Morgunblaðið - 19.11.1978, Síða 24

Morgunblaðið - 19.11.1978, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1978 V álegur veruleiki Þórloiíur Bjarnason: Sú srunna lukka. IIoimildaskáldsaKa. Bókaútgáían Örn «k Örlygur h.f. Reykjavík 1978. Það mátti öllum vera ljóst af rithöfundaferli Þórleifs Bjarna- sonar, að hann væri }jóðskáld á mál oíí mannlýsingar og sömuleið- is vandvirkur otí þolgóður fræði- maður. Þar með var auðsætt, að hjá honum væru forsendur þess, að hann gæti ritað merka og trúa heimildaskáldsögu. Og nú er einmitt slík saga frá honum komin. Þá er hann vann að annarri útgáfu á hinni merku frumsmíð sinni, Hornstrendingabók, rakst hann við könnun heimilda á forna harmsögu, sem gerðist á Horn- Bökmenntlr eftir GUÐMUND G. HAGALÍN ströndum, og svo jók hann henni þá við þann margvíslega fróðleik, sem frumsmíð hans hafði að geyma. Þessi sorgarsaga hefur snortið skáldeðli hans, fræðilega forvitni og máski einnig þá þjóðfélagslegu ábyrgðartilfinningu, sem knýr til samanburðar á vá og veilum liðins tíma og dagsins í dag, og svo hefur hann þá farið að grafa fyrir rætur sögunnar í jarðvegi þeirrar nauð- aldar, sem lék íslendinga einna gráast, öld margvíslegra harðinda, örbirgðar, hungurdauða, kúgunar, fráleitra refsilaga, misréttis og miskunnarleysis, allt þetta sam- fara spillingarblindu í hópi vald- hafa, leikra og geistlegra. Um meðferð þessa efnis stóð Þórleifur sérlega vel að vígi. Hann er fæddur og uppalinn í Hælavík á Hornströndum, teygaði þar í bernsku af furðu gjöfulum brunni þjóðlegs fróðleiks, hagmælsku og ástar á íslenzkum menningarerfð- um. Hann hafði verið víðförull um víkur og fjallskörð og hafði kynnzt mjög náið sögu hvers býlis í Sléttuhreppi og ættum og ættar- tengslum þess fólks, sem þar bjó á 18. öid — og allt fram til þess, að hin einstæða byggð eyddist að mannfólki, þar eða hann hafði samið nákvæma byggðarsögu hennar, ásamt Kristni rektor Kristmundssyni. Og vissulega hef- ur vel til tekizt um gerð morðsög- unnar, svo víða sem hún þó kemur við. Það yrði oflangt og óþarft mál að rekja söguna allt frá því að strokuhjúin, Sveinn Jónsson og Sigríður Jónsdóttir úr Ketilsdölum í Arnarfirði, koma norður í Aðalvík tvö ein á lítilli bátskel og Sértilboð meöan birgöir endast borleifur Bjarnason þangað til að hinn „vel bergklif- andi“ Bjarni Kolbeinsson, sem í ósjálfræði myrðir nefnda Sigríði, hverfur sem frjáls maður, eftir tuttugu ára kvalræði, inn í mistrið á þeim stað i Rekavík bak Látur, þar sem hann hefur átt sælustu og örlögþrungnustu stundir sinnar ævi. En þrátt fyrir það, að Þórleifur hefur verið svo vel í stakk búinn til þess að rekja og rita þessa langdrægu sakamálasögu, að hann kunni skil á hverjum bæ á Ströndum, hverjum einstaklingi, sem þar bjó í þennan tíma og ennfremur þekkti þar allar leiðir, hefur söguritunin vissulega kostað hann allmikið grúsk í gömlum skjölum, þar eð hann rekur allan gang morðmálsins svo vandlega, að hann birtir orðrétt bréf, réttarhöld og dóma, sem að einhverju leyti koma því við. Þó að Hornstrendingar væru afskekktir og lífsbarátta þeirra oftast ærið hörð, voru þeir kostir, sem þeir áttu við að búa, að sumu leyti skárri en fólksins sem bjó í þéttbýlli sveitum og átti greiðari leiðir og styttri til aðdrátta frá’ einokunarbúðunum dönsku. Ein- angrunin og hin hrikalega náttúra olli því, að þeir gátu átt kaup við erlenda sjómenn, án þess að það vitnaðist, og ógnun yfirvalda-var þeim það fjarlæg, að þeir gátu leyft sér vorkunnsemi gagnvart mönnum, sem af sér höfðu brotið við hin ómennsku refsilög, höfðu jafnvel sumir vofandi yfir höfði sér dauða á höggstokk eða í Drekkingarhyl. Það er svo ai- kunna, að þeir héldu sakamenn langtimum saman og komu sum- um í erlendar duggur, og þannig björguðu þeir Arnfirðingnum