Morgunblaðið - 30.09.1978, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1978
3
Deilt um viðbyggingu á Neskaupstað:
Skipulagsstjórinn
bauðst til að fara
og reyna sættir
SKIPULAGSSTJÓRI ríkisins, Zophanías Pálsson, staðfesti í
samtali við Morgunblaðið að hann hefði tjáð félagsmálaráðu-
neytinu að hann væri fús að fara til Neskaupstaðar til að
leita sátta í deilu þeirri, sem risið hefur milli eiganda hússins
Egilsbraut 9 á Neskaupstað og bæjarstjórnar og byggingar-
nefndar Neskaupstaðar vegna viðbyggingar við húsið
Egilsbraut 9. Zophanías sagði að ekki yrði úr för hans austur
þar sem bæjarstjórinn á Neskaupstað, Logi Kristjánsson,
sem jafnframt er formaður byggingarnefndar á staðnum,
væri væntanlegur til Reykjavíkur eftir helgina og ætlunin að
þá færi fram í félagsmálaráðuneytinu sáttaumleitanir vegna
4>essa máls.
Skipulagsstjóri sagði að ástæða
þess að hann hefði boðist til að
reyna sættir í þessu máli væri að
þarna hefði verið sett lögbann á
framkvæmdir og þær því stöðvað-
ar. Húsið læki að sögn íbúa þess og
meðal þeirra væru ung börn og
Kennaramál-
in rædd í rádu-
neytunum
— VIÐ HÖFUM verið að skoða þessi
mál grunnskólakennara og reyna að
finna á þeim lausn. Viðræður hafa
farið fram, en ekkert nýtt verður af
þeim að frétta fyrr en eftir helgina,
sagði Ragnar Arnalds menntamála-
ráðherra í samtali við Mbl.
— Viðræður hafa farið fram við
fjármálaráðherra og fulltrúa hans,
en enn er ekki hægt að segja hver
verður endanleg lausn máisins.
barnshafandi kona en önnur fjöl-
skyldan væri auk þess flutt úr
húsinu. Sagði skipulagsstjóri að
hann hefði talið sjálfsagt að reyna
sættir í málinu og þannig að hægt
væri þá að gera húsið íbúðarhæft á
ný.
Deila sú, sem hér um ræðir,
hefur risið vegna viðbyggingar við
húsið Egilsbraut 9 og hefur
byggingarnefnd Neskaupsstaðar
ekki viljað veita leyfi til hennar en
eigandi hússins hefur hins vegar
hafið framkvæmdir við hana.
Fram kom hjá skipulagsstjóra að
þarna væri í gildi skipulag frá
1959 og hefði þá verið gert ráð
fyrir að það svæði, sem húsið
Egilsbraut 9 stæði á, færi seinna
undir skrúðgarð en nú væru
arkitektar, sem ynnu að endur-
skoðun skipulagsins farnir að
ganga á það svæði, sem skipulagið
frá 1959 gerði ráð fyrir að færi
undir garðinn og taka það til
annarra hluta.
Sigþór Jakobsson við eitt verka sinna á sýningunni í Norræna húsinu.
Ljósm. Mbl.i RAX.
„Vildi geta gefid mig
óskiptan að listmálun
— segir Sigurþór Jakobsson
55
SIGURÞÓR Jakobsson opnar
málverkasýningu í dag, laugar
dag, í Norræna húsinu, en þar
sýnir hann 102 myndir. Þetta er
fyrsta stóra einkasýning Sigur
þórs, en áður hefur hann sýnt á
haustsýningum FÍM, í Mokka
kaffi og eitt sinn í vinnustofu
sinni. Sigurþór lærði upphaflega
prentiðn.' en stundaði jafnhliða
nám við myndlistaskólann í
Rannsóknastofur að lamast
vegna uppsagna meinatækna
FJÖLMENNUR félagsfundur
meinatækna hefur látið frá sér
fara ályktun þar sem fram kemur
að á miðnætti 30. september muni
velflestar rannsóknastofur í heil-
hrigðisþjónustu verða óstarfhæf-
ar vegna uppsagna meinatækna.
