Morgunblaðið - 30.08.1978, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. AGUST 1978
31
Evrópumeistaramótið í írjáls-
um íþróttum var sett hér í Prag
klukkan 14.30 í dag að íslenzkum
tíma. Setningarathöfnin var lát-
laus en virðuleg. Mtttöku-
þjóðirnar 32 gengu inn á leik-
vanginn undir þjóðfánum sínum
og var íslenzki flokkurinn sá
áttundi í röðinni. Komu þeir
næstir á eftir írlandi og á undan
ítölum. Óskar Jakobsson var
fánaberi íslenzka hópsins og var
hann eini fánaberinn sem felldi
fánann fyrir framan heiðurs-
stúkuna og fékk hópurinn þá
mikið klapp frá um 40 þúsund
áhorfendum. 1200 ungmenni
sýndu leikfimi að setningunni
lokinni og var sú sýning stór-
glæsileg.
Prag 29. ágúst,
Þórarinn Ragnarsson
skrifar frá EM í
frjálsum íþróttum.
Þá hófst keppnin með 400 metra
grindahlaupi og undanrásum í 100
metra hlaupi. Vilmundur Vil-
hjálmsson hljóp í 4. riðli og virtist
hann vera mjög taugaóstyrkur,
þjófstartaði til að byrja með. Er
hlaupararnir fengu síðan löglegt
start sat hann örlítið eftir. Hann
varð sjöundi og síðastur í sínum
Vilma Bardauskiene frá Sovétríkjunum varð fyrst kvenna til að
stökkva yfir 7 metra í langstökki og í gær bætti hún enn heimsmet
sitt í greininni.
Jón og Vilmundur slðastir í sínum riðlum
ARFTAKI VIREN
SIGRAÐIÍIOKM
riðli og hljóp á 10.76 sekúndum.
Sigurvegarinn í riðlinum var
Petnov frá Búlgaríu, en hann hljóp
á 10.44 sekúndum. Beztum tíma í
undanrásum 100 metra hlaupsins
náði ítalinn Mennea, hljóp á 10.19
sekúndum. Vilmundur hafnaði í
24. sæti af 28 keppendum.
Jón Diðriksson hljóp í 4. og
síðasta riðli í 800 metra hlaupinu
og tókst honum allvel upp. Hann
hélt sig um miðjan hóp fyrri
hringinn, en missti andstæðinga
sína þá of langt frá sér og var
nokkuð að baki hinum keppendum
seinni hringinn. Jón fékk tímann
1:50.40, sem er þokkalegur
árangur, en þó nokkuð frá íslands-
meti Jóns, sem er 1:49.3. Sigurveg-
ari í riðlinum var Sebastian frá
Bretlandi og hljóp á 1:46.8 og var
það bezti tíminn, sem náðist í
undanrásunum.
GLÆSILEGT HEIMSMET
FYRSTA KEPPNISDAGINN
Strax fyrsta daginn var sett
heimsmet, það kom í undanrásum
í langstökki kvenna er rússneska
stúlkan Vilma Bardauskine stökk
7.09 og bætti eigið met um 2
sentimetra. Sovétmenn fengu
einnig fyrsta Evrópumeistarann
er Svetlana Ulnasova sigraði í
3000 metra hlaupi. Hún tók þó
ekki forystuna í hlaupinu fyrr en
um 200 metrar voru eftir. Greta
Waitz hafði leitt hlaupið allan
tímann, en varð að lokum að sætta
sig við brons í keppninni. Nokkuð
óvænt, því norska stúlkan á
heimsmetið í greininni, en
Marocescu frá Rúmeníu varð
önnur. Lóa Ólafsson, dansk-ís-
lenzka stúlkan, varð í 16. sæti.
Mjög óvænt úrslit urðu í 1000
metra hlaupinu er Finninn Martti
Vainio sigraði á tímanum 27:30.99,
en þáð er hans langbesti tími. Þeir,
sem komu í næstu sætum,
Venanzio Ortis frá Ítalíu og
Sovétmaðurinn Alexander
Antipov, hlupu báðir á betri tíma
en nokkru sinni fyrr og komust
óvænt á verðlaunapall. Kappar
eins og Brendan Foster máttu
sætta sig við lakari árangur að
þessu sinni. Hann varð fjórði á
27:32,7 mín.
Besta tímann í undanrásum 400
metra grindahlaupsins fékk
V-Þjóðverjinn Harald Schmid, en
hann hljóp á 49.78, sem er gott hjá
þessum tvítuga Þjóðverja, en hann
á besta árangur keppenda á
mótinu í ár. Núverandi Evrópu-
meistari, Allan Pascoe frá Bret-
landi, komst ekki í úrslitin, en
hann fékk tímann 50.95.
Pietro Mennea frá Italíu náði
bestum tíma í undanrásum 110
metra grindahlaupsins, 10.19 og er
það nýtt Evrópumeistaramótsmet.
