Morgunblaðið - 19.11.1978, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1978
21
Þórður Einarsson
útgerðarmaður
F. 7. nóv. 1897.
D. 11. nóv. 1978.
Elsku afi var minn einkavinur í
bernsku. Hann var sá er allt vildi
bæta, betri föður getur enginn átt.
Eitt sinn er ég dvaldi fjarri og
hafði grátið mig í svefn, hringdi
hann morguninn eftir og spurði
hvort ég vildi koma heim (auðvitað
viðurkenndi stoltið ekkert fyrr en
löngu síðar). Svona var afi minn,
alltaf vildi hann leysa hvers
manns vanda, en hugsaði minna
um sinn.
Afi var mikill unnandi bóka og
mjög víðlesinn. Hann las íslend-
ingasögurnar ótal sinnum og
fylgdist með deilum um sannleiks-
gildi þeirra. I útskýringum sínum
á Islendingasögunum fór hann
eftir eigin sannfæringu, en ekki
tískufyrirbrigðum samtímans.
Hann vakti strax í bernsku áhuga
minn á bókum með upplestri
þjóðsagna. Hafragrautur gat horf-
ið ofan í lítinn maga léti hann
góða sögu fylgja með.
Afi hafði síðustu árin mikinn
áhuga á dulrænum éfnum og
leitaði svars við lífsgátunni. Hann
aðhylltist kenningar spíritista og
ræddi oft um hve gaman yrði að
hitta aftur foreldra, systkini og
gamla vini. Núna er hann kominn
heim eftir langa og oft ei-fiða ferð.
Veit ég að elsku afi minn hefur átt
góða heimkomu.
Svava bóra.
Hinn 11. þ.m. andaðist á Land-
spítalanum Þórður Einarsson út-
gerðarmaður nýlega orðinn 81 árs
að aldri. Hann hafði átt við
vanheilsu að stríða nokkur undan-
farin ár, en hann bar þessi
veikindi sín með sérstakri ró og
þolinmæði, svo sem við var að
búast af honum. Hans meðfædda
greind hjálpaði honum að taka
öllu af skynsemi sem að höndum
bar.
Þórður var fæddur og uppalinn
á Austurlandi og starfaði þar
mestan hluta ævi sinnar. Foreldr-
ar hans voru hin merku og
góðkunnu hjón séra Einar Þórðar-
son og kona hans Ingunn Lofts-
dóttir. Séra Einar var þjóðkunnur
maður. Var prestur í Hofteigi á
Jökuldal og á Desjamýri í Borgar-
firði. Hann var alþingismaður
Norður-Múlasýslu og gegndi hann
auk þess mörgum trúnaðatstörfum
austanlands. Sérstaklega lét hann
til sín taka landbúnaðamál. Var
fyrsti frumkvöðul! að stofnun
Búnaðarsambands Austurlands.
Þeim fækkar nú óðum mönnun-
um, sem settu svip á athafnalíf
Austurlands fyrri helming þessar-
ar aldar. Þórður var einn þessara
manna. Hann hóf ungur verslun-
arstörf og aflaði sér haldgóðrar
þekkingar á því sviði, en fljótt stóð
hugur hans til sjálfstæðs atvinnu-
reksturs. Hann gerðist útgerðar-
maður. Stundaði síldarútgerð með
færeyskum skipum í mörg ár, sem
hann rak með sérstökum myndar-
brag. Fiskverkun stundaði hann
einnig. Þá var hann umboðsmaður
h.f. Shell á Islandi í Neskaupstað í
mörg ár. Allt sem Þórður tók sér
f.vrir hendur stundaði hann af
sérstakri alúð og áhuga.
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATIIYGLI skal vakin á því, að
afmadis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum f.vrirvara. bannig verð-
ur grein. sem’ birtast á í
miðvikudagsblaði. að berast í
síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera í sendihréfs-
formi eða hundnu máli. bær
þurfa að vera vélritaðar og
með góðu línubili.
Hann hafði yndi af öllu því sem
var stórt, myndarlegt og stórbrot-
ið, þó aðstæður leyfðu ekki alltaf
að framkvæma eins stórbrotið og
hugurinn stóð til.
Þórður trúði á framtak einstakl-
ingsins og taldi að ekki mætti
lama hvötina hjá honum til
athafna. Hann taldi að einstakl-
ingurinn gæti með sínum dugnaði
komið miklu góðu til leiðar fyrir
þjóðarheildina. Hann var þeirrar
skoðunar, að hjá mörgum athafna-
sömum einstaklingum, væri at-
hafnaþráin nautn og lífsfullnæg-
ing, sem væri þeim miklu verð-
meiri en fjársöfnun. Honum var þó
jafnframt ljóst, að enginn sannur
athafnamaður gæti látið vera að
viðurkenna þá staðreynd, að fjár-
hagslegt öryggi væri grundvöllur
allra sannra athafna.
