Morgunblaðið - 19.11.1978, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1978
„Sviðsskrekkur-
inn er að koma ”
„ÉG er að reyna að hrista upp í tónlistinni hjá mér, reyna
eitthvað nýtt,*4 sagði Gunnar Þórðarson, er Mbl. hafði samband
við hann í tilefni hljómleika hans í Háskóiabíói í kvöld.
„Ég er með átján lög á
konsertinum sambland af poppi
og léttari tónlist, byrjaði á þessu
fyrir um tveimur árum. Aðal-
verkið hjá mér heitir Landslags-
mynd og tekur tólf mínútur í
flutningi. Það er jafnframt
fyrsta verkið, sem ég geri af
þessu tagi.
Vonandi takast hljómleikarn-
ir vel. Ég er ekki farinn að
skjálfa ennþá, en finn, að
sviðsskrekkurinn er að koma.
Annars veit ég ekki hvernig
þetta fer, þori ekki að hugsa út í
það. Fólk er svo misjafnt, einum
líkar eitt og öðrum annað.
Vandinn er að koma tónlistinni
saman svo að hún hljómi vel.
Vonandi verður framhald á
slíku starfi hjá mér. Spennandi
er að sjá, hvernig til tekst."
Aðspurður kvaðst Gunnar
sem er Keflvíkingur, ættaður
frá Hólmavík, ekki hafa skilið
við popptónlistina, en hann
byrjaði að semja lög um 1963, í
upphafi Bítlatímans „Ég fór í
stuð.“ Hingað til held ég mér
hafi gengið ágætlega. Hversu
margar plötur ég hef gert veit
ég ekki, en ég hef bæði gert
plötur hér heima og í Englandi.
Nú langar mig í tónlistarskóla, í
slíkum skóla hef ég aldrei lært
en held, að námið muni koma
mér að miklu gagni."
Með Gunnari á hljómleikun-
um eru hljóðfæraleikarar úr
Sinfóniuhljómsveit íslands og
einnig félagsmenn nokkurra
popphljómsveita, þar á meðal
Galdrakarla.
Friðrik Ólafsson í samtali við Mbl.
Sjávarútvegsráðherra á aðalfundi LÍÚ:
Segja þarf upp samn-
ingum útlendinga
KJARTAN Jóhannsson sjávarút-
vegsráðherra lýsti því yfir í ræðu
á aðalfundi LIÚ í gær að fyllsta
ástæða væri til þess að segja upp
fiskveiðisamningum við útlend-
inga eða draga úr veiðum þeirra
á íslandsmiðum á annan hátt.
Ennfremur kvað hann ekki
grundvöll fyrir því að leyfa
Færeyingum að veiða loðnu hér
við land í vetur, en þeim var
heimilað að veiða 35 þúsund lestir
í fyrra.
Um þetta sagði Kjartan
Jóhannsson orðrétt í ræðu sinni.
„I sambandi við takmarkanir á
afla okkar sjálfra hlýtur að koma til
umfjöllunar sá afli, sem útlendingar
hafa nú heimild til að veiða í
fiskveiðilandhelgi okkar.
Ég tel að fyllsta ástæða sé til þess
að segja þessum samningum upp eða
láta vera að endurnýja þá í óbreyttri
mynd, eftir því hvort við á og þá með
tilliti til þess að draga úr þessum
veiðum. Ég minni t.d. á að þegar
samningar voru gerðir við Færey-
inga um loðnuveiðar þá var það gert
við þær aðstæður að af nógu væri að
taka en þær aðstæður hafa breyst og
því ekki forsendur fyrir loðnuveiðum
Færeyinga hér.“
Geithellnahreppur:
Kosið í
desember
SÝSLUMAÐUR Suður-Múlasýslu
hefur ákveðið að hreppsnefndar-
kosningar skuli fara fram í
Geithellnahreppi um miðjan
næsta mánuð. Kosningarnar í
vor voru dæmdar ólöglegar og
ákveðið að kjósa skyldi að nýju.
Hins vegar neitaði kjörstjórnin að
sjá um kosningarnar og hefur
staðið í þrefi um málið síðan, en
nú virðist lausn vera fundin.
„Mun ferðast víða til þess að afla
viðurkenningar á skáklistinni
^ _ . . r\rr n A Vinlrln nlrnlrmné í m' 1 tt of nmrvi mnlnm nnrvi lrnmiX nn col/o ri*nr«lriranmri nm m o rv-l mntnr'nnin m í)Ao I onnorro ofin
„ÉG ÞARF nú fyrst að taka þau
mál sem fyrir liggja og kynna mér
þau og sjá, hvað þarf að leysa fljótt
og hverju öðru verður þokað
áleiðis,“ sagði Friðrik ólafsson
nýkjörinn forseti FIDE í samtali
við Mbl. í gær. „Svo eru það þau
atriði. sem ég lagði áherzlu á í
kosningaharáttu minni varðandi
uppbyggingu og starf Alþjóðaskák-
sambandsins til lengri tfma.