Borzov frá Sovétríkjunum tapaði
fyrir Allan Wells frá Bretlandi í
sínum riðli en komst eigi að síður
áfram.
Þjóðverjar mættu ekki til
setningarathafnarinnar í gær til
að mótmæla rangri notkun á nafni
V-Þýskalands af hálfu tékknesku
skipuleggjendanna. Þjóðverjarnir
sem eru fjölmennastir á mótinu
með 68 keppendur, hyggjast þó
ekki mótmæla frekar á mótinu.
Tólf heimsmet
og yfirburðir
USAá HMísundi
Nýlokið er heimsmeistaramótinu í sundi, sem íram fór í Berlín og
stóð 10 daga. Þar voru nokkur frækileg heimsmet sett og sundfólkið
náði í heild góðum árangri. Það sem kom kannski mest á óvart, var
að veldi Austur-Þýskalands í kvennagreinunum virðist vera liðið
undir lok. Það voru bandarísku stúlkurnar sem hrifsuðu flest gullin
að þessu sinni.
Sigurvegararnir í greinunum voru þessiri
200 m fjórsund kvennai Tracy Caulkins
USA 2.14,07 mín, sem er heimsmet.
100 m bringusund karla. Walter Kusch
Vestur-Þýskalandi, 1.03,56 mín.
200 m skriðsund karla. William Forrester
USA, 1.50,02 mín.
100 m baksund karla. Robert Jackson USA,
56,36 sek.
4x100 m fjórsund kvenna. Bandaríkin,
4.08,21 mín.
200 m skriðsund kvenna. Cynthia Wood*
head USA, 1.58,52 mín, sem er heimsmet.
400 m fjórsund karla. Jessy Vassalo USA,
4.20,05 mín, sem er heimsmet
100 m baksund kvenna. Linda Jezek USA,
1.02,55 mín.
100 m bringusund kvenna. Júlía Bogdanova
Sovétríkj. 1.10,31 mín, sem er heimsmet.
4x100 m skriösund karla. Bandaríkin,
3.19,14 mín sem er heimsmet.
400 m fjórsund kvenna. Tracy Caulkins
USA, 4.40,83 mín sem er heimsmet.
200 m baksund karla. Jessy Vassalo USA,
2.02,16 mín.
200 m bringusund karla. Nick Nevid USA,
2.18.37 mín.
400 m skriðsund karla. Vladimir Salninkov
Sovétrfkj. 3.51,94 mín.
100 m flugsund kvenna. Mary J. Penning-
ton USA, 1.00,20 mín.
200 m flugsund karla. Mike Bruner USA,
1.59.38 mín.
100 m skriðsund kvenna. Tracy Wickham
Ástralíu, 4.06,28 mín, sem er heimsmet.
200 m bringusund kvenna. Linda Kachus-
hite Sovétríkj. 2.31,42 m#i sem er nýtt
heimsmet.
200 m fjórsund karla. Graham Smith
Kanada, 2.03,65 mín — heimsmet.
200 m baksund kvenna. Linda Jazek USA,
2.11,93 mín. — heimsmet.
4x200 m skriðsund karla. Bandaríkin,
7.20,82 mín — heimsmet.
1500 m skriðsund karla. Vladimir Salnin-
kov Sovétríkj. 15.03,99 mín.
100 m flugsund karla. Joe Bottom USA,
54,30 sek
200 m flugsund kvenna. Tracy Caulkins
USA, 2.09,87 — heimsmetsjöfnun.
4x100 m skriðsund kvenna. Bandaríkin.
3.43,43 mín — heimsmet.
800 m skriðsund kvenna. Tracy Wickham
Ástralíu, 8.24,94 mín.
100 m skriðsund karla. David McCagg USA,
50,24 sek.
100 m skriðsund kvenna. Barbara Krause
A-Þýskalandi, 55,68 sek.
4x100 m fjórsund karla. Bandaríkin, 3.44,63
mín.
Dýfingar af lágu bretti. Phil Boggs USA.
Dýfingar af háu bretti. Gregg Louganis
USA.
Dýfingar kvenna. Irina Kalinina Sovétríkj-
unum.
í stigakeppni þjóðanna. hlaut USA 473
stig, Sovétríkin 204 og Austur-Þýskaland
176 stig.
Verðlaunin skiptust þannig.
Gull silfur brons
Bandaríkin 23 14 7
Sovétríkin 6 4 6
Kanada 315
Ástralía 2 0 0
Austur-Þýskaland 1 10 4
Vestur-Þýskaland 12 4
Aðrar þjóðir hlutu færri verðlaun.
• Bandaríska stúikan Tracy Gaulkins var án efa skærasta stjarna
heimsmeistaramótsins 1 Beríin, sem lauk í fyrradag. Hún setti þrjú
heimsmet á mótinu og hiaut fimm gullverölaun, þar af 4 í
einstaklingsgreinum. Á meðfylgjandi mynd syndir hún tii sigurs í 400
metra fjórsundi á nýju heimsmeti, 4i40.83.