Ég, sem þessar línur rita,
kynntist Þórði Einarssyni þegar á
unga aldri. Var það vegna þess, að
hann óg hans fólk var vinafólk
foreldra minna. Atvikin urðu svo
til þess, að vegir okkar lágu saman
á viðskiptasviðinu. Þegar ég starf-
aði við Síldarbræðsluna h/f á
Seyðisfirði, skipti Þórður í mörg
ár við verksmiðjuna með sín
færeysku síldveiðiskip. Ennfremur
áttum við samstarf saman á seinni
styrjaldarárunum um fiskútflutn-
ing með færeyskum skipum til
Bretlands. Með okkur tókstr góð
vinátta, sem aldrei síðan hefir
borið neinn skugga á.
Þórður var fróður maður, víð-
sýnn og víðlesinn og sérstakiega
ættfróður og hafði mikinn áhuga á
að ræða við menn, sem kunnu góð
skil á uppruna manna. Þá hafði
Þórður mikla trú á huglækningum
og taldi hann sig oft hafa fengið
mikilsverða lækningu á þann hátt.
Hann var sterkur persónuleiki.
Var mjög hugmyndaríkur, einkan-
lega um það sem snerti atvinnu-
rekstur og viðskipti.
Þórður var kvæntur Svövu
Sveinsdóttur frá Norðfirði, hinni
mestu ágætiskonu, sem reyndist
honum frábær eiginkon'a. Heimili
þeirra hefir alltaf verið sérstak-
lega glæsilegt, þar sem ríkt hefir í
senn rausn og gestrisni svo af ber.
Þau eignuðust eina dóttur Ingunni
og dótturdóttur sína Svövu Þóru
ólu þau upp og er hún nú
uppkomin..
Nú að leiðarlokum vil ég kveðja
vin minn Þórð Einarsson, þakka
honum áratuga samfylgd og vin-
áttu, sem mér var mikils virði og
sem alltaf var sönn og traust.
Fjölskyldu hans votta ég innilega
. samúð.
Jónas Jónsson.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Lætur Guð sig það nokkru skipta. hvernig hverjum
einstaklingi á jörðinni farnast? Er lífið endalaust og
tiigangslaust strit til þess að hafa í sig og þak yfir höfuðið?
Jesús sagði: „Eru eigi tveir spörvar seldir fyrir einn
smápening? Og ekki fellur einn þeirra til jarðar án
vilja föður yðar. — Verið því óhræddir. Þér eruð meira
verðir en margir spörvar“ (Matt. 10, 29, 31).
I allri Biblíunni lesum við um kærleika Guðs og
umhyggju hans fyrir mönnunum. Ekki er til sú byrði,
sem hann ber ekki, enginn sársauki hjartans, sem
hann á ekki hlutdeild í. Pétur sagði: „Varpið allri
áhyggju yðar upp á hann“. Um allar aldir hafa
kristnir menn komizt að raun um, að þetta stenzt.
Þetta er mesta staðreynd tilverunnar: Guð lætur sér
annt um einstaklinginn. Hann lætur sér annt um yður.
Um síðari spurningu yðar er það að segja, að
samkvæmt Biblíunni er lífið ekki endalaust og
tilgangslaust strit. Jesús talaði um eilíft ríki. Hann
sagði:
„Verið ekki áhyggjufullir um líf yðar, hvað þér eigið
að eta eða hvað þér eigið að drekka; ekki heldur um
líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast. Er ekki lífið
meira en fæðan og líkaminn meira en klæðnaðurinn?
— En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, og þá mun
allt þetta veitast yður að auki“ (Matt. 6, 25—33).
Ríki hans er andlegt. Hann hvetur okkur til að
byggja, ekki fasteign — heldur líf, grundvallað á
eilífum verðmætum, og það er hann, sem hefur gætt
tilveru okkar þessu eilífðargildi. Hann sagði: „Ég er
kominn til þess að þeir hafi líf og hafi nægtir“ (Jóh. 10,
10).
*
*
*
*
*
*
&
*
*
&
*
PÓSTKRÖFU
THE WIZ —
Diana Ross og fleiri
Hér er komið svar blökku-
mannanna viö Saturday Night 1
Fever og Grease, aavintýriön
um galdrakarlinn í Oz. Þettai
er tvöfalt albúm, öll lögin úr|
kvikmyndinni, tem nú
veriö frumsýna víöa um heim. |
Þarna koma fram ekki ómerk-1
ari listamenn en Diana Roaa.l
Michael Jackson (úr Jackson "
Five), Lena Horne (systir Lizu Minelli) og gamanleikarinn
stórkostlegi, Richard Pryor. Síöast en ekki sízt: Sjélfur
Quincy Jones útsetti og stjórnaöi allri tónlistínni.
TO THE LIMIT —
Joan Armatrading
Joan Armatrading faeddist í |
Vestur-lndíum fyrir réttum 28 j
érum en hefur búiö í Bret-
landi lengst af asvinni. Hún 1
hefur um érabil veriö I
uppéhald margra helstu1
rokk- og jazztónlistarmanna
par í landi. Hún feröaöist um |
meö Lundúnauppfaerslunni á l
„Hérinuu í hélft annáö ér.
