Morgunblaðið - 21.02.1979, Side 1
32 SIÐUR
43. tbl. 66. árg. MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1979 ______________ ___________Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Víetnam - Kína:
Ekkert lát á bardögum
innan landamæranna
Lík hershöfðingjanna, sem teknir
voru af líti í fyrrinótt. Fremst tiL
vinstri er lík Motaadis, sem var
yfirmaður heraflans í Qasvin. fjær
er lík Maliks, sem einnig var hers-
höfðingi í Qasvin. Til hægri er lík
Afahars, yfirmanns keisaravarð-
liðsins, og fjær til hægri er lík
Hamadanians, sem var yfirmaður
öryggislögreglunnar SAVAK í
Kcrmanshah.
(AP-simamynd)
Bangkok, Peking-Moakvu, 20. febrúar. AP. Reuter.
KÍNVERJUM og Víetnömum bar saman um það í kvöld að
bardagar geisuðu enn innan landamæra Víetnams. Kínverjar
kváðu lið sitt halda áfram „að gjalda árásaraðgerðir í sömu
mynt,“ um leið og vísað var á bug fregnum um að hafinn væri
undirbúningur að brottflutningi kínversks herliðs af bardaga-
svæðunum. í Moskvu var í fyrsta sinn látið að því liggja að
Kínverjar „þyrftu að fá ráðningu“ fyrir að ráðast á Víetnam, um
leið og því var haldið fram að Bandaríkjastjórn hefði verið
kunnugt um innrásaráform Kínverja fyrirfram.
Víetnamar segja Kínverja hafa
tögl og hagldir víða í landamæra-
héruðunum. Þá sagði
Hanoi-stjórnin að í gær, mánudag,
hefðu um fimmtán hundruð
manns fallið úr liði andstæðings-
ins, og í New York sagði sendi-
herra Víetnams hjá Sameinuðu
þjóðunum að fimm þúsund Kín-
verjar hefðu fallið í bardögum frá
því að innrásin hófst á laugardag-
inn var. Fulltrúar Víetnam í Pek-
ing lýstu því yfir í dag að tekið
væri á móti Kínverjum af fullri
hörku og beindist flughernaður í
svipinn að gagnárásum, sem riðlað
gætu fylkingum innrásarliðsins.
mærahéruðin er þrálátur orðróm-
ur á kreiki um að Kínverjar hyggi
brátt á brottflutning liðs síns.
Tanjug-fréttastofan segist hafa
það eftir áreiðanlegum heimildum,
að Kínverjar ætli að hætta árásar-
aðgerðum sínum jafnskjótt og
telja megi að þeir hafi valdið
nægilega miklum spjöllum í landa-
mærahéruðunum til þess að Víet-
namar láti sér að kenningu verða.
Muni Kínverjar ljúka erindinu án
þess að setja sérstök skilyrði fyrir
brottflutningi og án þess að tengja
málið veru víetnamsks herliðs í
Kainbódíu.
Aftökum haldið áfram í íran
æsa til óeirða gegn byltingarstjórninni
Áreiðanlegir heimildarmenn í
Bangkok halda því fram að síðasta
sólarhringinn hafi greinilega
dregið úr sókn Kínverja inn í
Víetnam og að mestu bardagarnir
fari fram á belti, sem séu tíu til
tuttugu kílómetra innan landa-
mæranna. Hins vegar séu engin
merki um að Kínverjar séu farnir
að draga lið sitt til baka, en
kínversks liðsauka við landamærin
Kínamegin gæti heldur ekki.
Sendiherra Líbanons i Peking
hafði þá sögu að segja .er hann
kom af fundi Ho Yings, varautan-
ríkisráðherra Kína, í dag, að
aðcrerðunum gegn 'Víetnömum
væri lokið og að Kinverjar hefðu
hafið brottflutning liðs síns yfir
landamærin. Skömmu eftir að
þessi saga komst á kreik gaf
kínverska utanríkisráðuneytið út
afdráttarlausa yfirlýsingu þar sem
fram kom að varautanríkisráð-
herrann hefði aldrei látið sér slíkt
og þvílíkt um munn fara um leið
og því var lýst yfir að ekki væri
um að ræða brottflutning kín-
versks herliðs af víetnömsku land-
svæði.
Þrátt fyrir fregnir af hörðum
bardögum og loftárásum á landa-
Jerúsalem, Washlngton. 20. febr. Reuter.
MIKIL ólga ríkir nú á vestur-
bakka Jórdanárinnar, og hefur
hervörður verið efldur þar veru-
lega á síðustu dögum. Fregnir
herma að Palestínuarabar á
svæðinu hafi espazt mjög við
fregnir af byltingunni í íran og
andstöðu Khomeinis gegn ísra-
elsstjórn og er óttast að veruleg
átök séu í aðsigi.
— marxístar
Teheran, 20. febrú&r. AP.
Byltingarstjórnin í íran
hélt í dag áfram að hefna
harma sinna gegn stjórn
keisarans, en í dagrenn-
ingu voru fjórir hershöfð-
ingjar líflátnir eftir að
byltingardómstóll hafði
fjallað um mál þeirra.
