Morgunblaðið - 25.03.1979, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1979 2 3
JÓN SKÚLASON
—MINNINGARORÐ
Lágur þytur fer um loftið, hið
næmasta eyra nemur ei hið lága
hljóð, sem honum fylgir. Honum
er stefnt að vissu marki og skeikar
ekki fremur venju. Ör dauðans
hefur skorið á lífsstreng 75 ára
gamals verkamanns, þar sem hann
stóð við vinnuborð sitt að venju,
síðastliðin 40 ár. Jón Skúlason er
allur.
Fjöllin taka ei joðsótt, og það
verða engar þjóðfélagslegar breyt-
ingar, þótt einn slíkur kvistur sé
slitinn úr rót sinni. Þó svo virðist
sem ætti að gerast, því það er þessi
þögli fjöldi, og það eru þessar
síkviku hendur, sem eru undir-
staða þjóðfélagsins.
Þetta á ekki að verða upptaln-
ing, heldur vinarminning, en væru
því gerð full skil, yrði margs að
minnast, svo oft voru samskiptin
náin. Jón var fæddur í Ólafsvík 24.
júlí 1903 og dó hinn 12. febrúar
1979 og átti alla tíð heima í
Ólafsvík, lengst af á Ólafsbraut 44.
Árið 1925, hinn 31. október, kvænt-
ist Jón eftirlifandi konu sinni,
Sigríði Hansdóttur, og mun hann
hafa talið það vera sitt mesta
gæfuspor. Um Sigríði ætla ég mér
ekki að skrifa, það munu aðrir
gera, þegar þar að kemur, svo
þekktur persónuleiki er hún á
þessum slóðum og víðar, að það
verður að bíða, enda málið mér of
skylt. Jón og Sigríður einuðust 2
börn, soninn Jens, sem lézt í
frumbernsku og dótturina Mettu,
sem býr í Geirakoti í Fróðarhreppi
ásamt manni sínum Bjarna Ólafs-
syni frá sama stað. Hafa þau
eignast 4 efnileg börn sem alla tíð
hafa verið yndi og eftirlæti afa
síns og ömmu, sem nú dvelur á
sjúkrahúsi Akraness. Ekki gat
Sigríður fylgt manni sínum til
grafar, því að hún hafði ferigið
mikið áfall rétt fyrir fráfall hans
og varð að fara á sjúkrahús.
Jón var greindur og félagslynd-
ur og hafði, auk góðs skopskyns,
listræna hæfileika. Spilaði hann
lengi fyrir dansi á samkomum í
Ólafsvík og var auk þess sjálfur
dansmaður mikill og góður. Var
unun að sjá þau hjónin líða í
ljúfum léttum dansi um gólfið og
sjá hversu vel þau náðu hrynj-
andinni svo þau urðu næstum eitt.
Auk þessa munu margir minn-
ast Jóns úr öllum þeim leikrita-
hlutverkum, sem hann tók að sér
og nú síðast hjá Leikfélagi Ólafs-
víkur, sem gerði hann að heiðurs-
félaga sínum, sem hann verðskuld-
aði sannarlega. Jón hefur mætt
dómara sínum og vil ég þá í lokin
gera orð Davíðs Stefánssonar að
mínum:
Gakk inn. gakk inn og gættu, hvað þú sðrð.
og gakk svo út og fagna nýjum degi.
Sú helga þrá, sem þú í brjósti berð,
mun benda þér að ganga rétta vegi.
Sá vej, sem hefir vitnað afbrot sfn.
Sá vei. er klffur upp á sjónarhólinn.
Leitir þú guðs. þá liggur gata þín
til lífs og friðar — gegnum skriftastólinn.
Blessuð sé minning góðs vinar.
Kr. Jensson.
ÞÚ AUGLYSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
\l GLYSING \
SÍMINN KR:
22480
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Ég hlustaði á yður fyrir nokkru í útvarpi. Þér voruð að
tala um samneyti kynjanna. Ræða yðar snerist um textann:
„Þú skalt ekki lifa í siðleysi“. í minni Biblíu stendur: „Þú
skalt ekki drýgja hór“, en ekki eins og þér orðið það. Hvar
stendur texti yðar?
Orðin „saurlifnaður“ og „hórdómur“ má bæði þýða
með orðinu „siðleysi" í merkingunni óleyfileg kynmök.
Að vísu hljóðar sjötta boðorðið þannig: „Þú skalt ekki
drýgja hór“, en þetta orð og orðið saurlifnaður eru um
óleyfileg kynmök og má því nota öll jafnt.
Ég þekki pilt og stúlku, sem reyna að sneyða hjá
sannleikanum með því að nota orðið „hórdómur“
aðeins um mök fólks, sem er gift, en ekki ógifts fólks.
En Biblían talar alveg jafnljóst um saurlifnað og
hórdóm. Páll segir:
„Flýið saurlifnaðinn". Hann talar um, að óhrein-
leika og ólifnað eigi ekki einu sinni að nefna á nafn
meðal kristinna manna. Enn segir hann: „Villizt ekki!
Hvorki munu saurlífsmenn né skurðgoðadýrkendur
... né drykkjumenn ... guðsríki erfa“ (1. Kor. 6).
Málsvarar „nýja siðferðisins" halda því fram, að
kynmök séu leyfileg, ef menn stundi þau af ást. En
þessa kenningu hafa menn fundið upp. Hún er hverfi í
Biblíunni. Þessir talsmenn frjálsræðis í kynferðismál-
um segjast frekar horfa til Jesú en lögmáls Móse. En
Kristur slakaði hvergi á, þegar um siðferðið var að
ræða. Hann sagði:
„Hver, sem lítur á konu með girndarhug, hefur
þegar drýgt hór með henni í hjarta sínu“.
Ef þér viljið vera undanlátssamur í kynferðismálum
og hafa góða samvizku, þá skulið þér ekki lesa
Biblíuna.
Við flytjum
frá Nýbýlavegi 2
að Skemmuvegi 6
um leiö og ég þakka viöskiptavinum mínum samstarfiö síðastliðinn
15. ár, bíö ég ykkur áframhaldandi viöskipti í nýjum og
stórglæsilegum húsakynnum aö
Skemmuvegi 6, Kópavogi
Viö veitum eftirtalda
þjónustu:
Dekkjasala
Ný og sóluö dekk.
Negling
í notuö og ný dekk
Ballansering.
Alhliða
dekkjaviögeröir.
Rúmgóö inni-aðstaöa
BREYTT
SÍMANÚMER
75135
Öll Þjónusta fer fram
innandyra
Hjólbarðaviðgerð Kópavogs,
Skemmuvegi 6, sími 75135, Kópavogi,
Bryngeir Vattnes (Binni)
Develop
_____ [ Ljósritar
Hagstæöustu kaupin
í Ijósritunarvélum
Skrifvélin hf.
Suöurlandsbraut 12
Sími85277.
1 i AUGLÝSINGASÍMINN ER:
ALLT TIL VATNS-, HITA- OG
FRÁRENNSLISLAGNA
1. rör 4. fittings
2. röraeinangrun 5. Danfoss
3. vafningar sjálfvirkir hitastillar o.fl.
- OKKAR LAUSN ER BETRI LAUSN -