Morgunblaðið - 30.09.1978, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. SEPTEMB'ER 1978
19
Liechtenstein
í Evrópuráðið
StrassixirK. 29. sept. Reuter.
EVRÓPURÁÐIÐ samþykkti með
vfirgnæfandi meirihluta atkvæða
í gærkvöldi að bjóða dvergríkinu
Liechtenstein aðild að ráðinu.
Furstadæmið Liechtenstein
verður 21. ríkið sem aðild fær að
ráðinu. Landið er eitt hið minnsta
í Evrópu og fbúar þess aðeins
Veður
víða um veröld
Akureyri 3 skýjað
Amsterdam 14 skýjað
Apena 23 bjarl
Barcelona 24 léttskj.
Berlín 8 skýjað
Brtlssel 12 rigning
Chícago 17 bjart
Frankfurt 13 rigning
Genf 18 sól
Helsinki 7 bjart
Jerúsalem 25 skýjað
Jóh.borg 29 sól
Kaupm.höfn 12 sól
Lissabon 29 sól
London 16 sól
Los Angeles 37 bjart
Madrid 27 sól
Majorka 26 léttskj.
Malaga 26 skýjað
Miami 31 bjart
Montreal 14 bjart
Moskva 12 skýjað
Nýja Oelhi 33 sól
New York 20 bjart
Ósló 10 sól
Paris 15 rigning
Rio de Janeiro 30 sól
Rómaborg 23 skýjað
San Francisco 26 bjart
Reykjavik 4 skýjað
Stokkhólmur 9 skýjað
Sydney 15 rigning
Teheran 28 sól
Tel Aviv 28 skýjaö
Veðurlýsingar vantar frá Tðkíó,
Vancouver og Vínarborg.
24.000. en jafnframt eitt hið
auðugasta. Þjóðartekjur á mann
eru álíka miklar eða meiri en í
Sviss.
Aðild Liechtenstein hefur mætt
nokkurri mótspyrnu, aðallega frá
þingmönnum sem hafa haldið því
fram að setja verði það skilyrði
fyrir aðildinni að konur fái
kosningarétt í Liechtenstein. Virð-
ing fyrir mannréttindum er höfuð-
skilyrði fyrir aðild að Evrópuráð-
inu. Þingið' í Liechtenstein er
fylgjandi kosningarétti kvenna, en
hann hefur tvívegis verið felldur í
þj óðaratkvæðagreiðslu.
Frú Liv Aasen, þingmaður
norska Verkamannaflokksins, seg-
ir að Liechtenstein eigi ekki að fá
aðild fyrr en endir hafi verið
bundinn á þessi mannréttindabrot.
En Toby Jessel, þingmaður
brezka íhaldsflokksins, segir að
leiðtogi einu stjórnmálasamtaka
kvenna í Liechtenstein („Fur die
Frau“) hafi sagt sér að hún vildi að
Evrópuráðið samþykkti aðildina
þar sem það muni flýta fyrir þeirri
þróun að konur fái kosningarétt.
Myndin var tekin örstuttu eftir að fréttin um lát páfa fór að berast um Rómaborg í
gær. Skólabörn komu til Péturstorgsins og báðust þar fyrir.
Páíí fannst látinn í rúmi
sínu með opna bænabók
Verkfalli
hjá Alitalia
frestað
Milanó. 29. sept. AP.
FLUGÞJÓNAR og flugfreyjur hjá
ALITALIA-flugfélaginu ákváðu í
morgun, eftir að tilkynning var
gefin út um lát Jóhannesar Páls
páfa, að fresta fyrirhuguðu sólar-
hringsverkfalli sem boðað hafði
verið.
Talsmaður stéttarfélagsins
greindi frá þessu og sagði að
flugþjónusta yrði með eðlilegum
hætti og til verkfallsaðgerða kæmi
ekki að sinni.
Páfagarói. 29. september. AP.
JÓHANNES Páll páfi I. „litli
maðurinn“. sem með brosmildi
sinni og feimni vann sér hylli
milljóna manna um allan heim. er
látinn eftir 33 daga á páfastóli.
skemmri tima en nokkur páfi
hefur ríkt á síðari tímum.
