Morgunblaðið - 30.08.1978, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1978
27
Sími50249
Orrustan
viö Arnhem
(A bridge too far)
Dirk Bogarde, Sean Connery.
Sýnd kl. 9.
$i]pnP
Sími 50184
Tungumála-
kennarinn
Gamansöm og djörf ítölsk-ensk
kvikmynd.
Sýnd kl. 9.
Bönnuö börnum.
Skuldabréf
fasteignatryggö og spariskírteini
til sölu. Miðstöö verðbréfa-
viöskipta er hjá okkur.
Fyrirgreiðsluskrifstofan
Fasteigna og verðbréfasala
Vesturgötu 17 sími 16223.
Þorleifur Guðmundsson
heimasími 12469.
Al (íLVSIN(i ASIMINN ER: 22480 J ítlorjjmiblnliiíi
Lærið
vélritun
Ný námskeið hefjast 7. september.
Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar, engin heimavinna.
Innritun og upplýsingar í síma 41311 eftir kl. 13:00.
VélritunarskQlinn
Suðurlandsbraut 20
jcizzBaLLeCCskóLi Búru,
líkQm/iccKt j.s.b.
Nýtt námskeið hefst 4. sept.
* líkamsrækt og megrun fyrir dömur á öllum aldri
* morgun- og dag og kvöldtímar
* tímar tvisvar og fjórum sinnum í viku
* Sérstakur matarkúr fyrir þær sem eru í megrun
Vaktavinnufólk ath.
„lausu tímana“ hjá okkur
* Sturtur — sauna — tæki — Ijós
* Muniö okkar vinsæla sólaríum.
* Hjá okkur skín sólin allan daginn, alla daga.
Upplýsingar og innritun í síma 83730,
Ath.
Sér flokkur fyrir þær sem þurfa að megrast mikið (rólegar
og léttar æfingar).
JOZZBQLLeCCGKÓLÍ Búru
N
D
Z1
cr
C0
7V
p
"5
c
blaðburðarfólki
Austurbær Bergstaöastræti
Sóleyjargata
Samtún
Úthverfi Hvassaleiti 1—30.
Reynimelur 1—56.
Hringbraut I og II
Vesturbær Fornhagi
Miöbær
Túngata
Bræöraborgarstígur
Hávallagata
Uppl. í síma 35408
Hópurinn við komuna til Luxemborsar
Islenzkir Benzeigendur
í boðsferð til Þýzkalands
Það er gamall og góður íslensk-
ur siður að þakka fyrir allan
velgjörning. Það vil ég einnig gera
með þessum línum. Það var
snemma á síðastliðnu vori eða 27.
apríl að þýzku bílaverksmiðjurnar
Mercedes-Benz og Ræsir, sem eru
umboðsmenn þeirra á Islandi,
buðu fjörtíu íslenskum viðskipta-
vinum í kynnis- og skemmtiferð til
Þýzkalands.
Stóð ferðin í sjö ógleymanlega
daga.
Flogið var frá Keflavík til
Luxemborgar og án nokkurar
viðkomu. Þar var haldið til Heidel-
berg með hópferðabíl. Næsta dag
sóttum við heim höfuðstöðvar
Mercedes-Benz, Stuttgart, skoðuð-
um þar stórmerkilegt bílasafn, þar
sem hægt er að rekja þróunarsögu
Benzbílsins allt frá upphafi til
nútíðar og þágum dýrlegar veit-
ingar sem og í allri ferðinni. (Já,
það var svo sannarlega við okkur
leikið).
Næsti dagur var ekki síður
viðburðaríkur. Þá sáum við alla
framleiðsluþætti þessa trausta
bíls. Og til marks um feikilegt
umfang verksmiðjanna má nefna,
að fjárlægðin frá upphafsverki
samsetningar bílsins til lokaþáttar
er ekki minni en 20 km og er á allri
þeirri leið endalaus sköpun.
Þennan dag sátum við einnig
myndarveizlu forráðamanna
verksmiðjanna og voru menn
jafnvel leystir út með gjöfum.
Ekki var hér staðar numið.
Verksmiðjurnar buðu til fróðlegr-
ar kynnisferðar um Rínardalinn
og Svörtuskóga.
Þessu ferðalagi lýsi ég ekki
frekar, en það verður sérhverjum
okkar ógleymanlegt, þar sem svo
margt nýstárlegt og sérstætt bar
fyrir augu. Risavaxnir byggingar,
markaðir, tækniundur nútímans,
gömul virki og virðulegir herra-
garðar, vínakrar í snarbröttum
hlíðum og ævarforn brufcghús.
Ég get ekki látið hjá líða að
minnast á og þakka frábæra
leiðsögn og skipulagningu þessar-
ar ferðar. Á betra varð ekki kosið.
Að eiga kost á að fræðast svona
lifandi um bílinn sinn og um leið
ferðast til áður ókunnugra staða
hlýtur að vera hverjum manni
gleðiauki. Svona ferðir, eins og
Ræsir efnir til fyrir dygga við-
skiptamenn sína, eru til eftir-
breytni öðrum fyrirtækjum, enda
er það svo í raun, að sá sem einu
sinni kynnist Mercedes Benz
verður ætíð vinur hans og þar veit
ég, að ég mæli fyrir munn allra,
sem tóku þátt í umræddri ferð.
Hafið heilar þakkir fyrir.
Guðmundur Magnússon
Barðavogi 18
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
NámskeiÖ fyrir ungar stúlkur og dömur á
öllum aldri hefst í byrjun september.
Sérfræðingar leiðbeina með:
★ Framkomu
★ Kurteisi og siövenjur
★ Snyrtingu
★ Hárgreiöslu
★ Líkamsrækt
. ★ Göngulag o.fl.
Innritun og upplýsingar í síma 36141 daglega