Morgunblaðið - 29.09.1978, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1978
15
„AÐEINS _ ÆÐRI
MATTARVÖLD gcta bjargað
Korchnoi frá ósgri." sagði
aðalaðstoðarmaður Korchnois.
enski stórmeistarinn Raymond
Keene. um biðstöðuna í 27.
einvigisskákinni sem tefld var í
gær. Annar aðstoðarmaður
Korchnois. argentínski stór-
meistarinn Oscar Panno. tók í
sama streng. „En þvi skyldi
Viktor gefast upp. meðan enn
er von? Hver veit nema að
umslagið með biðleiknum týn-
ist." bætti Panno við í hálfkær-
ingi.
Það blæs þvf ekki byrlega
fyrir Korchnoi þessa stundina.
Ibiðstöðunni eru aðeins hrókar
og drottningar á borðinu. en
Karpov hefur fimm peð gegn
Skák
Margeir Pétursson
skrifar um 27.
einvígisskákina
fjórum áskorandans. auk þess
sem kóngstaða heimsmeistar
ans er öruggari.
Korchnoi, sem hafði hvítt,
fékk heldur betri stöðu eftir
byrjunina, þrátt fyrir að hann
hafi beitt afbrigði sem hefur
mjög vafasamt orð á sér. Hann
eyddi hins vegar miklum tíma
og í tuttugasta leik lagði hann
út í tvísýna atlögu á miðborðinu.
Karpov átti sterkt svart og náði
að einfalda taflið og fá örlítið
betri stöðu. Þrátt fyrir þetta
átti Korchnoi að geta haldið
jafntefli án mikilla erfiðleika,
en hann var orðinn mjög naum-
ur á tíma og fataðist því vörnin
hvað eftir annað. Karpov gekk á
lagið, vann peð og stendur til
vinnings í biðstöðunni, sem tefld
verður áfram á morgun.
Þessi skák gæti orðið mjög
örlagarík ef Karpov sigrar, því
að jafnvel Korchnoi sjálfur
hefur látið svo um mælt undan-
farnar vikur að ef heims-
meistarinn nái 5—2 forystu sé
aðstaða sín nánast vonlaus.
27. skákin
Hvítti Viktor Korchnoi
Svarti Anatoly Karpov.
Enski leikurinn
1. cl - Rí6. 2. Rc3 - e5. 3. Rf3
- Rcfi. 4. g3 - Bbl. 5. Rd5?!
(Þessi leikur hefur jafnan haft
fremur slæmt orð á sér meðal
byrjanafræðinga, sem telja
hann frumhlaup svo snemma
tafls. Öruggara er 5. Bg2, sem
Karpov lék reyndar fyrr í
einvíginu án þess að komast
nokkuð áleiðis)
Rxd5 (Helsti höfuðverkur
afbrigðisins hefur jafnan verið
//«/77/ Golombek
skrifar fgrir
Mnrgun blaöiö
Aðeins kraftaverk get-
ur bjargað Korchnoi
Hér fór skákin í bið. Svartur
lék biðleik.
Vinningnr blasir við Karpov
SÍÐUSTU fimm skákunum í einvígi Karpovs
og Korchnois hefur lyktað með jafntefli og
virtist sem leikleysa ætlaði að ráða ferðinni.
Eg hafði það á tilfinningunni að jafnteflin
myndu halda áfram að sjá dagsins ljós. En
loksins í dag virðast málin verá að taka
einhverja aðra stefnu, og Karpov virðist vera
að ná sér á strik á ný.
Þegar 27. skákin, sem tefld var i dag, fór í bið
blasti ekkert annað en vinningur við Karpov og
er ómögulegt að ímynda sér annað en að hann
gangi með sigur af hólmi þegar biðstaðan
verður tefld á morgun (í dag).
Korchnoi hóf skákina með þróttmiklum
leikjum ensku byrjunarinnar. Snemma skiptu
meistararnir upp riddurum sem leiddi til
klossaðrar peðastöðu á miðborðinu. Korchnoi
fékk rýmri stöðu úr byrjuninni en Karpov
skipulagði vörn sína af kænsku og fékk góða
stöðu á drottningarvængnum. Korchnoi reyndi
að svara því með því að blása til sóknar á
kóngsvængnum og neyddi drottningu Karpovs
tilffl til varnar.
