Morgunblaðið - 28.12.1978, Side 32
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 1978
Banaslys við
Bláfjallaveg
25 ÁRA gamall Selfyssing-
ur beið bana í umferðar-
slysi á Suðurlandsvegi
skammt frá afleggjaranum
í Bláfjöll í gærkvöldi.
Tildrög slyssins voru þau
að pilturinn sem lést var á
Borinn
Jötunn
leigður til
Fœreyja?
MÖGULEIKAR eru á því að
Orkustofnun leigi borinn Jöt-
un til Pæreyja á næsta ári.
Færeyingar hafa hug á að
bora 3000 metra djúpa holu
til að rannsaka jarðlög og er
þarna eingöngu um jarð-
fræðilega könnun að ræða.
Hafa þeir rætt við forstöðu-
menn Orkustofnunar um
leigu á Jötni, en einnig kemur
til greina að þeir fái bor
annars staðar frá. Viðræður
um þetta mál eru á frumstigi
og skýrist það varla fyrr en
eftir nokkrar vikur.
austurleið á bíl sínum og er
hann nálgaðist Bláfjallaaf-
leggjarann fór hann fram
úr vörubifreið. Afturljós
vörubifreiðarinnar voru
óhrein og sáust illa. Nam
pilturinn því staðar fyrir
framan vörubifreiðina til að
vekja athygli ökumanns
hennar á þessu.
Þeir gengu saman aftur
fyrir vörubílinn, en á leið
fram með honum aftur bar
að þriðju bifreiðina á
austurleið og lenti á
mönnunum tveimur. Öku-
maður vörubifreiðarinnar
kastaðist í götuna, en
slasaðist lítið. Selfyssingur-
inn mun hins vegar hafa
látist samstundis.
UNG stúlka slasaðist talsvert í bflveltu á Grindavíkurvegi aðfararnótt Þorláksmessu og var hún flutt
á sjúkrahúsið í Keflavík. í bifreiðinni voru þrjú ungmenni á leið frá Reykjavík og missti stúlkan, sem
ók bflnum. vald á honum í hálku. Bifreiðin tókst á loft og kastaðist á mikilli ferð upp á klettinn, sem
sést á myndinni. Bifreiðin er mikið skemmd og var mildi að slys skyldu ekki verða meiri. Stúlkan sem
ók hafði ekki ökuréttindi. (ljósm. Guðfinnur).
Mosfellssveit og Garóabær:
Óbreyttur afsláttur
á fasteignasköttum
í MOSFELLSSVEIT og Garðabæ hefur verið ákveðið að
afsláttur af fasteignaskatti verði óbreyttur á næsta ári
miðað við það sem var á þessu ári. í Mosfellssveit verður
hann 25%, sem þýðir að álagningarhlutfallið verði 0.375 af
fasteignamati. I Garðabæ verður afslátturinn 20% eða
0.4% álagning. Til samanburðar má geta þess að í
Reykjavík hefur verið ákveðið að fasteignaskattur af
íbúðarhúsnæði verði 0.5% á næsta ári í stað 0.421% áður.
Reynt að ná
Álafossi út
1 ÐAG verður gerð tilraun til að ná
Álafossi, skipi Eimskipafélags
íslands, af strandstað í innsigling-
unni til Hornafjarðar. Flóðhæð
verður í dag svipuð og var er skipið
strandaði viku fýrir jól. Björgunar-
skipið Goðinn hefur verið eystra
siðan fyrir jól og á að reyna að losa
skipið af strandstaðnum. Ekkert
tjón er talið hafa orðið á skipinu, en
það situr á sand- og leirbotni.
Að sögn Salóme Þorkelsdóttur
varaoddvita sveitarstjórnar Mos-
fellssveitar lagði meirihluti sjálf-
stæðismanna í Mosfellssveit til að
afsláttur af fasteignagjöldum yrði
óbreyttur og var það samþykkt
samhljóða. í Garðabæ var hins
vegar ekki eining um afsláttinn og
fulltrúi Alþýðubandalagsins í
bæjarstjórn lagði til 0.5% álagn-
ingu eins og í Reykjavík og einn
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins lagði
Yfirvöld í Skotlandi:
Banna innflutning á
laxahrognum héðan
FYRIRTÆKIÐ Norðurlax gerði á síðasta sumri samning við
skozkt fyrirta'ki um sölu á 100 þúsund augnhrognum til
Skotlands og áttu þau að afhendast í febrúarmánuði næst-
komandi. Fyrir nokkru barst fyrirtækinu bréf um að samningar
gætu ekki staðið. þar sem yfii*völd í Skotlandi heíðu synjað um
innfiutning á laxahrognum frá íslandi þar scm þar hefði fundist
nýrnaveiki í laxi.