í Buenos Aires lagði ég fram
ítarlegri upplýsingar um það, sem
mér finnst að gera þurfi, heldur en
þær sem ég hafði látið frá mér fara
áður, einkum varðandi uppbyggingu
skákarinnar í löndum, þar sem hún
er stutt á veg komin eða ekki neitt.
Þetta eru atriði varðandi það að
auðvelda skákmönnum að fá tæki-
færi til að afla sér skákstiga og titla
með því að auðvelda þeim ferðir á
Fyrirlestur
í Neskirkju
MARY Nichol B.S. hjúkrunar-
fræðingur, ljósmóðir og trúboði,
flytur á morgun, mánudag, fyrir-
lestur í safnaðarheimili Neskirkju
á vegum Kristilegs félags heil-
brigðisstétta. Nichol, sem er kana-
dísk, mun skýra frá reynslu sinni í
starfi og segja frá daglegu lífi í
Nepal. Fyrirlesturinn hefst kl.
20.30.
skákmót og að halda skákmót i
þessum löndum með þátttöku
sterkra skákmanna svo heimamönn-
um gefist kostur á að spreyta sig.
í öðru lagi er það nauðsynlegt til
að hægt sé að halda skákmót, að til
staðar séu dómarar með réttindi og
mín ætlun er að Fide héldi þá
sérstök dómaranámskeið til að
tryggja það, að fyrir hendi séu hæfir
menn til að annast skákstjórn.
Þá vil ég sjálfur beita mér fyrir að
afla skákirmi viðurkenningar stjórn-
valda með því að ferðast sem mest til
landa, sem á því þurfa að halda, og
reyna að fá stjórnvöld til að
viðurkenna skákina sem íþróttagrein
og styrkja hana. Einnig legg ég
áherzlu á aðgerðir til að afla
Alþjóðaskáksambandinu aukinna
tekna og þar er hugmyndin að ráða
sérstakan starfsmann til að koma á
og viðhalda traustu sambandi milli
Fide og allra þeirra fyrirtækja og
einstaklinga, sem vilja leggja sam-
bandinu lið.
Þá vil ég að Alþjóðaskáksamband-
ið leggi áherzlu á útgáfu kennslu-
bóka í skák og að byggja upp
sérstakt skákkennslukerfi, sem
kæmi sem flestum að notum.
Þetta er nú orðinn allnokkur rulla
og margþætt en ég vil einnig nefna
það að mér er það kappsmál að
skapa aukin tengsl milli Alþjóða-
skáksambandsins og hinna einstöku
sambanda og svæðasambanda innan
þess.“
Eitt af þeim málum sem komið er
til kasta Friðriks er beiðni
Korchnois um að Fide geri eitthvað
til að hjálpa honum að ná konu sinni
og syni út úr Sovétríkjunum.
„Persónulega vil ég aðstoða
Korchnoi í þessu máli“, sagði
Friðrik. „En ég held að það sé ekki
rétta leiðin að beita FIDE í þessu
máli.
Fide-ráðið mun hins vegar rann-
saka framkvæmd heimsmeistaraein-
vígisins á Filipseyjum og er loka-
skýrsla dómarans um það og þá
aðallega síðustu skákina væntanleg.
Þingið í Buenos Aires tók þá afstöðu
að lýsa því yfir að einvíginu væri
lokið en nánari athugun á fram-
kvæmd einvígisins er góð upp á
framtíðina".
Mbl. spurði Friðrik loks hvernig
viðtökur kjör hans hefði fengið
meðal annarra atvinnuskákmanna,
en í kosningabaráttunni lagði
Friðrik m.a. áherzlu á bætta
keppnisaðstöðu þeim til handa. „Ég
hef ekki orðið annars var en að þeir
væru ánægðir með mitt kjör“, sagði
Friðrik, „og ég veit að þeir binda
vonir við það að ég vinni að þeim
úrbótum sem við vitum að þurfa að
koma. Það hef ég líka í hyggju að
gera“.
Slysavarnafélagið með umferðarviku:
Slysavamadeildarfólk
verður við gangbrautir
Slysavarnafélagið mun í næstu
viku eða frá mánudeginum 20. til
laugardagsins 25. nóvember efna til
umferðarviku til að leggja áherzlu
á ýmis mikilvæg atriði í umferðinni
og er þetta liður í viðleitni félagsins
til að efla umferðarslysavarnir í
landinu, að því er kemur fram í
fréttatilkynningu frá SVFÍ en að
undanförnu hcfur félagið staðið
fyrir fundum meðal ýmissa deilda
sinna úti á landsbyggðinni. þar sem
þessi mál hafa verið tekin til
umræðu.
