Morgunblaðið - 30.09.1978, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR OG LESBÓK
222. tbl. 65. árg.
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Vance hvetur Pale-
stínumenn til að
grípa tækifærið
» S.b. New York. Jerúsalem.
29. sept. Reuter.
CYRUS Vance, utanríkisráð-
herra Bandarikjanna, beindi
þeirri eindregnu hvatningu til
Palestínumanna að þeir gripu hið
sögulega tækifæri sem þeim
byðist og styddu væntanlegar
friðarviðræður milli ísraels og
Egypta. enda myndu þær viðræð-
ur vonandi leiða til lausnar
Palestínuvandamálsins, að sögn
Vance. Vance sagði þetta í ræðu á
Allsherjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna. Hann bætti því við að
Bandaríkjamenn teldu það öllu
Snýr Carter
sér nú að
skipta að sómasamlegur og rétt-
látur samningur yrði gerður sem
leysti deilumál viðkomandi aðila
og því skyldu Palestínumenn
gæta þess að láta það ekki sér úr
greipum ganga að taka afstöðu
til málsins.
Alfred Atherton, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, er
nú kominn til Jerúsalem og sagði í
dag að hann ætlaði að hitta að
máli Palestínumenn sem búa á
hernámssvæðum ísraela í þeirri
von að hann fengi breytt neikvæðu
viðhorfi þeirra til niðurstöðunnar í
Camp David.
Atherton og Begin, forsætisráð-
herra ísraels, ræddu lengi saman í
dag. Þar mun bandaríski aðstoðar-
forsætisráðherrann hafa skýrt
Begin frá viðtökum sem hann fékk
í skyndiferð um ýmsar höfuðborg-
ir Arabaríkja.
Jóhannes Páll páfi á líkbörum í Péturskirkju í gær.
Carter um Jóhannes Pál I:
••
011 erum við snauð-
ari eftir fráfall hans
Snýr Carter
sér nú að
Líbanon?
Washinjfton, 29. sept. Reter.
TALSMAÐUR Hvita hússins
sagði í dag að Bandaríkjastjórn
hefði byrjað mjög umfangsmikla
og itarlega könnun á ástandinu i
Líbanon og stæðu yfir mikil
fundahöld bandarískra dipló-
mata og sérfræðinga Banda-
ríkjastjórnar í ýmsum Araba-
löndum. Allt stefni þetta að því
að vita hvort Bandaríkjamenn
hefðu möguleika á því að beita
sér fyrir því að friður, sem
reyndist raunhæfur og varanleg-
ur, yrði saminn í Líbanon.
Talsmaðurinn sagði að Banda-
ríkjastjórn hefði einnig snúið sér
til fulltrúa kristinna hægri
manna í Líbanon, rætt hefði
verið við fulltrúa ísraela og
óbeint við Frakka og myndi
koma í Ijós á næstu dögum hvort
Carter Bandaríkjforseti teldi
hugsanlegt að Bandaríkjastjórn
gæti haft farsæla meðalgöngu í
þesu máli/
Frá Egyptalandi bárust þær
fregnir að þar ríkti í senn undrun
og nokkur ringulreið manna á
meðal þegar nú hillti undir að
ísraelar og Egyptar settust sem
bræður að samningaborði að gera
með sér friðarsamninga eftir
þrjátíu ára skærur og stríð.
Sex páfar
sátu skemur
Páfagarði. 29. sept. AP.
AF 263 rómversk-kaþólskum páfum
munu sex hafa þjónað skemur en
Jóhannes Páll I sem lézt á 34. degi.
Stefán páfi II lézt þremur dögum
eftir að hann hafði tekið við, tveir
sátu í þrettán daga, Marcellus II árið
1555 og Urban VII 1590. Boniface VI
var páfi í fimmtán daga 896, Leo XI
17 daga 1605 og Theodor II í 20 daga
897. Sá páfi, sem lengst hefur setið,
var Pius IX, sem sat í þrjátíu og tvö
ár eða frá 1846 til 1878.
RómaborK 29. sept. AP. Reuter.
UM GERVALLAN heim hafa
menn látið í ljós harm og eftirsjá
vegna hins skyndilega fráfalls
Jóhannesar Páls I sl. nótt.
Þúsundir manna af öllum stéttum
streymdu til Péturstorgs í Róma-
borg er fréttist um lát páfa,
krupu þar, báðust fyrir og
margir grétu sáran. Síðdegis var
lík páfa lagt á viðhafnarbörur og
þúsundir gengu hjá til að votta
páfa hinztu virðingu. Segir í
fréttastofufregnum að andrúms-
loftið í Rómaborg í dag hafi verið
likt því að þar hafi nánast hver
maður syrgt sem hefði hann misst
sinn nánasta ástvin og mcgi hafa
þetta til marks um hversu mikla
ástsæld Jóhannes Páll I hafði
aflað sér á skömmum páfadómi.
Forráðamenn um allan heim
hafa í dag minnzt páfa með mikilli
virðingu og samúðarkveðjur hafa
streymt til Rómar hvaðanæva að.
