Morgunblaðið - 30.09.1978, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1978
Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri:
45 milljónir á dag
Rekstrarkostnaður sjúkrahúsa á höfuðborgarsvæðinu
er í dag liðlega 45 m.kr. og er þá ótalinn kostnaður við
elliheimilin Grund og D.A.S. svo og ýmis vistheimili, sem
lauslega má áætla á ca. 5—6 m.kr. á dag.
Er Þessu ffé vel variö?
Hver á að ráöa ferðinni?
Af hverju er ekki hægt aö nota rök
Þegar rætt er um sjúkrahúsmál?
Sérhæfing sjúkrahúsa.
Er Þessu fé
vel varið?
Ekki hefur mikið heyrst um
samvinnu eða samrekstur
sjúkrahúsa á höfuðborgarsvæð-
inu 2—3 síðustu árin. Starfandi
er a.m.k. ein nefnd er gera á
tillögur um nánara samstarf eða
samstjórn stóru húsanna, en
lítið hefur orðið úr framkvæmd-
um.
í fyrirsögn þessarar greinar
er nefnd upphæð, mjög há, sem
fer til reksturs þessara stofnana
og útibúa þeirra. Vafalaust
erum við öll sammála um að
þessi tala er ekki há ef við
værum sannfærð um að fyrir
hana fengist bezta hugsanlega
nýting þessara sjúkrahúsa, sem
vera mætti þar sem a.m.k. í
mínum huga er enginn vafi um
hæfni þeirra allra.
Hver á að
ráða ferðinni?
Svo sem marg oft hefur verið
kynnt af Sambandi íslenzkra
sveitarfélaga, telja sveitarfélög-
in eðlilegt að ríkið taki í sínar
hendur rekstur og byggingu
sjúkrahúsa og að það verði
ákvörðunarmál heilbrigðisráðu-
neytis hverja þjónustu þau
veita, svo sem til er ætlast í
lögum.
Uppbygging sjúkrastofnanna
bæði hér á höfuðborgarsvæðinu
og raunar á öllu landinu hefur
til skamms tíma verið og
tilviljanakennd enda ráðuneyti
heilbrigðismála til þess að gera
nýstofnað.
Engin skynsamleg rök mæla
gegn samstjórn sjúkrahúsanna
hér á höfuðborgarsvæðinu þar,
sem ríkið greiðir nú þegar í raun
um 92% kostnaðar.
Sveitarfélögin eiga mikið
ógert í heilsugæzlumálum og
gætu einbeytt sér á því sviði.
Mannlega hliðin
Oft er sagt að mannlega
hliðin geri þessa samvinnu eða
sameiningu illmögulega. Það
séu alltof margir sem hlut ættu
að máli sem yrðu andvígir
samstjórn, eða aukinni sam-
vinnu. Ég þykist vita að þetta sé
rétt, stjórnendur þessara spítala
virðast hafa takmarkaðan
áhuga á þessari samvinnu, en er
hægt að láta þá ráða ferðinni,
verða stjórnvöld ekki að taka á
sig rögg og byrja nú að stjórna
þessum dýrasta þætti ríkisút-
gjalda.
Það eitt að misjöfn launakjör
og starfshættir gilda í sjúkra-
húsum á svæðinu hefur leitt til
margskonar óróa og togstreytu
sem.erfitt er að komast hjá.
Sérhæfing
Betri nýting starfskrafta,
meiri sérhæfing og án efa betri
lækningaþjónusta er það sem af
þessari samstjórn myndi leiða,
en að því hljóta allir að stefna.
A höfuðborgarsvæðinu eru
sennilega um 800 „dýr rúm“ það
er að segja legurými í aðal-
sjúkrahúsum og allt að 600
önnur í útibúum þeirra. Þar við
bætast 900—1000 rými í elli- og
hjúkrunarheimilum, sem rekin
eru af félögum eða sjálfseigna-
stofnunum.
Starf félaga og sjálfeigna-
stofnana (Grundar) að elli- og
líknarmálum er aðdáunarvert.
Rekstur sjúkrahúsanna er allt
annars eðlis, þau eru byggð upp
og rekin af beinum framlögum
ríkis og bæja og eiga því að
stjórnast með það sjónarmið
eitt í huga að fá sem mestan
árangur fyrir það fé sem í þau
er lagt.
Valdimar Gíslason
kaupmaður sjötugur
Þótt ótrúlegt sé, eftir útliti
mannsins að dæma, þá er Valdimar
Gíslason sjötugur í dag. Svo léttur á
fæti sem hann er og hýr á brún og
brá, mætti halda að hann væri
áratugum yngri. Það hæfir því ekki
að skrifa um svo ungan dreng í
ellimannatón.
