Morgunblaðið - 25.03.1979, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1979
Joyce Egginton
Fjöldi barna
látinn
En hann komst að raun um, að í
17 sveitarfélögum í Utah- og
Nevadafylki, sem eru áveðurs við
sprengjusvæðið í Nevadaeyði-
mörkinni, var tíðni hvítblæðis hjá
börnum óeðlilega há. Hvítblæði
reyndist langalgengast hjá börn-
um, sem orðið höfðu fyrir áhrifum
geislavirkra efna fyrir sex til sjö
árum. 32 hinna sýktu barna hafa
látizt, og kveður dr. Lyon það vera
um 20 fleiri' dauðsföll af völdum
hvítblæðis, heldur en hann hefði
búizt við við venjulegar kringum-
stæður. Þessi aukning hvítblæð-
is-tilfella vekur þeim mun meiri
athygli að þarna er um mjög
dreifða byggð að ræða, þar sem
loftið er tært og drykkjarvatnið er
hreint og ómengað enda langt frá
öllum iðnaðarhéruðum. Flestir
íbúarnir á þessu svæði eru
mormónar, sem lifa óvenjulega
heilbrigðu lífi við nægjusemi og
góða hollustuhætti.
Dr. Joseph Lyon komst einnig að
raun um við sjúkdómarannsóknir
sínar á ofangreindu svæði, að
aðrar tegundir krabbameins, sem
ekki eiga rætur sínar að rekja til
áhrifa geislavirkni, voru að mikl-
um mun fátíðari hjá börnum þar
um slóðir en annars staðar í
Utah-fylki. Fjöldi hvítblæðis-til-
fella einmitt á þessu rannsóknar-
svæði dr. Lyons varð því að teljast
þeim mun óvenjulegri.
Verst var ástandið í Washing-
Þau tólf ár sem Bandaríkjamenn sprengdu
kjarnorkusprengjur ofanjarðar í tilraunaskyni á
sérstöku tilraunasvæði í Nevadaeyðimörkinni,
fullvissuðu bandarísk stjórnvöld fólkið, sem býr á
næstu slóðum margoft um þaö, að heilsu pess
væri alls engin hætta búin af þeím geislavirku
efnum, sem féllu til jarðar eftir sprengitilraunirn-
ar.
En nú nýlega, næstum því 19 árum eftir að
samningurinn um bann við tilraunum með kjarn-
orkusprengingar ofanjarðar gekk í gildi, hefur
veriö birt skýrsla í Bandaríkjunum um niðurstöður
læknisfræðilegra rannsókna, sem gerðar voru á
einmitt þessum eínangraða og löngu gleymda
hópi Bandaríkjamanna, sem býr ekki alllangt frá
Nevadaeyðimörkinni. Skýrslan sýnir, að barna-
dauðinn meðal þessa fólks af völdum hvítblæðis
hefur næstum því þrefaldast eingöngu á þeim
landsvæðum, sem liggja beinlínis áveðurs miðað
við víndáttir frá Nevadaeyðimörkinni.
Þessar nöturlegu niðurstöður, sem birtar hafa
verið í „Læknisfræðiriti Nýja Englands“ (New
England Journal of Medicine) eru unnar af dr.
Joseph L. Lyon, en hann er sérfræðingur í
farsóttum við læknadeild Utah Háskóla í Banda-
ríkjunum. Kveöst hann hafa hafið þessar rann-
sóknir af einskærri forvitni, en á þeim tíma hafi
hann trúaö algjörlega fullyrðingum stjórnvalda, og
því ekki búizt við neinum sérstökum frávikum í
heilsufari barna á þessu svæði miðað við börn
annars staðar í Bandaríkjunum.
völdum af hálfu 235 manna, sem
sýkst hafa af krabbameini; sumt
af þessu fólki er enn á lífi en sumt
er dáið. Udall er í þann veginn að
leggja fram kröfur frá 200 öðrum
mönnum til viðbótar.
