Morgunblaðið - 19.11.1978, Qupperneq 1
64 SIÐUR
265. tbl. 65. árg.
SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1978
Prentsmiöja Morgunblaðsins.
Flugslysió í Sri lanka:
iik pílagrnnanna
flutt heim í kvöld
Jakarta, Indónesíu,
18. nóvember — AP.
JARÐNESKAR leiíar þeirra 173
indónesísku pflagríma, sem létust
í flugslysinu á Sri Lanka sl.
miðvikudag, komu til borgarinn-
ar Medan í Indónesíu í morgun á
ieið sinni til heimabæjar þeirra
að því er haft er eftir þarlendum
yfirvöldum í dag.
Blaðafulltrúi ríkisstjórnarinnar,
Air Rusmin Nurjadin, sagði að
flogið yrði áfram með líkin til
heimabæjar þeirra, Banjarmasin,
seinna í kvöld.
Þá var búist við að 33 af 71
farþega sem lifði slysið af myndu
koma til Jakarta seint í kvöld, en
hinir 38 yrðu áfram til meðferðar í
sjúkrahúsinu í Colombo í Sri
Lanka.
Haft var eftir trúmálaráðherra
landsins, Alamsyah Ratu Per-
wiranegara, að stjórn landsins
hefði frá upphafi verið andvíg því
að millilent væri í Colombo vegna
hættu á olíuleysi.
Flugslysið:
Hinir látnu fluttir heim
Símamynd AP
Jarðneskar leifar eins hinna indónesísku pílagríma, sem létust í flugslysinu á Sri
Lanka, bornar um borð í Hercules flutningaflugvél, sem flutti líkin heim til Indónesíu.
til íslands frá Evrópu var að
öðru leyti ekki endanlega afráð-
ið um hádegisbilið í gær.
Dagfinnur Stefánsson flug-
stjóri sagði í samtali við Mbl. að
hann hefði ekki aðstæður til að
greina frá atburðarásinni þessa
síðustu daga en þeir hefðu verið
erfiðir og í mörgu að snúast,
m.a. væru nær stöðugar yfir-
heyrslur á vegum rannsóknar-
nefndár stjórnarinnar og lög-
reglu.
Mbl. leitaði álits Dagfinns á
þeim upplýsingum er talsmaður
stjórnarinnar í Sri Lanka,
Samarashinghe, gaf út á blaða-
mannafundi sl. föstudag og
komu fram í Mbl. í gær, en
Dagfinnur kvaðst ekki vilja
neitt um tildrög slyssins segja.
Hann sagðist hafa verið staddur
inni í flugstöðvarbyggingunni
þegar slysið varð og því ekki séð
flugvélina koma inn til
lendingar og upp í flugturninn
hefði hann úkki komið fyrr en
eftir slysið.
r
Friðarviðræður Israelsmanna og Egypta:
Nœr stöðuqar yfirheyrslur á vegum rannsóknar-
nefndar stjórnarinnar, segir Dagfinnur Stefánsson
flugstjóri ísimtali viðMbl. fráSriLanka
LÍÐAN þeirra íslendinganna sem lentu í flugslysinu í Sri Lanka og
eru í einkasjúkrahúsi er eftir atvikum góð, að því er Dagfinnur
Stefánsson flugstjóri sagði í samtali við Mbl. í gær þegar blaðið
náði símasambandi við hann í Negambo. Samkvæmt upplýsingum
Flugleiða munu þau Ilarald Snæhólm, Oddný Björgólfsdóttir,
Jónína Sigmarsdóttir og Þuríður Vilhjálmsdóttir verða enn um
sinn á Sri Lanka en þar njóta þau hinnar beztu aðhlynningar.
Dagfinnur Stefánsson
sagði,
að hann og Bjarni Ólafsson
flugvirki yrðu eitthvað áfram í
Sri Lanka ásamt hinum fjórum
sem til læknismeðferðar eru.
„Hin fara héðan í dag, það er að
segja Kristín E. Kristleifsdóttir
flugfreyja, sem fengið hefur að
fara af sjúkrahúsi og svo
flugfreyjurnar, sem áttu að vera
í áhöfn með mér: þær Lilja
Sigurðardóttir, Kristín Geirs-
dóttir og Sigrún Baldursdóttir
og með þeim fer einnig Katrín
Fjeldsted læknir.
