Morgunblaðið - 30.09.1978, Side 39

Morgunblaðið - 30.09.1978, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 1978 39 LAN1Ð LÉK EKKI VID EYJAMENN Drógust á móti pólska liðinu Slask Wroclaw í annarri umferð í UEFA-keppninni Dregið var í gær í aðra umíerð í Evrópukeppnunum þremur og má segja að lánið hafi ekki leikið við Vestmannaeyinga. Þeir dróg- ust gegn pólska liðinu Slask frá Wroclaw, en félagið er kunnara fyrir handknattleiksliðið. sem hér* hefur dvalið og leikið. And- stæðingar hinna íslensku lið- anna. sem tóku þátt í keppnum þessum. Köln. sem sló út ÍA, og Magdeburg. sem lagði Val að velli, fengu erfiða mótherja í næstu umferð og geta ekki bókað sig í 3. umferð. Köln fékk búlgarska liðið Lokomotiv Sofia og Magdeburg leikur gegn Ferencvaros frá Ungverjalandi. Ensku liðin fá öll að hafa fyrir áframhaldandi þátttöku. í meist- arakeppninni leikur Nottingham Forest gegn AEK frá Grikklandi, liði sem löngum hefur verið enskum liðum skeinuhætt í Ev- rópukeppni. í keppni bikarhafa var Ipswich lfklega hvað heppn- ast ensku liðanna, en liðið dróst gegn Innsbruck frá Austurríki. í UEFA-keppninni komust öll ensku liðin í 2. umferð og leikur Everton næst gegn Dukla Prag frá Tékkoslóvakíu, WBA einnig gegn tékknesku liði. Sporting Braga. Manchester City mætir liði Ásgeirs Sigurvinssonar. Standard Liege. og Arsenal. sem malaði Lokomotiv Leipzig í fyrstu umferð, fær enn að ferðast austur fyrir járntjald og leikur nú gegn Hadjuk Split frá Júgóslavíu. Fyrri leikirnir fara fram 18. október næstkomandi. en síðari leikirnir 1. nóvember. Þetta voru slæmar fréttir Reynum að leika báða leikina ytra MBL. IIAFÐI samband við Jóhann Ólafsson varaformann knattspyrnuráðs Vestmanna- eyja og spurði hann álits á mótherjum Eyjamanna í ann- arri umferð UEFA-keppninn- ar. — Ég er mjög óhress. þetta voru slæmar fréttir, sagði Jóhann. — Við erum óheppnir að lenda á móti þessu pólska liði. Þetta er langt og dýrt ferðalag. Ég á von á því að við reynum að ná samningum um að leika báða leikina ytra. Það er ekki grundvöllur fyrir okk- ur að leika hér á landi svo seint á árinu. Við fengum litla aðsókn að leik okkar við Glentoran, og lætur nærri lagi að fjárhagslegt tjón okkar haíi numið um tveimur milljónum króna. Hér í Vestmannaeyjum er farið að safna fé til styrktar ÍBV, og nú þegar hafa safnast 110 þúsund krónur í fiskimjöls- verksmiðjunni. Það er dýrt fyrirtæki fyrir íþróttafélög að taka þátt í Evrópukeppnum. sagði Jóhann að Iokum í þessu stutta spjalli okkar. ~ þr. Tvær umferðir í körf- unni um helgina Reykjavíkurmótinu í körfu- knattleik verður fram haldið nú um helgina og má búast við hörkuleikjum eins og um síðustu helgi. Leikir helgarinnar fara fram í íþróttahúsi Hagaskólans og í dag kl. 14.00 leika fyrst KR og ÍS. Liðin skiptu með sér stigum í íslands- mótinu í fyrra og voru leikir liðanna þar æsispennandi. Fróð- legt verður að vita hvernig viður- eigninni lyktar nú. Klukkan 15.30 eigast síðan við Valur og Ármann. Ármenningar koma nú mun sterkari til leiks en í fyrra og ættu því að eiga mögu- leika á að sigra Valsmenn, en vafalaust verður viðureign þessara liða tvísýn. Síðasti leikur dagsins verður milli Framara og ÍR-inga og hefst hann um klukkan 17.00. Framarar