Morgunblaðið - 15.06.1979, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ1979
Alexander Magnús-
sonKeflavík- minning
Fæddur 2. febrúar 1923.
Dáinn 7. júní 1979.
í dag er til grafar borinn frá
kirkju sinni í Keflavík vinur minn
Alexander Magnússon, skrifstofu-
maður, en hann lézt á heimili sínu
7. júní s.l.
Fæddur var Alexander að
Emmubergi á Skógarströnd 2. feb.
1923, sonur hjónanna Margrétar
Níelsdóttur og Magnúsar Björns-
sonar vélsmiðs, en til Keflavíkur
fluttist hann kornungur og þar
var heimili hans upp frá því.
Ungur hóf Alexander starfsdag
sinn. Samfara því leitaði hann sér
menntunar, var reyndar dag
hvern að afla sér fróðleiks og
þekkingar á hinum ýmsu sviðum
þjóðlífsins.
Þessa urðu samferðamenn hans
vel varir, enda var hann ávallt
reiðubúinn að miðla þeim af þekk-
ingu sinni með þeim góðvilja, sem
einkenndi framkomu hans alla.
Alexander Magnússon var mik-
ill Suðurnesjamaður og þó reynd-
ar fyrst og fremst Keflvíkingur.
Þar sleit hann barnsskónum og
þar varð starfsvettvangur hans.
Hann þekkti vel sitt heimafólk og
sína heimabyggð og vann sífellt að
því að greiða fram úr vandamál-
um, stórum og smáum.
Mér er það í fersku minni er ég
fyrst leitaði kjörfylgis til þingsetu
í Reykjaneskjördæmi, hve gott var
að leita til Alexanders. Hann
hafði þá um árabil verið í forystu-
liöi sjálfstæðismanna hinn ráð-
holli og úrræðagóði. Það var sama
hvort um var að ræða menn eða
málefni, hann var ætíð reiðubúinn
af drengskap sínum að leita lausn-
ar á hverju því vandamáli, sem að
höndum bar.
Sjálfstæðismenn í Reykjanes-
kjördæmi kveðja í dag einn af
sínum ötulustu félögum og þakka
honum ómetanleg störf.
Persónulega kveð ég vin minn
Alexander með þakklæti fyrir
vináttu og tryggð.
Við hjónin sendum eiginkonu
hans Ólafíu Haraldsdóttur og
fjölskyldu þeirra samúðarkveðjur
og biðjum Alexander Magnússyni
Guðs blessunar.
Matthías Á. Mathiesen.
Að morgni þess 8. júní barst sú
fregn um Suðurnesin að látist
hefði á heimili sínu í Keflavík,
Alexander Magnússon, skrifstofu-
maður.
Hann var sonur hjónanna Mar-
grétar Níelsdóttur og Magnúsar
Björnssonar, vélsmiðs í Keflavík.
Fæddur var Alexander að'
Emmubergi á Skógarströnd, en
fluttist kornungur, eða árið 1926
með foreldrum sínum og systkin-
um til Keflavíkur, þar sem hann
átti heima æ síöan. Hann lauk
námi í Verzlunarskóla Islands
árið 1943, og byggði upp sín
framtíðarstörf á þeirri menntun.
Ég hygg að flestum sé eins farið
og mér, að þegar sett skal á blað
endurminning um einhvern, sem
verið hefur manni náinn vinur og
starfsfélagi um áratuga skeið, þá
vefst manni tunga um tönn og þá
skortir mann rétt hugtök og lýs-
ingar, sem maður gjarnan vildi
yfir ráða, til þess að koma réttri
meiningu á framfæri.
Þegar jafn góður drengur og
Alexander var, fellur frá, þá er
skarð fyrir skildi, sem erfitt verð-
ur að fylla, jafnt hjá vinum og
vandamönnum, sem og starfs-
bræðrum.
Hann var í senn vel greindur og
hugljúfur persónuleiki, brosmild-
ur og stríðinn, og fann maður
gjarna í návist hans, hvernig
kætin kitlaði í honum, þegar sá
gállinn var á honum. En þegar
kom að umræðum um alvarleg
mál, var vart hægt að hugsa sér
dómbærari mann eða djúphyggn-
ari, en Alli var.
Sú breidd í störfum og reynslu,
sem hann hafði áunnið sér, sem
skrifstofumaður í gegnum árin,
var mikil.
Unnið við útgerð, frystiiðnað,
verzlun, vélsmiðjurekstur og al-
menna verktakastarfsemi. Hæfi-
leikar hans voru vel metnir og
sýndu sig bezt í öllum þeim
trúnaðarstörfum, sem á hann
hlóðust frá bæjarfélagi hans,
fyrirtækjum og þeim stjórnmála-
flokki, sem hann fylgdi frá unga
aldri, en þau væru of mörg upp að
telja í stuttri minningargrein.
