Morgunblaðið - 28.12.1978, Síða 1
32 SÍÐUR
297. tbl. 65. árg.
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Friðarsamningar
eiga stutt í land
— segir Sadat Egyptalandsforseti
Kairó. 27. desember. AP. Reuter.
Anwar Sadat forseti Egypta-
lands sajfði í dag að góðar Iíkur
vaeru á því að friðarsamningar
milli Egyptalands og ísraeis gætu
orðið að veruleika innan tíðar en
sagði að ísraelsmenn ættu næsta
leik að því er fréttir frá Kairó
hermdu í dag.
Sadat
Þessi yfirlýsing Sadats kemur í
kjölfar yfirlýsingar Begins for-
sætisráðherra ísraels á þriðjudag
þar sem hann lýsti ísraelsmenn
reiðubúna að taka aftur upp
viðræður um þau tvö atriði sem
allt strandaði á í' síðustu samn-
ingalotu í Washington.
Sadat sagði að það styrkti
einnig þessa skoðun sína að Carter
hefði lýst því yfir fyrir hátíðar að
líkur á því að samningaviðræður
yrðu teknar upp á ný voru góðar en
það væri augljóst að Israelsmenn
yrðu að ríða á vaðið með því að
bjóða til samningaviðræðna.
Fréttamaður AP-fréttastofunnar
í Kairó telur sig hafa góðar
heimildir fyrir því að Sadat hafi
lýst því yfir á fundi með flokks-
bræðrum sínum í dag að þegar
væru hafnar þreifingar með
fulltrúum þjóðanna bak við tjöldin
og öruggt væri að friðarviðræðurn-
ar myndu hefjast á ný innan tíðar.
Þá lýsti Sadat því yfir á fundi
með fréttamönnum að Egyptar
myndu á næstu fimm árum fá
Boumedienrie látinn:
40 daga þ jóðar-
sorg í landinu
AlKeirsborK. 27. desember. AP. Reuter.
GÍFURLEGUR mannfjöldi þyrptist
út á götur í flestum stærstu borgum
Alsírs í dag er tilkynnt var um lát
forseta landsins, llouari Boumedi-
enne. til að syrgja hinn fallna
þjóðhöfðingja sem ríkt hafði í 13 ár.
Grýttir
fúleggjum
á Taiwan
Taipei, 27. desember. AP.
MIKILL fjöldi mótmælenda
var mættur á flugvellinum í
Taipei á Taiwan vopnaður
fúleggjum og alls kyns sorpi
þegar sendinefnd Carters
Bandaríkjaforseta kom þang-
að í dag.
Mannfjöldinn kastaði fúl-
eggjum að sendinefndarmönn-
um og kallaði „Carter er
svikari" og „hvernig í ósköpun-
um eigum við að geta trúað
einu einasta orði af því sem þið
hafið fram að færa“.
Ekki urðu nein meiðsli á
fólki en bílar voru nokkuð illa
útleiknir á eftir að því er haft
var eftir talsmanni bandaríska
sendiráðsins í Taipei.
Hlutverk sendinefndarinnar
er að ræða um hugsanleg
áframhaldandi samskipti land-
anna þrátt fyrir að stjórnmála-
samband hafi verið rofið.
Samúðarskeyti bárust Alsírmönn-
um víðs vegar að úr heiminum, m.a.
frá Carter Bandaríkjaforseta, Kurt
Waldheim aðalritara Sameinuðu
þjóðanna og Yasser Arafat leiðtoga
PLO, skæruliðasamtaka Palestínu-
manna, sem lofaði Boumedienne
mjög sem einn af beztu sonum
Alsírs.
Rabah Bitat, forseti þingsins í
Alsír, var þegar við lát Boumedienne
skipaður j embætti forseta landsins
til næstu 45 daga en innan þess tíma
verður að velja nýjan eftirmann
forsetans látna. Fyrirskipuð hefur
verið 40 daga þjóðarsorg í landinu.
Sjá nánar „Trúaður sósíalisti
og hugsjónamaður“ bls. 16.
jafnvirði 1600 milljarða íslenzkra
króna árlega í aðstoð frá Banda-
ríkjamönnum. Vestur-Þjóðverjum
og Japönum til efnahagslegrar
uppbyggingar en efnahagur lands-
ins stendur nokkuð höllum fæti um
þessar mundir.
Vegna ummæla Sadats um
friðarsamninga milli Israels og
Egyptalands sagði Begin á fundi
með fréttamönnum síðdegis, að
Israelsmenn væru reiðubúnir til
viðræðna hvenær sem væri enda
hefðu þeir aldrei lokað dyrunum í
friðarsamningum landanna.
Indira Ghandi fyrrverandi forsætisráðherra Indlands flutt
úr þinghúsinu í siðustu viku er hún var fangelsuð.
Ráðherrann fyrrverandi var síðan leystur úr haldi á annan
dag jóla.
Ghandi vill harðari
baráttu gegn Desai
Nýja Dheli. 27. desember. AP Reuter.
INDIRA Ghandi fyrrverandi for-
sætisráðherra Indlands lagði í dag
mjög hart að flokksbræðrum sfnum
í Kongrcssflokknum að herða mjög
baráttuna gegn ríkisstjórn Dcsais
því það væri nauðsynlcgt að þjóðin
losnaði við slíka óbótamenn, að því
er fréttir frá Nýju Dhcli hcrma í
dag.
