopatra drottning
Egyptalands fremur sjálfsmorð.
Afmæli í dagi Marguerite Dei-
auny, franskur rithöfundur
(1687-1750), Mary W. Shelly,
brezkur rithöfundur
(1797—Ruther-
ford, brezkur vísindamaður
(1871 — 1937). Huey Pierce i.ong,
bandarískur stjórnmálamaður
(1893-1935). Joan Blondeil,
bandarísk leikkona (1909----),
Shirlev Booth, bandárisk leik-
kona (1-907—).
Innlenti D. Jón Vídalín biskup
1720. — F. Steinn Jónsson
biskup 1660. — Jón Olafsson
afsalar sér þingmennsku 1905.
— Steinkista Páls biskups opn-
uð 1954.
Orð dagsinsi Torveld eru tvö
járn í eldi — ísl. málsháttur.
Útvarpsstöð falangista sagði að
einn maður hefði fallið fyrir
kúlum Sýrlendinga og annar særzt
í dag. Hermt er að falangistar hafi
verið fyrri til að hefja skotárás og
sýrlenzka sveitin síðan svarað með
árás á hverfi kristinna í höfuð-
borginni, en útvarpsstöðin sagði
þó söguna á hinn veginn.
Ennfremur kom til átaka milli
andstæðra vinstri hópa í hverfum
múhameðstrúarmanna í Beirút í
dag og lá fjöldi manns i valnum
þegar þeim slotaði að 45 mínútum
liðnum.
Israelsmenn hafa vaxandi á-
h.vggjur af þróun mála í Líbanon,
og hafa beðið Bandaríkjastjórn að
koma skilaboðum þess efnis til
Sýrlendinga að sögn embættis-
manna í Jerúsalem í dag. Einn
embættismannanna sagði að Isra-
elsmenn gætu ekki setið auðum
höndum öllu lengur meðan ástand
færi síversnandi i Líbanon.
Forseti Sýrlands, Hafez Al-Ass-
ad, skýrði fréttamönnum frá því í
dag að herir landsins myndu svara
af hörku öllum ögrunum Israels-
manna í Líbanon. Sá ótti vex
meðal manna að versnandi ástand
í Líbanon kunni að leiða til
vopnaskaks milli Sýrlendinga og
ísraelsmanna.
/