Morgunblaðið - 19.11.1978, Side 31

Morgunblaðið - 19.11.1978, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1978 63 upplýstir stjórnmálaskörungar muni geta jafnað þessa stríð- andi hagsmuni og sveigt þá undir almenningsheill. Upplýst- ir stjórnmálaskörungar munu ekki ævinlega halda um stjórn- völinn. Né heldur er í mörgum tilfellum með nokkru móti hægt að jafna mál án þess að taka tillit til óbeinna og fjarlægra sjónarmiða, sem sjaldan vega þungt gegn beinum hag eins flokks af því að skella skollaeyr- um við rétti annarra eða heill heildarinnar. Við hljótum að draga þá ályktun að ókleift sé að komast fyrir rætur flokkadrátta og að úrbóta sé aðeins að vænta í því að stjórna afleiðingum þeirra. Ef flokkur hefur minna en meirihluta er stjórnskipan lýð- veldis úrbót þar sem hún gerir minnihlutanum kleift að sigrast á hættulegum skoðunum í venjulegri atkvæðagreiðslu. Flokkurinn kann að trufla stjórnsýsluna, hann kann að raska samfélaginu en hann getur ekki hulið ofbeldi sitt i gerð stjórnskipunarinnar. Ef flokkur umlykur hins vegar meirihluta getur gerð alþýðu- stjórnar honum kleift að fórna bæði almenningsheill og rétt- indum annarra borgara á stalli eigin hagsmuna eða ríkjandi afstöðu. Mikilvægasta markmið þessarar rannsóknar er að tryKítja almenningsheill og ein- staklingsrétt gegn hættu sem stafar frá slíkum flokki og að varðveita jafnframt anda og gerð alþýðustjórnar. Eg vil hér bæta því við að náist þetta markmið er unnt að lyfta af þessari gerð stjórnskipaninnar því ámæli sem hún hefur lengi legið undir, og þá er unnt að mæla með því að mannkyn taki við henni og virði hana. En með hvaða aðferðum verður þessu markmiði náð. Augljóslega aðeins með tveimur. Annaðhvort verður að girða fyrir að þnokkurn tíma myndist meirihluti um sameiginlega afstöðu eða hagsmuni, eða það verður að haga stærðarhlutföll- um og staðbundnum aðstæðum meirihlutans, sem hefur sameig- inlega afstöðu eða hagsmuni, þannig að það hindri hann í að takast saman um og framfylgja kúgunaráformum. Ef viljinn og tækifærin fara saman vitum við vel að hvorki trúarlegar né siðferðilegar hvatir nægja til að hamla þar gegn. Þær reynast léttvægar þegar um er að ræða óréttlæti og ofbeldi við einstakl- inga og tapa áhrifamætti sínum í réttu hlutfalli við fjölda þeirra sem standa saman, það er í réttu hlutfalli við nauðsyn þess að áhrifamáttarins gæti. Af þessari skoðun má draga þá ályktun að hreint lýðræði, en þar á ég við samfélag fárra borgara, sem koma saman og hafa sjálfir með hendi stjórn- sýsluna, leyfir engin ráð er dugi gegn meinsemdum flokkadrátta. Meirihluti heildarinnar mun nær ævinlega finna sameigin- lega afstöðu eða hagsmuni, sjálfir stjórnarhættirnir valda því að skoöanir berast og samstaða næst; og ekkert haml- ar gegn hvötum þess að veikari flokkum eða leiðum einstakling- um sé fórnað. Vegna þess hafa slík lýðræðisríki ævinlega verið leiksvið óeirða og átaka, ósam- rýmanleg öryggi einstaklinga og eignarétti, þau hafi lifað eins skammt og þau dóu vofeiflega. Stjórnmálahugsuðir, sem að- hyllst hafa þessa tegund stjórn- skipunar, hafa ranglega gert ráð fyrir að yrði stjórnmálaréttur mannkyns takmárkaður þanpig að allir hefðu fullkomlega jafn- an hlut, þá yrðu jafnframt allir fullkomlega jafnir og líkir að eignum, skoðunum og afstöðu. Lýðveldi, en þar á ég við stjórnskipan þar sem fulltrúum er