Morgunblaðið - 19.01.1979, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1979
Mývatnssveit:
Kísildæling hafin
fyrr en veniulega?
Björk, Mývatnssveit — 18.
janúar.
í GÆR kl. 14.50 sleit krani
raflínuna skammt vestan við
Kísiliðjuna. Viðgerð lauk ekki
fyrr en kl. að ganga tíu í
Kærkvöldi. Var því nálega 7 tíma
framieiðslustopp hjá verksmiðj-
unni. Ennfremur varð hitaveitan
í Reykjahiíðar ok Vogahverfi
óvirk.
Ohaæp sem þetta er lítt skiljan-
legt, því að auðvitað verða þeir,
sem með krana fara, að gæta
fyllstu varúðar þegar aka þarf
undir raflínu eins og var í þessu
tilfelli. Verulegt framleiðslutjón
varð hjá Kísiliðjunni þennan tíma
sem rafmagnslaust var, auk margs
konar annarra óþæginda. Á síð-
asta ári voru framleidd tæp 21
þúsund tonn af kísilgúr að brúttó-
útflutningsverðmæti um 1,5 millj-
arðar króna. Má það teljast mjög
gott miðað við allar aðstæður í
hráefnisþróm fyrrihluta ársins.
FÆRÐ ER nú með bezta móti á
aðalleiðum um allt land, hláka
víðast hvar án þess þó að komið
hafi til teljandi vatnavaxta vegna
þess að úrkomulaust hcfur verið.
Til að mynda var í gær greið-
fært allt austur til Egilsstaða,
fært milli Þingeyrar og Isafjarðar
og um Holtavörðuheiðina allt
norður í land til Akureyrar og
Ekki er fyllilega ljóst hvort
hráefni í nýju þrónni í Kringlu
nægir þar tif dæling getur hafizt í
vor. Ef svo reynist við könnun, að
ekki sé nægilegt hráefni, verður
athugað hvort unnt er að hefja
dælingu fyrr en vanalega. í því
sambandi er helzt talað um
Kálfstjörn sem hugsanlegan hrá-
efnistökustað. Þar er til dæmis
ætíð íslaust og þess vegna virðist
tæknilega séð hægt að dæla þar að
vetrarlagi. Á þessu stigi er þó ekki
vitað um hráefnismagn í Kálfa-
SVAVAR Gestsson viðskiptaráð-
herra og Þórhallur Ásgeirsson
ráðuneytisstjóri halda til Portú-
gals um helgina til samningavið-
Húsavíkur og þaðan áfram með
stórum bílum til Vopnafjarðar.
Eins var fært í Siglufjörð og til
Olafsfjarðar.
Víða er þó töluverð hláka á
vegum, sem vegaeftirlitið biður
bifreiðastjóra að vara sig á en
víðast hvar vestan- og suðvestan-
lands eru vegir þó meðfram
ströndinni orðnir hreinir.
tjörn en verður trúlega kannað hið
fyrsta.
Á síðasta ári nam heildarsala í
útibúi Kaupfélags Þingeyinga í
Reykjahlíð um 150 milljónum
króna. Sigtryggur Albertsson sem
verið hefur útibússtjóri undanfar-
in ár, lét af því starfi nú um
síðustu áramót og fluttist til
Húsavíkur. Hér með eru honum
þökkuð frábær störf og ágæt
viðkynning.
Hér er hið fegursta veður í dag
og vegir greiðfærir. — Kristján.
ræðna við portúgölsk stjórnvöld,
aðallega um aukin olíukaup
íslendinga frá Portúgal og til
þess að undirbúa saltfisksölu-
samninga. Portúgalir hafa óskað
eftir mun meiri viðskiptum við
ísland. en þeir hafa keypt mun
meira af okkur en við af þeim. Nú
er ráðgert að auka verulega
oh'usöluna eða úr 35 þús. tonnum
af gasolíu samkvæmt fyrsta
samningnum í 50 þús. tonn og úr
7 þús. tonnum af benzi'ni í 20 þús.
tonn.
Ef af þessu verður munu Islend-
ingar kaupa 20% af benzíni til
landsins frá Portúgal og um 25%
af gasolíu, en jafnhliða verður
dregið úr kaupum á þessari vöru
frá Sovétríkjunum. Á s.l. ári
keyptu íslendingar um ,90 þús.
tonn af benzíni frá Sovétríkjunum,
200 þús. tonn af gasolíu og um 130
þús tonn af brennsluolíu.
Olíusamningar íslands við
Portúgal hafa bætt mjög við-
skiptastöðuna og sem dæmi má
nefna að á s.l. ári höfðu Islending-
ar keypt ýmsar vörur frá Portúgal
fyrir 600 millj. kr. þegar 7000
tonna benzínfarmur og 10 þús
tonn af gasolíu komu til landsins
að verðmæti 900 millj. kr.
