Morgunblaðið - 30.08.1978, Page 32
Hjón finnast lát-
in af skotsárum
Harmleikur að bænum Þormóðsstöðum við Hafravatn
HÖRMULEGUR atburður
átti sér stað á bænum
Þormóðsdal skammt frá
Hafravatni snemma í gær-
morgun.
Lögreglan fann
þar hjónin á bænum bæði
látin af skotsárum. Rann-
sóknarlögregla ríkisins
varðist allra frétta af
þessum atburði í gær og
kvað Hallvarður Einvarðs-
son rannsóknarlögreglu-
stjóri ríkisins málið vera á
frumstigi í rannsókn.
Eftir því sem Morgunblaðið
hefur fregnað var það laust fyrir
kl. 6 í gærmorgun að hringt var í
lögregluna og tilkynnt að slys
hefði orðið að Þormóðsdal í
Mosfellssveit, skammt frá Hafra-
vatni. Þegar lögreglumenn komu á
staðinn fundu þeir mann og konu
þar látin af skotsárum. Eftir
fyrstu verksummerkjum að dæma
var talið, að maðurinn hefði orðið
konunni að bana, að því búnu
hringt í lögregluna en síðan ráðið
sjálfum sér bana. Rannsóknarlög-
reglan vildi þó ekki staðfesta í
gærkvöldi að atburðarásin hefði
verið með þessum hætti, en rétt er
þó að taka fram að ekkert bendir
til þess að þriðji aðili hafi komið
við sögu þessa máls.
Þormóðsdalur er í eigu Rann-
sóknastofnunar landbúnaðarins en
embætti veiðistjóra ríkisins hafði
þar aðstöðu til geymslu á hundum,
sem eru í eigu embættisins.
Hjónin, sem voru barnlaus, bjuggu
í Þormóðsdal og hafði maðurinn
umsjón með hundunum. Hann var
á sextugsaldri en konan um
fertugt. Að ósk rannsóknarlög-
reglunnar er ekki unnt að birta
nöfn hinna látnu í dag.
Þormóðsdalur við Ilafravatn, þar sem hinn hörmulegi atburður
gerðist. Ljósm. Mbl. Rax.
Miðstjóm ASI lýsir jákvæðri
afstöðu til samkomulagsins
BSRB vill láta grimnkaupshækkun eftir áramót fyrir aukinn verkfallsrétt
MIÐSTJÓRN Alþýðusambands Is-
lands hefur lýst jákvæðri afstöðu til
þeirra helztu atriða, sem undanfar-
ið hafa verið til umræðu milli
launþegasamtakanna og vinstri
flokkanna í ljósi hugsanlegs stjórn-
arsamstarfs þeirra, og mun mið-
stjórnin beita sér fyrir framgangi
máisins í samráði við stjórnir
landssambandanna, að því er segir
í fréttatilkynningu frá ASÍ. Hefur
miðstjórnin samþykkt að boða til
sameiginlegs fundar miðstjórnar
og stjórna landssambanda á morg-
un, fimmtudag.
Á fundi miðstjórnar í gær voru
ræddar þær hugmyndir sem undan-
farið hafa verið reifaðar, og var
óskað eftir afstöðu til þessara atriða,
en þar er um að ræða í fyrsta lagi
að samningarnir, er gerðir voru á sl.
ári, taki gildi frá 1. september en þó
verði sett þak á greiðslu vísitölu, í
öðru lagi verði samningarnir hinn 1.
desember nk. framlengdir í 12
mánuði án grunnkaupshækkana en
með vísitölubótum samkvæmt fram-
an sögðu og í þriðja lagi að sett verði
á laggirnar nefnd til að fjalla um
endurskoðun vísitölukerfisins með
þátttöku ASÍ.
Að sögn Snorra Jónssonar fram-
kvæmdastjóra ASÍ var samþykkt á
Stjómarsáttmáli
lagdur fram í dag
fyrir rætur verðbólgumeinsins þá er
tómt mál að tala um minn stuðning."
Kvöldfundur viðræðunefnda flokk-
anna hófst klukkan 21 í gærkvöldi og
stóð fram til um tólfleytið en
síðdegis í gær voru þingflokksfundir
hjá öllum aðilum eftir nær stanzlaus
nefndastörf fyrr um daginn. Mið-
stjórn Framsóknarflokksins mun
koma saman klukkan 21 í kvöld og
flokksráð Alþýðubandalagsins kem-
ur saman klukkan 17.