falið vald, veitir aðra mögu- leika og lofar þeim úrræðum sem við leitum að. Við skulum skoða í hverju það er frábrugðið hreinu lýðræði og þá munum við sjá eðli úrræðanna og þann styrk sem Sambandsveldið veit- ir þeim. Það tvennt sem einkum skilur að lýðræði og lýðveldi er: í f.vrsta lagi, við hið síðarnefnda er stjórnvald sett í hendur fárra borgara sem hinir kjósa; í öðru lagi, hið síðarnefnda getur náð til fleiri borgara og til stærra landsvæðis. Fyrri munurinn veldur því annars vegar að opinberar skoðanir fágast og víkka þar sem þær fara í gegnum hreins- unareld á valinni samkundu borgara, sem vegna visku sinnar geta best greint sanna hags- muni lands síns og vegna föðurlandsástar og virðingar fyrr réttlætinu eru manna ólíklegastir til að fórna því fyrir tímabundinn og takmarkaðan ávinning. Við þessa skipan getur vel verið að opinber rödd fulltrúanna tjái betur almenn- ingsheill en rödd fólksins væri það kallað saman til að fjalla um sömu mál. Hins vegar geta þessi áhrif snúist við. Hlutdræg- ir, fordómafuilir og illgjarnir menn geta fyrst náð kosningu með undirferli, spillingu eða eftir öðrum leiðum og síðan svikið hagsmuni þjóðarinnar. Við verðum því að lokum að ræða hvort lítil eða stór lýðveldi séu líklegri til þess að velja hæfa verði almennrar velferðar. Tvær ástæður liggja til þess, hin síðari er hér fremri. Fyrst er það að nefna að hversu lítið sem lýðveldið kann að vera verður hópur_ fulltrú- anna að vera nokkuð stór til þess að stemma stigu við sam- blæstri fárra manna; og að hversu stórt sem lýðveldið kann að vera verður hópur fulltrú- anna að vera takmarkaður að stærð til að stemma stigu við ruglandi fjöldans. Þar sem fjöldi fulltrúanna er þannig í þessum tveimur tilvikum ekki í réttu hlutfalli við kjósenda- fjölda en er hlutfallslega meiri í litla lýðveldinu leiðir af þessu að stærra lýðveldið hefur meira úrval og er líklegra til að velja hæfa fulltrúa, að því tilskyldu að hlutfallslegur fjöldi hæfra manna sé hinn sami í báðum. Næst er að nefna að þar sem fleiri kjósendur standa að baki hvers fulltrúa í stærra lýðveldinu en hinu minna verður óverðugum frambjóðendum erfiðara um vik að beita með árangri þeim fólskubrögðum sem of oft ráða úrslitum kosn- inga, og þar sem kosningar eru frjálsar eru meiri horfur á að atkvæði falli á menn sem best eru gæddir aðlaðandi hæfileik- um og opinskárri og fastmótaðri skapgerð. Það verður að játa að hér, eins og víðast annars staðar, er til meðalhóf en vandkvæði liggja beggja vegna. Sé fjöldi kjósenda of mikill, verða full- trúarnir of ókunnugir stað- bundnum aðstæðum þeirra og minni háttar hagsmunum; sé fjöldinn of lítill verður fulltrú- inn um of bundinn þessum aðstæðum og hagsmunum og því oft illa til þess fallnir að skynja og berjast fyrir stærri mark- miðum þjóðarinnar allrar. í þessu efni er Stjórnarskrá Sambandsveldisins haganlega samin; hinir stærri og sameigin- legu. hagsmunir eru faldir á hendur þjóðþingsins, hinir stað- bundnu og sérstöku á hendur Ríkisþinganna. Síðara atriði greinarmunarins sem gerður var hér að framan er það að lýðveldisstjórn getur spannað fleiri borgara og stærra land en lýðræðisstjórn og það er einkum af þessum sökum að minni ástæða er til að óttast samsæri flokka undir hinu fyrra stjórnskipulagi en hinu síðara. Því minna sem þjóðfélagið er þeim mun færri eru aðgreindir flokkar þess