Að sögn Björns Jónssonar á
Laxamýri voru hrognin tekin úr
klaklaxi úr Laxá í Aðaldal á
síðasta sumri er samningar
höfðu verið gerðir um sölu á 100
þúsund augnhrognum til Vester
Ross Salmon-klakstöðvarinnar í
Skotlandi. Samningurinn hljóð-
aði upp á 1.2 milljónir króna og
sagði Björn að útlagður kostn-
aður næmi nú um 600
þúsundum.
Fyllstu varkárni hefði verið
gætt í meðferð hrognanna. Þau
hefðu verið sótthreinsuð við
klakið og sömuleiðis hefði átt að
sótthreinsa þau fyrir
afhendingu. Páll Pálsson yfir-
dýralæknir og Sigurður Helga-
son fisksjúkdómafræðingur
hefðu skoðað hrognin og sömu-
leiðis héraðsdýralæknir. Ekkert
hefði komið fram, sem benti á
sjúkdóma og nákvæmlega hefði
verið farið eftir öllum reglum.
Síðan hefði það gerzt fyrir
nokkru að hinu skozka fyrirtæki
hefði verið synjað um inn-
flutningsleyfi á laxahrognum
héðan. Yfirvöld í Skotlandi
greindu fyrirtækinu frá að
algjörlega væri bannað að flytja
inn laxaseiði frá íslandi, þar
sem nýrnasjúkdóms hefði orðið
vart í laxi í Iaxeldisstöð á
Islandi.
— Okkur finnst þetta óþarfa
tortryggni, sagði Björn Jónsson
í gær. — Við höfum farið
nákvæmlega eftir öllum reglum
og engin tengsl hafa verið á
milli stöðvarinnar á Laxamýri
og Laxalóni. Þetta setur okkur í
stökustu vandræði, en þessari
ákvörðun verður ekki breytt,
þessi sjúkdómsstimpill virðist
kominn á allan lax frá íslandi,
sagði Björn. Þess má geta að frá
Laxamýri hefur á undanförnum
árum verið flutt út töluvert af
laxaseiðum til Noregs.
til að álagningin yrði 0.375 eins og
í Mosfellssveit, en eins og áður
sagði var ákveðið að hún yrði
0.4%.
— Við hefðum gjarnan viljað
ganga lengra í þá átt að minnka
álögur á gjaldendur en því
miður var það ekki hægt vegna
aðkallandi framkvæmda, sagði
Salome Þorkelsdóttir í samtali við
Morgunblaðið í gær. — Við teljum
álögur í það miklu hámarki og
skattheimta opinberra aðila virð-
ist stefna í það að verða langt
umfram það sem hægt er að bjóða
fólki. Því miður hefur fólk ekki
lengur ráðstöfunarrétt yfir eigin
fé, sagði Salóme.
í Mosfellssveit eru um 850
gjaldendur og ef allir tekju-
stofnar sveitarfélagsins væru
nýttir til fulls þýddi það 100
þúsund krónum minna ráðstöfun-
arfé fyrir hvern gjaldenda að
meðaltali.
Daglegir fund-
ir um fiskverð
DAGLEGIR fundir standa nú yfir
hjá Verðlagsráði sjávarútvegsins
um nýtt fiskverð sem'taka á gildi
um áramótin. Að sögn Kristjáns
Ragnarssonar miðaði lítið á fundi
í ga*r, cn annar fundur hefur
verið boðaður kl. 14 í dag.
Kristján Ragnarsson sagði að
ákvörðun hefði verið tekin um það
á fundinum í gær að falla frá
hugmyndum um að afli skyldi
verðlagður eftir meðalþyngd í
farmi, en hugmyndir um það hafa
verið til umræðu undanfarið.
Sagði Kristján að menn vildu gefa
sér tíma til að ræða þær hugmynd-
ir nánar og athuga ýmsar hliðar á
þeim áður en ákvörðun um
hugsanlegar breytingar yrðu
teknar, sem yrði þá e.t.v. meö
vorinu.
r
Isafjörður:
Stórinnbrot á árinu
1977 upplýst 1 gær
RANNSÓKNARLÖGREGLA
ríkisins upplýsti í gær stórinn-
brot í úrsmíðavinnustofu Axels
Eirikssonar á ísafirði árið 1977,
en þar var stolið úrum og
skartgripum að verðmæti um hálf
rniljón króna.
Nýlega barst Rannsóknar-
lögreglunni vitneskja, sem leiddi
til þess að málið upplýstist. Var
þjófurinn handtekinn í Reykja-
vík, þar sem hann býr og játaði
hann á sig afbrotið. Vísaði
þjófurinn á þýfið, sem var í
geymslu hjá kunningja hans, og
komst það mestallt til skila.