Samþykktin var send kjaranefnd
Aukaþing
SUS hefst
í dag kL10
AUKAÞING Sambands ungra sjálf-
stæðismanna verður sett í Valhöll á
Þingvöllum árdegis í dag eða kl. 10
af formanni SUS, Jóni Magnússyni.
Þá gera formenn undirbúnings-
nefnda þingsins grein fyrir störfum
nefnda, sem unnið hafa að undir
búningi ályktana um skipulag og
starfshætti Sjálfstæðisflokksins,
starfsemi og starfsháttu SUS,
verðbólguna og kjördæmamálið.
Starfsnefndir þingsins verða
kjörnar kl. 11.30 og þær hefja störf
að loknu matarhléi eða kl. 13.30.
Laust fyrir klukkan fimm er gert ráð
fyrir að almennar umræður hefjast.
Um kvöldið snæða þingfulltrúar
kvöldverð í Valhöll og flytur Ellert
Schram alþingismaður þar ræðu.
Um kvöldið verður kvöldvaka.
Á sunnudag hefst dagskrá þings-
ins kl. 10.30 með umræðum og
afgreiðslu ályktunar um starfsemi
ungra sjálfstæðismanna, eftir
hádegi verða afgreiddar ályktanir
um starfsemi og skipulag Sjálf-/
stæðisflokksins, verðbólguna og
kjördæmamál og almenn stjórn-
málaályktun. Klukkan 18 á sunnu-
dag flytur Geir Hallgrímsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, ávarp,
og að því loknu verður þinginu slitið.
og auk þess gengu fulltrúar
félags meinatækna á fund þeirra
Tómasar Árnasonar fjármálaráð-
herra og Magnúsar Magnússonar
heilbrigðisráðherra og afhentu
þeim ályktunina.
I ályktuninni segir m.a.:
Fundurinn minnir á að uppsagn-
ir meinatækna voru sendar við-
komandi yfirvöldum fyrir u.þ.b. 6
mánuðum, jafnframt því sem þeim
var gerð grein fyrir óánægju
stéttarinnar með úrskurð kjara-
nefndar. Þar var í engu komið til
móts við réttmætar kröfur þeirra
um grunnröðun í 14. launaflokk.
I texta úrskurðar kjaranefndar
segir um 14. flokk (úrsk. frá 23.
feb. ‘78):
„14. Sjálfstæð og breytileg
rannsóknarstörf, þar sem allmik-
illar sérmenntunar úr háskóla eða
tækniskóla er krafist. Ennfremur
sérmenntað fólk, sem vinnur að
endurþjálfun eða frumþjálfun
fólks, sem orðið hefur fyrir
líkams- og heilsutjóni. H 13.“
í texta úrskurðar kjaranefndar
segir um 12. launaflokk, sem
meinatæknar taka laun eftir í dag:
„12. Sjálfstæð þjálfunar-, upp-
eldis- og leiðbeiningarstörf, þar
sem meiri sérmenntunar er krafist
og viðbættri starfsþjálfun. Meina-
tæknir. H 11.“
Fundurinn hvetur Kjaranefnd
til að taka fyrri úrskurð sinn til
endurskoðunar og raða meina-
tæknum skv. leiðbeiningum H 13,
enda hún í fullu samræmi við nám
þeirra og störf.
Reykjavík, þá var hann við nám í
London í frjálsri teikningu og
auglýsingagerð 1%5—’67. Frá
þeim tíma. hefur Siurþór starfað
á auglýsingastofum og vinnur nú
hjá Myndamótum h.f.
„Margar myndirnar, sem ég sýni
nú, eru krítarmyndir, gerðar með
vaxkrít. Annars geri ég yfirleitt á
hverjum degi einhverjar skissur
með krítinni. Þá sýni ég mörg
olíumálverk og í þriðja lagi sýni ég
klippimyndir, en að þeim hef ég
mikið unnið á þessu ári,“ sagði
Sigurþór þegar Mbl. ræddi við
hann.