„I hverri viku heyrum við um ný
krabbameins-tilfelli meðal þessa
fólks," segir Udall. „Þeim mun
fleiri sönnunargögnum, sem mér
tekst að safna, því sannfærðari
verð ég um, að þessu fólki hafi
einfaldlega verið fórnað. Mér hef-
ur ekki tekizt að finna neina
hliðstæðu við þetta mál í gjörvallri
mannkynssögunni. Þetta er ákveð-
inn hópur fólks, einangraður hóp-
ur, sem í 12 ár var stanzlaust
látinn verða fyrir áhrifum geisla-
virkrar úrkomu.
Menn hafa rétt nýlega komizt á
snoðir um það heilsufarstjón, sem
íbúar Utah-fylkis hafa orðið fyrir.
Upptökin að þeirri vitneskju voru
skaðabótakröfur, sem nokkrir
menn lögðu fram gegn stjórnvöld-
um í Bandaríkjunum á síðustu
mánuðum, en kröfuhafar voru
menn, sem unnið höfðu sem her-
menn við sprengjutilraunirnar í
Nevada-eyðimörkinni á sínum
tíma, og veiktust seinna af krabba-
meini.
Konur í sveitahreppunum syðst
í Utah-fylki hafa á undanförnum
árum haft á orði sín á milli, að það
væri skyndilega orðið einkennilega
mikið um krabbameins-tilfelli alls
staðar í kringum þær. Þegar þær
svo lásu um kröfur hermannanna
um skaðabætur vegna heilsutjóns,
varð þeim ljóst, að fjölskyldur
þeirra hlytu að vera í enn meiri
hættu en þessir hermenn, þar sem
fólkið á þessum landsvæðum hefði
orðið fyrir áhrifum geislavirkrar
úrkomu í mun lengri tíma.
Mikil leynd
Þar sem öllum upplýsingum um
tilraunir Bandaríkjamanna með
kjarnorkusprengjur í Nevadaeyði-
mörkinni hefur verið haldið
stranglega leyndum, hefur það
tekið menn þetta langan tíma að
komast að raun um hið sanna í
máli þessu. Þegar dr. Lyon reyndi
t.d. 20 árum eftir að tilrauna-
sprengingarnar í Nevada-eyði-
mörkinni náðu hámarki, að semja
greinargóða yfirlitsgrein um
niðurstöður rannsókna sinna,
reyndist honum allsendis ókleift
að komast að því, hve mikil geisla-
virknin hafði verið, sem fólkið
hafði orðið fyrir í nærliggjandi
sveitahéruðum.
Honum tókst að finna skekkjur í
opinberum tölum um styrkleika
þeirrar geislavirkni, sem stafaði
frá sprengjutilraununum í
Nevadaeyðimörkinni, þar sem
Kjarnorkuráð Bandaríkjanna gaf
upp styrkleikatölur geislavirka
ryksins frá sprengingunum sem
voru þrisvar til fjórum sinnum
lægri heldur en þær styrkleikatöl-
ur, sem Heilbrigðisþjónusta
Bandaríkjanna gaf upp um geisla-
virknina á þessum slóðum. Þessum
tveim opinberu stofnunum bar
svona mikið á milli í þeim tölum,
Hin bandarísku fórnar-
lömb atómsprengjunnar
ton-sýslu og Iron-sýslu suð-vestast
í Utah-fylki. Landslagið á þessu
svæði er að mestu eyðimörk með
litauðugum sandsteinsfjöllum, þar
sem vindarnir hafa sorfið hina
undarlegustu dranga og alls kyns
kynjamyndir í fjallseggjarnar. Á
þessu svæði er stunduð sauðfjár-
rækt og nautgriparækt í stórum
stíl. Bændurnir á þessum slóðum
eru flestir afkomendur um 300
fjölskyldna frá héraðinu Miðlönd-
um í Englandi, sem námu land
þarna í Utah fyrir meira en einni
öld, eftir að þeim hafði verið snúið
til mormónatrúar heima í Eng-
landi.
Herinn
og „fólkið“
Þegar tilraunirnar með kjarn-
orkusprengingar hófust árið 1951,
var þessu landsvæði lýst sem
„tiltölulega óbyggðu" landi í
skýrslu bandarískra hernaðaryfir-
valda; sagði þar, að þarna byggju
aðeins um 10 þúsund manns á
þrjúþúsund ferkílómetra svæði í
Washington-sýslu og í Iron-sýslu
væri byggðin jafnvel enn fámenn-
ari og dreifðari.
