Morgunblaðið - 19.11.1978, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1978
I friðarstóli
á Hrafnistu
Jóhannes Helgii Skálateigs-
strákurinn
borleifur Jónsson heldur sínu
striki.
Útgefandii Skuggsjá. Hafnarfirði
1978.
Með þessari bók lýkur frásögn-
um Þorleifs Jónssonar frá Skála-
teigi í Norðfirði, enda „strákurinn"
kominn á níræðisaldur og setztur
á friðarstól á Hrafnistu, þar sem
hann getur í hópi aldraðra af
öllum landshornum hfustað á
sögur af sæförum og Iífgað upp
með sinni glettni og gamansemi.
Raunar hyggur hann á för til
Parísar, ef guð og heilsan lofar, en
ekki mun dvöl hans þar verða ýkja
löng, enda mun hann fýsa í
félagsskapinn á Hrafnistu, þá er
hann hefur komizt á, hve glatt
getur verið þar á hjalla.
Á fimmtu blaðsíðu þessarar
bókar er lesendum hennar veitt
þessi leiðbeining um gerð hennar:
„Saga þessi er ekki sagnfræði.
Hún er sögð eins og sögumaður
mundi hana réttasta — og höfundi
hentaði að endursegja hana. JH,
ÞL.“
Vissulega er hún vel sögð, sagan
sú arna, Þorleifur nýtur þess
auðsjáanlega að segja frá og
röddin verður alltaf hans. Því
Jóhannes Helgi kann að sneiða á
lítt sjáanlegan hátt af þá brota-
löm, sem alltaf hlýtur að gæta í
munnlegri frásögn frá liðnum
tíma, já, jafnvel þó sagt sé frá
atburði, sem sögumaður varð
sjónarvottur að í gær.
Þorleifur hefur um langa ævi
verið önnum kafinn við verkefni
þau, sem hinn af öllum viður-
Jóhannes Helgi
kenndi veruleiki hefur knúið hann
til að sinna, en fyrstu frásagnirnar
í þessari bók bera því órækt vitni,
að hann trúir á líf eftir þetta Kf og
að þeir, sem hafa horfið út yfir
mörkin miklu geti jafnvel haft
afskipti af því, sem varðar þá, er
eftir lifa. En að ioknum þremur
sögnum dulræns efnis bregður
Þorleifur Jónsson
hann á leik í nokkrum frásögnum,
sem hann hefur valið rúm í fyrsta
hluta bókarinnar eins og þeim,
sem þegar er getið.
Svo er það dagsins önn, sem
tekur við, og Þorleifur hefur frá
mörgu og mörgum að segja úr
öllum landshlutum, og fjölmargir
menn koma við sögu, „yfirmenn og
Hvererforsenda hinnar háu endursölu ^
vw og Audi bif reiða?
Leyndarmái viöhaldsins veturínánd!
VW ogAudi eigendur fora nærri um þoð
að reghdeg yfirferð, vélorstilling og
shoðun er forsenda góðror endingar og
hórror endursölu.
Jafnvel þótt þeir þurfi minna viðhcdd
en oðrir bílar oð öllu jöfruu
Hekla býður VW og Audi eigendum
alhliða þjónustu fagmanna á þessu sviði
auk hinnar rómuðu varahlutaþjónustu
og viðgerðarað8töðu.
Því vekjurn við athygli á hinni
hagkvæmu vetrarskoðun okkar auk Ijósa-
stillingar sem framkvæmd er á staðnum.
Hvort tveggja ráðstafanir sem auka öryggi
og endingu vagnsins í erfiðum vetrarakstri.
UCIfl A UC
■ m Héhi ■ H II
Laugavegi 170-172 Sími 21240 og 15450
Látió sérhæfða fagmenn stilla vagninn inná veturinn!
Bðkmenntlr
eftir GUÐMUND
G. HAGALÍN
undirgefnir", því að Þorleifur
hefur verið ærið virkur í atvinnu-
og stjórnmálalífi, og stundum
komizt í krappan dans, ekki sízt í
ræðu og riti, enda „Skálateigs-
strákurinn" óvílinn. Hann þarf
ekki að segja eins og maðurinn í
kvæðinu hans Jakobs Thoraren-
sens, að það eftirminnilegasta,
sem fyrir hann hafi komið um
dagana sé það, að eitt sinn „týndi
hann hníf af miðlungsgerð". Hann
lýsir mörgum mönnum, sem hann
hefur kynnzt, átt samskipti við —
og hefur geðjast misjafnlega að, en
þó að segja megi, að ekki gæti
fyllstu sanngirni í dómum hans
um mann og mann, þá sýnist mér,
að hann telji flesta „hafa sér til
ágætis nakkvat" — nema þá helzt
góðtemplara, sem eru hans svörtu
sauðir. En hvað sem því líður,
virðist mér hann yfirleitt vilja
halda sér við réttsýni á menn og
málefni, og mjög bætir það um, að
hann er gæddur næmu skopskyni,
þó að segja megi, að sumsstaðar
skjóti máski upp þeim brellna
„strák", sem frá segir í fyrra bindi
sögunnar. Víst er og um það, að
þetta ritverk þeirra Þorleifs Jóns-
sonar og Jóhannesar Helga er
engin leiðindaþvæla, og vissulega
er það fróðleg heimild um margt á
sviði atvinnulífs og þjóðmála á
hinu mikla og margþætta
byltingartímabili í sögu okkar
Islendinga.
Næst seinasti kaflinn í bókinni
heitir Horft um öxl og fram á
veginn. Þar segir Þorleifur þjóð-
inni til syndanna, mælir svo meðal
annars:
„Hún hefur í velgengninni efnis-
lega glatað ailtof mörgum andleg-
um verðmætum, hugsjónum og
markmiðum, sem ein þjóð má alls
ekki missa sjónar á, ef hún hyggur
á langlífi í landinu og ætlar að
halda áfram að vera sjálfstæð
þjóð. Mammonsdýrkunin á þar
stærsta sök. Þjóðin hefur um
árabil vegsamað gullkálfinn um-
fram land sitt og guð.“
Hann segir síðan við samherja
sína:
„Takið nú á honum stóra ykkar
og sameinið Sjálfstæðisflokkinn á
hinum gamla og góða grunni
sjálfstæðisstefnunnar. Stétt með
stétt, gjör rétt, þol ei órétt...“
Hann getur ekki betur gert en
bera fram þessa hvatningu, hinn
aldraði athafna- og orkumaður,
Þorleifur Jónsson frá Skálateigi.
Eftirmáli sögunnar er svar við
leiðréttingum, sem fram hafa
komið á fyrra bindinu. Og loks er
nafnaskrá.
/ / Kaupmenn — verslunarstjórar! § N
AVEXTIRIÞESSARIVIKU
V
Til afgreiöslu úr ávaxtageymslum okkar:
Appelsfnur
Sítrónur
Grape-aldin
Epli græn
Ananas
Epli rauö
Vínber græn
Vínber blá
Perur
Melónur grænar
Bananar
Klementínur
Avocado
ÁVEXTIR ALLA DAGA
Eggert Kristjánsson hf.
Sundagörðum 4, sími 85300