Carter Bandaríkjaforseti sagði: „Á
æim stutta tíma sem hann var
Begin á spítala
BEGIN forsætisráðherra
ísraels, var fluttur fyrirvara-
laust á sjúkrahús í kvöld.
föstudagskvöld. Ekki var
greint frá hvort hann væri
alvarlega sjúkur og í fyrstu
fregnum álitið að svo væri
ekki.
páfi skynjaði hann kjarna kirkju
sinnar og heimsins alls — öll erum
við snauðari við fráfall hans en
áður.“ Allir þeir þjóðhöfðingjar og
stjórnmálaleiðtogar um allar álfur
sem hafa minnzt páfa telja að með
andláti hans hafi verið klippt á
mikið breytinga- og þróunarskeið
sem kaþólska kirkjan hefði ef til
vill verið að hefja, er orðið hefði
sálum hennar til mikilla heilla ef
hann hefði fengið að halda áfram
ætlunarverki sínu.
Jóhannes Páll I verður jarðsett-
ur eftir vikutíma. Innan þriggja
vikna verður kardinálasamkundan
síðan að setjast á ný á rökstóla 4
Sixtinekapellunni og umræðum
hófust strax í dag um hver yrði
hugsanlegur eftirmaður hans.
Voru þær vangaveltur þó lágvær-
ari nú en oft áður og talið að
mörgum hafi orðið hugsað til
þeirra spádóma sem uppi voru
fyrir síðasta páfakjör. Þá voru
margir nefndir og mikið um það
fjallað en hvergi í þeim umræðum
var vikið að þeim sem kjörinn var
síðan í styzta páfakjöri um langa
hríð. Sjá bls. 18
„Að Jóhannesi Páli páfa
látnum" og á bls. 19
„Páfi fannst látinn ...“
Hermannaveiki
á Benidorm?
London, 29. sept. Reuter.
BREZK heilbrigðisyfirvöld byrjuðu í
dag að skoða fólk sem var að koma
úr sumarleyfi á Spáni, vegna gruns
um að ferðamaður sem kom þaðan
nýlega hefði tekið veikina. Kona
nokkur hafði verið á ferðamanna-
staðnum Benidorm fyrr í þessum
mánuði. Hún veiktist nokkru síðar
og hefur legið nokkuð þungt haldin á
sjúkrahúsi síðan.
Um hundrað manns sem voru í
sama hópi og eins aðrir þeir sem
dvöldu á sama gistihúsi verða nú
kvaddir til skoðunar. Talsmaður
spænsku ríkisferðaskrifstofunnar í
London sagði að enda þótt ekkert
hefði komið fram sem tengdi hótelið
við veikina myndi lið hjrúkrunar-
fólks rannsaka málið.
Búlgarinn var myrtur
med eiturregnhlíf inni
London. 29. soptembor. AP.
BÚLGARSKI flóttamaðurinn
Georgi Ivanov Markov, sem
Gorgi Ivanov
hélt því fram að hann hefði
verið stunginn með regnhlíf
með eiturefni á götu í London,
var myrtur að því er Scotland
Yard tilkynnti í dag.
Talsmaður Scotland Yard
sagði í tilkynningu að Markov
hefði fengið svipað sár og
annar búlgarskur útlagi,
Vladramir Kostov, sem varð
fyrir svipaðri árás í París í
síðasta mánuði.
Hann sagði að vísindamenn
væru að kanna hvernig unnt
hefði verið að stinga örlitlum
fleygum inn í húð þeirra, öðrum
þeirra úr platínu.
Hann sagði að oddarnir væru
minni en títuprjónshöfuð.
Markov var 49 ára gamall
leikritahöfundur og starfaði hjá
Austur-Evrópudeild brezka út-
varpsins BBC. Hann lést 11.
september, fjórum dögum eftir
að hann sagði brezkri konu sinni
og vinum sínum að regnhlíf
hefði verið otað í lærið á honum
skammt frá Bush Housebæki-
stöðvum BBC World Service.
Hann sagði að maðurinn með
regnhlífina hefði beðizt afsök-
unar, stigið upp í leigubifreið og
ekið á brott. Markov sagði að
hann hefði talað með erlendum
hreim.
Krufning leiddi í ljós að
Markov lézt af völdum blóð-
eitrunar.
Markov starfaði einnig fyrir
Deutsche Welle og Radio Free
Europe í Múnchen. Hann flýði
til .Vesturlanda 1969 og settist
að í Bretlandi einu ári síðar.
Hann sagði vinum sínum að
hann væri á svörtum lista vegna
náinnar þekkingar sinnar á
gangi mála á æðstu stöðum í
búlgarska kommúnistaflokkn-
um.
Búlgarska sendiráðið í Lond-
on hefur harðlega neitað því að
það hafi nokkuð vitað um dauða
Markovs.
Scotland Yard sendi þessa
mynd frá sér síðdegis á föstu-
dag af smákúlu sem var í
„eitruðu regnhlífinni" se,m
George Markov var stunginn
til bana með f London á
dögunum. Kúlan fannst í líki
Markovs.