Páfi fannst látinn í rúmi sínu í
morgun og hafði látizt af völdum
hjartaáfalls kl. 11 í gærkvöldi.
Kveikt var á leslampa við rúm
hans og opin bók lá við hliðina á
rúminu.
Vinir páfa segja að verið geti að
of mikið vinnuálag hafi dregið
hann til dauða. Hann var 65 ára
gamall og hafði lengi átt Við
sjúkdóma að stríða, meðal annars
verið skorinn upp nokkrum sinn-
um. „Upp á síðkastið hefur hann
greinilega orðið að þola álag og
spennu sem var honum um megn,“
sagði séra Mario Senigaglia, ritari
páfa sem hét Albino Luciano að
skírnarnafni og var áður kardináli
í Feneyjum.
„Ef til vill var byrðin sem hann
þurfti að bera honum ofviða,"
sagði Franz kardináli Koenig í Vín
þegar hann heyrði fréttina.
Páfinn lá í viðhafnarbúningi
sínum þegar hann lézt fyrir
framan hvítan kross með krepptar
hendur og hélt á bænabók. Stafur
hans lá við hliðina á líkinu.
Jóhannes Páll páfi var fæddur í
fjallaþorpi og gleymdi aldrei
uppruna sínum og auðmýkt hans
hlaut góðan hljómgrunn meðal
Þetta gerðist
1946 — 22 nazistaleiðtogar
fundnir sekir um stríðsglæpi í
Núrnberg og 11 dæmdir til
dauða.
1912 — Búlgarar og Serbar
hervæðast gegn Tyrkjum.
1892 — Boulanger hershöfð-
ingi fyrirfer sér í útlegð í
Brússei.
1868 — ísabella Spánardrottn-
ing flýr land og leggur niður
völd.
1856 — Tannlæknirin William
Morton notar eter í fyrsta skipti
til svæfinga í Boston.
1568 — Sænski herinn og að-
allinn gera Jóhann III að
konungi eftir fall Eiríks XIV.
Afmæli dagsinst Truman Ca-
pote, bandarískur höfundur
(1924 — ) — Johnny Mathis,
bandarískur söngvari (1935— )
— Deborah Kerr, skozkfædd
leikkona (1921— ).
Innlenti Hítardalsbrenna: fórst
Magnús biskup Einarsson í
húsbruna og 72 menn með
honum 1148 — F. Jón Borgfirð-
ingur 1826 — Dr. J. Jónassen
settur landlæknir 1895 —
Áfengi skammtað 1940 — Jarð-
hræringar við Reykjanesvita
1967 - F. Jón G. Sólnes 1910 -
Magnús H. Magnússon 1922.
Orð dagsinsi Það er ekki nóg að
vera heimskur til að komast
áfram í heiminum, þú verður
líka að vera kurteis — Voltaire,
franskur heimspekingur (1694
- 1778).
Nú berst Korchnoi
upp á líf og dauða
Eftir Harry Golombek.
KORCHNOI berst nú fyrir lífi
sínu í heimsmeistaraeinvíginu.
Ef hann tapar einu sinni enn
sigrar heimsmeistarinn og held-
ur titlinum. Áskorandinn tapaði
27. skákinni eins og við var búizt
án þess að tefla biðskákina, en
litlu munaði að hann tapaði líka
einvíginu af því honum sást yfir
að tilkynna dómaranum að hann
gæfi skákina áður en biðskákin
var tefld.
Karpov mætti eins og lög gera
ráð fyrir á réttum tíma, en
ekkert bólaði á Korchnoi.
Klukka áskorandans var sett í
gang en þar sem Karpov hafði
innsiglað leik sinn í gær var
ekki hægt að opria umslagið
reglum samkvæmt og leika
leikinn fyrr en andstæðingurinn
mætti.