VR-viðrædum
frestað í viku
FUNDUR var í undirnefnd í gær í
deilu Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur og vinnuveitenda
þeirra. Á þessum fundi kváðust
fulltrúar vinnuveitenda ekki til-
búnir til frekari viðræðna fyrr en
þeir hefðu í höndum gögn sem
verið væri að afla og óskuðu eftir
fresti á viðræðunum í eina viku.
Hefur því næsti fundur verið
boðaður nk. fimmtudag.
Olga á Tímanum?
ORÐRÓMUR er nú á kreiki um
að ágreiningur sé meðal for-
svarsmanna Dagblaðsins
Tímans, þcirra Jóns Sigurðs-
sonar ritstjóra og Kristins
Finnbogasonar, framkvæmda-
stjóra, og að Samband ungra
framsóknarmanna hafi nýverið
samþykkt stuðningsyfirlýs-
ingu við Jón Sigurðsson.
Morgunblaðið spurðist fyrir
um þetta hjá þeim
tvímenningum.
„Ég held að það sé mis-
skilningur að um sé að ræða
einhverjar væringar með mér og
ritstjóunum," svaraði Kristinn
þegar leitað var staðfestingar
hjá honum á þessu. „Starfssvið
okkar eru alveg aðgreind og það
er mitt að sjá um fjármálin. Þó
verður alltaf að vera visst
samstarf þarna á milli og ég hef
ekkert undan þessu samstarfi að
kvarta.“
Morgunblaðið spurði Jón
Sigurðsson ritstjóra um ályktun
SUF og þá jafnframt hvort
einhverjar þær væringar væru
með honum og öðrum starfs-
mönnum blaðsins, að til upp-
sagna hefði komið. Jón svaraði:
„Ég tók ekki þátt í undirbúningi
þessa fundar og vissi ekki til
þess að slík ályktun væri í
bígerð. Ég var ekki á fundinum
vegna anna annars staðar og ég
veit ekki hvernig þetta mál var
tekið upp á fundinum né heldur
hverjir það gerðu.“
Hláka, góð færð
en mikil hálka
Viðskiptaráðherra til Portúgals:
Semja um aukningu á olíu-
og benzínsölu til íslands
Ingibjörg Hjörleifs-
dóttir—Kveðja
Fædd 10. desember 1915.
Dáin 9. janúar 1979.
Nokkur fátækleg kveðjuorð um
Ingibjörgu, vinkonu mína, megna
ekki að lýsa þeim harmi og
söknuði, sem fráfall hennar vekur
með okkur vinum hennar og
vandamönnum. Hún andaðist í
Borgarsjúkrahúsinu þann 9.
janúar s.l., eftir langa og hetjulega
baráttu við þann sjúkdóm, sem að
lokum náði yfirhöndinni.
Ingibjörg var fædd 10. desember
1915 að Starmýri í Álftafirði,
dóttir hjónanna Guðrúnar Jóns-
dóttur og Hjörleifs Brynjólfsson-
aú bónda þar. Móður sína missti
Ingibjörg ung, svo og eina bróður
sinn, Vilhjálm, sem dó ungur
maður við nám á Héraðsskólanum
Laugarvatni. Hjörleifur, faðir
Ingibjargar, dvaldi á heimili
hennar yfir 20 ár og andaðist í
Norðfirði árið 1974. Var það í
samræmi við skaplyndi Ingibjarg-
ar og myndarskap, hvernig hún
bjó að föður sínum í ellinni.
Sem ung stúlka kom Ingibjörg á
heimili ömmu minnar, Aldísar og
seinni manns hennar Eiríks Þor-
leifssonar í Dagsbrún, Neskaup-
stað, og ætlaði hún aðeins að vera
þar í eitt ár til þess að afla sér fjár
til frekari menntunár. En forlögin
gripu inn í, eins og svo oft. Þar á
heimilinu hitti hún sinn lífsföru-
naut, Björn Eiríksson, föðurbróður
minn, og gengu þau í hjónaband
árið 1936.
Það var mikil hamingja fyrir
okkur öll. Ekki síst mig og mína
fjölskyldu, því Ingibjörg og Björn
byrjuðu sinn búskap í húsi for-
eldra minna og urðu því kynnin og
samskiptin óvenju mikil. Þetta var
nærri því eins og ein fjölskylda og
aldrei bar þar neinn skugga á, en
kærleiksböndin styrktust með ári
hverju.
Þau hjónin eignuðust þrjú börn.