í þeirri stöðu virtist Korchnoi vel stæður, en
við nánari eftirgrennslan kom í ljós að jafnt
var á með kempunum. Eg tel að Korchnoi hefði
átt að sætta sig við jafntefli í stöðunni, en í
staðinn varði hann 45 mínútum til að hugsa 20.
leikinn.
Það kom því varla á óvart þegar hann lenti í
miklu tímahraki skömmu síðar, en hann hafði
aðeins 12 mínútur til að leika síðustu 16
leikina. Honum urðu á mörg mistök í síðustu
leikjunum. Karpov átti næsta auðvelt með að
ná peði af Korchnoi og fá yfirburðastöðu.
Korchnoi innsiglaði 41. leik sinn, en mér kæmi
ekki á óvart þótt hann gæfi skákina án þess að
tefla frekar. Þar sem Karpov hefur nú fjóra
vinninga á móti tveimur vinningum Korchnois
og fimmti sigurinn blasir við, má í reynd segja
að hann skorti nú aðeins einn vinning í
heimsmeistaratitilinn.
Karpov.
Dd4, 33. He7 hefur hann gott
mótspil fvrir peðið)
Hb4. 32. He8+ - Kg7. 33. Hxd8
- Dxd8. 34. De2 (Eftir 34. De5+
- Df6, 35. Dxf6 - Kxf6, 36.
Hc6+ - Ke7, 37. h4 - h5, 38.
Kf3 — Hxb2 hefur hvítur
hverfandi litla möguleika á að
halda taflinu, því að svarti
kóngurinn er þess reiðubúinn að
halda yfir á drottningarvæng-
inn)
Dd5+. 35. f3? - Hxa4. 36. Hc2
- IId5. 37. De3 - B5. 38. h l -
h5. 39. De2 - a l. 40. De3 - b l.
41. Hf2
talinn 5 .. .e4, 6. Rh4 — Bc5, en
Karpov hefur vafalaust búist við
að Korchnoi lumaði á nýjung)
6. cxd5 — Rd4 (í skákinni
Petrjosjan—Ree Wijk aan Zee
1971 reyndi svartur hér leik-
brelluna 6 .. .e4?? og varð að
gefast upp eftir 7. dxc6 — exf3,
8. Db3! og svartur tapar manni.
Þetta er líklega styzta skák sem
tefld hefur verið á alþjóðlegu
skákmóti og ekki lokið með
jafntefli)
7. Rxd4 (Ekki 7. Rxe5? - De7,
8. f4 - f6, 9. Rd3 - De4!)
exd4.8. Dc2! (Sterkara en 8. Bg2
— Be7, 9. 0-0 — c5! og svartur
hefur þegar betri færi, en
þannig tefldist skákin Suba-
Georgadze Lublin 1974)
De7. 9. Bg2 - Bc5. 10. 0-0 -
0-0. 11. e3 - Bb6!? (Hér höfðu
báðir notað hálfa klukkustund.
Síðasti leikur Karpovs er nokk-
uð umdeilanlegur, því að svartur
getur einnig leikið 11.. .a5 og
geymt biskupinn á c5. En
heimsmeistarinn vill fá fram
a2—a4, jafnvel þó að það kosti
hann sjálfan tíma)
12. a4 — dxe3. 13. dxe3 — a5.
14. Bd2 - Bc5. 15. Bc3 - d6.
16. Dd2 - B6. 17. Hfel (Hvítur
gat einnig revnt 17. e4 strax, en
eftir 17.. .Bd7, 18. Hhl - c6!,
19. dxc6 — Bxc6, 20. Hael —
Hae8 ætti svartur að halda öllu
sínu)
Bd7. 18. e4 - Hfe8. 19. Khl
(Korchnoi íhugaði þennan leik í
45 mínútur og átti því aðeins 25
mínútur eftir á 21. leik.) c6!
(Svartur gat að sjálfsögðu ekki
leyft hvítum að leika 20. f4 í
friði og hann ræðst því til atlögu
að miðborðinu. Leikurinn kom
sérfræðingum í Baguio reyndar
mjög á óvart, þar eð hann gefur
færi á næsta leik hvíts. En eins
og sjá má af framhaldinu leggur
Karpov aldrei út í tvísýnu án
þes að hafa reiknað allt til fulls)
20. e5!? (Það var að dugá eða
drepast. Eftir 20. f4 — cxd5, 21.