og hagsmunahópar; því færri sem aðgreindir flokkar og hagsmunahópar eru þeim mun oftar verður meirihluti í einum flokki; og því færri sem liðsmenn meirihluta eru og því minna sem umsvifasvæði þeirra er þeim mun auðveldar veitist þeim á ná samkomulagi og framkvæma kúgunaráform. Sé landsvæðið stærra nær það til fjölbreytilegri flokka og hags- muna,' það verður því ólíklegra að meirihluti heildarinnar hafi sameiginlega ástæðu til að ganga á rétt annarra borgara; en sé slík ástæða fyrir hendi, verður þeim sem skynja hana erfiðara um vik að ganga úr skugga um styrk sinn og vinna saman. Auk annarra tálma má geta þess að viti menn að tilgangur samstarfs er að hluta óréttlátur eða óheiðarleg- ur veröa samráð þeim mun torveldari sem fleiri samstarfs- menn þurfa að samþykkja að- gerðir. Því virðist ljóst að stór Lýðveldi hafa sama kost umfram lítil lýðveldi og lýðveldi hafa umfram lýðræðisríki: Þeim er auðveldara að hafa hemil á afleiðingum flokkadrátta — Sambandsveldið hefur þennan kost umfram Ríkin sem í því eru. Er kostur í því fólginn að fulltrúaváldið færist 1 hendur manna sem vegna upplýstra skoðana og grandvarar afstöðu standa ofar staðbundnum for- dómum og óréttlátu ráðabruggi? Því verður ekki neitað að fulltrúar í Sambandsstjórninni eru líklegir til að búa yfir þessum nauðsynlegu eiginleik- um. Er kostur fólginn í því öryggi sem stafar af því að fjöldi og fjölbreytni flokka hamlar gegn því að einn flokkur beri alla aðra ofurliði og kúgi þá? Öryggi Sambandsveldisins vex í réttu hlutfalli við fjölda og fjölbreytileik flokkanna sem þar finnast. Er þessi kostur nánar tiltekið í þVí fólginn að setja meiri tálma í veg fyrir samráð og framgang leyndra óska órétt- láts og sérgóðs meirihluta? Hér er enn greinilegt að Sambands- veldið hefur óumræðilega kosti. Áhrif forsprakka í flokka- dráttum kunna að kveikja loga í einstöku Ríki en verða þess vanmegnug að fara eldi um hin Ríkin. Trúflokkur kann að úr- kynjast í stjórnmálaflokki í hluta Bandalagsins, en þar sem fjöldi trúflokka er dreifður um landið allt eru þingin þjóðinni vörn gegn hættu af slíku. Tískukröfur um peningaprent- un, skuldauppgjöf, eignajöfnun eða aðrar óviðeigandi og ósið- legar nýjungar eru ólíklegri til að ná tökum á Sambandsveldinu öllu en á einstökum Ríkjum á sama hátt og slíkar kröfur eru líklegri til að fá hljómgrunn í einstöku héraði en í heilu Ríki. Við sjáum því í stærð og réttu skipulagi Sambandsveldisins lýðveldislega bót á þeim mein- um sem helst hrjá lýðveldis- stjórnir. Og við ættum að lofa hug og afstöðu sambandssinna í sama mæli og stolt og ánægju lýðveldissinnans. Félagsmenn Grafíska sveinafélagsins GSF. gengst fyrir kynningarnámskeiöi í plötugerö og meöferö ýmissa tengdra efna, í samstarfi viö fyrirtækið S. Árnason & Co. Námskeiöið veröur haldiö í lönskólanum dagana 22. og 23. nóvember n.k. frá kl. 19.30 til kl. 22.00 hvort kvöld. H«bö 47 cm. Vtrð 26.020- Hai 40 cm. Verö 7.860- Sendum póstkröfu. K KONSTi SMIDE r \untiai h.f Suöurlandsbraut 16 Sími 91-35200. ÚTILJÓS Hatö 15 cm. Varö 18.060- Hmö 38 cm. Verö 12.960.- Haö45 cm. Varö 18.060- v ’.......•.....J..y Haö 45 cm. V»rö 16.330,- Haö 60 cm. Verö 25.100- 35?J Qster Hakkavél, hnoöari, mixari og tvær glerskálar. Hagstætt verö Fæst í næstu raftækjaverslun Vörumarkaðurinn hf. Ármúla 1 A. Publius.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.