Morgunblaðið - 25.03.1979, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1979
Frímerkjasýning í
Reykjavík 7.-10. júní
Svo sem lesa mátti í Mbl. síðast-
liðinn miðvikudag, hefur verið
tilkynnt, að frímerkjasýningin
Frímerki 79 verði haldin í Álfta-
mýrarskóla dagana 7.—10. júní.
Er hún í tengslum við þing Lands-
sambands íslenzkra frímerkja-
safnara, sem væntanlega verður
haldið þar í skólanum laugardag-
inn 9. júní.
Á síðasta landsþingi L. I. F. var
gerð sú samþykkt, að þess yrði
freistað að halda frímerkjasýn-
ingu árlega í beinu sambandi við
þingið. Er einkum gert ráð fyrir, i
Frímerkjauppboö Félags
frímerkjasafnara á Hótel
Loftleiöum 7. apríl nk.
Fyrir rúmri viku sendi uppboðs-
nefnd F. F. út skrá yfir næsta
uppboð félagsins, sem verður
haldið í ráðstefnusal Hótels Loft-
leiða laugardaginn 7. apríl nk., og
á það að hefjast kl. 14. Með
skránni eru sendar út niðurstöðu-
tölur uppboðsins 18. nóv. sl. Er
það mjög þarflegt. Aftur á móti
hefur hér tekizt svo klaufalega til,
að þær eru prentaðar á bakhlið
blaðsins, sem ætlað er undir skrif-
að íslenzkir safnarar sýni þar og
keppi til þeirra verðlauna, sem í
boði eru hverju sinni. Er engum
vafa undirorpið, að slíkar sýning-
ar geta orðið söfnurum mikill
hvati, bæði til að auðga söfn sín af
góðu efni og eins til að vanda allan
frágang þeirra og uppsetningu.
Ekki verður erlendum söfnurum
bægt frá þátttöku í þessum inn-
lendu sýningum og vitaskuld alls
ekki þeim, sem eru félagar í
frímerkjafélögum hér á landi.
Þannig er hugsanlegt, að Islands-
samlarna í Svíþjóð sendi eitthvert
efni á sýninguna í sumar, en
Iesendur muna örugglega margir
eftir fallegu og góðu efni þeirra,
sem sýnt var á Frímex 77, þegar
Félag frímerkjasafnara varð 20
ára.
Pósthús verður starfrækt á
þessari frímerkjasýningu, eins og
venja hefur verið á fyrri sýning-
um, og notaður sérstimpill á allar
sendingar þaðan.
Þá verður sýningunni skipt í
samkeppnisdeild, kynningardeild
og væntanlega einnig í boðsdeild.
Verðlaun verða veitt með vegg-
skjöldum með áletruðu merki
sýningarinnar, en það hefur Hálf-
dan Helgason teiknað. Verður ekki
annað séð af meðfylgjandi mynd
en það verði mjög stílhreint.
Ekki sakar svo að endurtaka
það, sem sýningarnefndin hefur
tilkynnt, að tilkynning um þátt-
töku þarf að hafa borizt til L. í. F.
fyrir 1. apríl nk. Ber að senda
hana í pósthólf 5530, 125
REYKJAVIK.
Frímerki
eftir JÓN AÐAL-
STEIN JÓNSSON
leg boð á næsta uppboði. Þetta er
alveg fráleit ráðstöfun, því að
menn vilja að sjálfsögðu eiga
niðurstöðutölur hvers uppboðs í
skrá sinni. En vilji menn nú senda
skrifleg boð, missa þeir þetta blað
út úr höndum sér. Auðvitað er
þetta gert í sparnaðarskyni af
hálfu uppboðsnefndar — og það
ber að virða, en á stundum getur
sparnaðurinn gengið of langt.
Þessu má auðveldlega kippa í
liðinn næst.
Að þessu sinni verða boðin upp
323 númer eða boð. Við lauslega
athugun á uppboðsskrá virðist
uppboð þetta vera með hefðbundn-
um hætti. Umslög með frímerkj-
um á og margs konar stimplum
eru þarna eitthvað um 25 og svo
margar tegundir stimpla í jafn-
mörgum númerum. Nokkuð er
áberandj, að fyrstadagsumslög,
stimpluð úti á landi, eru öllu fleiri
en oft áður. Er það ofur skiljan-
legt, þar sem í ljós hefur komið á
undanförnum uppboðum, að ýmsir
safnarar eru farnir að sækjast
eftir þessum umslögum. Sem
dæmi má nefna umslag með 25 kr.
Alþingishúsi frá 1952, stimpluðu í
Borgarnesi. Er það metið til boðs
á 35 þús. krónur, en ekki þætti
mér ósennilegt, að sú upphæð
hækki eitthvað á uppboðinu. bví
M*. ST-jat 4fc©Uf»
fMáMAlO lí
að tæplega eru mörg þess konar
umslög til frá þeim stað. Þá verða
boðnar upp þrjár blokkir frá 1937,
stimplaðar á Eyrarbakka, við
Ölfusárbrú og í Bolungarvik á
réttum útgáfudegi, 15. maí.
Hæst verð í krónutölu fyrir eitt
boð er í fjórblokkir af Heimssýn-
ingarmerkjunum frá 1940 — eða
120 þús. krónur. Stundum hefur
reynzt erfitt að fá boð í fjórblokk-
ir, þegar svo hátt er komið, en því
miður er krónan okkar alltaf að
minnka. Sést það vel á því, að á
frímerkjauppboði í október sl.
voru þessi merki í fjórblokkum og
með jaðri metin á 80 þús, og slegin
fyrir 82 þúsund. Verður nú næsta
fróðlegt að fylgjast með, hvernig
þessu boði reiðir af.
