Morgunblaðið - 29.09.1978, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
221. tbl. 65. árg.
FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Eanes veitir
nýian frest
Lissabon. 28. septrmber. AP. Reuter.
ANTONIO Ramalho Eanes for-
seti sagði í dag, að hann mundi
veita stjórnmálaflokkunum í
Portúgal nægan tíma til að reyna
að ná samkomulagi um myndun
nýrrar ríkisstjórnar, en gera
aðrar ráðstafanir ef þcim mistæk-
ist — sennilega efna til nýrra
kosninga, sem flestir telja að
verði haidnar í marz.
Tveggja daga viðræður forset-
ans við leiðtoga stjórnmáiaflokk-
anna hafa engan sýnilegan ár-
angur haft í för með sér. Y firlýs-
ingar frá leiðtogum flokkanna
gefa til kynna að hverfandi litlar
líkur séu á myndun nýrrar
samsteypustjórnar.
En talsmaður sósíalista. Jaime
Game, kvaðst telja auknar líkur á
lauslegu samkomulagi sem gerði
flokksmönnum kleift að taka sæti
í ríkisstjórn án formlegs flokks-
stuðnings.
Þrátt fyrir stjórnarkreppuna
ætlar Eanes í heimsókn til Aust-
ur-Evrópu í næsta mánuði og til
Bretlands í nóvember.
Sósíalistaleiðtoginn Mario
Soares hefur lýst því yfir að hann
búist ekki við að flokkur hans fari
aftur í stjórn fyrr en að afstöðnum
kosningum.
Vikublaðið Tempo spáir því í
dag, að bráðabirgðastjórn Nobre
da Costa forsætisráðherra sitji
fram í nóvember og víki þá fyrir
svipaðri bráðabirgðastjórn sem
undirbúi vorkosningar.
I yfirlýsingu frá Eanes forseta
segir, að hann muni ekki ræða
aftur við fulltrúa flokkanna fyrr
en þeir geti sagt ákveðið til um
hvort viðræður þeirra muni bera
árangur eða fara út um þúfur.
Gama sagði fréttamönnum að
forsetinn sýndi flokkunum djúpa
virðingu og að það væri einlæg ósk
hans að samskipti þingsins og
forsetans bötnuðu.
' 19
Morð eftir
vopnahlé
í Torino
Torino. 28. sept. Reuter.
RAUÐU herdeildirnar á Ítalíu
létu aftur til skarar skríða í
dag eftir tveggja mánaöa hlé og
myrtu verkstjóra Lancia-bif-
reiðaverksmiðjanna í Torino.
Fjórir ungir menn skutu
verkstjórann, Piero Coggiola,
að minnsta kosti 10 sinnum í
fæturna fyrir utan heimili hans
í úthverfum borgarinnar.
Óþekktur maður hringdi í blað
í Torino og sagði að morðið
væri verk Rauðu herdeildanna.
Lancia og Fiat-fyrirtækið
fordæmdu í sameiginlegri yfir-
lýsingu „tilgangslausa og misk-
unnarlausa grimmd árásarinn-
ar“.
Atján starfsmenn Fiats hafa
verið skotnir í svipuðum árás-
um á rúmu einu ári.
Kona og dóttir P.W. Botha óska honum til hamingju með skipun hans í embætti
forsætisráðherra Suður-Afríku.
„Harðlínumaður”
arftaki Vorsters
Hbfðaborg, 28. sept. Reuter — AP
Iiarðlínumaðurinn Pieter Botha
var í dag kjörinn áttundi forsætis-
ráðherra SuðurAfrfku í stað John
Vorters og lýsti því yfir, að hann
mundi ekki beygja sig fyrir „bylt-
ingu eða marxisma“. Hann sagði að
Fridarviðræður í
Ismailia 4. október
Washington. 28. september. AP. Reuter.
JIMMY Carter, forseti Banda-
ríkjanna. sagði í dag að
Menachem Begin forsætisráð-
herra ísraels. og Anwar Sadat.
forscti Egyptalands, hefðu sagt
sér að ekkert stæði lengur í vegi
fyrir því að friðarsámningur yrði
gerður milli landanna.
