Morgunblaðið - 19.11.1978, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1978
31
Félag islenzkra náttúrufræðinga:
Fimm k jörnir
heiðursfélagar
Bækur fyrir yngstu börnin
FIMM náttúrufræðinKar voru
kjörnir heiðursfélaj;ar í Félagi
íslenzkra náttúrufræðinj?a á aðal-
fundi félagsins nýlega. bau Geir
Gígja skordýrafræðingur, dr.
Ingimar Óskarsson grasafræð-
ingur, Ingólfur Davíðsson grasa-
fræðingur, Steindór Steindórsson
fyrrur skólameistari og Teresía
Guðmundsson fyrrum veðurstofu-
stjóri.
Frá lögreglunni;
Vitni vantar
að ákeyrslum
SLYSARANNSÓKNADEILD
lögreglunnar í Reykjavík hefur
beðið Morgunblaðið að auglýsa
eftir vitnum og tjónvöldum að
eftirtöldum ákeyrslum:
Föstudaginn 3. nóv. var ekið á
bifreiðina R-3281, Peugeot-fólksbifreið
árg. '78, ljósgráa á lit, þar sem hún stóð
á bifreiðastæði við Asparfell 8 á
tímabilinu kl. 04.00—12.30. Hægri
afturhurð var dælduð.
Föstudaginn 3. nóv. var ekið á
bifreiðina R-60998, Datsun 120 fólksb.,
árg. ’78, dökkbrúna á lit, þar sem hún
var á bifreiðastæði við Búnaðarbank-
ann í Hafnarstraeti um kl. 16.00. Hægri
hurð var skemmd.
Stjórn félagsins var öll endur-
kjörin á aðalfundinum og er
formaður Ingvar Hallgrímsson
fiskifræðingur. Á fundinum var
eftirfarandi tiliaga í kjaramálum
samþykkt einróma:
„Aðalfundur Félags íslenskra
náttúrufræðinga, haldinn 9. nóv.
1978, mótmælir harðlega síendur-
teknum árásum ríkisvaldsins á
kjör og samningsrétt háskóla-
manna í launþegastétt. Kjara-
barátta háskólamanna beinist að
því að tryggja þeim svipaðar
ævitekjur og öðrum þjóðfélags-
þegnum. Kjaraskerðingar þær,
sem háskólamenn í launþegastétt
hafa orðið fyrir að undanförnu,
umfram aðra landsmenn, rýra
tekjur þeirra svo, að þessu marki
verður ekki náð.
Fundurinn telur ástæðu til að
minna á, að launakjör hér á landi
eru almennt um 40—60% lakari en
á öðrum Norðurlöndum.
íslenskir náttúrufræðingar telja
óþolandi, að ríkisvaldið virði ekki
þann kjaradóm, sem dæmir um
kaup og kjör, og geti að vild rift
einhliða með löggjöf þeim kjörum,
sem dæmd hafa verið. Félag
íslenskra náttúrufræðinga gerir
kröfu til þess að kjarasamningar
þess við ríkisvaldið og kjaradómar
séu í heiðri hafðir."
BÓKAFORLAGIÐ Saga hefur
sent frá sér tvær barnabækur:
„Hjálparsveit Jakobs og Jóa-
kims“ er eftir Jorgen Clevin,
sem er kunnur danskur barna-
bókahöfundur. Bókin er hin
fyrsta í flokki um persónurnar
Jakob og Jóakim, skreytt mörg-
um litmyndum og textinn er m.a.
ætlaður til upplesturs fyrir
yngstu börnin. Hann er saminn
með það fyrir augum að hann
hvetji þau til að taka virkan þátt
í lestrinum, í stað þess að vera
aðeins áheyrendur. Þýðinguna
gerði Haraldur J. Hamar.
„Jason í sumarfríi" er eftir
finnska barnabókahöfundinn
Camillu Mickwitz, sem einnig
myndskreytti bókina. Jason er
mörgum kunnur, því um hann
hafa verið gerðar teiknimynda-
sögur sem sýndar hafa verið víða
um lönd, meðal annars í barna-
tíma íslenzka sjónvarpsins.
Höfundur bókarinnar hefur
fengið margvísleg verðlaun fyrir
Jason, bæði í heimalandi sínu og
erlendis. Bókina þýddi Njörður
P. Njarðvík.
Þr jú ný mál-
verkakort f rá
Listasafninu
Listasafn Islands hefur nú gefið
út 3 ný litprentuð kort af
íslenskum málverkum. Verkin eru
þessi: Skammdegisnótt, máluð um
1954, eftir Gunnlaug Scheving, Frá
Þingvöllum, máluð 1975, eftir
Hrólf Sigurðsson, og Morgun-
stund, máluð 1977, eftir Kristján
Davíðsson.
