Morgunblaðið - 19.01.1979, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1979
Sjónvarp í kvöld kl. 22.05:
Flothýsið
Kastljós:
„Flothýsið*4 nefnist bandaríska gamanmyndin, sem hefst
í sjónvarpi í kvöld kl. 22.05.
I myndinni segir frá ekkjumanni, Tom Winston, sem
kemur heim til þriggja barna sinna og er í hálfgerðum
vandræðum með hópinn, og koma ýmis vandamál upp í
uppeldinu.
Af tilviljun hittir hann ítalska dótturfrægs hljómsveitar-
stjóra sem hann fær sem fóstru handa börnunum til
bráðabirgða, en síðan ætla þau í sumarleyfi.
Margt fer öðruvísi en ætlað er. Sumarleyfið byrjar illa og
það endar með því að Winston verður að taka á leigu
báthýsi, sem er mikið skrifli og ýmsir hlutir taka að gerast.
Sophia Lorcn og Cary Grant. en þau fara með aðalhiutverkin í
myndinni Flothýsið, sem hefst í sjónvarpi í kvöld kl. 22.05.
Lek þök — Innsiglingin í
Höfn — Reyklaus dagur
KASTLJÓS hefst að vanda í
sjónvarpi í kvöld kl. 21.05
og er í umsjón Ómars
Ragnarssonar en honum til
aðstoðar er Sæmundur
Guðvinsson blaðamaður.
í þættinum verða þrjú mál
á dagskrá.
Fjallað verður um leka í
nýjum byggingum og þá
sérstaklega tekinn fyrir leki í
þökum. Viðmælandi Ómars
verður Hilmar Ólafsson, for-
maður Arkitektafélags Is-
lands.
Þá verður rætt um vanda-
mál við innsiglinguna á Höfn
í Hornafirði, en innsiglingin í
höfnina hefur verið verri en
Skeggi Ásbjarnarson.
Útvarp í dag kl. 11.00:
w
Eg man það enn
„Nú er fyrsti þorradagur og um leið miður
vetur, en um þetta er spjallað svolítið
samkvæmt gamalli þjóðtrú,“ sagði Skeggi
Ásbjarnarson, umsjónarmaður þáttarins Eg
man það enn, sem hefst í útvarpi í dag kl.
11.00.
„Vitnað verður í Islenzka þjóðhætti Jónasar
Jónassonar frá Hrafnagili og segir skemmti-
lega frá, þegar bændur fóru snemma á fætur
og hoppuðu fáklæddir í kringum bæinn á
einum fæti.
Þá eru kvæði og lög um veturinn, þar sem
sólargangur er ennþá stuttur verður í lögunum
að notast við tungl, norðurljós og stjörnur.
Meðal laganna, sem leikin eru, er Til
stjörnunnar eftir Garðar Cortes, sem kór
Söngskólans syngur. í tilefni bóndadagsins
syngur Karlakórinn Goði lagið Bóndi, lag eftir
Maríu Brynjólfsdóttur við texta eftir Sigurð
Júlíus Jóhannesson. Þá er erlent þjóðlag
sungið við texta Jónasar Árnasonar, Þungt
ymur þorrinn, í flutningi Þriggja á palli.
Einnig verða lesnar þjóðsögur, sem skráðar
eru í Þjóðsögum Ólafs Davíðssonar og heita
þær „Þetta skal ég muna þér, Manga" og úr
sögunni um Ingibjörgu í Kalmanstungu.
Lesari er Knútur R. Magnússon.
oft áður og ýmsum breyting-
um háð. Hugsanlegar orsakir
verða skýrðar og verður í því
sambandi rætt við sveitar-
stjórann á Hornafirði, Sig-
urð Hjartarson, og einnig við
aðila frá vitamálaskrifstof-
unni. Sýndar verða myndir
og kort frá Hornafirði til
skýringa.
Að lokum verður fjallað
um undirbúning að „reyk-
lausa deginum“, sem ákveð-
inn hefur verið þriðjudaginn
23. janúar og er það sam-
starfsnefnd um reykinga-
varnir, sem gengst fyrir því.
Stefnt er að því, að reykinga-
menn reyki ekki þennan dag
og noti helzt tækifærið til að
hætta alveg. Umsjón þessa
máls í þættinum er í höndum
Sæmundar Guðvinssonar.