Carter kvaðst vona að lokavið-
ræður. um samninginn gætu
hafizt innan tveggja vikna. Hann
kvað ísraelsþing hafa sýnt mikið
hugrekki með því að samþykkja
samkomulagið ( Camp David í
nótt.
Begin sagði í ísraelska sjónvarp-
inu í kvöld að friðarviðræður gætu
hafizt í Ismailia við Súez-skurð og
framhaldsviðræður gætu farið
fram í Beersheba í Negev-auðn-
inni. Aðspurður um egypzkar
fréttir um að viðræðurnar hæfust
í Ismailia 4. október lét hann í ljós
gremju og sagði að Egyptar yrðu
að hafa samráð við Israelsmenn
áður en fundarstaður væri ákveð-
inn, en viðurkenndi að staður og
stund kæmi til greina.
Iðnaðarráðherra ísraelsku
stjórnarinnar, Yigal Horowitz,
sagði af sér til að mótmæla því að
ísraelsþing samþykkti Camp
David-samkomulagið (með 84
atkvæðum gegn 19). Hann var einn
17 þingmanna sem sátu hjá og er
eini ráðherrann sem talið er að
segi af sér.
engin breyting yrði á stjórninni og
hann yrði áfram landvarna-
ráðherra.
Forysta flokksins kaus Botha
forsætisráðherra í annarri atkvæða-
greiðslu. í hinni fyrri hlaut hann 78
atkvæði af 87 sem hann þurfti tii að
ná kosningu. Aðalkeppinautur hans,
Connie Mulder blökkumannaráð-
herra, fékk 72 og Pik Botha utan-
ríkisráðherra 22. I síðari atkvæða-
greiðslunni var kosið á milli Pieters
Botha og Mulders og Pieter Botha
hlaut 98 atkvæði en Mulder 74.
Flestir stuðningsmenn Pik Botha
hafa því stutt nafna hans.
Hinn nýi forsætisráðherra og
flokksleiðtogi sagði eftir kosninguna
að hann væri harður í horn að taka í
landvarna- og utanríkismálum en
sáttfús í kynþáttamálum heima
fyrir. Hann sagði að varnir Suður-
Afríku yrðu tryggðar. Meginmark-
mið stjórnarinnar yrði að efla frelsi
og frið öllu samfélaginu til heilla.
Pieter Botha sagði að nýja stjórn-
in mundi í fyrsta lagi efla og treysta
örugga og skipulega stjórn og bæta
samskipti ólíkra þjóðfélagshópa. í
öðru lagi halda uppi heiðarlegri og
dugmikilli stjórn. í þriðja lagi fylgja
jákvæðri stefnu til að bæta sam-
skipti ólíkra þjóðfélagshópa á grund-
velli sjálfsákvörðunarréttar. í fjórða
lagi fylgja jákvæðri stefnu til að efla
vinsamleg samskipti við nágrannríki
án afskipta af innanríkismálum.
Botha sagði að lögum og reglu yrði
haldið uppi af festu. Aðspurður sagði
hann að það væri undir Bandaríkja-
mönnum komið hvort samskiptin við
þá yrðu vinsamleg. Um Suðvest-
ur-Afríku sagði hann að viðræðum
við nefnd vestrænna ríkja hefði ekki
verið hafnað. Aðspurður sagði hann
að haldið yrði áfram þeirri stefnu að
draga úr kynþáttamisrétti.
Samkvæmt skoðanakönnunum
vildu flestir að Piet Botha utanríkis-
ráðherra yrði forsætisráðherra, en
ekki er talið útilokað að hann verði
það síðar meir. Mulder var áður
talinn arftaki Johns Vorsters en
hefur verið viðriðinn fjármála-
hneyksli. Mulder og Pik Botha flýttu
sér að lýsa yfir stuðningi við nýja
forsætisráðherrann.
Gert er ráð fyrir því að á föstudag
verði Vorster kjörinn forseti sem er
valdalaus virðingarstaða.
Átökin í Beirút
magnast enn
Beirút, 28. sept. Reuter — AP.
5-7% hækkun á
olíuverði spáð
Ósló. 28. september.