Þegar Sigurþór var spurður að
því hvernig það færi saman að
vinna við auglýsingagerð jafnhliða
listmálun, sagði hann: „Það má sjá
það eitthvað í mínum myndum, að
ég vinn að auglýsingagerð. Sjálfur
vildi ég geta gefið mig óskiptan á
listmáluninni, en það er svo með
myndlistarmenn.á íslandi, að þeir
verða að taka að sér önnur störf
með. Á vissan hátt er líka gott að
stunda önnur störf samhliða, því
að á meðan svo er einangrast
maður ekki.
Þá hef ég mjög gaman að því að
skipuleggja verkefni eins og t.d.
bækur. Maður er líka reynslunni
ríkari að hverju verkefni loknu, og
það sama má segja þegar maður
hefur lokið við mynd. Yfirleitt
heldur maður að verið sé að gera
merkilega hluti í hverri mynd, sem
maður fæst við, en að verkinu
loknu kemur kannski annað í ljós.“
Þá sagði Sigurþór að hann hefði
aflað sér mikillar sjálfsmenntunar
með því að sækja söfn og skoða
sýningar erlendis.
Sýning Sigurþórs verður opin
fram til 8. október frá kl. 14 til 22
alla daga.
Söngskólinn í Reykjavík hefur keypt hús norska sendiráðsins að
Hverfisgötu 45 í Reykjavík og verður starfsemi skólans í þessu
húsnæði í vetur. Gengið var frá kaupunum í gær. — Ljósm.i Kristján.
Menntamálaráðherra:
Ráðuneytið
á aðlosa
sig við húsið
- en hvað kemur í staðinn?
MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær
tal af Ragnari Árnalds mennta-
málaráðherra og spurðist fyrir
um hvort búið væri að ákveða
nokkuð um sölu á Víðishúsinu.
Iíafði Ragnar þetta að segja
um máliði
„Það hefur ekki farið framhjá
lesendum Morgunblaðsins sein-
ustu dagana að á síðum blaðsins
er talsverð áróðursherferð í
gangi út af Víðishúsinu og þeirri
ósvinnu undirritaðs, að ég skuli
ekki vera búinn að selja húsið
nú fjórum vikum eftir að
ríkisstjórnin var mynduð,“ sagði
Ragnar.
„Ritstjórum blaðsins til hug-
arhægðar vil ég upplýsa að
skoðun mín á þessum húsakaup-
um hefur ekkert breyst. Ég tel
enn sem fyrr að menntamála-
ráðuneytið eigi að losa sig við
húsið, a.m.k. þann hluta þess,
sem keyptur var í fyrra og
ætlaður var menntamálaráðu-
neytinu.
Hins vegar snýst þetta mál
ekki lengur um að hætta við að
gera kaup. Húsið hefur þegar
verið keypt. Undanfarna mánuði
hefur menntamálaráðuneytið
búið sig undir að innrétta húsið
til starfsemi sinnar. Öllum má
vera ljóst, að ekki er vanþörf á
úrbótum í húsnæðismálum
menntamálaráðuneytisins, því
að ráðuneytið býr við mjög
mikinn húsnæðisskort og er nú
staðsett á 3 stöðum hér í bæ.
Það sem nú þarf að athuga er
þetta:
1. Semst við hugsanlega
kaupendur um viðunandi verð.
Þetta er með öllu óljóst enn.
2. Hvaða húseign fær mennta-
málaráðuneytið í staðinn til
sinna þarfa?
Menntamálaráðuneytinu ligg-
ur á að taka framtíðaákvarðanir
um húsnæðismál sín í samráði
við ríkisstjórn og Alþingi, eins
og lög gera ráð fyrir. En engir
aðrir en ritsnillingar Morgun-
blaðsins láta sér til hugar koma,
að þessu máli verði flaustrað af
á fáeinum dögum.“