Morgunblaðið - 21.02.1979, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1979
Hjartanlegar þakkir til
allra sem glöddu mig
með gjöfum, blómum og
skeytum á sjötugsafmæli
mínu 14. febrúar s.l. Guð
veri með ykkur.
Lára Guómundsdóttir
Sólvallagötu 47,
Keflavík.
r
WIKA
Þrystimælar
Allar stæörir og gerðir.
dJfe(rD®®®ini <S(q)
Vesturgötu 1 6,
simi 1 3280.
Vogar:
Fjölmennur
fundur um
hreppsmálefni
Vogum, Vatnsleysuströnd 19.
feb.
IIREPPSNEFND Vatnsleysu-
strandarhrtpps boðaði til
almenns borgarafundar í
Glaðheimum s.l. fimmtudag til að
ræða fjárhagsáætlun 1979 og
önnur hreppsmál. Fjölmenni var
á fundinum og kraftmiklar
umræður um mörg málefni.
Sveitarstjóri kynnti fjárhags-
áætlun og gerði samanburð á
fjárhagsáætlun milli áranna 1978
og ’79 og niðurstöðum hrepps-
reikninga s.l. árs. Gert er ráð fyrir
að tekjur hreppsins á þessu ári
verði rúmlega 120 milljónir króna,
sem síðan skiptist til helminga í
rekstur og framkvæmdir.
Helstu tekjustofnar eru: útsvar
61,2 milljónir, jöfnunarsjóður 22,6,
og fasteignaskattar 9,3 milljónir.
Helstu rekstrarliðir eru: Fræðslu-
mál 16,5 milljónir, stjórnunar-
kostnaður 9,3 milljónir, almennar
tryggingar (sýslusamlag og
atvinnuleysistryggingasjóður) 7,1
milljón. Helstu framkvæmdir á
árinu eru: Grunnskóli 35 milljónir,
slitlag á Hafnargötu 10 milljónir,
holræsagerð 5,2 milljónir.
Margir tóku til máls á fundinum
um fjárhagsáætlunina og gerðu
athugasemdir eða báðu um nánari
skýringar. Að loknum umræðum
um fjárhagsáætlun voru önnur
hreppsmál. Enn tóku margir til
máls og voru flest málefni hrepps-
ins tekin til umræðu. Fundi var
ekki slitið fyrr en eftir miðnætti
og höfðu þá 24 fundarmanna tjáð
sig um málefni hreppsins.
Tvær tillögur voru lagðar fram á
fundinum, önnur frá Gunnari
Jónssyni, þar sem fundurinn skor-
ar á hreppsnefnd að endurskoða
lóðaleigusamninga miðað við fast-
eignamat. Sú tillaga var samþykkt
með 22 atkvæðum gegn tveimur.
Hin tillagan var frá Jóni
Knstjánssyni um áskorun á þing-
menn kjördæmisins um að drag-
r.ótaveiði verði ekki leyfð í Faxa-
flóa. Sú tillaga var einnig sam-
þykkt með 33 atkvæðum gegn einu.
— Fréttaritari.
Sjónvarp í kvöld kl. 20.30:
Migrena, eðli og
meðferð - „Grænasta
iðnaðarborg í heimi”
Hjörtur Pálsson
Hjalti Rögnvaldsson
Útvarp í kvöld kl. 21.30:
„Enn blossar
ástar tinna ’ ’
Nýjasta tækni og vísindi í
umsjón Örnólfs Thorlaciusar
hefst í sjónvarpi í kvöld kl.
20.30.
Meðal efnis er fróðleg mynd
um mígrenu. Aðspurður sagði
Örnólfur að myndin sem er
brezk hefi fengist gegnum sam-
tök migrenusjúklinga, og
samist svo um að hún yrði sýnd
í þættinum.
Lýst er eðli þessa sjúkdóms
og helztu einkennum, sem hon-
um fylgja. Komið er inná, hvað
lítið menn vita í raun um
orsakir, svo sem breytingar á
efnaskiptum sem virðast vera
ísambandi við truflun á blóðrás
í heilanum. Farið er að athuga
heilalínurit og reynt að finna
afbrigði í heilalínuritum hjá
sjúklingum.
Migrena leggst misþungt á
menn, og fjallað er um ýmislegt
sem hægt er að gera til að létta
líðan þeirra, sem af þessu þjást.