Stjórn Bazargans á í höggi
við marxíska skæruliða,
sem skorað hafa á alþýðu
manna að hefja mótmæla-
aðgerðir gegn stjórninni
nema vinstri sinnar fái
aðild að stjórn landsins. Þá
beindi Carter Bandaríkja-
forseti því til Sovétstjórn-
arinnar í dag, að engin
erlend íhlutun í mál írans
Utanríkisráðherrar ísraels og
Egyptalands eru nú á leið til
Bandarikjanna þar sem nýir Camp
David-fundir hefjast á morgun.
Dauflega horfir um árangur af
fundurtum, en Carter forseti hefur
ítrekað að hann muni hafa for-
göngu um að þeir Sadat og Begin
hittist á ný, ef útlit sé fyrir að
fundir þeirra geti greitt fyrir
yrði liðin, heldur mundi
hún óhjákvæmilega hafa
alvarlegar afleiðingar og
neikvæð áhrif á samskipti
Bandaríkjanna og Sovét-
ríkjanna.
Af hálfu utanríkisráðuneytisins
í Teheran var í dag birt yfirlýsing
þar sem heitið var því að Reza
Pahlevi fengi ekki stundlegan frið
i útlegðinni þar til hann hefði
verið fluttur til írans og sóttur þar
til saka, en frásögn birtist jafn-
framt í Teheran-blaðinu Ettelaat
þar sem skýrt var frá því að
sérstök nefnd hefði fengið það
verkefni að ræna keisaranum. Þá
var einkaþotu keisarans rænt í
Marokko og henni flogið til
Teheran. Var áhöfn þotunnar þar
að verki og við heimkomuna lýsti
einn af fyrrverandi lífvörðum
samkomulagi. Cyrus Vance utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna verð-
ur gestgjafi utanríkisráðherranna
í Camp David, og mun hann ræða
við þá Khalil og Dayan til skiptis á
fyrstu viðræðufundunum. Mikil
áherzla er lögð á að ráðherrarnir
fái næði til viðræðna, og fá blaða-
menn engan aðgang að þeim með-
an þeir dveljast í Camp David.
keisarans því yfir, að þegar að því
kæmi að keisarinn hlyti makleg
málagjöld yrði sér sönn ánægja að
því að verða í aftökusveitinni.
Keisarinn er enn í Marokko, en
orðrómur er á kreiki um að hann
ætli að sækja um landvistarleyfi
fyrir sig og fjölskyldu sína í Sviss.
Hershöfðingjarnir fjórir voru
skotnir á þaki byggingarinnar þar
sem Khomeini trúarleiðtogi hefur
Hohnenkoll-
mótið haldið
- þrátt fyr-
ir allt
Frá Jan Erik Lauré, fréttaritara
Morjíunblaðsins í Ósló.
MINNSTU munaði að fríðleiks-
snót á skiðum, í hikini einu
fata, kæmi í veg fyrir að
Holmenkoll-skíðamótið yrði
haldið í ár. Mynd af þeirri
léttklseddu hirtist á auglýs-
ingaspjaldi, sem var gefið út í
tilefni mótsins. Jafnaðar-
mannaflokkurinn og Kristilegi
þjóðarflokkurinn hafa harmað
að mynd þessi skuii hafa birzt á
auglýsingaspjaldinu og telja
hana niðuriægjandi fyrir
gjörvallt kvenkyn.
Flokkarnir hafa lýst því yfir
að þeir muni ekki samþykkja
fjárframlög til Holmenkoll-
mótsins, endurtaki sig mistök
sem þessi, en slik afstaða jafn-
gilti því að mótið yrði ekki
haldið.
bækistöðvar sínar, en að þeim
meðtöldum hafa átta hershöfð-
ingjar verið líflátnir síðan bylting-
arstjórnin tók völdin í sínar hend-
ur. Talið er að fimmtán mönnum
að minnsta kosti séu búin sömu
örlög, auk þess sem aðstoðarmenn
Khomeinis tala digurbarkalega
um að þeirra fjölmorgu, sem látið
hafi lífið í stjórnartið keisarans,
verði ekki fullhefnt á næstunni.
í dag var allt með kyrrum
kjörum á almannafæri i Teheran,
en ljóst er að Khomeini og stjórn
Bazargans eiga við ramman reip
að draga þar sem eru herskáir
skæruliðar marxista. Khomeini
hefur fordæmt áform þeirra um
mótmælaaðgerðir og lýst því yfir
að þær séu af hinu illa, en ekki er
útlit fyrir að þau ummæli hafi
áhrif á marxista.
Víetnam-
myndir fá
bezta dóma
Los Angeles — 20. febrúar — Reuter
TVÆR kvikmyndir, sem báðar
fjalla um áhrif Víetnamsstyrjald-
arinnar á bandarískt þjóðlff. eru
langlíklegastar til að hljóta
óskarsverðlaunin í ár. Er hér um
að ræða „The Deer Hunter“ og
„Coming Home“. Aðalleikarar
fyrrnefndu myndarinnar. þau
Jane Fonda og Robert de Niro
hafa verið tilnefnd sem beztu
ieikarar ársins fyrir frammistöðu
sína, en auk þess hefur verið lagt
til að Jon Voight, aðalleikarinn í
„Coming Home“ hljóti einnig
þann sæmdartitil.
Ólga á vesturbakka
Jórdanárinnar