Morgunblaðið - 19.11.1978, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1978
7
Menn spuröu um guös-
ríkiö: Hvenær? Hvar? Og
Jesús svaraði:
„Guösríki er hið innra í
yður.“ Hvað kenndi Jeús
raunverulega um mann-
inn, auölegö hans eöa
örbirgö, vegsemd hans
eöa smán?
Guðfræöin kennir um
manninn og heiminn, aö
maðurinn sé „fallinn
maöur, heimurinn fallin
heirnur". Viö hvaö er þá
átt? Hina gömlu gyðing-
legu hugmynd, að maöur-
inn hafi í byrjun veriö
syndlaus, saklaus meö
enga hneigð til hins illa. En
svo hafi hann „falliö" úr
sakleysisástandinu og
syndgaö þvert ofan í
ætlun Guös og vilja en
fyrir freistingu frá Satan,
óvini Guös og manna, sem
þarna hefur reynzt al-
máttkum Guöi hyggnari
og sterkari! Og á þessum
fáránlegu hugmyndum
byggir guðfræöi okkar
meginkenningu sína um
manninn.
Eftir aö þróunarkenning
Darwins, aö maöurinn eins
og allar lífverur aörar hafi
þróast frá lægra stigi til
æöra, vaxið fyrir óralanga
þróun frá dýri til manns,
frá frummanni til
mannlegrar vitsmunaveru,
— eftir að þessi kenning
náöi allsherjarviöurkenn-
ingu í menntuöum heimi
uröu ákveðnari efasemdir
manna um þaö, aö maöur-
inn á frumstigi hefði verið
saklaus engill, og raddir
uröu fjarstæöa. Þó er
syndafallssagan enn eitt
af meginatriöum lúterskr-
ar og kalvínskrar guðfræöi
þótt forsendurnar séu
fallnar burt og langfæstir
menn trúi því lengur, að
Guö hafi skapað manninn
sem saklausan engil, en
Satan hafi boriö sigurorö
af sjálfum Guði og freistaö
hins saklausa manns í
Eden til falls.
Þróun þessara hug-
mynda á sér langa sögu í
kristninni, en hvernig leit
Kristur á manninn? Sá
hann í manninum fallinn
syndara, sem til einskis
góös væri megnugur, eða
sá hann í honum guösbarn
í álögum, á bernskuskeiöi
en meö möguleika til
annars og meira? Sá hann
líka fyrir sér „fallinn“
syndara, sauri ataöan
vesaling og ekkert annaö,
þegar hann sagöi: „Guös^
ríki er hiö innra í yöur“?
í álögum, — mér kemur
til hugar eitt glæsilegasta
listaverk Einars Jónsson-
ar: Ungur, fagur riddari
heldur á undurfagurri,
nakinni stúlku, en meö
krossmerktu sveröi hefur
riddarinn höggviö and-
styggiiegan álagaham af
stúlkunni, sem nú er aö
vakna. Hér er gömlu,
íslenzku þjóötrúnni á
álagahaminn gefiö form,
sem eilíf sannindi geymir:
Maðurinn er í álögum, en
undir afskræmismynd
ófréskjunnar ber hann
aöra og ólíka mynd*. En til
þess aö höggva álaga-
fjöturinn af manninum og
leiöa guðsmynd hans í Ijós
þarf aö bregöa þeim
bjarta brandi, sem er
merktur krossi Krists.
Þetta fagra listaverk í
formi og línum er túlkun á
orðum Krists um guöríkiö
hiö innra í mönnunum,
perluna sem fæstir sjá
vegna óþverra, sem utan á
hana hefur hlaöizt en er
ekki hún sjálf.
Þaö er líklega erfiðara
nú en það var á fyrri hluta
þessarar aldar aö túlka
mat Krists á gildi og
verömæti mannsins, ein-
staklingsins. Margs konar
hörmuleg mistök mann-
kyns á þessari öld hafa
gert mikinn fjölda manna
svartsýnan og trúlausan á
manninn, gildi hans og
markmiö og fjarlæg og há,
guösríkiö í sálum mann-
anna. Listirnar hafa horfiö
frá fegurðardýrkun fyrri
kynslóöa og hnigiö til
þeirrar áttar aö lýsa
manninum meö grófustu
oröum, litum og tónum og
þykir gnæfa þá hæst
þegar þær leggjast lægst
og ata fagrar kenndir, sem
í brjósti mannsins búa,
auri og óþverra. Sú óhrjá-
lega listtúlkun villir mörg-
um sýn, gerir þá bölsýna
og er í hróplegu ósam-
ræmi viö boöskap kristin-
dómsins um manninn.