Vonandi verður þetta til að
vekja áhuga fleiri en þeirra,
sem eru svo illa settir að vera
haldnir þessum kvilla.
Þá verður einnig fjallað um
sögulegar hliðar þessa sjúk-
dóms, en fyrstu lýsingar á
migrenu, sem menn hafa, eru
eftir því. sem næst verður
komist, hjá Hyppocratiusi hin-
um gríska á 4. öld f. Kr. Þá var
til að mynda notað nafnið
hemicrania, eða hálft höfuð, og
var það Grikki nokkur,
Galenas, sem notaði það nafn
fyrst.
I lokin er síðan kynnt hvað
gert er fyrir sjúklingana í
Bretlandi og hversu margir það
eru, sem þjást af migrenu, en
fólk getur verið með sjúk-
dóminn án þess að verða raun-
verulega vart við það, en haldið
það vera venjulegan höfuðverk.
Síðari myndin í þættinum í
kvöld er frá Sovétríkjunum.
Segir í henni frá námaborginni
Donetsk, sem er miðstöð í stóru
náma- og iðnsvæði í Sovét-
ríkjunum. Fjallað er um tækn-
ina sem notuð er við náma-
reksturinn, en sjálfvirknin er
mjög mikil, og hvernig um-
hverfisvandamál, sem fylgja
námarekstri sem þessum, eru
leyst. Þess má geta, að Donetsk
og umhverfi er samkvæmt
skýrslu UNESCO grænasta
iðnaðarborg í heimi. Ibúða-
svæðin eru afgirt með grænum
beltum frá iðnaðarsvæðinu.
Nýtt eru vel frjósöm landbún-
aðarhéruð og borgarsvæði tak-
markað.
„ENN blossar ástar tinna“
nefnast ljóð úr Dynfara-
vísum eftir Hjört Pálsson,
sem Hj alti Rögnvaldsson
leikari les í útvarpi í kvöld
kl. 21.30.
„Dynfaravísur er mín
fyrsta bók“, sagði Hjörtur
er hann var spurður, fyrri
ljóðabókin af tveimur. Hún
kom út 1972 og skiptist í
fimm kafla, þar sem
ljóðunum er raðað eftir
efni. Kaflinn, sem lesið er
úr í kvöld, er fyrsti hluti
bókarinnar og ber yfir-
skrift úr vísu eftir Pál
Vídalín, „Enn blossar ástar
tinna“. í þessum hluta eru
12 ljóð, misjöfn að lengd.
Þau eru ort, þegar ég var í
menntaskóla og talsvert
fram á þrítugsaldur, svo í
raun og veru eru þetta
æskuljóð. Sum eru í hefð-
bundnu bragformi, rímuð
og stuðluð, önnur ekki.
Eins og nafnið bendir til,
eru þetta yfirleitt ástar-
ljóð, en ástin hefur bæði
fyrr og síðar verið yrkis-
efni, sem ungu fólki hefur
af eðlilegum ástæðum stað-
ið hjarta nærri. Róman-
tíkin er kannski meiri en
hún mundi vera hjá mér
núna og kemur meðal ann-
ars fram í því, að ég leita í
þessum efnum aftur í aldir,
þegar ég er að tjá þar hug
minn.“
Útvarp Reykjavík
/VIIÐNIKUDKGUR
21. íebrúar
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn.
Umsjónarmenn: Páll Heiðar
Jónsson og Sigmar B.
Hauksson. (8.00 Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustu-
gr. dagbl. (útdr.). Dagskrá.
8.35 Morgunþuiur kynnir
ýmis lög að eigin vali. 9.00
Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Arnhildur Jónsdóttir les
„Pétur og Sóiey“, sögu eftir
Kerstin Thorvall (3).
9.20 Leikfimi
9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Morgunþulur kynnir
ýmis iög. frh.
11.00 Horft til höfuðátta.
Séra Heigi Tryggvason les
öðru sinni úr bók sinni
„Vísið þeim veginn“.
11.25 Kirkjutónlist:
Don Kósakkakórinn syngur
andleg lög; Serge Jaroff stj.
12.00 Dagskrá. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar. Tónleikar
SIÐDEGIÐ
13.20 Litli barnatíminn
Sigríður Eyþórsdóttir
stjórnar. Lesið úr Bernsk-
unni eftir Sigurbjörn Sveins-
son, og rætt um Aravísur
Stefáns Jónssonar.