Umferðarvikan verður fyrst og
fremst miðuð við þéttbýlissvæði á
Suðvesturlandi. Reynt verður með
ýmiss konar ábendingum og hugleið-
ingum í fjölmiðlum að beina athygli
fólks að ýmsum þáttum umferðar-
innar. Verður megináhérzla lögð á
öryggi við gangbrautir. Fólk úr
slysavarnadeildunum á framan-
greindu svæði mun föstudaginn 24.
nóvember nk. fara út á götur og
standa við helztu gangbrautir yfir
háannatímann frá kl'. 15—19 til að
vekja athygli á þeim og verða
vegfarendum þá jafnframt afhentar
leiðbeiningar þar að lútandi.
Til umferðarvikunnar er efnt að
höfðu samráði við umferðarráð og
lögregluyfirvöld. Þau atriði sem
tekin verða til sérstakrar meðferðar
í umferðarvikunni eru sem hér segir:
Mánudaginn nk. verður fyrst og
freníst lögð áherzla á tillitsemi í
umferðinni, en á þriðjudaginn um
Vísitölunefndin:
Kemur vandanum Má orða það svo
1. des. ekki við — segir Kjartan Jóhannsson
— segir Ragnar Arnalds
VANDINN sem við er að glíma
hinn 1. desember næstkomandi
kemur vísitölunefndinni. sem
skila átti áliti íyrir 20. nóvem-
ber, ekkert við, sagði Ragnar
Arnalds, einn ráðherra Alþýðu-
bandalagsins, í ræðu á flokks-
ráðsfundi Alþýðubandalagsins
í fyrrakvöld.
Kjartan Jóhannsson sjávarút-
vegsráðherra sagði í gær, er
Morgunblaðið bar þessi ummæli
undir hann, „að starf nefndar-
innar væri miklu víðtækara, svo
hann má sjálfsagt orða þetta
svona. Talað var um að nefndin
skilaði fyrstu skýrslum fyrir 20.
nóvember". Að öðru leyti neitaði
Kjartan aö tjá sig um málið.
I samtali við Morgunblaðið
hinn 9. september síðastliðinn,
sagði Magnús H. Magnússon
félagsmálaráðherra, „að þetta
lítur þannig út frá okkar
bæjardyrum séð, að þetta sé
prófsteinn á það hvort aðilar
vinnumarkaðarins og ríkis-
stjórnin sjálf eru tilbúin í
slaginn við verðbólguna, en
okkur fannst á skorta að bráða-
birgðalögin kvæðu nægilega
sterkt á um það.“
Sama dag sagði einn þing-
manna Alþýðuflokksins í sam-
Prófsteinn á baráttu-
viljann gegn verðbólgunni
—sagði Magnús H. Magnússon hinn 9. sept sl.
tali við Morgunblaðið: „Ráð-
herrum fiokksins var falið að
sjá til þess að þannig breytt
orðalag kæmi inn í bráðabirgða-
lögin að þau gæfu bendingu um
ákveðið viðnám gegn verðbólg-
unni eða tryggja með öðrum
hætti að ríkisstjórnin lýsti
ákveðnar stefnu sinni en fram
" kemur í bráðabirgðalögunum
sjálfum."
Bókun ríkisstjórnarinnar var
á sínum tíma svohljóðandi:
„Ríkisstjórnin samþykkir, að
hraða- skuli endurskoðun
viðmiðunar launa við vísitölu
þannig, að niðurstaða verði
fengin fyrir 20. nóvember 1978.“
UMFERÐARVIKAN 78
vetrarumferðina, á miðvikudaginn
um hraðann í umferðinni, á fimmtu-
daginn um gangandi umferð, einkum
með tilliti til barna og eldra fólks, á
föstudaginn um gangbrautir og á
laugardaginn um ölvun við akstur.
Leitast verður við að vekja al-
menning til umhugsunar um þessi
mál með ýmisskonar áróðri. Slysa-
varnafélag íslands væntir þess, að
vegfarendur taki með opnum hug á
móti því efni, sem að þeim verður
beint í þessu tilefni. Félagið heitir á
alla ábyrga einstaklinga að gefa sér
tíma til að staldra við í önn dagsins
og hugleiða þessi mál. Menn mega
gjarna spyrja sjálfa sig, hvað þeir
geti gert til að bæta umferðarmenn-
inguna í landinu.
Markmið umferðarvikunnar er:
AUKIÐ ÖRYGGI í UMFERÐINNI.