Morgunblaðið - 28.12.1978, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 1978
25
fclk í
fréttum
+ IIEIMSNÖFN. Hér mætast tvö heimsnöfn sitt á hvoru sviðinui Carter Bandaríkjaforseti og hinn aldni
píanósnillingur Arthur Rubenstein. Hann var meðal nokkurra frægra listamanna. sem forsetahjónin í
Ilvi'ta húsinu buðu heim til sín, í tilefni af því að í skaut listamannanna hafði fallið viðurkenning
Kennedy-Center-stofnunarinnar. Meðal gestanna voru ennfremur söngkonan Marian Anderson og
kvikmyndaieikarinn og dansstjarnan Fred Astaire.
+ FANGELSISDÓMUR. bessi
15 ára piltur, sem heima á í
Rómaborg, var fyrir nokkru
sekur fundinn um morð og
dæmdur í 8 ára fangelsi. Mái
hans, en hann heitir Marco
Caruso, hefur mikla athygli
vakið suður þar. Það eru
kringumstæðurnar í morðmáli
þcssu, sem fólk hefur einkum
litið á.
Faðir piltsins var
drykkjumaður. sem oft og
iðulega hafði lagt hendur á
konu sína og barið börn þeirra
í ölæði. Dag nokkurn fyrir um
það bil ári, er maðurinn kom
ölóður heim, hafði hann ætiað
að misþyrma konu sinni. Þá
hafði Marco skorizt í leikinn,
dró upp skammbyssu og skaut
föður sinn til bana. Við réttar-
höld hafði pilturinn skýrt frá
því. að hann hefði verið búinn
að stela skammbyssunni og
hann hefði skotið föður sinn til
þess að bjarga móður sinni.
Það hefur komið fram í hlöðum
Rómaborgar, að forseti lands-
ins. Sandro Pertini, hafi hug á
því, verði til hans lcitað, að
hafa áhrif til mildunar refs-
ingarinnar. Dómnum hefur
verið áfrýjað til hæstaréttar.
+ HÖRKULEG á svipinn virð-
ist hún vera, brúður Lord
Snowdons fyrrverandi prins-
essueiginmanns. —
Myndin er
tekin al brúöhjónunum er þau
komu úr borgarfógetaskrif-
stofu í London að lokinni
giftingarathöfn þar. Ilún heitir
Lucy Lindsay, 37 ára að aldri,
fráskilin. llin Iátlausa athöfn
nú. minnti Breta á hið mikla
umstang og þá pomp og pragt,
sem var er Snowdon giftist
Margréti prinsessu drottn-
ingarsystur þar í borg árið
1900. Brúðhjónin kynntust
suður í Ástralíu árið 1975. Frú
Lucy skildi við eiginmann sinn
árið 1971 og voru þau barnlaus.
Snowdon lávarður heldur sam-
bandi við brezku konungsfjöl-
skylduna, segja blöðin. Var
hann t.d. í afmælisveizlunni,
sem haldin var í konungshöll-
inni er Karl prins varð þrítug-
ur í haust. Brúðhjónin voru
umsetin af blaðamönnum og
ljósmyndurum eru þau komu
út á götuna og sögðu blaða-
mönnunum að þau vonuðust til
að geta lifað hamingjusömu
óbrotnu lífi.
1979 BILAR
FRÁ CHRYSLER
Hjá okkur færð þú eitthvað mesta bilaúrval, sem völ erá
hér á landi. Eftirtaldar geröir Chrysler-bíla eru til afgreiðslu
með stuttum fyrirvara:
CHRYSLER
Þetta er oinn glæsilégasti bíll sem þú getur valið þér á
nýju ári. Lebáron hefur vakið athygli fyrir glæsileika og
íþurð. Hér er bíllinn fyrir þá sem aðeins vilja það besta.
Aspen er einn vinsælasti fólksbill hér á landi, enda hefur
hann margsannað kosti sína. Eigum til bæði 2ja og 4ra
dyra bíla, auk þess station. Bílarnir eru sjálfskiptir með
vökvastýri og deluxe-búnaði.
Vlymoutfi
Plymouth Volaré á stóran aðdáendahóp á íslandi, enda
bíllinn búinn frábærum kostum, sem auka ánægju
ökumannsins, fyrir utan það að hann, ásamt öðrum
Chrysler-bílum skilar ætíð háu endursöluverði. Eigum
til 2ja og 4ra dyra, auk þessstation-bilinn. Alltglæsilegir
vagnar, með sjálfskiptingu og vökvastýri.
CHRYSLER
HORIZON
Þetta er bíllinn sem valinn hefur verið bíll ársins 1978 í
Evrópu og Ameríku, en það hefur aldrei skeð fyrr að
sami bíllinn beri af beggja vegna Atlantshafsins á sama
tíma. Þetta er fimm dyra, fimm manna, framhjóladrifinn
fjölskyldubíll frá Chrysler France. Þrjár útgáfur til að
velja úr. Hér er bíllinn sem'fjölskyldan hefur verið að
leita að.
Hafið samband við okkur þegar í stað og veljiö ykkur
glæsilegan fararskjóta frá CHRYSLER.
Sölumenn CHRYSLER-SAL 83454 og 833ö0
ö Ifökull hf.
ÁRMÚLA 36, Símar 84366 - 84491
Umboðsmenn: ÓSKAR JÓNSSON Neskaupstaö
SNIÐILL HF. - Akureyri. BÍLASALA HINRIKS Akranesi