Morgunblaðið - 06.12.1978, Page 14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1978
14
Þetta gerdist
6. desember
1976 — Þingmeirihluti Frjáls-
lynda demókrataflokksins
minnkar í þinf?kosninKum.
1972 — Síðasta Apollo-tungl-
skotið: Apollo 17 skotið frá
Kennedyhöfða.
1966 — Bretar hvetja til refsi-
aðgerða SÞ gegn Rhódesíu.
1961 — Harðir bardagar liðs-
afla SÞ ok Katangamanna.
1911 — Roosevelt forseti sendir
Horohito Japanskeisara friðar-
áskorun.
1938 — F'rakkar og Þjóðverjar
semja um ófrjúfanleg landa-
mæri þjóðanna.
1929 — Konur fá kosningarétt í
Tyrklandi.
1921 — Bretar gera friðarsamn-
ing við íra: írska frfríkið
stofnað og írland samveldisríki.
1916 — Þjóðverjar taka Búka-
rest.
1857 — Bretar ná aftur Cawn-
pore á Indlandi.
1492 — Kólumbus finnur Haiti.
Afmæli dagsins. Warren
Hastings, landstjóri á Indlandi
(1732—1818) — J.L. Gay-Lussac,
franskur efnafræðingur
(1778-1850) - Agnes
Moorehead, bandarísk leikkona
(1906—1974) — Lynn Fontanne,
enskfædd leikkona (1887---)
Innlent. F. Herra Kristján
Eldjárn 1916.— Viðræðum um
brottför varnarliðsins frestað
1956 — F. Einar H. Kvaran 1859
— Þriðja ráðuneyti Ólafs Thors
skipaö 1949 — „Þór“ og „Ægir“
halaklippa tvo breska togara
1975 — Hrun stórs hluta Eldeyj-
ar uppgötvað 1950 — F. Dr.
Þorkeil Jóhannesson 1895 —
Benedikt Tómasson varaland-
læknir 1909 — Guðmundur
Gíslason setur 10. íslandsmet
sitt á árinu þriðja árið í röð 1959
— D. Magnús Björnsson lög-
maður 1724 — F. Þorsteinn
Hjálmarsson prófastur 1794.
Orð dagsins. Sá sem vill stjórna
öðrum ætti fyrst að hafa stjórn
á sjálfum sér — Philip
Massinger, enskt leikritaskáld
(1583-1640).
SINDRA
STALHF
Fyrirliggjandi í birgöastöö
ÁLPLÖTUR
Hálfhartefni í þykktum frá 0,80 mm
— 6,00 mm.
Plötustæröir 1200 mm x 2500 mm.
Borgartúni 31 sími27222
Menten til
r
Israels?
Haag, 15. desember. AP.
ÍSRAELSMENN munu fara fram
á að hollenski milljónamæringur-
inn Pieter Menten verði framseld-
ur til ísraels í kjölfar úrskurðar
hollenskra dómsstóla þess efnis,
að hann sé sýkn saka um stríðs-
glæpi. að sögn ísraelska sendi-
ráðsins 1 Ilaag.
Að sögn talsmanna sendiráðsins
mun beiðni um framsal verða
afhent hollenskum dómsmálayfir-
völdum fyrir lok vikunnar, þrátt
fyrir að hollenska dómsmálaráðu-
neytið hafi lýst þeirri skoðun sinni
að ekki sé nein ástæða til að
framselja Menten til ísraels.
Þessi ákvörðun ísraelsmanna
kemur í kjölfar tilkynningar
hollenskra yfirvalda þess efnis, að
sérstök umræða fari fram utan
dagskrár í hollenska þinginu um
mál Mentens vegna mikillar gagn-
rýni sem fram hefur komið úr
ýmsum áttum. Menten hafði áður
verið dæmdur af hollenskum
dómstólum í 15 ára fangelsi en
hæstiréttur úrskurðaði hann síðan
sýknan saka í fyrradag.
