Morgunblaðið - 19.04.1979, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRIL 1979
19
Art Blakey og Jazz
Messengers með
tónleika hérlendis
FÉLAGIÐ Jazzvakning
hefur náð samningum um
komu Jazz Messengers Art
Blakeys til íslands. Verða
tónleikar með sextettinum
mánudaginn 23. apríl kl.
22.00 í Austurbæjarbíói.
Art Blakey er einn merkasti
jazztrommari heims. Með Jazz
Messengers, sem Art Blakey stofn-
aði 1955 ásamt Horace Silver
píanista og fleirum, varð hann
einn af megindriffjöðrum jazzins.
Upprunaleg skipun Jazz Mess-
engers riðlaðist fljótlega eftir
stofnun hljómsveitarinnar, en
Blakey hélt starfrækslu hennar
áfram með nýjum mannskap.
Hefur Jazz Messenger starfað svo
til óslitið síðan með ört breyttri
skipan. Hafa þeir ýmist skipað í
kvartett, kvintett, sextett eða jafn-
vel stærri hljómsveitir.
Jazz Messenger undir stjórn Art
Blakey hefur verið eins konar
stökkpallur fyrir unga, upprenn-
andi jazzleikara. Margar stór-
stjörnur hafa komið upp úr þess-
ari hljómsveit og nægir þar að
nefna Woody Shaw, Freddie
Hubbard, Wayne Shorter, Curtis
Fuller, Chuck Mangione og Keith
Jarrett.
Jazz Messengers er sextett um
þessar mundir og er þetta stærsta
combó sem Jazzvakning hefur
fengið hingað til lands. Sextettinn
skipa: David Schnitter tenorsax,
Robert Watson altosax., Valery
Ponomarev trompet, James
Williams píanó, Dennis Irwin
bassi og Art Blakey sjálfur á
trommur.
LIT AS JONVORPIN
mæla
með sér sjálf
sérstök vildarkjör
35% út
og restin á 6 mán
BÚÐIN
nordÍDende
I
1' .•. E t mm
1 < >1 \ — 1
i i
i •r a
i
Happdrætti var á góðmetismarkaði Hvatar. Stærri vinningarnir,
ávaxtakörfur og fleira, en líka smávinningar, eins og þeir sem
hér er verið að afhenda.
Góðmetið var fljótt að hverfa af borðunum hjá Hvatarkonum,
sem efndu til góðmetismarkaðs í Sjálfstæðishúsinu sl. laugardag.
Kökur og heimatilbúið góðmeti fór á fyrsta hálftímanum, en
margt annað matarkyns ávextir og skrautkerti, voru á
boðstólum á vægu verði. Þessi mynd var tekin þegar borð voru að
tæmast.
JÖRFAGLEÐI
IBUÐARDAL
BúÖardal, 18. apríl
JÖRFAGLEÐI verður haldin
dagana 19. til 21. apríl. Verður
gleðin sett á sumardaginn
fyrsta kl. 20.30 í Dalabúð, að
viðstöddum forseta íslands,
Kristjáni Eldjárn og frú Hall-
dóru. Ávarp flytur Pétur Thor-
steinsson sýslumaður. Þá setur
forseti íslands Jörfagleðina.
Lúðrasveit tónlistarskóla Dala-
sýslu leikur, stjórnandi ómar
Oskarsson. Skáldakynning
verður, Jóhannes skáld úr Kötl-
um kynntur. Verður efni sam-
antekið af Geir Sigurðssyni
Skerðingsstöðum. Magnús
Jónsson óperusöngvari syngur.
Þá flytur Þórhallur Vilmundar-
son prófessor örnefnaþátt.
Kynnir kvöldsins er Ánna
Gísladóttir.
Á föstudag kl. 14 verður
byggðasafn Dalasýslu í Lauga-
skóla formlega opnað, að við-
stöddum forseta Islands og frú.
Ennfremur verður á sama stað
sýning á vinnu nemenda Lauga-
skóla. Um kvöldið hefst leik-
sýning hjá Leikklúbbi Laxdæla.
Sýnd verður Saumastofan eftir
Kjartan Ragnarsson. Leikstjór^
Jakob S. Jónsson. Jörfagleðinni
lýkur á laugardag. — Kristjana.
Samkvæmt rannsóknum sem Rannsóknarstofnun byggingariónaöarins hefur
gert á steypuskemmdum og sprungumyndunum á húsum, hefur komiö í Ijós, að
eina varanlega lausnin, til aó koma í veg fyrir leka og áframhaldandi skemmdir,
er að klæöa pau alveg, til dæmis meó álklæöningu.
A/klæöning er fáanleg í mörgum fallegum litum sem eru innbrenndir og Þarf
aldrei aö niála.
A/klæöning er seltuvarin og hrindir frá sér óhreinindum.
Leitiö nánari upplýsinga og kynnist möguleikum A/klæöningar. Sendiö
teikningar og viö munum reikna út efnispörf og gera verötilboð yöur aö
kostnaöarlausu.
INNKAUP HE
ÆGISGÖTU 7, REYKJAVÍK - SÍMI 22000 - PÖSTHÓLF 1012.
TELEX 2025 - SÖLUSTJÓRI: HEIMASÍMI 71400.
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
M AM.LYSIR l'M ALLT LAND ÞEGAR
M A.IGLÝSIR I MORGt NBLAÐINl