Morgunblaðið - 30.09.1978, Side 5
__________________________________I_________
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1978
5
Albióðabankinn veitti 8.500
milíj. dollara í lán á sl. ári
ALÞJÓÐABANKINN og systurstoln-
un hans Alþjóða framfarastofnunin.
veittu samtais 8.500 milljónir dollara
í lán á síðasta fjárhagsári. en lán
bankans eru til 17—20 ára með
7—8% vöxtum og greiðslulaus fyrstu
5 árin. Kom þetta fram á ársundi
bankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins. sem haldinn var í Washington
dagana 24.-29. sept. Fulltrúar
íslands á fundi bankans voru Tómas
Árnason fjármálaráðherra og Sigur
geir Jónsson aðstoðarseðiabanka-
stjóri. en fund Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins sátu þeir Jóhannes Nordai
seðlabankastjóri og Gisli Blöndal
hagsýslustjóri.
í fréttatilkynningu, sem Morgun-
blaðinu barst í gær frá fjármálaráðu-
ne.vtinu, segir, að 132 þjóðir eigi nú
aðild að Alþjóðabankanum, en hann
var stofnaður árið 1945 og er hlutafé
bankans um 20 milljarðar dollara.
Þýðingarmestu mál aðalfundar
bankans nú fjölluðu um ástand og
horfur í efnahagsmálum þróunarríkj-
anna, svo og að ræða aimenna
hlutafjáraukningu bankans og næsta
framlag til Alþjóða framfara-
stofnunarinnar (IDA).
I fréttatilkynningunni segir að
aðalframkvæmdastjóri bankans,
Robert McNamara, hafi lagt á það ríka
áherzlu í ræðu sinni, að nauðsynlegt
væri að berjast gegn auknum verndar-
ráðstöfunum í viðskiptum þjóða í milli,
því að aukin viðskipti væru hyrningar-
steinn þess að auka mætti velmegun í
þróunarlöndunum.
Linda, Bjarni og Sævar kynna um helgina.
Hvernig á að meðhöndla haustlauka?
Hvernig á að fá lauka til að blómstra inni?
Hvað á aö planta laukum djúpt?
Svörin fást á haustlaukakynningunni.
Heimsækiö Græna-Torgiö um heigina.
blómouol
Ökumenn, eflum sameiginlega öryggi æskunnar
'A EFTIR B0LTA
KEMUR BARN
JUNIOR CHAMBER
.EFLUM ÖRYGGI ÆSKUNNAR'
siuEn
Ágúst með nokkrar mannamyndir sínar. Ljósm. Mbl.i RAX.
Ágúst F. Pedersen
sýnir á Kjarvalsstöðum
Ingvar keppir
ÁGÚST F. Pedersen opnar í dag
málverkasýningu á Kjarvalsstöð-
um. en þar sýnir Ágúst 118
myndir, sem hann hefur unnið að
mestu á s.l. þremur árum, eða frá
því að hann hélt síðustu einkasýn-
ingu sína 1975 í Norræna húsinu.
Ágúst sagði í samtali við Mbl. í
gær, að myndirnar væru allar
1 stað Inga R.
INGI R. Jóhannsson, alþjóðl.
skákmeistari, hefur tilkynnt
stjórn Skáksambands íslands, að
hann siái sér ekki fært að taka
sæti í Olympíuskáksveitinni, sem
eftir tæpan mánuð heldur til
Argentínu til að tefla á 23.
Ólympíuskákmótinu^ í stað Inga
R. hefur Ingvar Ásmundsson,
skákmeistari, verið valinn til
þátttöku.
Ólympíulið íslands í kaflaflokki
verður því þannig skipað: Friðrik,
Guðmundur, Helgi, Margeir, Jón
L., Ingvar.
Þær, sem skipa fyrstu ólympíu-
skáksveit kvenna, eru eins og áður,
olíumálverk. „Myndefnið hef ég
mikið sótt í fjöruna, einnig
landslag upp til heiða og þá sýni ég
fjöldann allan af mannamyndum
eða portrettum."
Sýning Ágústs verðr opin til 15.
október. Er sýningin opin virka
daga frá kl. 16—22, um helgar frá
kl. 14 til 22. Sýningarsalurinn
verður lokaður á mánudögum.
þær: Guðlaug, Ólöf, Birna og
Svana.
Fararstjóri verður Einar S.
Einarsson, forseti SÍ, sem jafn-
framt mun sitja þing Alþjóðaskák-
sambandsins, bæði fyrir hönd
íslenzka og danska skáksambands-
ins.
Vegamálid:
Hafnfirð-
ingar bíða
- og hlusta
„VIÐ munum fyrst og
fremst hlusta á það sem
Garðbæingar hafa fram að
færa," sagði Árni Grétar
Finnsson, bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði, þegar Mbl.
leitaði eftir sjónarmiði
Hafnfirðinganna í vegamál-
inu, en sameiginlegur fund-
ur bæjarfulltrúa þessara
tveggja bæjarfélaga var
haldinn í gær.
Árni Grétar kvað stefnu Hafn-
arfjarðarbæjar í vegamálinu hina
sömu o% syrr, — Hafnfirðingar
vildu fá Hafnarfjarðarveginn og
einnig Reykjanesbrautina. Hann
kvað umferðarvanda þeirra Hafn-
firðinga vera gífurlegan, eins og
ástandið væri nú, en sagði jafn-
framt, að bæjarfulltrúum Hafnar-
fjarðar væri fyllilega ljóst að hér
væri erfitt úrlausnarmál á ferð-
inni, sem ekki væri gott að segja
að svo stöddu hvernig færi.
Ahugamenn um
kvikmyndagerð
stofna samtök
SAMTÖK áhugamanna um kvik-
myndagerð verða stofnuð í
Tjarnarbæ í dag kl. 14. Fyrir
stofnundinum munu liggja drög
að lögum fyrir félagið, sem
unnið hefur verið að því að
semja undanfarið af sérstakri
undirbúningsnefnd.
I þessum lagadrögum segir
m.a. um markmið félagsins, að
það sé að efla kvikmyndagerð
áhugamanna á íslandi með því
t.d. að halda uppi almennri
fræðslustarfsemi, námskeiða-
haldi og útgafustarfsemi, ráð-
stefnuhaldi og með samvinnu við
hliðstæð erlend samtök, svo sem
UNICA og Nordisk smalfilm og
með þáttöku í samkeppni, þegar
slík tækifæri gefast.
Allir geta orðið félagar í
samtökunum sem hafa áhuga á
kvikmyndagerð og er ætlunin að
byggja samtökin upp með starf-
semi klúbba. Rætt er um í
drögum þessum að efna skuli til
kvikmyndahátíðar þar sem sýnd-
ar verði beztu myndir félaga, svo
og hliðstæðar myndir erlendis
frá.
í undirbúningsnefndinni eiga
sæti Karl Jeppesen kennari og
menntaskólanemarnir Kristberg
Óskarssbn og Valgerður Guðjóns-
son sem báðir eru meðal frammá-
manna kvikmyndaklúbbsins
Fjalakattarins og munu samtökin
njóta velvildar kvikmynda-
klúbbsins, þótt þau séu algjörlega
sjálfstæð.