Fyrsta plata hennar kom út 1973. Siöan hafa komió út fjórar
plötur meö pessari nýjustu. Um priöju plötu hennar, „Joan
Armatradíng“, sagöi Rolling Stone tímaritiö aö vasri ein af
mikilvaagustu plötum pess érs. New York Times hefur hafiö
hana upp til skýjanna.
Upptöku é bessari plötu og tveimur síöustu stjórnaöi Glyn
John, sem hefur ma. stjórnaö upptökum fyrir Rolling
Stones, Eagles, The Who og Eric Clapton.
CITY NIGHTS —
Nick Gilder
Nick Gilder er nú é toppnum i
Bandaríkjunum meö lag al
pessari plötu, „Hot Child lr
the City“. Þetta er önnui
LP-plata Gilders é merki
Chrysalis.
Allt aö pví kvenleg rödd ham
er engu lík — samanber t.d
lögin „(She’s) One of th<
Boys“ og „Got To Get Out“.
GREASE—
John Travolta/
Olivia Newton-John
og fleiri
Til Þessa dags hafa fimm lög
af pessari plötu veriö gefin út
á tveggja laga plötum f
Bretlandi og Bandaríkjunum.
brjú hafa fariö í fyrsta saati,
hin tvö hafa ekki fariö neöar
en í fimmta ssati vinsældalist-
anna.
GREASE er upphaflega söngleikur, sem sýndur var á
Broadway viö gífurlegar vinsasldir árum saman. Þaö var svo
stórlaxinn og „súper-umbinnM Robert Stigwood, sem stóö
fyrir gerö kvikmyndarinnar, sem sýnd veröur hér á
naastunni og vakiö hefur ótrúlega hrifningu víöa um heim.
Fleiri oröum parf varla aö fara um GREASE — peir sem ekki
pekkja petta verk nú pegar munu gera paö éöur en langt
um líöur.
PIECES OF EIGHT —
Styx
Styx er tvímælalaust ein af
fimm vinsælustu hljómsveit-
um Bandaríkjanna meö sitt
haröa og drífandi rokk. Gítar-
leikur Tommy Shaw é eftir aö
töfra marga, og pé ekki síöur
hljómborösleikur DeYoungs.
Síöasta plata Styx, „Grand
lllusion**, seldist í meira en
milljón eintökum í Bandarikjunum og par meö talin s.k.
platfnuplata.
BAT OUT OF HELL
Meat Loaf
Hlunkurinn Meat Loaf -- Kjöt-i
hleifur — vakti mikla athyglil
og hrifningu pegar hann kom |
fram í sjónvarpspætti ht
fyrir skömmu, enda ekki ál
hverjum degi sem 300 punda I
ftykki allt aö pví eóla sig|
heima f stofu hjá landanum.
En pétturinn sýndi líka, aö
hlunkurinn Kjöthleifur
rokksöngvari af beztu tegund. bessi plata hans nýtur
mikilla vinsælda hérlendis um bessar mundir og er nú ein
af söluhæstu erlendu plötunum.
BÖRN OG DAGAR —
Ragnhildur, Björgvin, Pólmi og fleiri
Þetta er vandaöasta og dýrasta hljómplata sem komió hefur út é íslandi til Þessa. Þarna
ftytja Ragnhildur Gísladóttir, Björgvin Halldórsson, Pélmi Gunnarsson, Öldutúnsskóla-
kórinn og fleiri, lög eftir Magnús Þór
Sigmundsson vió Þýdda og endur-
samda texta Kristjéns fré Djúpalæk.
Upptökunni stjórnaói Del Newman,
einn virtasti útsetjari og upptökustjóri í
Bretlandi sföustu érin. Viö teljum engan
vafa leika é, aó Þessi plata é eftir aó
njóta feikilegra vinsælda hér, hvort
heldur er hjé peim sem eru fimm éra,
eöa Þeim sem eru 95 éra.
SENDUM
í
PÓSTKRÖFU
Þessar plötur veröa kynntar í
Klúbbnum í kvöld (sjá auglýsingu
JAZZ - JAZZROKK K,úbb"“m')
Einnig eigum viö mesta úrval, sem fáanlegt er hérlendis, af
þróuðum jazzi og jazz-rokki. Má þar nefna til dæmis:
Al dj Meola
Billy Cobham
Crusaders
Chick Corea
Eric Gale
Weather Report
Quincy Jones
Allar
Allar
Allar
Flestar
Allar
Allar
Allar
Tom Scott
John Klemmer
Herbie Hancock
Joe Sampler
Lee Ritenour
Miles Davís
Allar
Life Style
Sunlight
Rainbow Seeker
Captain s Journey
Flestar
LAUQAVEQI33- S)M111508 STRANDQÖTU 37 - SÍMi 53762
*
*
*