Nóg eru rök fyrir því:
Þær háu kröfur, sem
Kristur gerir til mannsins,
einkum í Fjallræöunni,
sýna hverja möguleika
hann telur meö manninum
búa. Þær eru sumar svo
svimandi háar, aö engum
hefur reynzt kleift að
uppfylla þær. Þó hafa þeir,
sem lengst hafa komizt í
áttina til þess aö lifa
siöakröfur Krists, sýnt
guösríkið í mannssálinni.
Auðvitað eru menn eins
og heil. Frans frá Assisi
langt fyrir ofan hversdags-
manninn eins og hann
gerist og gengur, en þeir
sem næst honum komust
voru menn og benda til
möguleika, sem í mann-
inum búa og koma í Ijós
þegar álagahamurinn er af
honum höggvinn og maö-
urinn sjálfur, á bak viö
allan sora og synd, fær aö
njóta sín.
„En dýpstu rökin þó eru
ósögö enn“: Horföu á
Krist sjálfan. Auövitað var
hann óralangt fyrir ofan
mig og þig og manninn,
sem veröur á vegi þínum í
dag. Og þó var hann
maöur, vaxtarbroddur
mannkynsins, og bendir
og fram til þess, sem
raunar blundar en býr í
hverjum manni og á aö
vakna. Hver hefur kynnzt
hinum dökku djúpum
mannsins eins og hann?
Hver hefur boriö þjáningar
vegna synda annarra eins
og hann? Og þó hefur
enginn kennt um verð-
mæti mannsins, einstakl-
ingsins eins og hann.
Andspænis Faríseunum,
sem honum voru þungir í
skauti, sagði hann: „Guös-
ríkiö kemur ekki þannig
aö á því beri, og ekki
munu menn geta sagt:
„Sjá, þaö er hér, eöa það
er þar, því sjá, guösríkið
er hiö innra í yður.“
Guðsbarniö í manninum
er í álögum og úr álögum
leysir þaö enginn eins og
hann, sem þú átt eftir aö
standa andspænis á
mörgum vegamótum á
langri, langri leiö.
Frá Héraðsskólanum
á Laugarvatni
Hugheilar þakkir færum viö velunnurum skólans
fyrir gjafir, heimsóknir og árnaöaróskir í tilefni aö
50 ára afmælinu.
Skólastjóri.
— Orð
Krossins
Fagnaöarerindi veröur boöaö á íslensku frá Trans
World Radio, Monte Carlo, á hverju mánudags-
kvöldi kl. 23.15—23.30. Sent verður á miðbylgju
205 metra (1466 KHz)
Ath: Breyttur tími og bylgjulengd.
Orö krossins,
Pósth. 4187, Reykjavík.
Stjórnunarfélag Norðurlands
Hvað er st jórnun?
Akureyringar — Norðlendingar
Stjórnunarfélag Noröurlands
gengst fyrir námskeiöi í Stjómun
1, dagana 25. og 26. nóv. og
veröur haldið í húsnæöi Lands-
banka íslands, Akureyri í sal á
efstu hæö, kl. 15—19 báöa
dagana.
Fjallaö verður um:
— Stjórnskipulag tyrirtækja.
— Stjómunaraðferöir.
— Setningu starfsmarkmiða.
Námskeiöiö er ætlaö þeim sem
vilja kynnast nútíma stjórnunar-
háttum og stjórnskipulagningu
fyrirtækja. Leiöbeinandi veröur
rekstrarhagfræöingur Stefán Friö-
finnsson. Allar nánari upplýsingar
og skráning þátttakenda fer fram á
skrifstofu Stjórnunarféiags Norö-
urlands í síma 96-21820.
Til sölu í Vesturbænum
Þetta skemmtilega nýja raöhús meö bílskúr er til
sölu. Húsiö er sambyggð 6 íbúöa húsi á horni
Sólvallagötu og Bræðraborgarstígs.
Til afhendingar strax íbúöarhæft meö vandaöri
eldhúsinnréttingu og huröum.
Vandaöur frágangur bæöi úti og inni.
Æskileg skipti á 3ja—5 herb. íbúö helzt í
vesturbænum. Aörir staöir koma einnig til greina.
Upplýsingar í síma 21473, í dag frá kl.
13.00—16.00 e.h. Virka daga frá kl. 19—21.