Sveini Jónssyni. Svo er þá auðskil- ið, að þeir voru seinir til að kæra sveitunga sína, sem gerðust brot- legir, þó að þar kæmi, að þeir sæju sér ekki annað fært en láta uppi þá vitneskju, sem þeir höfðu um morð hinnar lauslátu og ginnandi konu, Sigríðar úr Ketildölum. I sögunni er glögg lýsing á hinu brostfelduga réttarfari þessa tíma, og einnig á áhrifum þeirra mann- skæðu harðinda, sem þjökuðu þjóðina um miðja 18. öld. Bókin hefur og að geyma fjölmargar skýrar mannlýsingar, sem koma sumar á óvart, og má þar nefna til hina bráðlifandi lýsingu á séra Þorláki Guðmundssyni, föður skáldsins á Bægisá, en hann var, þá er hann hafði glatað hempunni sem klerkur í Selárdal, settur sýslumaður í ísafjarðarsýslu. Ennfremur ber að geta hinnar skýru myndar af skáldinu séra Snorra, síðar presti á Húsafelli, Oddi hreppstjóra á Sléttu og síðast en ekki sízt Erlendi sýslumanni Olafssyni, bróður Jóns Grunnvík- ings. En eftirminnilegust verður lýsingin á Bjarna Kolbeinssyni, sem leggur á sig ómennskar þrekraunir í tvo áratugi, hrakinn af samvizkubiti blöndnu þeirri tilfinningu, að hann hafi haldinn nornarseið myrt í ósjálfræði hina arnfirzku ástríðukonu, sem fyrst heillaði aldraðan föður hans, síðan bræður hans og hann sjálfan. Tveir eru þeir kaflar í bókinni, sem eftirminnilegastir verða, Söngur í hh'ðum og Vættaslagur. Sá fyrri lýsir samfundum þeirra Bjarna og Sigríðar í vordýrð gróandans í Rekavík, þar sem Sigríður heillar hann svo með söngvaseið, að daglangt veit hann ekki til neins annars í veröldinni en ofurnautnar í örmum og skauti þessarar seiðkonu. En þó að þessi kafli sé vel ritaður og eftirminni- legur ber hinn af honum og raunar öllu í sögunni. I þeim kafla er nokkurra sólarhringa písl Bjarna Kolbeinssonar, æsilegum órum hans og þrotlausri baráttu fyrir lífi sinu og viti, þar sem hann dvelur í hellisskúta í Hælavíkur- bjargi, heftur af skyndilegu ofviðri og brimróti. Samstilling Þórleifs í orðavali jafnt við ógnir bjargsins og brimsins og það fárviðri, sem geisar innra með Bjarna er allt að því einstæð, enda er þar hvergi of né van. Þórleifur er nú orðinn sjötugur og hefur um nokkurt árabil ekki gengið með öllu heill til skógar. En þess vildi ég óska honum, að hann mætti enn skrifa sitthvað það, sem ekki sé síðra en þessi heimildar- saga og þar með á ný sýna, að harðbýl náttúra og síður en svo nein ofgnótt í bernsku og æsku, geti verið hollir uppalendur. Ég minntist á þjóðfélagslega ábyrgð- artilfinningu í upphafi þessarar greinar, og segja mætti mér, að þá er Þórleifur skýrði frá hafís- kreppu, harðindum og hungurkvöl- um þeim, sem þjáðu þjóðina um miðbik 18. aldar hafi hann hugsað sem svo, að ekki væri úr vegi að íslendingar hygðu að því, þá er þeir nú kvarta, að nokkur sé munurinn fyrrum og nú. Þá gæti og verið, að þegar hann leitaði heimilda um réttarfarið, fram- gang mála og breytni veraldlegra og kirkjulegra valdamanna morð- aldarinnar, hafi að honum hvarfl- að sitthvað frá samtíð hans, sem betur mætti fara. „Atökí undir- djúpunum” — skáldsaga eftir Joe Poyer Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur gefið út þriðju bókina eftir Joe Poyer. Nefnist hún „Átök í undirdjúpunum" og er þýdd af Birni Jónssyni. Um efni bókarinnar segir svo í fréttatilkynningu frá útgefanda: „Bókin segir frá því að öflugri kjarnorkusprengju hefur verið komið fyrir á botni Malakka- sunds. Aðeins einn maður getur forðað því að þriðja heims- styrjöldin blo§si upp og fari eldi um jörðina, sá er doktor Mortimer Keilty, bráðsnjall vísindamaður, og hið furðulega leynivopn hans er höfrungur," en eins og menn rekur minni til hefur farið fram mikil umræða í fjölmiðlum um hugsan- lega notkun stórveldanna á höfrungum í hernaði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.