Morgunblaðið - 19.11.1978, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÖVEMBER 1978
5
Sjónvarp mánudag kl. 21.20:
Ást við fyrstu sýn
Glynis Johns og Richard Johnson í hlutverkum sínum í
myndinni Kærleikurinn er kröfuhæstur, sem hefst í
sjónvarpi kl. 21.20 annað kvöld.
Kærleikurinn er kröfu-
hæstur, nefnist brezkt
gamanleikrit eftir Philip
Mackie, sem hefst í sjón-
varpi annað kvöld klukkan
21.20.
Fjallar myndin um
brezka leikkonu, sem er að
ljúka síðustu sýningu á
leikriti, sem hún hefur
leikið í eitt ár. Samkvæmi
er haldið henni til heiðurs
og meðal annars boðið
bandarískum kvikmynda-
leikara. Það er skemmst
frá að segja, að þar verður
ást við fyrstu sýn og hún
fær þá flugu í höfuðið, að
þau leiki saman stjörnu-
hlutverk í leikriti. Verður
leikrit Shakespeares, The
Taming of the Shrew, fyrir
valinu.
En þegar farið er að
æfa stykkið, kemur í ljós,
að sá bandaríski er hörmu-
legur á leiksviði. Leik-
stjórinn álítur það regin-
hneyksli ef svo haldi
áfram. Enginn vill móðga
leikarana með því að segja
sannleikann, svo gripið er
til þess ráðs að beita
brellum svo vel fari.
Leikritið tekur tæpa
klukkustund í sýningu.
Sjónvarp í dag kl. 16.00:
Húsið á sléttunni
Húsið á sléttunni, nefnist
mynd í sjónvarpinu, sem hefst
klukkan 16.00. Er hún kynning-
armynd í bandarískum fram-
haldsmyndaflokki, byggðum á
frásögum Lauru Ingalls Wilder
af landnámi og frumbýlingsár-
um í vesturfylkjum Bandaríkj-
anna á síðustu öld.
Segir í þessari mynd frá
landnemafjölskyldu, sem verður
að flækjast úr einum stað í
annan. Ymsir erfiðleikar steðja
a og þau lenda í ýmsum
ævintýrum.
I þessum þætti kynnast þau
nágranna sínum, sem verður
góður vinur þeirra. Er það eldri
maður, sem sýnir sigmeiri mann
en þau héldu hann vera.
Myndin er tæprar einnar og
hálfrar klukkústundar löng.
er fyrsta hljómplatan og vonandi
ekkl síöasta sem Linda Gfsladóttir
sendir frá sér.
Þaö var einmitt
Linda sem söng sig inní hjörtu
íslendinga á s.l. vetri í sjónvarpinu
meö Lummunum og fleirum.
er plata fyrir alla.
Dreifingarsímar: 28155 — 19930.