Morgunblaðið - 15.06.1979, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.06.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1979 23 lagi, sem lagði einvörðungu gott til allra alvarlegri mála og tók líknarstarf og þjónustuhugsjón Lions með þeirri alvöru sem var við hæfi. Hins vegar var hann manna léttmálastur á gleðifund- um, orðheppinn og skemmtilegur. Hann sótti fundi afburða vel og lét sig aldrei vanta þegar félagar voru kvaddir til starfa. í landsmálum hafði Alexander óhvikula stefnu. Hann studdi Sjálfstæðisflokkinn að málum og starfaði fyrir hann alla tíð og lá ekki á liði sínu. Hann gegndi trúnaðarstörfum fyrir flokkinnn á landsvísu, en einkum voru það þó stjórnmálin í heimabyggðinni, sem hann lét til sín taka, og allar götur frá því eg fór að hafa afskipti af þeim málum fyrir 25 árum síðan, hafa leiðir okkar Alexanders verið margsamtvinn- aðar á því sviði. Þær eru ófáar nefndirnar, sem Alexander valdist til starfa í á vegum bæjarins, eg nefni m.a. skattanefnd, stjórn S.B.K., stjórn sjúkrasamlagsins, rafveitunefnd og skipulagsnefnd, en hann var einmitt formaður þeirrar nefndar nú er hann lést. Öll einkenndust hin margþættu nefndarstörf hans af hleypidóma- lausri rökhyggju og af þeim ásetn- ingi hans að vinna bæjarfélaginu sem allra mest gagn. En starf hans fyrir flokkinn var þó ekki síst bundið því fjölþætta skipu- lagsstarfi, sem kosningaundirbún- ingur útheimtir hverju sinni. Þáttur Alexanders í þeim fjöl- mörgu kosningaátökum verður seint fullmetinn og ekki gerð tilraun til þess að rekja hér, en þar komu hæfileikar hans, einkum hin ríka skipulagsgáfa, einna best fram, og varð að hvað mestum notum. A slíkum annatímum var Alexander verulega í essinu sínu. Hann var ákafastur allra í barátt- unni. Að leikslokum tók hann sigri ljúfmannlega, en brá sér hvergi við ósigur. Mér blandast ekki hugur um það, að Alexander hafi staðið opin leið til mikilla áhrifa og fremstu metorða, og þangað hefði hann átt fullt erindi, slíkum hæfileikum sem hann var búinn frá hendi skapara síns, en eg hygg að hann hafi skort þá nauðsynlegu frama- girnd sem til þarf í harðri sam- keppni nútíma þjóðfélagsins. Eg býst þó við, að allir sem þekktu hann geti verið mér sam- mála um það, að hvað svo sem leið öðrum ágætum kostum hans, þá hafi sá ekki verið hvað sístur, hversu góður drengur, í þess orðs bestu meiningu, hann var. Mér vitanlega gerði hann aldrei vísvit- andi öðrum mein, eða lagði illt af ódrengskap til nokkurs manns. Hann var einkar góður börnum og smælingjum, en í mínum huga sker það hvað helst úr um hvern mann fólk hefur að geyma. Fjölskylda mín fékk að reyna allar bestu hliðar Alexanders, og fyrir það þökkum við að leiðarlok- um. Við söknum góðs drengs og vinar. Við færum eiginkonu hans, börnum og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðj- ur, með fullri vissu um að einungis björtustu minningarnar um svo ágætan dreng munu lifa og aldrei blikna. T.T. / fatgjaldafrumskóginum Lög og alþjóölegar reglur um flugfargjöld Það er ekki óeðlilegt þótt mörgum gangi eru flókin, svo flókin að oft er talað um illa að rata - en það kemur ekki að sök. ,,fargjaidafrumskóginn“. Þess vegna lítum Allir sem hyggja á ferð með okkur við á umboðsmenn okkar og starfsfólk á fá örugga leiðsögn. söluskrifstofum, sem leiðsögumenn íþeim Þeir láta í té nauðsynlegar upplýsingar um skógi. Það er margt sem hefur áhrif á endanlegt fargjald s. s. lega ákvörðunarstaðar- lengd ferðar, fjöldi þeirra er ferðast saman - aldur þeirra - hvernig gist er og fleira og fleira. ferðatilhögun - og leiðsögumaðurinn um fargjaldafrumskóginn finnur hagkvæmustu leiðina og lægsta mögulega fargjaldið - og ekki bara það hann pantar líka hótel og bílaleigubíla, svo eitthvað sé nefnt. STARFSFÓLK OKKAR VEITIR FARSÆLA OG ÖRUGGA LEIÐSÖGN ALLA LEIÐ. FLUGLEiÐIR Skáldverk Kristmanns Guömundssonar Brúöarkyrtillinn Morgunn lífsins Arfur kynslóöanna Ármann og Vildís Ströndin blá Fjalliö helga Góugróöur Nátttrölliö glottir Gyöjan og nautiö Þokan rauöa Safn smásagna Kristmann Guömundsson Elnn af víölesnustu höfundum landslns. NokKrar af bókum hans hafa verlð þýddar aö minnsta kostl á 36 tungumál. Atmenna ooKaietagio, Austurstræti 18, Skemmuvegur 36, •fmi 19707 •fmi 73055

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.