Útvarp Reykjavfk
FÖSTUDKGUR
19. janúar
MORGUNNINN______________
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
8.25 Morjjunpósturinn.
Umsjónarmenn. Páll Ueiðar
Jónsson og Sigmar B.
Ilauksson. (8.00 Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustu-
greinar dagbl. (útdr.)
Ilagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir
ýmis liig að eigin vali. 9.00
Fréttir.
9.05 Morgunstund harnanna.
Viðar Eggertsson lýkur
lestri sögunnar um „Gvend
hónda á Svínaíelli" eftir J.R.
Tolkien í þýðingu
Ingihjargar Jónsdóttur (8).
9.20 Leikfimi.
9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10
Veðurfregnir.
M rgunþulur kvnnir ýmis
l.ig. — frh.
I I (.> / Eg man það enn. Skeggi
\ ojarnarson sér um
þi tinn.
11.35 Morguntónleikar. André
Watts leikur „Sex Paganini
etýður" eftir Franz Liszt.
SÍÐDEGIÐ
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar.
Við vinnuna. Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan. „Ilúsið
og hafið" eftir Johan Bojer
Jóhannes Guðmundsson
þýddi. Gísli Ágúst
Gunnlaugsson les (3).
15.00 Miðdegistónleikar.
Sinfóníuhljómsveitin í
Birmingham leikur Divert-
issement fyrir kammersveit
eftir Jaques Ibert< Louis
Fremaux stj./ Illjómsveit
franska útvarpsins leikur
„Saudades do Brazil" dansa-
svítu eftir Darius Milhaud.
Manuel Rosenthal stj.
15.40 Lesin dagskrá næstu
viku.
lfi.OO Fréttir. Tilkynningar.
(lfi.15 Veðurfregnir).
lfi.20 Popphorn. Dóra Jóns-
dóttir kvnnir.
17.20 Útvarpssaga harnanna.
„Dóra og Kári" eftir Ragn-
heiði Jónsdóttur. Sigrún
Guðjónsdóttir les (9).
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Samtalsþáttur. Guðrún
Guðlaugsdóttir ræðir við
Ilauk Þorleifsson fyrrum
aðalhókara( síðari hluti.
20.05 Frá tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands í
Iláskólahfói kvöldið áður.
Stjórnandi. Gilbcrt Levine
frá Bandarikjunum. Ein-
leikari. Guðný Guðmunds-
dóttir.
FÖSTUDAGUR
19. janúar
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.35 Á Icrð með Hillary
Þessi mynd er um siglingu
Sir Edmunds Hillarys og
féiaga hans á þotubát upp
eftir fljóti á Nýja Sjálandi.
Þýðandi og þulur Bogi Arn-
ar Finnhogason.
21.05 Kastljós ’
Þóttur um innlend Málefni.
Umsjónarmaður Ómar
Ilagnarsson.
22.05 Flothýsið
(Houseboat)
Bandarísk gamanmynd frá
árinu 1958. Aðalhiutverk
Gary Grant og Sophia
Loren.
Tom Winston verður óvænt
að verða börnum sínum bæði
faðir og móðir. Hann kynn-
ist dóttur frægs ftalsks
hljómsveitarstjóra og býður
henni starf ráðskonu.
Þýðandi Bjarni Gunnarsson.
23.50 Dagskrárlok.
a. „Sólglit" svíta nr. 3 eftir
Skúla Halldórsson.
b. Fiðlukonsert í D-dúr op.
77 eftir Johannes Brahms.
21.05 Hver er Moon?
Halldór Einarsson flytur
erindi um safnaðarleið-
togann Sun Myung Moon og
kenningar hans.
21.30 Kórsöngur.
Bodensee madrigalakórinn
syngur á hijómleikum í
Bústaðakirkju s.l. sumar.
Stjórnandi/ Heinz Bucher.
a. Evrópskir madrigalar.
h. Suður amerísk og þýzk
þjóðlög.
22.05 Kvöldsagani „Ilin hvítu
segl" eftir Jóhannes Helga.
Ileimildaskáldsaga byggð á
minningum Andrésar P.
Matthíassonar.
Kristinn Reyr les (fi).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.50 Bókmenntaþáttur. Um-
sjónarmaðurt Anna Ólafs-
dóttir Björnsson.
23.05 Kvöldstund
með Sveini Einarssyni.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.