Sú skoðun virtist ríkjandi með
alþýðubandalagsmönnum í gær að
þeir vildu miða efnahagsstefnuna við
endurskoðun um áramót, en hins
vegar vilja alþýðuflokksmenn leggja
línurnar til lengri tíma. Þá munu
„An kerfisbreytingar í efnahagsmálum er tómt mál
að tala um minn stuðning”, segir Vilmundur Gylfason
„ÞAÐ ER stefnt að því að leggja
fyrir menn á morgun drög að
stjórnarsáttmála til að taka afstöðu
til og þá ganga endaniega frá. Ég
stefni að því að þessi rfkisstjórn, ef
af henni verður, komi á fimmtudag,
föstudag,“ sagði Ólafur Jóhannes-
son formaður Framsóknarflokksins
er Mbl. ræddi við hann á miðnætti
í nótt eftir kvöldfund viðræðu-
nefnda flokkanna þriggjat Alþýðu-
bandalags, Alþýðuflokks og Fram-
sóknarflokks. Spurningu um það,
hvort hann mæti stöðuna þannig að
betta tækist svaraði Ólafur. „Þetta
r allt í áttina. Við færumst stöðugt
nær. Það er að vísu enn ágreining-
<r, en ég tíunda hann ekki núna, en
ef ekkert óvænt kemur upp á þá
held ég að þetta ætti að takast. En
þetta er ckki búið ennþá og enn
geta óvæntir hlutir gerzt, þó ég eigi
í sjálfu sér ekki von á slíku nú.“
Innan Alþýðuflokks eru enn mjög
skiptar skoðanir um þetta stjórnar-
samstarf og þannig sagði til dæmis
Vilmundur Gylfason m.a. í samtali
við Mbl. í gærkvöldi: „Ég verð að sjá
stjórnarsamninginn í heild sinni
áður en ég geri upp hug minn til
þessa stjórnarsamstarfs og ef ég sé
ekki að þar sé stefnt að þeirri
kerfisbreytingu í efnahagsmálum,
sem ég tel nauðsynlega til'að komast
alþýðubandalagsmenn vilja hafa
samstarfsyfirlýsingu flokkanna sem
stytzta en alþýðuflokksmenn leggja
þeim mun meiri áherzlu á að ekki
verði of snubbótt um hnútana búið.
Virtist mikið velta á því í gærkvöldi
að Ólafi Jóhannessyni takist að
samræma þessi sjónarmið.
Sjá samtal við Vilmund
Gylfason bls. 18. „Hef ekki
svo vítt kok að ég kyngi
hverju sem er.“
miðstjórnarfundinum með yfirgnæf-
andi meirihluta atkvæða að svara
þessum atriðum opinberlega með
jákvæðri afstöðu. Greiddu 13 fund-
armanna atkvæði nieð því en þeir
Bjarni Jakobsson, Óskar Vigfússon
og Jón Snorri Þorleifsson sátu hjá en
Björn Þórhallsson frá landsambandi
verslunarmanna greiddi atkvæði á
móti. I samtali við Mbl. kvaðst Björn
hafa mælt gegn því að Alþýðusam-
bandið tæki formlega afstöðu til
þessara atriða og kvaðst fyrir sitt
leyti alls ekki geta fallizt á fram-
lengingu samninganna óbreyttra í
eitt ár, sérstaklega með tilliti til þess
að verzlunar- og skrifstofufólk, er
hann væri fulltrúi fyrir, hefði
dregizt verulega aftur úr helzta
viðmiðunarhóp sínum, ríkisstarfs-
Stjórnarfundur BSR hófst í gær-
kvöldi og stóð enn þegar Mbl. hafði
síðast fréttir en á þessum fundi mun
m.a. hafa verið til umræðu að BSRB
gefi eftir áfangahækkun, sem á að
koma á laun þeirra eftir áramótin en
í stað þess hyggjast BSRB-menn fá
verulega rýmkun á samnings- og
verkfallsrétti frá því sem nú er. Þá
er tekjumark vísitöluþaksins mjög á
dagskrá bæði innan BSRB og ASÍ og
er nú einkum rætt um að þakið komi
á tekjur á bilinu 220—240 þúsund,
sem er töluvert hærra en fulltrúar
láglaunafélaganna telja skynsamlegt
og mun töluverð óánægja vera í
röðum forystumanna þeirra með
þessa framvindu.
FJOGUK ORUGG
RÁÐHERRAEFNI
ÞÓTT skiptingu ráðuneyta og
ráðherraefni hafi ekki form-
lega borið á góma enn í
stjórnarmyndunarviðræðunum
hafa þau mál að sjálfsögðu
verið rædd innan stjórnmála-
flokkanna. Fjórir mcnn og tvö
ráðherraembætti eru ráðin ef
af stjórnarmyndun verðurt
Ólafur Jóhannesson sem for-
sætisráðherra, Benedikt Grönd-
al sem utanríkisráðherra, og
einnig töldu menn að Ragnar
Arnalds og Kjartan Jóhanns-
son væru vís ráðherraefni
sinna flokka.
Mbl. spurði Ólaf Jóhannesson
hvort honum og Framsóknar-
flokknum væri dómsmálaráðu-
neytið fast í hendi og sagði hann:
„Það er ekki alveg hægt að segja
um það á þessu stigi. Það fer eftir
því hvaða önnur ráðuneyti koma
til greina. En við höfum áhuga á
því. Og það hafa fleiri. En hver
flokkur fær aðeins fjögur ráðu-
neyti í hlut ef af verður."
Alþýðuflokkurinn mun hafa sett
fram ósk um dómsmálaráðuneytið
og er talið að Vilmundur Gylfason
eigi kost á því að verða þriðja
ráðherraefni flokksins, ef hann
sækist eftir því, en Sighvatur
Björgvinsson hefur lýst því yfir að
hann vilji ekki taka sæti í
ríkisstjórninni ef af henni verði.