13.40 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan:
Húsið og hafið“ eftir Johan
Bojer. Jóhannes Guðmunds-
son íslenzkaði. Gísli Ágúst
Gunnlaugsson les. (17).
15.00 Miðdegistónleikar:
Streogjasveit
Boston-sinfóníuhljóm-
sveitarinnar leikur Adagio
fyrir strengjasveit op. 11
eftir Samuel Barber;
Charles Munch stj. Hljóm-
sveitin Fílharmonía í
Lundúnum leikur Sinfóníu
nr. 5 í es-dúr op. 82 eftir
Sibelius; Herbert von
Karajan stj.
15.40 íslenzkt mál.
Endurt. þáttur Guðrúnar
Kvaran frá 17. þ.m.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn:
Ilalldór Gunnarsson kynnir.
17.20 Útvarpssaga barnanna:
„Bernska í byrjun aldar“
eftir Erlu Þórdísi Jónsdótt-
ur. Auður Jónsdóttir les (4).
17.40 Á hvítum reitum og
svörtum
Jón Þ. Þór flytur skákþátt.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
KVOLDIÐ____________________
19.35 Gestur í útvarpssal:
Ingveldur Hjaltested syngur
við píanóundirleik Jónínu
Gfsladóttur lög eftir Franz
Schubert, Jóhannes Brahms
og Richard Strauss.
20.00 Úr skólalífinu
Kristján E. Guðmundsson
stjórnar þættinum. Fjallað
um fósturnám og kennslu
við Fósturskóla íslands.
Rætt verður um verkþjálf-
un, stöðu fósturnáms í skóla-
kerfinu, verkefni á barnaári
o.fl. ,
20.30 Útvarpssagan:
„Eyrbyggja saga“
Þorvarður Júlíusson les (6).
21.00 Hljómskálamúsik
Guðmundur Gilsson kynnir.
21.30 „Enn blossar ástar
tinna“
Hjalti Rögnvaldsson les Ijóð
uí „Dynfaravísum“ eftir
Hjört Pálsson.
21.45 íþróttir
Hermann Gunnarsson segir
frá.
22.10 Loft og láð.
Pétur Einarsson annast
þáttinn. Rætt við Baldur
Sveinsson og Ragnar
Ragnarsson stjórnarmenn í
Flugsögufélaginu.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Lestur Passíusálma (9).
22.55 Úr tónlistarlffinu.
Knútur R. Magnússon sér
um þáttinn.
23.10 Svört tónlist
úmsjón: Gerard Chinotti.
Kynnir: Jórunn Tómasdótt-
ir.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
■m
MIÐVIKUDAGUR
21. febrúar
18.00 Rauður og blár
ítalskir leirkarlar.
18.05 Börnin teikna
Bréf og teikningar frá
börnum til Sjónvarpsins.
Kynnir Sigríður Ragna
Sigurðardóttir.
18.15 Gullgrafararnir
Tíundi þáttur.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.40 Heimur dýranna
Fræðslumyndaflokkur um
dýralíf víða um heim.
Þýðandi og þulur Gylfi
Pálsson.
19.00 Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Nýjasta tækni og vísindi
Um eðli og meðferð
mfgrenu o.fl.
Umsjónarmaður örnólfur
Thorlacius.
21.00 Will Shakespeare
Breskur myndaflokkur.
Þriðji þáttur.
Efni annars þáttar:
Hópur leikara við Rósar-
leikhúsið, þar á meðal Will
Shakespearc, stofnar nýjan
leikflokk.
Will kynnist ungum vasa-
þjófi, Hal, sem tælir hann
til að hjálpa sér að brjótast
inn hjá lávarðinum af
Southampton. Þeir eru
staðnir að verki en þá
kemur í ljós, að Hal er
sjálfur lávarðurinn. Svarti-
dauði geisar f Lundúnum.
Leikkona deyr og hún er
jarðsett á laun, svo að leik-
húsinu verði ekki lokað. En
þegar fleiri taka sóttina,
verður ekki lengur komist
hjá lokun. Will þiggur boð
lávarðarins um að dveljast
á sveitasctri hans.
Þýðandi Kristmann Eiðs-
son.
21.50 Þróun fjölmiðlunar
Þriðji og sfðasti þáttur.
Frá Gutenberg til Göbbels
Þýðandi og þulur Friðrik
Páll Jónsson.
22.45 Dagskrárlok