Valdimar er fæddur á Stokkseyri,
en fluttist til Reykjavíkur árið 1921,
eða í þann mund sem uppgangur
kratanna var sem mestur. Og
hugsjónaeldurinn logaði og kveikti í
drengnum. Seinna kulnaði eldurinn
og slokknaði hér um bil undir þykku
öskulagi, af því að askan var ekki
borin út úr éldstæðinu. En eldur í
öskunni leynist, — og Valli segir að
nú hafi hann bálað upp á ný og muni
verma okkur öll, — jafnt búandkarl
og kaupmann, sem verkamann og
sjómann. Valdimar hefur lagt gjörva
hönd á marga hluti um dagana.
Hann er einn af elstu kjötsölum
(kjötkaupmönnum) borgarinnar, og
barðist á sínum tíma hart fyrir því
að kjötinu væri kippt inn af
torgunum, og það varð, þótt nú sé
verið að bera vörur út á torgin á ný.
Valdimar er kjötiðnaðarmaður og
framleiddi bæjarins beztu spægi-
pylsu um langt árabil. Hún var
eldrauð í sárið og svo bragðgóð að af
bar. Hvernig hann náði bragðinu er
leyndarmál, sem hann lætur ekki
fyrir peninga, því það er list að ná
réttu bragði.
Valdimar vann við kokkamennsku
í hálfan annan áratug og kokkaði þá
rjarnan fyrir kónga og önnur
stórmenni.
Margar voru veizlurnar í þá daga
hjá Jóni á Brúsastöðum, á Þingvelli,
— ekki síður en nú.
Valdimar sat í fyrstu skólanefnd
Matsveina- og veitingaþjónaskóla
Islands, ásamt þeim Sigurði Gröndal
og Tryggva Þorfinnssyni.
Er kokkaríi lauk, fór Valdimar
aftur í kaupmennskuna, en rak
jafnframt um tíma Frystigeymsluna
h.f. Nú rekur Valdimar umboðs- og
heildverzlun að Gnoðarvogi 44, og
verzlar með allar vörur fyrir kjötiðn-
að og kjötverzlanir, enda fagmaður á
því sviði.
Kona Valdimars er Kristjana
Þorsteinsdóttir frá Knútsborg á
Seltjarnarnesi og giftu þau sig árið
1943. Þau hjón eiga þrjú börn saman:
Valdimar, Magneu og Þórkötlu, en
Ólaf Þ. Jónsson átti Kristjana, er
þau Valdimar giftu sig, og er hann
því stjúpsonur hans.
Þau hjón búa að Stangarholti 24,
og hefur Kristjana búið fjölskyldu
sinni þar myndarlegt heimili.
Valdimar Gíslason er félagslyndur
maður og hrókur alls fagnaðar á
góðum stundum. Hann hefur tekið
mikinn þátt í félagsstarfi innan
vébanda Kaupmannasamtaka ís-
lands og m.a. setið yfir tuttugu ár í
stjórn Félags kjötverzlana. Hann var
sæmdur gullmerki samtakanna fyrir
störf sín í þeirra þágu.
Ég óska Valdimar og fjölskyldu
hans til hamingju á þessum merku
tímamótum í lífi hans og vona að ég
eigi eftir að heyra marga brandara
enn, sagða af honum og sviðsetta.
Lifðu heill.
Jón I. Bjarnason.
16180
Opið í dag
kl. 2—5
Hraunbær
Góö 3ja herb. endaíbúö á 3.
hæö í blokk.
Haöarstígur
Forskalaö timburhús 2x70
ferm.
Hverfisgata
100 fm. risíbúö, lítiö undir súð.
Krummahólar
160 fm. toppíbúð.
Kleppsvegur
105 ferm. góð íbúð og herb. í
risi meö sér snyrtingu.
Langholtsvegur
4ra herb. ódýr íbúð ca. 80 ferm.
Lindargata
Einstaklingsíbúö.
Norðurbraut Hf.
3ja herb. risíbúö.
Njaröargata
Hæð og ris ásamt bílskúr.
Sogavegur
2ja herb. jaröhæö.
Kópavogur
lönaðarhúsnæði.
Kópavogur
Einbýlishús.
Seljendur:
Óskum eftir öllum teg. eigna á
skrá.
Vinsamlegast hafiö samband
við okkur sem fyrst.
SKÚLATÚN sf.
Fasteigna- og skipasala
Skúlatúni 6, 3. hæð
Sölumenn Esther Jónsdóttir og
Guðmundur Þórðarson, kvöld-
og helgarsimi 35130.
Róbert Árni Hreiöarsson,
lögfræðingur.
^mmmm^mmmmmm^
Leirubakki
3ja herb. mjög góö íbúö á 3ju hæö, efstu. Sér
þvottahús og búr inn af eldhúsi. Gluggi á baöi.
Útsýni. íbúöarherbergi fylgir í kjallara, auk
sérgeymslu. íbúöin er iaus strax. Verö 14,5 millj.
Útb. um 10,0 millj. íbúöin er í einkasölu hjá:
Kiöreignr Armúia 21, r.
D.n V.S. Vfflum 85988 • 85009
lögfræóingur