Morgunblaðið - 28.12.1978, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 1978
GOTT skautasvell er á Reykjavíkur-
tjörn og sömuleiðis á Rauðavatni.
Ungt fólk á öllum aldri hefur því
óspart notfært sér þetta og sýna þessar
myndir Kristjáns hresst fólk að leik á
Tjörninni í gær.
Enga þjónustu að fá á hótelum á Kanaríeyjum:
—
Um 300 Islendingar
lentu í verkfallinu
UM 300 íslendingar hafa orðið fyrir barðinu á verkíalli
starfsfólks á hótelum og veitingahúsum á Kanaríeyjum.
Verkfallið hófst á Þorláksmessu og þurftu Islendingarn-
ir því að elda allan sinn mat sjálfir yfir hátíðarnar.
Verkfallið hefur að mjög miklu leyti lamað alla þjónustu
við ferðamenn. en þar dveljast nú um 200 þúsund
ferðalanga, aðallega frá Norðurlöndum og V Þýzkalandi.
Að sögn Steins Lárusson- íbúðunum. Þeir hafa til
ar hjá Ferðaskrifstofunni
Úrval búa Islendingarnir á
íbúðarhótelum og hafa því
aðstöðu til eldamennsku í
þessa getað keypt nauðsynj-
ar í verzlunum, en í gær-
kvöldi var farið að bera á
skorti á ýmsum vöru-
Margeirí 9.—12.
sæti í Hollandi
tegundum vegna mikillar
eftirspurnar ferðafólksins
að sögn erlendra frétta-
stofa. Enga þjónustu er að
fá á hótelunum og hafa
hótelgestirnir því þurft að
þrífa íbúðir sínar sjálfir
yfir hátíðarnar auk annars.
Að sögn Steins er verk-
fallið aðeins á Gran Kanarí,
en ekki á Tenerife. Þar
dvelja þó aðeins örfáir
íslendingar þessa dagana.
Ymis vandamál hafa komið
upp vegna verkfallsins, en
hjá íslenzku ferðaskrifstof-
unum hafa hlutirnir þó
gengið eins vel og framast
er unnt við þessar aðstæður.
Aí) LOKNUM f. umferðum á
Evrópumeistaramóti unglinga í
skák. sem fram fer í Groninjíen f
llollandi. er Margeir Pétursson í
9, —12. sæti með 3% vinninjí.
Efstu menn eru með \V-> vinninK
ojí sasói Margeir í samtali við
Moruunhlaðið í gær að mótið væri
mji.K jaínt og sæist það bezt á því
að þeir efstu hefðu þegar tapað
1 ' j vinninsi.
I 1. umferð tapaði Mar>;eir
nokkuð óvænt. en hann seildist þá
lan>;t til vinninKs í hiðstiiðu
þar sem hann hafði heldur hetri
stiiðu. I 2. umferð vann Margeir
(>K siimuleiðis gegn Gazik frá
Tékkóslóvakíu í þriðju umferð. í
fjórðu umferð tapaði hann
klaufaleKa fyrir Mateu frá Spáni
ok í ö. umferð Kerði hann jafntefli,
í skák. sem Margeir sa>;ðist hafa
verið með unna þe>;ar samið var.
— Ek var kvefaður og illa
upplagður. þannig að ég neyddist
til að þiggja jafnteflið. sagði
Margeir.
í sjöttu umferðinni, sem tefld
var í gær, vann Margeir síðan
sannfærandi sigur á Hawelko frá
Póllandi í 29 leikjum. Hann er eins
og áður sagði í 9.—12. sæti með 3 'h
vinning. í efsta sæti eru þeir
Dolmatov frá Sovétríkjunum,
núverandi Evrópumeistari ungl-
inga, Mateu frá Spáni, Pedersen
frá Danmörku og Björn Tiller, sem
nokkuð óvænt hefur verið í forystu
frá upphafi mótsins. Síðan koma
fjórir skákmenn með 4 vinninga og
Margeir er í hópi næstu fjórmenn-
inga.
Ekki var í gærkvöldi vitað hvaða
andstæðing Margeir fengi í 7.
umferðinni, en hann sagði að ljóst
væri aö baráttan yrði mjög jöfn og
allt gæti gerzt enn þar sem mótið
væri ekki hálfnað.
0
INNLENT
Banaslys í bíl-
veltu í Hegranesi
UNGUR piltur lést í bfl-
veltu við bæinn Keílavík á
Hegranesi á jóladagskvöld.
Hann hét Björn Stefán
Ólafsson, 14 ára gamall, til
heimilis að Aðalgötu 8 á
Siglufirði.
Björn var á leið frá
Siglufirði til Sauðárkróks
ásamt 23 ára gömlum
frænda sínum þegar slysið
varð. Eftir að bíllinn, sem
var 2ja manna sportbíll,
kom út úr beygju við bæinn
Keflavík, missti ökumaður-
inn stjórn á bílnum. Fór
hann margar veltur á vegin-
um áður en hann nam
staðar á hjólunum. Björn
Stefán mun hafa látist
samstundis.
Að sögn lögreglunnar á
Sauðárkróki varð slysið um
klukkan 21.30 á jóladag.
Veður var gott og sömuleið-
is færðin, en bíllinn mun
hafa verið á töluverðri ferð.
