Morgunblaðið - 15.06.1979, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1979
3
íbúð Einars Jónsson-
ar my ndhöggvara til
sýnis fyrir almenning
íbúð Einars Jónssonar mynd-
höggvara og Önnu konu hans
hefur verið opnuð til sýnis fyrir
almenning en íbúðin er á efstu
hæð Listasafns Einars
Jónssonar.
Það var árið 1916 sem hafin
var bygging safnhússins og
fluttust þau hjónin í íbúðina á
efstu hæðinni árið 1920. Einar
teiknaði sjálfur húsið með að-
stoð húsameistara.
Listasafnið var síðar formlega
^pnað á Jónsmessudag 1923.
íbúðin er búin húsgögnum og
ýmsum listmunum þeirra hjóna
og má m.a. nefna stórt olíumál-
verk af frú Önnu eftir Johannes
Nielsen. Einar og Anna bjuggu í
húsinu til ársins 1954 er Einar
andaðist.
Einar Jónsson er fæddur 11.
maí 1874 að Galtafelli í Hruna-
mannahreppi. 19 ára gamall hélt
hann til Kaupmannahafnar til
náms og lærði m.a. hjá hinum
fræga myndhöggvara S.A.
Sinding og síðan í Listaháskól-
anum. Arið 1917 hélt hann með
konu sinni til Bandaríkjanna,
þar sem honum hafði verið falið
að gera höggmynd af Þorfinni
Karlsefni, fyrsta hvíta landnem-
anum í Ameríku. Þegar hann
kom aftur til íslands árið 1920
var safnhús þar sem ríkisstjórn
og einstaklingar höfðu reist yfir
listaverk hans, nær fullgert.
Einar gaf þjóð sinni öll listaverk
sín og eru þau nú geymd í
byggingunni.
Á neðri hæð safnsins hefur
nýlega verið komið fyrir mál-
verki af Einari Jónssyni eftir
Johannes Nielsen og í sýningar-
borðum teiknibókum Einars og
nokkrum útskurðaverkum sem
hann gerði á unga aldri. Enn-
fremur hefur nýlega verið sett
upp í safninu marmaramynd
sem Einar gerði árið 1894 er
hann var nemandi Stephan
Herbergi Einars Jónssonar myndhöggvara. Á borðinu er Biblía
sem Toríhildur Hólm gaf Einari árið 1915.
Siding í Kaupmannahöfn. Mynd-
in heitir „Drengur á bæn“ og er
Ólafur Kvaran forstöðumaður Listasafns Einars Jónssonar, dr. Kristján Eldjárn, sem sæti á í stjórn
safnsins, og Hörður Bjarnason ritari stjórnarinnar kynntu blaðamönnum íbúð Einars og Önnu. Ilér
eru þeir staddir í stofunni. Myndir Kristlnn.
jafnframt eina marmaramyndin
í safninu.
Á blaðamannafundi sem
stjórn safnsins hélt sagði Hörð-
ur Bjarnason ritari stjórnarinn-
ar að ætlunin væri nú að reyna
að kynna safnið betur en verið
hefur bæði með útgáfu korta
með myndum eftir Einar og
einnig er á döfinni bókaútgáfa
með myndum af öllum verkum
Einars.
í stjórn Listasafns Einars
Jónssonar eiga sæti: Séra Jón
Auðuns formaður, Hörður
Bjarnason ritari, dr. Kristján
Eldjárn, Ármann Snævarr og
Runólfur Þórarinsson. Forstöðu-
maður safnsins er Ólafur Kvar-
an listfræðingur.
Vesturgata
29 afhent
MFA
SEM kunnugt er gaf Þorkell
Valdimarsson menningar- og
fræðslusambandi alþýðu húsið
Vesturgötu 29 í Reykjavík og í
vikunni var undirritað gjafabréf
um gjöfina og hún afhent. Segir í
gjafabréfinu að gjöfin sé gefin „í
minningu um brautryðjendahjón-
in Ottó N. þorláksson og Karó-
línu Siemsen, sem áttu heima í
þessu húsi á mótunartíma ís-
lenskrar verkalýðshreyfingar.
Gjöf þessi er gefin í því skyni að
geta haldið á loft með þeim hætti,
sem M.F.A. kýs, minningu þess-
ara hjóna og virðingu fyrir for-
göngu þeirra í þágu verkalýðs-
samtakanna.“
Jafnframt lýstu ASÍ og MFA
því yfir við undirritun gjafabréfs-
ins að þau væru reiðubúin til að
setja upp í anddyri eða við inn-
gang í hús alþýðusamtakanna við
Grensásveg og Fellsmúla töflu
með eftirfarandi áletrun:
„Með gjöf sinni á húseigninni
nr. 29 við Vesturgötu í Reykjavík í
minningu um Ottó N. þorlálsson
og Karólínu Siemsen hefur þorkell
Valdimarsson stuðlað á rausnar-
legan hátt að því að Menningar og
fræðslusamband alþýðu hefur get-
að eignast húsnæði undir starf-
semi sína í þessu húsi.“
Hald lagt á
meint klámrit
RÍKISSAKSÓKNARI hefur sent
Rannsóknarlögreglu ríkisins bréf
og óskað eftir því að hald verði
lagt á tvö tiltekin rit, sem hann
telur að brjóti í bága við lög um
bann við útgáfu klámrita. Rit
þessi eru gefin út hér á íslandi og
hefur Rannsóknarlögregla ríkisins
gert ráðstafanir til þess að lagt
verði hald á öll eintök umræddra
rita í öllum verzlunum á landinu,
sem verzla með slík rit.
Góður
matur- strax
Tilbéiim til neyslii á staðnum,
eða á þínnm staá.
AHtir matnr innpafefcaður.
Kók, annað gos og shake
JNÝHt OG SPEMMAMDI
HAMBORGARAR
---“J» LÆKIAKTOCUSI
BQRGflRINN
a<YNnmAsiMXjR