Dxd5 — Hac8 og síðan
22... .Bc6, verður hvíta peðið á
e4 að skotspæni)
cxd5. 21. Bxd5 - Had8. 22. Df4
— Df8. 23. Df3 (Hvítur gat ekki
unnið peð með því að leika 23.
exd6 — Bxd6, 24. Bxf7+, einfald-
Korchnoi
lega vegna 24 .. .Dxf7, 25. Dxd6
- Df3+, 26. Kgl - Bh3)
cxd5. 24. Bxd5 (Hvítu
biskuparnir á miðborðinu líta
ógnvekjandi út, en svartur á
svar, sem jafnar fullkomlega
taflið, svo að ekki sé dýpra tekið
í árinni)
Bg4!. 25. Dxg4 (Alls ekki 25.
B.xf7+ - Dxf7, 26. Dxg4 - Dd5+,
27. De4 — Hxe5!, 25. Dg2 yrði
einnig svarað með 25 .. .BxP2!)
Hxd5. 26. Bc3 - Had8 (En alls
ekki 26 .. .Hxel+, 27. Hxel —
Bxf2??, 28. He8!)
27. Kg2 - Bd4. 28. Hacl? (Bezt
var hér 28. Hadl! og þrátt fyrir
að horfur svarts séu örlitlu betri
eftir 28 .. .Bxc3, 29. bxc3 — Dc5
ætti hvítum ekki að verða
skotaskuld úr að halda jafntefli,
vegna þess að peðastaðan er
meira „á floti“.)
g6. 29. De2 — Dd6! (Svartur
stendur mun betur eftir þessa
sterku þreföldun á d línunni.
Ekki bætti heldur úr skák fyrir
Korchnoi að hann átti hér
aðeins 11 mínútur eftir, en
Karpov hins vegar 47)
30. Bxd4 - Hxd4. 31. Db5?
(Erfiðar stöður bjóða afleikjun-
um heim og það sannast hér á
Korchnoi er hann leikur af sér
peði. Bezta von hvíts í stöðunni
var áreiðanlega að leika 31. Df3
' og eftir 31.. .Hxa4, 32. Hc6 —
Ný leid hjá SVR
Læk jartorg-Sel
STRÆTISVAGNAR Reykjavíkur
hefjast næstkomandi mánudag, 2.
október, almennan akstur á nýrri
leið, nr. 14, Lækjartorg—Sel, og
er henni ætlað að þjóna hyggð-
inni í Seljahverfi og um leið
Breiðholti 1 eða þeim hluta þess,
sem nú á lengst að sækja í veg
fyrir strætisvagna. þ.e. austan-
vcrðan Arnarbakkann, að því er
segir í frétt frá Strætisvögnun-
um.
Nú í sumar hefur verið haldið
uppi tilraunaakstri á þessari leið á
mestu annatímum, þ.e. 2 ferðum
að morgni og 3 ferðum síðdegis, en
framvegis verður ekið á þessari
leið alla virka daga, þ.e. mánudaga
til föstudaga frá kl. 7 til kl. 19
óslitið á klukkustundar fresti fyrst
um sinn.
Ekið verður frá Lækjar-
torgi um Miklubraut og Reykja-
nesbraut (sömu leið og nr. 13) að
Arnarbakka, um Arnarbakka rétt-
sælis, en síðan um Seljahverfi
sömu leið og nr. 11 — rangsælis —
til baka um Arnarbakka rangsæl-
is og síðan sömu leið og áður til
baka í Miðbæinn. Þar sem hér á að
vera um hraðferðarþjónustu að
ræða (aksturstími milli Lækjar-
torgs og Seljahverfis verður aðeins
' 20 mínútur), verða biðstöðvar fáar
á leiðinni (hinar sömu og hjá leið
13), annars staðar en í Breiðholti,
þar sem stansað verður við allar
biðstöðvar á leiðinni. Vagninn
ekur 10 mín. yfir hvern heilan
tíma frá Lækjartorgi og á hálfa
tímanum frá Skógarseli.
Sérstök athygli skal vakin á því,
að seinasta ferð á þessari leið frá
Lækjartorgi verður kl. 18.10 (úr
Seljahverfi kl. 18.30), þ.e. ferðin,
sem farin hefur verið í sumar frá
Lækjartorgi kl. 19.10 fellur aftur
niður.
Prentuð hefur verið viðbót við
Leiðabók SVR 1978 með upplýs-
ingum um hina nýju leið, og fæst
hún á sölustöðum SVR.
Það er von forráðamanna SVR,
að með þessari auknu þjónustu
verði komið til móts við þarfir og
óskir íbúa ofangreindra hverfa.