Ökumaðurinn var fluttur í
sjúkrahúsið á Sauðárkróki
mikið slasaður. Bifreiðin er
talin ónýt.
Hæstiréttur staðfesti
gæzluvarðhaldið
HÆSTIRÉTTUR staðfesti
í gær gæzluvarðhaldsúr-
skurði yfir þremur sak-
borningum í Guðmundar-
og Geirfinnsmálum, en
gæzluvarðhald þeirra var
framlengt um eitt ár hinn
19. desember s.l.
Þrír sakborninganna,
Sævar Ciesielski, Kristján
Viðar Viðarsson og
Tryggvi Rúnar Leifsson,
kærðu úrskurðinn til
Hæstaréttar ,en Guðjón
Skarphéðinsson ekki.
Nú er liðið rúmt ár síðan dómar
voru kveðnir upp yfir mönnunum
fjórum í sakadómi Reykjavíkur og
voru tveir þeirra, Sævar og
Kristján dæmdir í ævilangt
fangelsi en hinir skemur.
Guðmundar- og Geirfinnsmálin
eru nú til meðferðar í Hæstarétti.
Borgarstjóri fékk ekki
viðtal við fjárveitinganefnd
I30RGARSTJÓRA Reykjavík-
ur. Agli Skúla Ingibergssyni,
var neitað um viðtal við fjár-
veitinganeínd Alþingis í
desemberbyrjun vegna þess að
viðtalsheiðni þar að lútandi
kom of seint til fjárveitinga-
nefndar samkvæmt auglýstum
viðtalstíma. Viðtalsbeiðnir áttu
að berast fyrir 15. nóv. sam-
kvæmt auglýsingu. en beiðni
borgarstjóra barst í desember-
byrjun. Borgarstjóri gat því
ekki sjálfur fylgt eftir við
fjárveitinganefnd erindum
borgarinnar við nefndina.
Siglufjörður:
Friðsæl og falleg jól
Siglufirði 27. desember.
ALLIR Siglufjarðartogararnir
voru í höfn um jólin. Norskt skip
lestaði hér 2100 lestir af loðnulýsi
og Helgafellið tók 800 tonn af
loðnumjöli, sem á að fara til
Portúgals. Hansa Trade. íslenzka
skipið. sem skráð er í Singapore,
kom hingað f dag og lestar á
þriðja þúsund lestir af loðnu-
mjöli.
Jólin voru sérstaklega friðsæl og
falleg og við köllum að hér sé
enginn snjór. Fært hefur verið um
allt og það telst til tíðinda að við
sjáum í gangstéttir, sem á þessum
árstíma eru yfirleitt á kafi í
snjóruðningi.
- mj.
„Svavar og félagar aó
springa á sprettinum”
—segir Vilmundur Gylfason alþingismaður
SVAVAR Gestsson viðskipta-
ráðherra lét svo um mælt
opinherlega á síðustu dögum
þingsins fvrir jólin að vinnu-
hrögð þingmanna Alþýðu-
flokksins væru hneyksli.
„Þarna eru krakkar í sand-
kassaleik. en ekki kratar í
stjórnmálabaráttu." sagði
Svavar, en þá hafði það m.a.
komið upp á þinginu eftir að
stjórnarflokkarnir hiifðu náð
samkomulagi um gerð fjárlaga-
dæmisins að 9 þingmenn
Alþýðuflokksins liigðu fram
tilliigu um verulegar breyting-
ar á fjárlagadæminu m.a. með
breytingum á skattvísitölunni.
en nokkrum klukkustundum
síðar drógu þeir tillöguna til
haka. Mbl. hafði samhand við
Vilmund Gylfason alþingis-
mann og innti hann álits á
umsögn Svavars um sandkassa-
leikinn. Vilmundur sagði.
„Það er undarleg tíð í ís-
lenzkri pólitík. Kommar orðnir
svo roggnir og ráðsettir til orðs
og æðis að það fer í taugarnar á
þeim þegar fólk og fylkingar
hafa til þess nennu að berjast
fyrir skoðunum sínum. Það hafa
fieiri látið þennan taugatitring í
ljós en Svavar Gestsson. En það
kemur mér ekki við.
Hér er rúmlega 50% verð-
bólga og stefnir í meira ef ekki
verður rækilega spyrnt við. Við
jgfnaðarmenn munum halda
áfram af sama krafti og í
nóvember og desember, við
höfum í hyggju að sigrast á
verðbólgunni og fylgifiskum
hennar, en ekki verða innlyksa í
henni hvað sem líður tauga-
kerfinu í Svavari Gestssyni.
Alþýðuflokkurinn er hvorki
Alþýðubandalag né Fram-
sóknarflokkur. Skoðanir okkar
eru þekktar og við munum halda
áfram þó svo Svavar Gestsson
og félagar séu að springa á
sprettinum."
Innbrot á jólanótt:
Lyfjum
stolið úr
Ingólfs
apóteki
ÞAÐ telst til undantekninga,
sem betur fer, að innbrot séu
framin á sjálfa jólanóttina. Slíkt
átti sér stað um þessi jól en þá
var brotizt inn í Ingólfs apótek í
Reykjavík aðfararnótt jóladags.
Þaðan var stolið miklu af ýmsum
lyfjum, aðallega örvandi og
róandi töflum, svo þúsundum
skipti. Rannsóknarlögregla ríkis-
ins hefur málið til meðferðar.