Þau eru: Guðný, sem er við
laganám í Háskóla íslands.
Guðrún, gift Halldóri Kristins-
syni, bæjarfógeta á Bolungarvík,
og Vilhjálmur, rafvirki, búsettur á
Eskifirði, kvæntur Jakobínu
Sörensdóttur.
Ingibjörg var á margan hátt
sérstök kona, skemmtileg, gáfuð
og víðlesin. Skáldskap og kveðskap
vitnaði hún gjarnan í, svo ég
spurði hana fyrir stuttu, hvort hún
Grease í Háskólabíói
— Superman næstur á dagskrá
Hin vinsæla söngva- og dans-
mynd Grcase hefur göngu sína
í' Iláskólahíói á morgun.
Myndin er gerð á síðasta ári
og framleidd af Robert
Stigewood og Allan Carr.
Handritið er eftir Bronte
Woodard en tónlistin eftir Jim
Jacobs og Warren Casey. Leik-
stjóri er Randal Kreisler en
með aðalhlutverkin í myndinni
fara þau John Travolta og
Olivia Newton-John. Auk
þeirra fara Stockard Channing
og Jeff Conway mcð stór
hlutverk í Grease.
Kvikmyndin Grease er gerð
eftir leikriti sem sett var á svið
á Broadway árið 1972 þar sem
það er enn sýnt. Myndin lýsir
lífi í menntaskóla í Banda-
ríkjunum á árunum milli 1950
og 1960. Danny er einna vinsæl-
astur í hópi nemenda. Hann
verður hrifinn af Sandy en það
gengur nokkuð erfiðlega fyrir
hann að vingast við hana.
Næsta mynd sem sýnd verður
í Háskólabíói nefnist Superman
sem er leikin mynd um teikni-
myndahetjuna Superman. Leik-
stjóri er Richard Donner en með
titilhlutverkið í myndinni fer
ungur áður óþekktur leikari
Christopher Reeve. Superman
hefur vakið gífurlega athygli
erlendis og þess má geta að
Carter Bandaríkjaforseti tók
dóttur sína Ami með sér í bíó til
að sjá Superman og slíkt hið
sama gerði Elísabet Breta-
drottning við Andrew prins.
Vitni vantar að
tveimur árekstrum
ÞRIÐJUDAGINN 5 desember
s.I. Iaust eftir klukkan 11 f.h.
varð árekstur milli Landrover-
jeppa og Austin mini-fólksbif-
reiðar á mótum Suðurlands-
brautar og Grensásvegar. Við
áreksturinn fór Landroverbif-
reiðin á hliðina. Slysarann-
sóknadeild lögreglunnar þarf
nauðsynlega að ná tali af
vitnum að þessum atburði og er
sérstaklega leitað eftir vitnum í
blárri Volkswagenbifreið, sem
beið á vinstri akrein Suður-
landsbrautar og ætlaði að
beygja yfir á Grensásveg.
Þá vantar einnig vitni að
árekstri, sem varð milli
Citroenbifreiðar og Datsunbif-
reiðar á Höfðabakka við Vestur-
landsveg um klukkan 17,45
föstudaginn 12. janúar s.l. Báðar
bifreiðarnar ætluðu að beygja
vestur Vesturlandsveg af Höfða-
bakkanum en skullu þá saman.
f Lítið barn hef ur lítið sjónsvið
lærði allt sem hún læsi. Hún
svaraði, að kvæði, sem hrifu hana,
hefði hún yfirleitt lært um leið og
hún las þau, þegar hún var yngri,
en ekki nú orðið.
Um fórnfýsi hennar og hjálp-
semi við skylda og óskylda vita
allir, sem til hennar þekktu. Það
voru því margir, sem leituðu ráða
hjá Ingibjörgu. Alltaf stóð heimili
þeirra Ingibjargar og Björns
frænda míns opið öllum á nóttu
sem degi. Allir voru boðnir vel-
komnir í Nýbúð með ástúð og
hlýju. Ég vil undirstrika orðið
heimili, því þar fundu allir sig
heima um leið og þeir komu inn
fyrir dyr. Alls þessa naut fjöl-
skylda mín í ríkum mæli.
Ég veit að ég mæli fyrir munn
ættfólks míns og fjölskyldu, þegar
ég kveð hana hinstu kveðju og
þakka henni alla ástúð í okkar
garð. I þeirri trú að látnir lifi,
vona ég að Ingibjörg fái að starfa
áfram á æðra tilverustigi.
Að lokum vottum við Birni
frænda mínum, börnum þeirra,
tengdabörnum og barnabörnum
okkar dýpstu samúð.
Blessuð sé minning hennar.
Þóra Kristín Eiriksdóttir.