Morgunblaðið - 29.09.1978, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 29.09.1978, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1978 23 GÍGJA MAGNÚS- DÓTTIR — MINNING Fædd 30. maí 1967 Dáin 22. september 1978 Hún Gígja litla frænka mín og nemandi er látin. Hversu erfitt er ekki að trúa þessu og sætta sig við þetta. Þessi fallega, indæla stúlka er horfin burt frá okkur. Gígja litla var mjög félagslynd og vinsæl hjá skólafélögum sínum. Hún var glaðlynd og hjálpfús og mátti ekkert aumt sjá. Hún var einkar snyrtileg í umgengni og samviskusöm og gerði alltaf eins vel og hún gat. Margar minningar koma upp í huga minn, er ég hugsa um Gígju, um bjarta, fallega brosið hennar, um hreinskilni hennar og ein- lægni. Eg minnist litlu systkinanna, sem alltaf voru svo samrýnd. Ég minnist Gígju litlu fyrir tveim árum, er hún ásamt mömmu sinni heimsótti mig á sjúkrahús og færði mér smágjöf. Einnig rifjast upp, er hún ásamt nokkrum bekkjarsystkinum sínum stóð á tröppunum hjá mér að morgni afmælisdags míns og færði mér gjöf, sem hún hafði átt frumkvæði að. Já, margar góðar minningar rifjast upp. Ég minnist Gígju litlu, er hún lék í leikriti á jóla- skemmtuninni síðustu og stóð sig svo ljómandi vel. Sérstaklega minnist ég hennar fyrir nokkrum dögum, er hún í lok tíma kom brosandi til mín og bað um leyfi til aö bregða sér heim í frímínútum, því að hún hafði séð út um gluggann, að besta vinkona hennar og bekkjarsystir var að koma heim frá útlöndum. Hún var svo geislandi glöð yfir að hitta hana aftur. Já, Gígja litla var gott og elskulegt barn og öllum, sem þekktu hana, þótti vænt um hana. Við þökkum henni samveru- stundirnar. Hún veitti birtu og hlýju inn í líf okkar. Af eilífdarljósi bjarma ber. sem brautina þungu greiðjr. Vort líf. sem svo stutt og'stopult er. það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. E.B. Guð blessi og styrki Dísu, Magga og Sigfús litla í þeirra miklu sorg. Guð blessi minningu Gígju litlu. Kristín Pálsdóttir. Frá setningu ráðstefnunnar á Hótel Loftleiðum. Ljósm.i Emilía Björg. Leikarar frá 14 lönd- um þinga á Loftleiðum FIA, Alþjóðasamtök leikara, halda ráðstefnu sína á Hótel Loftleiðum og var ráðstefnan sett í fyrradag. Frá því á sunnudag hafa ýmsar undirnefndir starfað en sjálf ráðstefnan hófst í fyrradag og mun standa fram til kvölds í dag. Ráðstéfnuna sækja 52 leikarar, þar af 40 útlendingar frá 14 löndum. Aðalmál þessarar ráð- stefnu eru réttinda- og kjaramál leikara. Forseti FIA er France Delahalle frá Frakklandi. Formaður félags íslenzkra leik- ara er Gísli Alfreðsson. Afmœlis- og minningargreinar AF GEFNU tilefni skal það enn ítrekað, að minningargreinar, sem birtast skulu í Mbl., og greinarhöfundar óska að birtist í blaðinu útfarardag, verða að berast með nægum fyrirvara og eigi síðar en árdégis tveim dögum fyrir birtingardag. tímann Aldrei hefur jafn mikiö af góðum lögum veriö sett saman á eina plötu. Meöal þeirra laga sem vinsæl eru oröin hér á landi og er aö finna á Star Party er m.a. Oh Carol meö Smokie — Love is in the Air meö John Paul Young — Automatic Lover meö Dee D. Jackson — Come Back My Love meö Darts auk þess einnig frábær lög meö Manfred Mann, Raydio, Bonnie Tyler, Showaddywaddy, Guys & Dolls, Boomtown Rats, o.fl. o.fl. ^ Er nokkur ástæða til annars en að slá upp Stjgrnuveislu og pað strax, sér- staklega par sem verð þessarar dæmalausu plötu er aðeins kr. 5.980- sem er ódýrt miðað við hvílíkur lúxus hún er. MANFRED MANN IAN DURY JOHN PAULYOUNG SMOKIE DARTS HLJOMDEILD Laugavegi 66, s. 28155, Glæsibæ, s. 81915, Austurstræti 22, s. 28155.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.