Kortin eru prentuð hjá Kassa-
gerð Reykjavíkur og mjög vönduð,
16x22 sm að stærð.
Áður hefur Listasafn íslands
gefið út 39 kort í litum af verkum
margra merkustu listamanna
þjóðarinnar, og eru þau enn
fáanleg í safninu. Þessi kortaút-
gáfa er þáttur i kynningu safnsins
á íslenskri myndlist.
Hdlir
vegir
hcetta
áferð
Föstudaginn 3. nóv. var ekið á
bifreiðina Y-774, Skoda-fólksb., árg.
'70, drapplita, á móts við verslunina
Kron Völvufells-megin, á tímabilinu kl.
17.40—18.30. Hægra framaurbretti
dældað.
Föstudaginn 3. nóv. var ekið á
bifreiðina R-55077, Datsun-fólksb., árg.
’78, gráa á lit, þar sem hún stóð framan
við Joker við Grensásveg á tímabilinu
kl. 19.00—19.30. Hægri hurð var
dælduð. Talið er tjónvaldur sé ungur
I>iltur á ljósri bifreið.
Sunnud. 5. nóv. var ekið á
bifreiðina R-34760, Ford Escort-sendi-
ferðab., árg. ’73, rauða á lit, á
bifreiöastæði við hús nr. 58 við
Kleppsveg á tímabilinu kl. 23.00 þ. 4
nóv. til kl. 08.30 þann 5. Vinstra
framaurbretti dældað.
Sunnud. 5. nóv. var ekið á
bifreiðina H-350, Saab 96-fólksb., árg.
’67, hvíta á lit, við Hótel Esju á
tímabilinu kl. 14.00—18.25. Hægri hurð
dælduð.
Þriðjud. 7. nóv. ekið á bifreiðina
R-58445, Ilodge-sendiferðab., árg. '77,
rauða á lit, á Rauðarárstíg á móts við
hús nr. 3 eða 5, á tímabilinu kl.
20.00—20.30. Hægri afturhurð
skemmd.
Sunnud. 5. nóv. varð árekstur á
bifreiðastæði við Háskólabíó um kl.
17.15. Ung stúlka á bifreiðinni R-62360,
sem er Skoda Amigo, árg. '77, gulbrún
á lit, hafði verið að aka bifreið sinni út
af bifreiðastæði og hafði ekið henni
aftur á bak fyrst og rétt hana þannig
af. Hún hafði veitt athygli Bronco-bif-
reið blárri á lit sem var vinstra megin
við hana og sneri í sömu átt og var sú
bifreið kyrrstæð. Þegar stúlkan svo var
að aka af stað áfram, var Bronco-bif-
reiðinni skynditega ekið af stað og
beygt að Skoda-bifreiðinni og lenti sú
fyrrnefnda á vinstri hurð og framaur-
bretti Skoda-bifreiðarinnar. Ökumaður
Bronco-bifreiðarinnar stöðvaði og
hafði tal af stúlkunni og reyndi að
sannfæra hana um að þetta væri allt
henni að kenna, en ók að því búnu á
brott. Skorað er á ökumann Bronco-bif-
reiðarinnar aö gefa sig fram við
rannsóknadeildina og gera þar grein
fyrir þessu.
Föstud. 10. nóv. Ekið á bifreiðina
P-1828, Ford Escort-fólksb., árg. ’74,
þar sem hún stóð norðan við Gúmmí-
vinnustofuna í Skipholti 35 á tímabil-
inu kl. 14.00—14.30. Talið er að
tjónvaldur sé leigubifreið af gerðinni
Datsun, hvít eða grá á lit. Skemmdir á
P-1828 voru á vinstra afturaurbretti.
TilEítssenii
kostar
ekkert
®SANYO
Stereo Hi-Fi
□□ IDOLBY SYSTEM1
SAMSTÆÐUR
GXT4513 —
DCW 4800 —
GXT 4580 —
Góö ódýr samstæða — 4 bylgjur FM stereo.
Fullkomið kassettutæki 2 hátalarar 2 mikrafónar
Mjög vönduð samstæða 2x22 R.M.S. wött —
4 bylgjur FM stereo, belti-drifinn,
plötuspilari sjálfvirkur.
Samstæða hinna vandlátu. Búin öllum helstu
nýjungum, 2x25 R.M.S. wött
(80 músikwött).
Verð
frá kr.
Suðurlandsbraut 16, sími 35200
185.130