Ghandi sagði einnig að mjög
nauðsynlegt væri að baráttan gegn
Desai bæri einhvern sjáanlegri
árangur en til þessa, væri ekki bara
í orði. Þá kom fram í ræðu
ráðherrans fyrrverandi að a.m.k. 19
manns hafa látið lífið í þeim miklu
átökum sem staðið hafa á undan-
förnum dögum vegna fangelsunar
hennar 19. desember s.l. — og öll
fangelsi væru full af stuðnings-
mönnum hennar og segja frétta-
skýrendur á Indlandi að tala þeirra
sem fangelsaðir hafa verið á síðustu
dögum sé nálægt 100 þúsund manns.
Ghandi sagði í sambandi við
hugsanlegar aðgerðir til að stuðla áð
falli Desaistjórnarinnar að mjög
nauðsynlegt væri að fræða landslýð
mun betur um þá ógnarstjórn sem í
landinu væri. Nauðsynlegt væri að
farið væri þorp úr þorpi og fólk
uppfrætt á.hverjum stað fyrir sig.
Ghandi sagði aðspurð á fundinum
að hún myndi keppa að endur-
kosningu til þingsins næst þegar
kosningar færu fram í landinu og
sagðist hún ekki vera í neinum vafa
um að hún myndi ná kosningu á
nýjan leik.
Þá kom það að síðustu fram hjá
Ghandi að hún sagðist reiðubúin til
samstarfs við Charan Shingh fyrr-
verandi samráðherra Desais, sem
Desai rak úr stjórninni í sumar fyrir
að fyrirskipa rannsókn á meintu
ólöglegu framferði sonar Desais. —
Segja fréttaskýrendur í þessu sam-
bandi að slíkt samstarf gæti qrðið
Desai mjög skeinuhætt þegar fram í
sækir.
Sovézkt kerfi
gegn lágflugi
Washington. 27. desember AP
RANNSÓKNARSTJÓRI banda-
ríska utanríkisráðuneytisins, dr.
William Perry aðstoðarutanríkis-
ráðherra, segir að Rússar hafi gert
árangursríkar tilraunir með nýtt
ratsjár og eldflaugakerfi sem gæti
orðið alvarleg ógnun við bandarísk-
ar sprengju- og orrustuflugvélar í
lítilli hæð.
Hann telur að Rússar geti tekið
slíkt kerfi í notkun fljótlega eftir
1980 og telur að áhrif þess geti orðið
alvarleg fyrir bandarískar herflug-
vélar sem kynnu að reyna að komast
inn í sovézka lofthelgi.
Þó telur Perry að Rússum takist
ekki í að minnsta kosti einn áratug
enn að koma sér upp kerfi sem gæti
veitt vörn gegn árás bandaríska
Cruise-eldflauga.
Perry segir að tilraunir Rússa með
nýja kerfið hafi staðið í nokkur ár.
Bandarikjamenn ráða þegar yfir
samskonar tækni á þessu sviði, bæði
með F-14 og F-15 orrustuflugvélum
og hinum nýju ratsjár- eða
Awacs-flugvélum.
Kollsteypa fraimindan
í ef nahagsmálum í rans
Teheran, 27. des. AP. Reuter.
ÍRAN. annað stærsta olíufram-
leiðsluland í hcimi á eftir Saudi-
Arabíu, er nú svo illa á vegi statt
vegna stöðugra verkfalla og
hardaga í landinu að hafin er
innflutningur olíu til landsins í
fyrsta sinn í sögu þess, en
oh'uframlciðsla landsmanna er
aðeins um 5% af því sem venju-
lega er að því er áreiðanlegar
heimildir í Teheran hermdu í dag.
Sérfræðingar telja að efnahagur
landsins sé svo hætt kominn að
verði ekki breyting á olíufram-
leiðslunni til hins betra mjög
fljótlega verði efnahagsleg koll-
Íranskeisari
steypa ekki umflúin. Talið er að
landsmenn tapi a.m.k. 20 milljörð-
um íslenzkra króna á dag vegna
verkfalla í oliuiðnaðinum.
Til mikilla bardaga kom í
Teheran höfuðborg landsins í dag
milli stuðningsmanna og andstæð-
inga keisarans og féllu a.m.k. 5
menn í þeim átökum. — Þá var
hart barist í einni herdeild sem
send var til að stilla til friðar með
mótmælendum i Teheran eftir að
hermaðúr einn neitaði að skjóta á
andstæðing keisarans og skaut í
þess stað yfirmann sinn.
Öll starfsemi í stærsta við-
skipta- og iðnaðarhverfi Teherans
lagðist algerlega niður í margar
klukkustundir í dag þegar and-
stæðingar keisarans fóru þar í
flokkum og lögðu eld í hús og brutu
rúður í því sem næst hverju
einasta húsi að sögn sjónvarvotta.
Fréttir í gærkvöldi hermdu að
mikill fjöldi erlendra sérfræðinga,
sem starfa við olíuframleiðsluna,
hafi tekið saman pjönkur sínar og
hyggist fara úr landi við fyrstu
hentugleika en allt flug hefur legið
niðri síðustu daga vegna verkfalla
flugvallastarfsmanna.