Fyrstu kynni mín af Alexander,
voru þegar hann var skrifstofu-
maður hjá Sameinuðum verktök-
um og áfram þegar hann tók við
sem skrifstofustjóri hjá Vélsmiðju
Björns Magnússonar, en Björn var
bróðir hans. Nánari kynni mín af
honum urðu þegar hann gerðist
samstarfsmaður minn hjá Kefla-
víkurverktökum, fyrir tæpum ára-
tug síðan. Þá komst ég í persónu-
leg kynni við, hve frábær starfs-
kraftur hann var í bókhaldi og
yfirleitt í allri almennri skrif-
stofuvinnu. Þar var maður, sem
lét verkin tala, og aldrei var svo til
hans leitað með upplýsingar, að
þar yrði svarafátt, enda ekki
geymt til næsta dags, sem gera
þurfti í dag, þótt vinnudaginn
þyrfti að lengja til þess að skila
ávallt hreinu borði.
Árið 1948 gekk Alexander að
eiga eftirlifandi eiginkonu sína,
Ólafíu Haraldsdóttur, frá
Skeggjastöðum í Garði. Þau
byggðu fljótlega, þótt erfitt væri,
upp yndislegt heimili, og áttu
síðast og lengst af heimili að
Faxabraut 1 í Keflavík. Bar heim-
ili þeirra smekkvísi, gestrisni og
hlýju þeirra best vitni. Þeim varð
fimm barna auðið, sem öll komust
upp og eru gift, en þau eru: Eygló,
gift Ragnari Haukssyni, húsasmið
og búsett í Njarðvík, Gunnar,
fiskifræðingur, kvæntur Jenny
Wolfram og eru þau búsett í
Svíþjóð, Sæmundur, húsasmiður,
kvæntur Rut Þorsteinsdóttur og
eru þau búsett í Keflavík, Harald-
ur, símamaður, kvæntur Halldóru
Jónsdóttur, búsett í Keflavík og
Alma, gift Guðmundi Þór Ein-
arssyni, rafvirkja, búsett í Njarð-
vík. Barnabörn þeirra Lóu og Alla
voru orðin 7 talsins.
Hin síðari ár gekk Alexander
ekki heill til skógar og ágerðist
það með árunum, eins og títt er
um þann sjúkdóm, sem að lokum
leiddi þennan góða dreng yfir
landamærin, eftir of skamma dvöl
hjá okkur.
Alexander bar veikindi sín með
hugprýði, þótt hann vissi að
hverju stefndi, og studdi ástkær
eiginkona hans hann í þeim erfið-
leikum af sannri ást og umhyggju,
sem staðið hefur frá upphafi
kynningar þeirra.
Huggun okkar starfsfélaga hans
og vina, er að þeirra góða og mikla
barnalán komi til með að styðja
hana og styrkja í raunum hennar.
Við vottum fjölskyldunni
dýpstu samúð, og biðjum henni og
vini okkar Guðs blessunar.
Ingvar Jóhannsson, Njarðvík.
Mér verður „stílvopn stirt í
hendi" er kveðja skal örfáum
orðum góðvin og samherja um
langt árabil, nú þegar leiðir skilj-
ast um sinn, og er það þó eigi því
að kenna að fingur mínir eða hönd
kreppi, heldur er sem í huga minn
hafi hlaupið einhver vorkulda-
kyrkingur, sem eg á erfitt með að
losna við, þegar eg heyrði þau
harmatíðindi snemma kvölds hinn
7. þ.m., að Alexander Magnússon
hefði orðið bráðkvaddur að heimili
sínu þá fyrir stundu. Auðvitað
mátti þó búast við einmitt þessu,
hann hafði oftar en einu sinni
áður fengið aðkenningu þess sjúk-
dóms, sem nú lagði hann að velli,
langt um aldur fram, en Alexand-
er var aðeins 56 ára að aldri,
fæddur hinn 2. febrúar 1923.
Alexander ólst upp frá unga
aldri hér í Keflavík. Snemma varð
ljóst að hann var góðum gáfum
gæddur og braust hann til mennta
af litlum efnum og lauk námi frá
Verzlunarskóla íslands vorið 1943.
En á þeim árum var erfiðara fyrir
efnalitla unglinga að afla sér
menntunar en nú gerist.
Síðar stundaði hann margvísleg
skrifstofu- og framkvæmdastörf
hér, m.a. við útgerð og fiskverkun.
Um langt árabil starfaði hann hjá
Vélsmiðju B.M., en nú síðustu árin
hjá Keflavíkurverktökum á Kefla-
víkurflugvelli. Alexander var
óvenju hæfur skrifstofumaður,
meðferð talna og bókhald lék í
höndunum á honum og afköstin
með ólíkindum. Um þetta luku
allir sem til þekktu upp einum
munni.