Þær fréttir bárust að
Korchnoi lægi í fasta svefni í
íbúð sinni og Michael Stean,
annar tveggja aðstoðarmanna
hans, fór að vekja hann og
spyrjast fyrir um hvað hann
hygðist fyrir. Svo virðist sem
Korchnoi hafi sagt hinum að-
stoðarmanni sínum, Raymond
Keene, í gærkvöldi að hann
ætlaði að gefa skákina, en þar
sem honum láðist að gefa Keene
skýr fyrirmæli um að tilkynna
þetta yfirdómaranum, Miroslav
Filip frá Jugóslavíu, gerði Keene
auðvitað ekkert í málinu.
Korchnoi skrifaði þegar í stað
orðsendingu sem Stean afhenti
Filip kl. 5.33 síðdegis. Bréfið var
svohljóðandi: „Eg bið dómarana
afsökunar. Þessar reglur koma
mér dálítið spánskt fyrir sjónir.
Ég gef eftir 27. leik.“
Þegar þetta bréf var afhent
var klukkan 6.50 sem táknaði að
hann hefði tapað á tíma á tíu
mínútum hovrt eð var. Innsigl-
aður leikur Karpovs var R-D3 og
raunar var það aðalleikurinn
sem aðstoðarmenn Korchnois
höfðu rannsakað þótt um væri
að ræða sex möguleika sem
hefðu tryggt heimsmeistaránum
sigur. Nú hefur Karpov 5
vinninga en Korchnoi 2 og þeir
hafa gert 20 sinnum jafntefli.
Nú þarf Karpov aðeins einn
vinning til þess að vinna jafnvel
enn þá meiri yfirburðasigur á
Korchnoi en Fischer vann
ríarrif Golombek
sknfar fi/rir
Mmqanblaðið
kaþólskra manna jafnt sem ann-
arra. Þótt hann væri páfi í aðeins
rúman mánuð setti hann svip sinn
á embættið. Fjórum sinnum veitti
hann almenningi áheyrn og sagði
sögur, kyssti smábörn og las kafla
úr enskum og ítölskum bókmennt-
um.
Hann var ekki nógu lengi páfi til
þess að setja fram meiriháttar
kennisetningar en lýsti því yfir
fyrir átta dögum að hann ætlaði
að feta í fótspor fvrirrennara síns
Páls.
Frá því var skýrt í páfagarði að
einkaritari páfa, írski presturinn
John Magee, hafði komið að
honum látnum um kl. hálfsex
(0330 GMT). Páfi var árrisull og
Magee fór fyrst í kapellu páfa en
fann hann ekki þar. Hann flýtti
sér til svefnherbergis páfa og kom
að honum látnum. Einn af læknum
páfa, Renato Buzzonetti, var
kvaddur á vettvang og hann
úrskurðaði að hann hefði látizt um
kl. 23.00.
Tilkynnt var að páfi hefði látist
annað hvort í svefni eða við lestur
15. aldar helgirits, Eftirlíking
Krists.
Samkvæmt heimildum í Páfa-
garði frétti Jóhannes Páll páfi
skömmu áður en han.n fór til
svefnherbergis síns að hægriöfga-
menn hefðu skotið ungan komm-
únista til bana úr launsátri í Róm.
„Þeir drepa hver annan, meira að
segja unga fólkið,“ sagði páfi og
þetta geta hafa verið síðustu orðin
sem hann sagði samkvæmt heim-
ildunum.
Strax og fréttin barst um lát
páfa streymdu þúsundir manna út
á Péturstorg. „Páll páfi tók
hlutverk sitt mjög alvarlega,"
sagði systir Narie Chalrels frá
París þar sem hún baðst fyrir í
Péturskirkjunni. „Hann vildi gefa
svo mikið,“ sagði hún. Orð hennar
lýstu viðbrögðum milljóna við
dauða páfa.
Gulur og hvítur fáni Páfagarðs
var dreginn í hálfa stöng og
götuvígi voru reist til að hafa
stjórn á mannfjöldanum sem
streymdi til að virða fyrir ser lík
páfa. Mannfjöldinn var meiri en
þegar Páll páfi lézt í ágúst en þá
voru margir Rómarbúar í sumar-
leyfi.