Kanarnir flæða
nú inn í landið
Oværrt úrslit
í Englandi
ÞAU ÓVÆNTU úrslit urðu í 2. umferð ensku deildabikarkeppninnar
í íyrrakvöld að Liverpool tapaði liO fyrir Sheffield United á útivelli.
í gærkvöldi urðu úrslit ekki síður óvænt, en þá vann Southampton
t.d. Birmingham 5i2 á heimavelli sfðarnefnda liðsins og Arsenal tapar
úti fyrir Rotherham. Everton gerði sér lítið fyrir og vann Wimbledon
8i0, en Nottingham Forest, sem lék á útivelli, mátti gera sér jafntefiið
að góðu, 0.0 á móti Oldham.
ílrslit í xarkvoldi.
Birminxham — Southampton 2.5
Bolton — Chelsea 2.1
Bristol City — Crystal Palace 1.2
Burnley — Bradford 1,1
Everton — Wimbldon 8d)
Exeter — Blackburn 2.1
Fulham — Darlinirton 2.2
Manchester City — Grimsby 2.0
Middlesbrough — Peterbrough 0.0
Northampton — Hereford 0.0
Oldham - - Nottingham Forest 0.0
Rotherham — Arsenal 3.1
Swansea — Tottcnham 2.2
Walsall - - Charlton 1.2
Wrexham — Norwich 1.3
Preston - - QPR 1.3
BrÍKhton - Millwall 1.0
Luton — Wigan 2.0
Orient Chesterfield 1.2
Watford — Newcastle 2.1
íslensku körfuknattlciksfélögin keppast nú um það hvert um annað þvert, að tryggja sér
Bandaríkjamenn fyrir komandi keppnistímabil, en eins og kunnugt er, er hverju félagi heimilt að hafa
einn slikan í liðinu. Fram, ÍR og KR hafa þegar samið við Ameríkana og Grindvíkingar; sem leika í
fyrstu deild eru aðeins sagðir eiga eftir að láta kappann skrifa undir. Þá verða það aðeins Ármenningar
sem enn hafa ekki tryggt sér útlending og eru þeirra mál eitt spurningarmerki og öll í athugun. Sá
orðrómur að þeir hefðu hug á að
Framarar voru að enda við að
semja símleiðis við John Johnson,
22 ára bakvörð, sem er um 187 cm
á hæð og hvítur á hörund. Að sögn
Sigurðar Jónssonar, formanns
körfuknattleiksdeildar Fram, vita
þeir að öðru leyti lítið um
leikmanninn og treysta á umboðs-
mennina. Johnson þessi lék þó víst
einu sinni sýningarleik gegn liðinu
Haarlem Globtrotters. Er það von
Framara, að ekki séu aukvisar
valdir í slíka leiki.
ÍR-ingar voru rétt í þessu að
ganga frá símasamningi við Paul
Stewart. Hann er maður sem
leikið getur flestar stöður á
vellinum, en ÍR-ingar hafa hug á
að láta hann leika senter. Stewart
er tæplega 2 metrar á hæð og
fá Jimmy Rogers aftur til lands .
hvítur eins og Johnson, en þeir
þekkjast vel, léku saman í háskóla-
liði.
KR-ingar voru að enda við að
semja við John Hudson, blökku-
mann sem leikið hefur m.a. einn
vetur með Chicago Bulls, sem
þykir eitt af sterkari liðum
Bandaríkjanna. Hudson er að sögn
einn sterkasti leikmaðurinn sem
komið hefur hingað til lands, betri
heldur en þeir blökkumenn sem
fyrir hafa verið, Rogers og Trukk-
urinn.
Þá eru Grindvíkingar komnir á
fremsta hlunn með að semja við
Mark Holmes, Bandaríkjamann,
sem talinn er vera sterkur eins og
vænta mátti. Grindvíkingarnir
ætla sér því stóra hluti á komandi
að sögn úr lausu lofti gripinn.
keppnistímabili og hafa greinilega
fullan hug á að tryggja sér sæti í
Úrvalsdeildinni að ári.
Eftir því sem Mbl. kemst næst,
verða auk þcss áfram hér á landi
þeir Ameríkanar sem léku hér á
síðasta vetri, að undanskildum
Andy Piazza hjá KR, en John
Hudson tekur stöðu hans. Christ-
iansen verður áfram með Þór,
Hockenos með Val og Dunbar með
ÍS.
Það eru fleiri en Ameríkanarnir
sem koma og fara, Kolbeinn
Kristinsson hefur nú gengið í raðir
ÍR-inga eftir tímabil með ÍS, Jón
Pálsson, sem hvíldi í fyrra, gekk úr
ÍR yfir í ÍS.
— gg-
wmmmmmmmmammm—mmrn