Eftirlifandi eiginkona Alexand-
ers er Ólavía Haraldsdóttir frá
Skeggjastöðum í Garði. Þau eign-
uðust 5 börn, elskuleg og mann-
vænleg, sem öll eru nú komin til
fullorðinsára, Gunnar, Eygló,
Sæmund, Harald og Ölmu. Eru
þau öll farin úr foreldrahúsum og
hafa stofnað eigin heimili. Alex-
ander var góður heimilisfaðir og
studdi börn sín með ráðum og dáð
til sjálfsforræðis.
Alexander var mikill félags-
málamaður, starfaði af lífi og sál í
þeim félögum, sem hann helgaði
krafta sína. Hann var hispurslaus
og ákveðinn í skoðurtum. Hann
setti ljós sitt ekki undir mæliker,
en hélt skoðunum sínum fram af
einurð, aldrei með offorsi, en með
lagni og aðheldni kom hann oftar
eirekki áhugamálum sínum í höfn,
og eftir á leit gjarna svo út sem
hann hefði þar lítt nærri komið.
Aldrei átti þetta þó skylt við
undirferli, slíkt fannst ekki í huga
hans.
í félagsmálum lágu leiðir okkar
Alexanders saman, einkum í
tveimur óskyldum félagssamtök-
um. Annars vegar í Lions og hins
vegar í Sjálfstæðisflokknum í
Keflavík. í 23 ár störfuðum við
saman í Lionsklúbbi Keflavíkur,
eða allt frá stofnun klúbbsins. þar
var hann ávallt hinn trausti fé-
t
Eiginmaöur minn,
er látinn.
OLE OLSEN,
Þóra Gisladóttir.
t
Eiginmaöur minn,
SIGURÐUR ÓLASON,
veröur jarösunginn frá Landakirkju Vestmannaeyjum, laugar-
daginn 16. júní kl. 2 e.h.
F.h. barna, tengdabarna og barnabarna,
Ragnheiöur Jónsdóttir.
t
Systir okkar,
ELÍN MARGRÉT MAGNÚSDÓTTIR,
er lézt 7. júní veröur jarösungin frá ísafjaröarkirkju, laugardaginn
16. júní kl. 14.
Systkini.
t
Útför mannsins míns,
STEINDÓRS EMILS SIGURDSSONAR,
Suöurgötu 71, Akranesi,
sem lézt 9. júní, fer fram frá Akraneskirkju, laugardaginn 16. júní
kl. 15.
Fyrir hönd barna, tengdabarna, barnabarna og móöur hins látna,
Jóhanna Þorbjörnsdóttir.
t
Móöir okkar,
HERDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR,
frá Sauöhúsum í Dalasýslu,
verpur jarösungin frá Selfosskirkju laugardaginn 16. júní kl. 2 e.h.
Þeim sem vildu minnast hennar er vinsamelga bent á
Selfosskirkju.
Hugborg Benediktsdóttir,
Munda Friedel,
Egill Benediktsson.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
ALEXANDER MAGNÚSSON,
Faxabraut 1, Keflavík,
veröur jarösunginn frá Keflavíkurkirkju í dag, föstudaginn 15. júní
kl. 2 e.h.
Ólafía Haraldsdóttir,
Eygló Alexandersdóttir,
Gunnar Alexanderssoh,
Sœmundur Alexandersson,
Haraldur Alexandersson,
Alma Alexandersdóttir,
Ragnar Hauksson,
Jenný Wolfram,
Rut Þorsteinsdóttir,
Halldóra Jónsdóttir,
Guömundur Þórir Einarsson,
og barnabörn.
t
Útför eiginkonu minnar, móöur og tengdamóöur okkar,
SÓLVEIGAR JÓHANNSDÓTTUR,
Ásvallagötu 55,
fer fram föstudaginn, 15. júní kl. 13.30 frá Dómkirkjunni.
Guömundur Halldór Guðmundsson,
Óskar Guömundsson,
Friörik Guömundsson, Sigríöur Sígurjónsdóttir,
Guðmundur J. Guðmundsson Elín Torfadóttir,
Jóhann Guömundsson, Kristín Þorsteinsdóttir,
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför,
ÁSTU ÓLAFSSON SMITH,
Hulda Haraldsdóttir,
Grótar R. Haraldsson,
Ólafur H. Ólafsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og vinarhug viö andlát og
útför,
SIGURDAR ÁGÚSTSSONAR,
Reynimel 44.
Sérstakar þakkir sendum vio telagi Frímerkjasafnara.
Fyrir hönd vandamanna.
Ágúst Ingi Sigurösson.
f 414 # • « á *. • « * « a
"Va..*. 148-i'lfcáfej* Mák W,