virðast vera í úrvalsdeildarformi þessa dagana og stefna að Reykja- víkurmeistaratitli. ÍR-ingar verða því að taka á honum stóra sínum ef ekki á illa að fara. Á morgun heldur mótið síðan áfram og hefst fyrsti leikurinn klukkan 13.30. Er hann milli ÍS og Ármanns. IS-menn eru óneitan- lega sterkari á pappírunum, en slíkt dugir skammt þegar á hólmihn er komið og getur sigur- inn jafnt fallið Ármenningum í skaut sem stúdentum. Klukkan 15.00 leika ÍR og Valur. Er þetta enn ein viðureignin, sem ekki verður spáð um. Bæði liðin leika góðan körfuknattleik svo enginn ætti að vera svikinn að sjá þau leika. Síðasti leikur 4. umferðar er síðan milli KR og Fram, og ætti sú viðureign að hefjast um klukkan 16.30. Bæði liðin hafa unnið tvo fyrstu leikina oggæti þetta jafnvel orðið úrslitaleikur mótsins. Fæstir vilja missa af þessum leik enda má alveg eins búast við því að Framarar leggi íslandsmeistara KR að velli í fyrsta skipti. Allt getur gerst og stuðningur að- dáenda getur riðið baggamuninn. Reykjavíkurmótinu lýkur síðan sunnudaginn 8. október. STAÐAIM OG STIGAHÆSTU Fram 2 2 0 172-152 4 stig KR 2 2 0 161-147 Istig fR 2 1 1 165-159 2stig Valur 2 1 1 130-138 2stig Ármann 2 0 2 165—181 0 stig ÍS 2 0 2 145-159 Ostig Stigahæstu menni John Johnson Fram 92 stig Paul Stewart ÍR / 70 stig Dirk Dunbar ÍS 62 stig Stewart Johnson Árm. 61 stig John Hudson KR 57 stig Liðin sem drógust saman Meistarakeppnin Real Madrid (Spáni) — Grasshoppers (Sviss) AEK Athens (Grikklandi) — Nottingham Forest (Englandi) Dynamo Kiev (Rússlandi) — Malmö FF (Svíþjóö) Lokomotive Sofia (Búlgaríu) — FC Köln (Vestur-Þýzkalandi) Bohemians (írlandi) — Dynamo Dresden (Aust- ur-Þýzkalandi) Zbrojovka (Tékkóslóvakíu) — Wisla Krakow (Póllandi) Austria Vln (Austurríki) — Lilleström (Noregi) Glasgow Rangers (Skotlandi) — PSV Eindhoven (Hollandi) Bikarkeppnin Servette (Sviss) — Nancy (Frakklandi) Ostrava (Tékkóslóvakíu) — Rovers (írlandi) Ipswich (Englandi) — Innsbruck (Austurríki) Anderlecht (Belgíu) — FC Barcelona (Spáni) Inter Milan (ítalíu) — Bodö (Noregi) Aberdeen (Skotlandi) — Fortuna Díisseldorf (V-Þýzkal. Bevern (Belgíu) — Rijeka (Júgóslavíu) Ferencvaros (Ungverjalandi) FC Magdeburg (A-Þýskal.) UEFA-bikarkeppnin: Ajax (Hollandi) — Lausahne Sports (Sviss) Benfica (Portúgal) — Borussia Mönchengladbach (V-Þýzkal.) Everton (Englandi) — Dukla Prag (Tékkósl.) Arges Pitesti (Rúmeníu) — Valencia (Spáni) Sporting Braga (Júgósl.) — WBA (Engtandi) Torpedo Moskva (Rússl.) — VFB Stuttgart (V-Þýzkal.) Strassburg (Frakklandi) — Hibernian (Skotlandi) Sporting Gijon (Spáni) — Rauöa Stjarnan (Júgóslavíu) Carl Zeiss Jena (A-Þýzk.) — MSV Duisburg (V-Þýzkal.) Palluseuru Kuopio (Finnl.) — Esbjerg (Danmörku) Vestmannaeyjar — Slask Wroclaw (Póllandi) Manchester City (Englandi) — Standard Liege (Belgíu) Politechnica Timisoara (Rúm) Honved Budapest (Ungverjal.) Hertha Berlin (V.