„En þetta var samt fólk, og það
var alls ekki virt viðlits," segir
fyrrverandi innanríkisráðherra
Bandaríkjanna.^-Stewart Udall, en
hann er nú starfandi sem sjálf-
stæður lögfræðingur í Utah. Það
er skoðun Udalls, að niðurstöður
þær, sem dr. Lyon komst að við
rannsóknir sínar á heilsufari íbú-
anna á þessum svæðum, sé aðeins
efsti hluti ísjakans, að því er
varðar útbreiðslu krabbameins af
völdum geislavirkrar úrkomu með-
afþessa íólks.
Enn hefur engin læknisfræðileg
rannsókn farið fram á fullorðnum
á þessum svæðum, en sterkar líkur
benda til þess, að um mikla aukn-
ingu á krabbameini sé að ræða
meðal fólks á öllum aldri. Udall
hefur nýlega lagt fram skaðabóta-
kröfur gegn bandarískum stjórn-
Óboðinn
gestur
í Nevada-
eyðimörkinni.
— Orkumála
ráðuneytið
handariska
leyfði
birtingu
þessarar
myndar í
október síð-
astliðnum, en
hún var
raunar tekin
í desember
1970 þegar
svo illa tókst
tii við kjarn-
orkutilraun í
Nevadaeyði-
Nevadaeyð að
þessi geisla-
virki sprengju
mökkur
„varð laus“í
höndum vís-
vís-inda-
vís-i og reis í
10.000 feta
hæð áður en
hann dreifð-
ist til aust-
urs. Um 300
manneskjur
urðu
fyrir geisla
virkni. en
hún fór ekki
„umfram
hættumörkin"
að sögn emb-
ættismanna.
sem birtar voru opinberlega, enda
þótt mælingar þær, sem lágu til
grundvallar útreikningi styrk-
leikatalnanna væru hinar sömu í
báðum tilvikum. Sá einn var
munurinn, að styrkleikatölur
Kjarnorkuráðs Bandaríkjanna
voru lagðar fyrir bandaríska þing-
ið árið 1959, og hafa æ síðan verið
viðurkenndar sem hinar einu réttu
tölur um styrkleika geislavirkn-
innar frá sprengjutilraununum í
Nevada-eyðimörkinni.
Árið 1965 kom tölfræðingur hjá
Heilbrigðisstofnuninni bandarísku
fram með tölur, sem sýndu feikna-
lega aukningu dauðsfalla af völd-
um hvítblæðis í Iron- og
Washington-sýslum í Utah. Kalla
átti saman blaðamannafund út af
þessu máli, en á síðustu stundu var
komið í veg fyrir það af hálfu
æðstu stjórnvalda, að þessar upp-
lýsingar yrðu birtar opinberlega.
Samtímis því, að þessum upplýs-
ingum var stungið undir stól,
komu síendurteknar yfirlýsingar
frá bandarísku ríkisstjórninni um
að fólk, sem byggi á þessum
svæðum í Utah væri í engri hættu
af völdum geislavirkni frá kjarn-
orkusprengingunum. Af þessu
leiddi, að ekki voru gerðar jafnvel
hinar minnstu varúðarráðstafanir
gegn áhrifum geislavirkni á íbúa
þessara landsvæða öll þau ár, sem
kjarnorkutilraunirnar í Nevada-
eyðimörkinni áttu sér stað. Stund-
um var útvarpað tilkynningum til
íbúanna á nálægum slóðum við
Nevada-eyðimörkina, og fólk beðið
um að halda sig innan dyra, en
enginn virtist hafa hinar minnstu
áhyggjur af því fólki, sem ekki
hafði útvarpstæki sín opin á þeim
tíma, er tilkynningarnar voru
lesnar.
Gagngerð læknisfræðileg rann-
sókn á öllum íbúum hinna „tiltölu-
lega óbyggðu" landsvæða í suður-
hluta Utah-fylkis hefur enn ekki
verið gerð.
Joyce Egginton.