Af einstökum frímerkjum er 2
sk. merki metið hæst eða á 75 þús.,
enda er það stimplað í Miklaholti,
og sá stimpill er næsta sjaldséður
og því eftirsóttur. Hætt er líka við,
að upphafsboðið hefði orðið
snöggtum hærra en þetta, ef
merkið væri alveg heilt, en á það
vantar tvo horntakka. Og það
gerir gæfumuninn. Stimplað ein-
tak og heilt af þessu verðgildi er i
Facit verðlagt á 3300 sænskar
krónur. Ef við gerum ráð fyrir, að
ekki minna en 70% af því sé
nokkurn veginn sanngjarnt verð
með þessum stimpli á, verður það í
ísl. krónum um 170 þúsund. Jafn-
vel þótt verðið væri eitthvað
lækkað frá þessu, sést hér greini-
lega, hversu mikið það gerir í
augum safnarans, þegar takka
vantar á svo gömul merki. Nýleg
frímerki með slíkum galla væru
alveg verðlaus. Eiga „leikmenn" í
frímerkjasöfnun oft erfitt með að
átta sig á þessu. En þrátt fyrir
tiltölulega lágt mat á þessu 2 sk
merki er ég engan veginn viss um,
að boð fáist í það. Þá ályktun dreg
ég af fyrri uppboðum hér á landi
og svo þeim uppboðum, sem ég hef
getað fylgzt með erlendis. Safnar-
ar virðast oft gera miklar kröfur
til þessara gömlu merkja, bæði um
takka, lím og almennt útlit. En þá
verða þeir vitaskuld að vera undir
það búnir að greiða vel fyrir þau,
svo að þeir geti fyllt upp í söfn sín.
Því miður leyfir rúmið ekki
nákvæma upptalningu á því, sem
upp verður boðið 7. apríl. Þeir,
sem hug hafa á að kynna sér
uppboðsefnið, geta fengið upp-
boðsskrána keypta í frímerkja-
verzlunum eða beint frá F. F.
Efnið verður til sýnis á uppboðs-
stað laugardaginn 31. marz kl.
14—17 og svo aftur 7. apríl kl.
10—12, en sjálft uppboðið hefst kl.
14, svo sem áður er sagt. Skrifleg
boð þurfa að berast fyrir 2. apríl.
Ekki verður þetta siðasta frí-
merkjauppboð á þessum vetri eða
vori, því að Hlekkur sf. ætlar að
efna til uppboðs sunnudaginn 13.
maí. Svo er ekki alveg óhugsandi,
að uppboð verði í júní í tengslum
við sýninguna Frímerki 79, en þó
mun það ekki enn afráðið. Frá
þessu verður reynt að segja nánar
hér í þættinum, þegar allt liggur
ljóst fyrir.
Ný frímerki 30. apríl
Póststjórnin mun hafa ráðgert,
að fyrstu frímerki þessa árs yrðu
þau tvö frímerki í fiokknum Merk-
ir Islendingar, sem boðuð voru um
áramótin, og kæmu þau út í
þessum mánuði. Nú hefur Rafn
Júlíusson póstmálafulltrúi tjáð
mér, að af því geti ekki orðið og
þau verði að bíða enn um sinn.
Evrópumerki þessa árs verða þess
vegna fyrstu merkin, sem út
koma, og hefur útgáfudagurinn
verið ákveðinn 30. apríl. Ekki
hefur póststjórnin enn sent út
tilkynningu eða myndir af þessum
merkjum, svo að fyrir bragðið er
ekki hægt að lýsa þeim nánar að
þessu sinni. Úr því að svona tókst
til með Merku Islendingana, ætti
póststjórnin að reyna að haga því
svo til, að þau merki komi út um
sama leyti og frímerkjasýningin
stendur í júní. Á ég tæplega von á
öðru en það yrði vel þegið af
söfnurum, og áreiðanlega tapaði
póststjórnin ekki á þeirri ráðstöf-
un. Og hvað vilja menn meira,
þegar báðir hafa hag af?
Msmma v , - . jmmfmmHim.
Glimákra vefstólar
Viö kynnum nú sérstaklega hina þekktu GLIMÁKRA
vefstóla. Á loftinu í Hafnarstræti 3 eru nú uppsettir
vefstólar, sem eru hentugir bæöi fyrir skóla og heimili.
Veriö velkomin að líta inn og taka í vefinn.
ÍSLENZKUR
HEIMILISIÐNAÐUR
Hafnarstræti 3.
NU ERU
n a r\
GOÐRAÐ
Þér er boðið að hafa samband við verkfræði-
og tæknimenntaða ráðgjafa Tæknimiðstöðvar-
innar ef þú vilt þiggja góð ráð i sambandi
við eftirfarandi:
Vökvadœlur
VVVIvVIVIVMIMI
ogdrif
Eitt samtal við ráðgjafa okkar, án
skuldbindíngar, getur sparað þér stórfé hvort
sem um er að ræða vangaveltur um nýkaup
eða vandamál við endurnýjun eða
viðgerð á þvi sem fyrir er.
in
VERSLUN - RÁÐGJÖF - VIÐ G E RÐA RÞJÓNUS TA
Smíójuveg 66. 200 Kópavogí S:(91)-7B600