Veöur
víða um heim
Akureyri 6 skýjað
Amsterdam 3 léttskýjaó
Apena 13 skýjað
Barcelona 15 heiðskírt
Berlín +4 léttskýjað
BrUssel vantar
Chicago 0 skýjað
Frankfurt 2 skýjað
Genf 4 skýjað
Helsinki -5 heiðskírt
Jerúsalem 16 skýjað
Jóhannes.b. 26 lét tskýjað
Kaupmannahöfn i 2 skýjað
Lissabon 18 léttskýjað
London 9 skýjað
Los Angeles 20 heiðskírt
Madríd 15 léttskýjað
Malaga 17 skýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Miami 27 skýjað
Moskva *9 skýjað
New York 20 skýjað
Ósló +3 heiðskírt
París 10 mistur
Reykjavík 6 súld
Rio De Janeiro 36 léttskýjað
Rómaborg 10 skýjað
Stokkhólmur +3 skýjað
Tel Avív 19 skýjað
Tókýó 14 skýjað
Vancouver 7 léttskýjað
Vínarborg -3 skýjaö
E.W Hildick
FANGARNIR í KLETTAVÍK
Þetta er einhver skemmtilegasta
og viðburðaríkasta unglingasaga
metsöluhöfundarins Edmund W.
Hildick. Hann er breskur höfundur
sem hefur hlotið margvíslega við-
urkenningu fyrir bækur sínar. Sag-
an um Fangana í Klettavik mun
falla öllum vel í geð, sem hafa
ánægju af spennandi og dularfull-
um atburöum. Andrés Kristjáns-
son þýddi.
Sven Wernström
LEIKHÚSMORÐIÐ
Fyrir nokkrum árum kom út hjá
Iðunni bókin Ævintýraleg útilega
eftir Sven Wernström, þennan víó-
fræga ög umdeilda höfund. Sú bók
hlaut veróskuldaðar vinsældir.
Leikhúsmorðið segir frá því þegar
Barbro og Tommi gera hópverkefni
um Litla leikhúsiö. Þar er eitthvaö
meira en lítið dularfullt á ferðinni.
Smám saman átta þau sig á að það
er verið að undirbúa morð að
tjaldabaki — moröió á Litla leik-
húsinu. Þórarinn Eldjárn þýddi.
Bent Haller
TVÍBYTNAN
Tvíbytnan er verðlaunabókin í sam-
keppni sem bókaforlagið Borgen í
Kaupmannahöfn efndi til árið 1976
um bækur handa börnum og ung-
lingum.
Verölaunaveitingin og bókin ullu
strax gífurlegum umræöum og
deilum, sem hafa m.a. snúist um,
hvort bókin ætti yfirleitt nokkurt
erindi til unglinga.
Tvíbytnan á því ekki síst erindi til
foreldra og annarra sem fullorönir
eru. Guðlaugur Arason þýddi.
Gunnel Beckman
PRJÁR VIKIJR FRAM YFIR
Maja er nýbyrjuð í menntaskóla.
Örvænting grípur hana þegar hún
gerir sér grein fyrir, að kannski á
hún von á barni. Margvíslegum
lausnum skýtur upp í kolli hennar.
Gunnel Beckman er meðal virtustu
barna- og unglingabókahöfunda
Svía og hefur hlotið margvíslega
viðurkenningu fyrir bækur sínar,
m.a. Nils-Holgersonsverðlaunin.
Jóhanna Sveinsdóttir þýddi.
Evi Bogenæs
DRAUMAHEIMUR KITTU
Kitta er kyrrlát, feimin og hlédræg.
Móðir hennar er fræg leikkona sem
hefur lítinn tíma til að sinna dóttur
sinni, föður sinn þekkir Kitta ekki.
Það sem hjálpar Kittu að sigrast á
erfiðleikunum er draumaheimur
hennar. Þar skipar Sveinn æsku-
vinur hennar, mikiö rúm. Evi Boge-
næs er meðal virtustu barna- og
unglingabókahöfunda Norðmanna.
Andrés Kristjánsson þýddi.
Bræöraborgarstíg 16 s(rm 12923-19156