-Þýzk.) — Dynamo Tiblisi (Rússlandi) Hadjuk Split (Júgósl.) — Arsenal (Englandi) Levski Spartak (Búlgaríu) — AC Mílanó (ítaliu) • Ur leik ÍBV og Glentoran. Friðfinnur og Oskar í baráttu við írskan leikmann. Real Madríd hef- ur náð lengst ÞAR SEM Evrópukeppnirnar eru ofarlega á dagskrá þessa dagana, væri ekki úr vegi að rifja upp hvaða lið og hvaða þjóðir hafa staðið sig best í keppnum þessum. Alls hefur verið leikinn 61 úrslita- leikur síðan fyrst var farið að keppa á þessum vettvangi, 23 leikir í meistarakeppninni, 18 í keppni bikarhafa, 7 í UEFA-keppninni og 13 í bæja- keppninni svokölluðu, sem lögð var niður með tilkomu UEFA-keppn- innar. Nokkur lið hafa unnið Evróputitil oftar en einu sinni. Real Madrid ber þar hæst, með 6 sigra í meistarakeppninni, þar af 5 í röð frá 1956—1960. Bayern vann sömu keppni þrisvar í röð frá 1974—76, auk þess að vinna keppni bikarhafa árið 1967. Mílan vann Meistarakeppnina árin 1964 og 65 og "keppni bikarhafa árin 1968 og 1973 og Liverpool vann meistara- keppnina tvö síðustu árin og UEFA-keppnina árin 1973 og 76. Auk þessa hefur Tottenham bæði unnið keppni bikarhafa og UEFA-keppnina og Feyenoord unnið meistarakeppnina og UEFA-keppnina. Annars lítur listi yfir þau félög sem unnið hafa oftar en einu sinni þannig út. I þýðir meistarakeppnin, II þýðir keppni bikarhafa, III þýðir UÉFA-keppn- in og B þýðir bæjakeppnin sem lögð hefur verið niður. Sportin Lissabon, Hamburger SV, Fiorentina, Dynamo Kiev, Magde- burg, Slovan Bratislava, Chelsea, West Ham og Borussia Dortmund. UEFA-keppnin: Juventus, Boruss- ia Mönchengladbach og PSV Eind- hoven. Og að lokum bæjakepnin niðurlagða: Ferencvaros, Dynamo Zagreb, Real Zagrossa, AS Roma, Arsenal og Newcastle. Nokkrar þjóðir hafa aðeins komið liðum í 8-liða úrslit og enn aðrar ekki einu sinni svo langt og eru íslendingar þar í hópi. En eftirtaldar þjóðir hafa aðeins átt lið í 8-liða úrslitum: Danmörk, Rúmenía, Svíþjóð, Norður-írland pg Noregur. Lestina reka síðan írska lýðveldið, Finnland, ísland, Luxemburg, Malta, Kýpur og Albanía. Sú þjóð sem flesta Evróputitla hefur hirt til sín er England með 14 titla en 10 sinnum hafa ensk lið leikið til úrslita en beðið lægri hlut. Þá hafa Englend- ingar verið í 41 skipti með lið í undanúrslitum og 57 sinnum í 8-liða úrslitum. Er því ekki um að villast, að England er mesta veldið í Evrópuknattspyrnu a.m.k. á vettvangi félagsliða. Þau lið sem nú verja titla sína eru Liverpool í meistarakeppninni, Anderlecht í keppni bikarhafa og PSV Eundhoven í UEFA-keppn- I II III B Real Madrid .............................. 6 6 Bayern Múnchen ........................... 4 3 1 AC Milan ................................. 4 2 2 FC Liverpool ............................. 4 2 2 Ajax ..................................... 3 3 Barcelona ................................ 3 3 Benfica .................................. 2 2 Inter .................................... 2 2 Feyenoord ................................ 2 1 1 Anderlecht ............................... 2 2 Tottenham ............................... 2 1 1 Leeds ................................... 2 2 Valencia ................................. 2 2 Við þetta má síðan bæta lista yfir þau lið sem unnið hafa Evrópukeppni einu sinni á ferli síníum. Meistarakeppnin: Celtic, Manchester Utd., Keppni Bikar- hafa: Athletico Madrid, Rangers, inni. Liverpool hefur reyndar þegar verið slegið út úr keppninni af löndum sínum Nottingham Forest, en PSV og Anderlecht virðast enn sterk og leika í annarri umferðinni 18. október.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.