Frá Jan Erik Laure. fréttamanni Mbl.
IIARÐIR bardagar blossuðu upp
í hinum kristna hluta Beirút í
dag og kristnir hægrimenn sök-
uðu sýrlenzka óvini sína um að
koma þeim af stað til að spilla
fyrir samkomulaginu í Camp
David.
Sýrlendingar svöruðu með
ásökunum um að kristnir menn
heíðu komið bardögunum af stað
til að kalla fram ísraelska
hernaðaríhlutun.
Bardagarnir hófust í suðaustur-
úthverfinu Hadath og breiddust út
um mestan hluta kristna hverfis-
ins í Beirút. Skriðdrekum, eld-
flaugaskotpöllum, stórskotavopn-
um og vélbyssum var beitt í
bardögunum.
Kristinir menn segja að þetta
séu alvarlegustu bardagarnir
síðan í júlí þegar 200 óbreyttir
borgarar féllu í fimm daga stór-
skotahríð Sýrlendinga er lauk með
því að ísraelsmenn sendu herflug-
vélar á vettvang.
Að minnsta kosti sex féllu í
bardögunum í dag og rúmlega 50
særðust. Vatnsgeymir forseta-
hallarinnar varð fyrir skotum og
spren^jur féllu á lóð íbúðar
bandaríska sendiherrans.
Starfandi utanríkisráðherra
Egypta, Butros Ghali, sagði að
ísraelsmenn kynnu að binda sjálf-
viljugir enda á hernám vestur-
bakka Jórdanár á næstu þremur
mánuðum og kvaðst vona að
atkvæðagreiðslan í ísraelska þing-
inu yrði Sýrlendingum, Jórdaníu-
mönnum og Líbönum hvatning til
að taka upp beinar friðarviðræður
við ísrael. Flokkur Sadats hrósaði
ísraelska þinginu fyrir að sam-
þykkja samkomulagið.
Bandaríski aðstoðarutanríkis-
ráðherrann Alfred Atherton kom
til Jerúsalem í dag frá Jórdaníu til
að taka þátt í undirbúningi
viðræðna ísraelsmanna og Egypta.
Begin hefur sagt að 90% starfsins
við samningsgerðina sé lokið.
ísraelskir tæknimenn munu
fara til Kaíró í næstu viku til að
koma aftur á síma- og telexsam-
bandi. Síðan munu landvarnaráð-
herrar Israelsmanna og Egypta
ræða brottflutning ísraelsmanna
frá Sinai í einstökum atriðum.
BÚAST má við því að verð á olíu
hækki um 5Vi—7V5» af hundraði
um næstu áramót. Þessar upplýs-
ingar komu fram í viðræðum
fréttamanns Mbl. við fulltrúa á
ráðstefnu þeirri, scm arabískir
oli'uráðherrar halda nú í Ósló með
norska olfuráðherranum og full-
trúum iðnaðar á Norðurlöndun-
um. Ákvörðunin um hækkunina
verður að öllum líkindum tekin á
fundi olíuframleiðsluríkja
(OPEC) í desember.
Bæði Ali Al-Khalisa Al-Sabah,
olíuráðherra Kuwaits, og Bjart-
mar Gjerde, olíuráðherra Noregs,
lögðu á það ríka áherzlu að verð á
olíu mætti ekki hækka það mikið,
að verðhækkunin stefndi efnahag
iðnríkja í hættu, eins og raunin
varð árið 1973 þegar OPEC hækk-
aði síðast olíuverð.
Ljóst er að hagnaður olíufram-
leiðsluríkja af olíu er nú ekki nema
hluti af því sem hann var fyrst
eftir hækkunina 1973, og kemur
þar einkum til hækkun fram-
leiðslukostnaðar og verðfall á
Bandaríkjadollar.
Al-Sabah sagði að verð á tunnu
af olíu þyrfti að vera næstum 20
dollarar á dag til að hagnaðurinn
af framleiðslunni væri í hlutfalli
við það sem hann var fyrst eftir
hækkunina 1973, en þá var verðið
! á tunnu ákveðið 12.70 dalir.