Morgunblaðið - 29.12.1978, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1978
Örfáar athugasemdir við
ævisögu Tryggva í Miðdal
Ymsir hafa komið að máli við
undirritaðan og beðið hann að
gera athugasemdir við rangfaersl-
ur sem er að finna í Veiðihug
Tryggva Einarssonar frá Miðdal,
sem er e.k. æviminningabók. Hefi
ég dregið það af ásettu ráði fram
yfir jólaös, því ekki er vinsælt að
verða til þess að spilla sölu meðan
á aðventuvertíð stendur, svo mjög
sem forleggjarar og höfundar
berjast í bökkum í kúltúrviðleitni
sinni. En því eru þessar athuga-
semdir settar hér fram, að skyldi
einhver opna svona bók þegar flóð
Kristmessunnar hefur skolað
henni upp í þarabrúk gleymskunn-
ar ásamt fjölda annarra jafn-
merkna, væri það helst til þess að
huga að einhverjum fróðleiksmol-
um um mannlíf í Mosfellssveit og
er þá betra að ranghermi séu
einhvers staðar til betri vegar
færð.
I kafla sem höfundur eða
segjandi bókarinnar ræðir um
sveitunga sína er minnst á Odd
Björnsson, sem bjó um tíma í
Kálfakoti (nú Úlfarsá) sbr. bls. 55.
Oddur þessi var alkunnur maður
og bjó langa tíð í Þverárkoti næstu
sveit, en hann var Einarsson ekki
Björnsson. Hann drukknaði ekki í
Þverá eins og segir í téðri bók
heldur í Grafará á leið heim til sín
eða þó líklega öllu heldur eftir að
hafa borist af hesti sínum út í
Leirvogsá, sem var í foraðsvexti
þann dag.
Tryggva rangminnir líka föður-
nafn næsta nágranna síns, Ólafs
sem bjó um skeið í Sunnuhlíð og
nú er nýlátinn (sbr. bls. 182) og
nefnir hann Benediktsson. Ólafur,
sem rak síðustu ár sín alþekkt kjöt
og reykiðjufyrirtæki í Reykjavík
og upp á Geithálsi, var sonur
þeirra merkishjóna Benónýs
Helgasonar og Guðnýjar Magnús-
dóttur, sem lengi bjuggu við mikla
rausn á Háafelli í Skorradal. Var
hann albróðir Helga Benónýsson-
ar, kunns athafnamanns og rithöf-
undar í Vestmannaeyjum og
þeirra fleiri systkina og sýnist
vorkunnarlaust að vita faðerni
hans rétt. Ólafur var einnig mikill
náttúruskoðari og afburða veiði-
maður þótt lítt fengist hann við að
segja af sér sögur.
Eitt ranghermi enn er rétt að
leiðrétta. Á bls. 137 er talað um að
Gísli Hansson frá Fitjakoti hafi
farist af voðaskoti, en hið rétta er
að Gísli féll af hesti er fældist með
hann á Leirvogsárbrú skammt frá
Varmadal og lést af völdum
höfuðhöggs er hann fékk í fallinu.
Svona missagnir, eða ætti kanski í
þessu tilviki að kalla þetta feilskot
er leiðinleg og óþörf, jafnvel þó
menn komist í bókmenntalegan
veiðihug. Skrásetjara bóka af
þessu tagi verður ekki álasað þó
þeir riti niður missagnir, en þeim
ætti að vera ljós sú ábyrgð sem
fylgir því að birta gagnrýnislaust
frásagnir manna er komast á visst
aldurskeið. Við skjótan yfirlestur
hefi ég ekki fundið fleiri rang-
færslur sem til skaða séu, þó
ýmislegt mætti tína til. Margt er
t.d. sagt frá ætt og uppruna
Miðdalsbóndans sjálfs og vonandi
er þar rétt tíundað og samkvæmt
kirkjubókum. Hitt, þó að refa-
skyttan frá Miðdal geri sér það til
dundurs í ellinni að varpa tað-
kögglum á leiði látinna samferða-
manna sinna ýmissa, tekur ekki
um að fást. Þar ræður lunderni og
meðfædd smekkvísi hvers og eins.
Með þökk fyrir birtinguna
E.J. Stardal.
þið fljúgið
í vcstur
til New York
Búiðá
lúxus hóteli
í tveggja manna herbergi,
með eða án eldunaraðstöðu,
^=r s. eða í hótelíbúð.
f 1
Svosuður
á sólarstrendur Florida.
Snæðið
safaríkar amerískar
steikur.
(Með öllu tilheyrandi).
Flatmagið
á skjannahvítri Miami
ströndinni eða buslið
í tandurhreinum sjónum.
Islenskur
fararstjóri
verður að.sjálfsögðu öllumhópnum til halds og trausts.
Næstu 3ja vikna ferðir verða«
4. og 25. janúar, 15. febrúar, 8. og 29. mars. Búið er á Konover hóteli,
Konover íbúðum eða í Flamingo Club íbúðum.
Um margskonar verð er að ræða. T.d. getum við boðið gistingu í tvíbýlisherbergi á hótelinu
í 3 vikur, og ferðir, fyrir kr. 331.000.- en ódýrari gisting er einnig fáanleg,
búi t.d. 4 saman í stórri íbúð. Fyrir börn er verðið rúmlega helmingi lægra.
FLUGFÉLAG LOFTLEIBIfí
/SLANDS
Nánari upplýsingar: Söluskrifstofur okkar Lækjargötu 2 og Hótel Esju, sími 27800, farskrárdeild,
sími 25100, skrifstofur okkar úti á landi, umboðsmenn og ferðaskrifstofur.
Messuklæði
vígð í Bú-
staðakirkju
VIÐ messu annan dag jóla var
vígður hökull, sem gefinn er
Bústaðakirkju til minningar um
Björn Guðnason, Fellsmúla 6.
Björn var aðeins 3ja ára gamall,
þegar hann veiktist skyndilega og
dó eftir aðeins stutta legu á
sjúkrahúsi, fjórða desember síðast
liðinn. Björn er sonur hjónanna
Þórunnar Haraldsdóttur og Guðna
Jónssonar.
Bústaðasöfnuður þakkar
gefendum og biður Birni litla og
ástvinum hans blessunar Guðs.
Húsavík:
Hvít, helg og
friðsæl jól
Ilúsavík 27. desember
ELZTI borgari Húsavíkur, Guðr-
ún bórðardóttir, 99 ára, sagði í
viðtali við Morgunblaðið í gær, að
hún myndi ekki aðra eins veður-
blíðu eins og verið hefði í allt
haust og þá sérstaklega hvað
descmber hefði verið góður.
Mundi hún þó tfmana tvenna því
einu sinni man hún hvítasunnu f
grenjandi stórhríð.
Sem dæmi um veðurblíðuna yfir
jóladagana má nefna að logað
hefur daglangt á vaxkertum í
kirkjugarðinum bæði á aðfanga-
dag og jóladag. Hér hafa menn því
lifað hvít, helg og friðsæl jól.
Fréttaritari.
Kveikt í bát
KVEIKT var í vélbátnum Stefáni
Kristjánssyni SH 159 í fyrrinótt,
þar sem báturinn lá í Reykjavíkur-
höfn. Ljóst var á ummerkjum að
brotizt hafði verið inn í brú
bátsins og lyf tekin úr lyfjakassa
og er talið líklegt að þjófarnir hafi
kveikt í bátnum. Talsverðar
skemmdir urðu á brúnni.
Nú getur þú valið um
botnum, 6 og 12 manna
manna