Að sögn talsmanna Flugleiða
hér heima var í ráði að flug-
freyjurnar færu í gær frá Sri
Lanka til Amsterdam með flug-
vél frá indónesíska flugfélaginu
Garuda en hins vegar átti
Cargoluxflugvél að fara í gær og
sækja lík Islendinganna átta
sem fórust í flugslysinu og
flytja þau til Luxemborgar auk
þess sem með þeirri vél áttu að
fara fjórir menn úr áhöfn
Dagfinns Stefánssonar þeir
Einar Guðlaugsson, Friðleifur
Helgason, Guðjón Guðnason og
Dagfinnur Stefánsson.
Skúli Theodórsson. Um heim-
flutning hinna látnu og fólksins
Reyna að losa um
hnútínn um helgina
Tel Aviv, Washington — AP-Reuter. I kljáð á friðarviðræðufundum
CYRUS Vance utanríkisráðherra Egypta og ísraelsmanna, væru til
Bandaríkjanna sagði í dag að þess fallnar að leysa ágreining-
hugmyndir Egypta um lausn inn og gera friðarsáttmála að
þeirra mála sem enn væru óút- | veruleika.
Hvíta húsinu, því að Bandaríkja-
stjórn hefur lagt blessun sina yfir
hugmyndir Egypta. Þó hefur
Bandaríkjastjórn lagt fram sér-
stakar tillögur til að leysa hnút-
inn.
Hugmyndir Egypta verða til
meðferðar hjá stjórn Israels um
helgina og er fyrirmæla til samn-
ingamanna Israels í Washington
beðið með mikilli eftirvæntingu í
Diplómatískar heimildir úr röð-
um Israelsmanna sögðu að hug-
myndir Egypta væru til þess eins
fallnar að eyðileggja þann árangur
sem náðist á fundunum í Camp
David. Gera tillögur Egypta ráð
fyrir því að egypskum sveitum
verði komið fyrir á Gaza-svæðinu
og vesturbakka Jórdan til að
auðvelda sjálfstjórn Palestínu-
manna á svæðunum. Ennfremur
æskja Egyptar þess að kosningar
fari fram í Gaza og á vestur-
bakkanum samtímis því sém Isra-
elsmenn hverfa með herlið sitt úr
Sinai-eyðimörkinni:
Moshe Dayan utanríkisráðherra
ísraels skýrði frá því í dag að
Israelsmenn hefðu fallist á að
hefja samningaviðræður um sjálf-
stjórn á Gaza og vesturbakkanum
þegar mánuður væri liðinn frá
undirritun friðarsáttmála Egypta
og Israelsmanna. Dayan sagði að
ísraelsmenn gætu ekki fallizt í dag
á tímasetningu kosninga á svæð-
unum umdeildu, því að enn ríkti
m.a. ágreiningur um brottflutning
ísraelskra hersveita úr Sínaí.
Rhódesía:
Skæruliðahreyfingar
gegn seinkun kosninga
Lusaka. 18. nóvember — Reuter-AP.
Skæruliðaforinginn Joshua
Nkomo sagði á fundi með frétta-
mönnum í dag að hann væri á
móti hugmyndum stjórnvalda um
seinkun almennra kosninga til
20. aprfl nk. og sagði að menn
hans myndu koma í veg fyrir þær.
Hann sagði ennfremur að
skæruliðahreyfing hans, ZAPU,
hefði nú tögl og hagldir víða í
landinu og gæti því auðveldlega
komið í veg fyrir að kosningarnar
yrðu haldnar.
Nkomo sagði það ótvíræða kröfu
allra skæruliðasamtaka landsins
að staðið yrði við loforð um
kosningar og aukin völd til handa
svörtum íbúum landsins þegar 31.
desember eins og gert hafði verið
ráð fyrir.
Robert Mugabe, foringi annarr-
ar stærstu skæruiiðahreyfingar
landsins, ZANU, tók undir orð
Nkomos og sagðist mundu leggja
I því lið að berjast gegn væntanleg-
I um kosningum í apríl.
Metfjöldi
Gydinga
frá Rúss-
landi í ár
Genf, 18, nóvember. Reuter.
Um 28 þúsund Gyðingum
hefur verið leyft að yfirgefa
Sovétríkin það sem af er þessu
ári og er það mesti fjöldi sem
hefur fengið brottfararleyfi á
einu ári til þessa að því er
tilkynnt var í Genf í dag.
Ekki var getið um sérstakar
ástæður fyrir þessari skyndilegu
fjölgun, en talið líklegt að talan
verði eitthvað lægri á næsta ári
eða í kringum 24 þúsund.
Sem dæmi um hina gífurlegu
aukningu má nefna að í ágúst-
mánuði s.l. komu alls 3286
gyðingar frá Sovétríkjunum til
Vínarborgar, en á sama tíma í
fyrra komu þangað aðeins 1850
og árið þar áður aðeins 1254.